Morgunblaðið - 03.01.1990, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
Vegagerð ríkisins:
Hafiiarfj ar ðarvegur
rofínn á Amameshæð
HAFNARFJARÐARVEGUR hefiir verið rofinn á Amarneshæð í
Garðabæ vegna framkvæmda Vegagerðar ríkisins. Lagðar verða
nýjar akbrautir yfir hæðina, byggð brú fyrir umferð um Arnarnes-
veg, Kópavogslækur brúaður og undirgöng gerð við Fífuhvamms-
veg.
Vegna framkvæmdanna verða
íbúar Amarness og Garðabæjar
að leggja lykkju á leið sína. Fyrir
íbúa Arnames's hafa verið gerðar
U-beygjur inn á Hafnarfjarðarveg
norðan Arnameslækjar og önnur
nálægt bæjarmörkum Kópavogs.
Þá er Garðbæingum bent á að
nýta sér í auknum mæli Reykja-
nesbrautina á leið sinni til og frá
Garðabæ.
Nauðsynlegt er að fella niður
eina biðstöð Landleiða austan veg-
ar á Arnameshæð og vagninn sem
ekur milli Garðabæjar og
Reykjavíkur mun ekki geta ekið
út á Arnames á leið til Reykjavík-
ur. Innanbæjarvagninn í Garðabæ
mun aka út á Arnarnes eins og
verið hefur.
David Tutt píanóleikari.
Christian Giger sellóleikari.
Dúótónleikar haldnir
í Listasaftii Sigurjóns
DÚÓTÓNLEIKAR verða haldnir
i Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
næstkomandi fímmtudagskvöld.
Eru það fyrstu tónleikar ársins
á vegum safiisins. Christian Gig-
er sellóleikari og David Tutt
píanóleikari flytóa sónötur fyrir
selló og píanó eftir Debussy og
Rachmaninoff.
Svissneski sellóleikarinn Christ-
ian Giger er nemandi hjá prófessor
Boris Pergamenschikow í Hoch-
schule fúr Musik í Köln 0% hefur
auk þess numið kammertónlist hjá
Amadeus-kvartettinum.
David Tutt, sem er búsettur í
Sviss, stundaði nám í heimalandi
sínu, Kanada, og hjá prófessor
Gyorgy Sebok í háskólanum í Indi-
ana í Bandaríkjunum. Hann hefur
víða komið fram sem einleikari
bæði austanhafs og vestan.
Þeir félagar David og Christian
hafa áður leikið á íslandi og komu
meðal annars fram á tónleikum í
Norræna húsinu haustið 1988 á
vegum Háskólatónleika.
Tónleikamir í Listasafni Sigurr
jóns hefjast klukkan 20.30 og munu
standa í um það bil klukkustund.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Eldsneyti sett á Boeing 737-200 þotuna sem Arnarflug hefur tekið á leigu frá Svíþjóð. Þotan var
enn merkt flugfélagi Perú þegar hún kom úr sinni fyrstu ferð fyrir Arnarflug í gær.
Breytingar á yfirsljórn Arnarflugs:
Gunnar Þorvaldsson tekur
við daglegum rekstri á ný
Kristinn Sigtryggsson „hugsar um framtíðina“
GUNNAR Þorvaldsson, flugstjóri og fyrrum framkvæmdastjóri
Arnarflugs hf., hefiir verið skipaður formaður þriggja manna
framkvæmdastjórnar hjá Amarflugi. „Gunnar mun taka við dag-
legum rekstri fyrirtækisins í þijá mánuði, en ég mun hugsa um
framtíðina," sagði Kristinn Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Arn-
arflugs hf., sem mun einbeita sér að sérstökum verkefnum í
tengslum við fjárhagsvanda félagsins, endurfjármögnun þess og
framtíðarskipulags.
Með Gunnari í daglegri fram-
kvæmdastjórn verða Magnús
Bjarnason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri og Magnús Odds-
son, svæðisstjóri. Vegna þeirra
rekstrarerfiðleika sem Arnarflug
hf. hefur átt við að glíma undan-
farið, var ákveðið að gera tíma-
bundnar breytingar á yfirstjóm
fyrirtækisins, segir í fréttatil-
kynningu frá Arnarflugi.
Ennfremur hefur sú breyting
verið gerð á stjóm flugrekstrar-
deildar að Þorsteinn Þorsteinsson
mun láta af störfum og Krist-
mundur Magnússon, flugstjóri,
mun taka við flugrekstrarþættin-
um.
Boeing 737-200-flugvélin, sem
Arnarflug hefur fengið leigða frá
Transwede í Svíþjóð, fór sína
fyrstu ferð til Amsterdam í gær-
morgun. Vél Arnarflugs, sem var
stöðvuð á dögunum, fer í skoðun
fljótlega og þá væntanlega til
Bretlands.
Amarflug og írskt fyrirtæki,
hafa gert sameiginlegt tilboð í
þotu ríkissjóðs og ræddu Arnar-
f lugsmenn við menn frá fjármála-
ráðuneytinu um helgina. „Verð-
tilboð okkar er hærra en áður.
Ég get ekki sagt nánar um það
tilboð eins og málin standa, en
ég er bjartsýnn á að því verður
tekið,“ sagði Kristinn Sigtryggs-
Annríki hjá ríkisskattstjóra vegna virðisaukaskattsins:
3-5% hækkun byggingarkostn-
aðar umfram byggingarvísitölu
- segir Pálmi Kristinsson, framkvæmdastjóri Verktakasambandsins
'O
MIKIÐ annríki var hjá virðisaukaskattsdeild ríkisskattstjóra í gær
vegna upptöku virðisaukaskatts í stað söluskatts um áramót, að sögn
Jóns Guðmundssonar, deildarstjóra. Einkum voru það fyrirspurnir
um ýmis álitamál vegna undanþágna frá skattinum, sem fólk var
að velta fyrir sér. Virðisaukaskatturinn verður 24,5% og kemur í
stað 25% söluskatts. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu Islands er
gert ráð fyrir að vegna breytingarinnar lækki framfærsluvísitalan
um 0,5-1,0%, en byggingarvísitalan hækki um 1-2%.
INNLENT
Strand Hofsjökuls:
Sjópróf á
fÓstudag’
Sjópróf vegna strands Hofs-
jökuls á Tálknafirði fara
fram í Reylqavík á föstu-
daginn kemur.
Rifa kom á stefni Hofsjö-
kuls er skipið strandaði í inn-
siglingunni við Tálknafjarðar-
höfn 27. desember.
Jón sagði að mikið væri hringt og
þeir reyndu að leysa úr spumingum
fólks eins og kostur væri, en kerfið
hefði verið kynnt á mörgum kynning-
arfundum að undanfömu, auk þess
hefði deildin verið með upplýsing-
asíma frá því í september. í dag færi
í dreifingu leiðbeiningarbæklingur
um kerfið og síðan væri einnig sér-
stakt færsluhefti, sem væri ætlað
einyrkjum og aðilum sem ekki væru
bókhaldsskyldir. Auk þess væm eitt-
hvað um 15 reglugerðir komnar út
vegna virðisaukskattsins, sem gætu
verið mönnum til leiðbeiningar.
Helstu breytingamar varðandi þá
vöm og þjónustu sem ber virðisauka-
skatt en var áður undanþegin sölu-
skatti, sagði Jón, vera að vinna á
byggingarstað yrði nú skattskyld, en
skatturinn yrði endurgreiddur til
þeirra sem væm að byggja íbúðar-
húsnæði og skatturinn ætti því ekki
að hafa áhrif til hækkunar þar.
Byggingarkostnaður atvinnuhús-
næðis hækkaði sem skattinum næmi,
en rekstraraðilar sem greiddu virðis-
aukskatt gætu dregið hann frá. Þetta
hefði því ekki áhrif hjá þeim til hækk-
unar, en hjá bönkum og tryggingar-
félögum til dæmis sem ekki væm
skattskyld og gætu ekki dregið hann
frá ylli þetta hækkun sem þessi fyrir-
tæki þyrftu að bera.
Þá yrði vömf lutningar skattskyld-
ir en þeir hefðu ekki verið það. Sama
gilti um þá að virðisaukaskattskyldir
aðilar gætu dregið hann frá. Hins
vegar hækkuðu flutningar einstakl-
inga sem skattinum næmi, t.a.m.
flutningur búslóðar með sendibíl.
Skattprósentan hjá sérfræðingum,
svo sem arkitektum og verkfræðing-
um, hækkar úr 12% í 24,5%, en þjón-
usta þeirra bar 12% söluskatt. Þá
em bændur og aðilar í útgerð og
fiskvinnslu nýir aðilar í þessu kerfi
vegna þess að virðisaukaskatturinn
er innheimtur á öllum stigum við-
skipta. Jón sagði að ein af forsendum
fyrir virðisaukaskattinum væri sá
kostur sem hann hefði umfram sölu-
skattinn að hann hefði ekki uppsöfn-
unaráhrif í för með sér vegna þess
að skattur á öllum aðföngum í at-
vinnurekstri fengist endurgreiddur.
Milli jóla og nýárs var gefin út
reglugerð um niðurgreiðslu á ný-
mjólk, dilkakjöti, fiski og íslensku
grænmeti, þannig að virðisauka-
skattsprósentan verði í raun sem
nemur 14%. Hjá Jóhannesi Gunnars-
syni á Verðlagsstofnun fengust þær
upplýsingar að l lítri af mjólk í pökk-
um, eins og seld er í búðum á suð-
vesturhorninu lækki úr 71,70 í 65,40
krónur og mjólk í fernum sem er í
verslunum annars staðar lækkar úr
72,40 kr. í 66 krónur. Léttmjólk
lækkar jafnmikið og undanrenna
lækkar úr 48,60 í 44,30 krónur.
Skyr, smjör og ostur lækkar hins
vegar um sem nemur lækkun skatt-
prósentunnar úr 25% í 24,5%. Verð
á kjöti í 2. verðflokki lækkar úr
462,30 krónum í 422 krónur, en eft-
ir því sem kjötið er meira unnið veg-
ur niðurgreiðslan minna vegna þess
að virðisaukaskattur kemur á vinnu
við vinnslu kjötsins og pökkun. Fisk-
ur og innlent grænmeti eiga að lækka
einnig sem nemur endurgreiðslunum
á skattinum eða um 7-9%, en verð-
lagning þessarar vöru er fijáls.
Þá á líkamsrækt að verða ódýrari
þar sem hún er undanþegin virðis-
aukaskatti en var söluskattsskyld.
Bensín lækkar úr 49,90 í 49,20 krón-
ur lítrinn og gasolíulítrinn hækkar
úr 17,30 krónur í 22,50. „Verðlags-
stofnun hvetur almenning til að vera
mjög á verði og styðja þá viðleitni
verðlagsyfirvalda að reyna að
tryggja að þessi breyting gangi eðli-
lega fyrir sig með virku eftirliti. Það
er fátt sem getur komið í stað virks
eftirlits almennings að maður tali
ekki um þegar jafn miklar breytingar
eiga sér stað eins og núna,“ sagði
Jóhannes.
Áfengi og tóbak lækka um 0,4%
vegna lækkunar skatthlutfallsins.
Þannig lækkar flaska af íslensku
brennvíni um tíu krónur úr 1.500
krónum í 1.490 og flaska af algengu
koníaki lækkar um 20 krónur. Pakki
af algengum amerískum sígarettum
lækkar um eina krónu úr 199 í 198
krónur.
Guðjón Oddsson, formaður Kaup-
mannasamtakanna, sagði að kaup-
menn væru nú vanir söluskatti og
hrykkju því ekki í kút við virðisauka-
skattinn. Það væri margt gott um
hann að segja, enda hefðu kaupmenn
hvatt til þess að hann yrði tekinn
upp, en hann væri auðvitað alltof
hár og slæmt væri ef hann yrði eyði-