Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐ.VIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
25
Virðisauki á utan-
landssímtöl:
Mínútan til
Bandaríkj-
anna kostar
128,50 kr.
lagður með alltof miklum undanþág-
um. Þeim yrði að halda í algjöni lág-
marki.
Aðspurður sagði Guðjón að kaup-
menn myndi ekki endurverðleggja
vörur á lager vegna 0,5% lægri skatt-
prósentu. Það borgaði sig ekki ef
breytingin væri innan við 1% og
kaupmenn hefðu ekki hækkað vörur
þegar skattar hefðu verið hækkaðir
um það. Þetta yrði að koma fram í
verðlagningu á nýjum vörum í versl-
unum.
Pálmi Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Verktakasambandsins, sagði
að mikið væri búið að fjalla um virð-
isaukaskattinn í fyrirtækjunum og
innan samtakanna og það væri tals-
verður ótti ríkjandi um að fram-
kvæmdin yrði erfið í byggingastarf-
seminni. Það hefði legið fyrir alveg
frá því í haust þegar stjórnvöld hefðu
ekki orðið við áskorunum samtaka
atvinnurekenda í byggingariðnaði
um að breyta lögum og reglugerðum
varðandi framkvæmd skattsins í
byggingariðnaði. FYamkvæmdin væri
mjög f lókin og það væri ljóst að það
tæki einhverja mánuði fyrir fyrirtæk-
in að átta sig á breytingunum, eink-
um hvað varðaði þau fyrirtæki sem
byggðu á eigin kostnað og seldu
síðan, en minnihluti starfsemi fyrir-
tækja innan sambandsins væri fólgin
í því. Það hefði ekki verið fyrr en
11. desember að reglugerðir komu
út um þetta og þá hefði verið hægt
að fara að kynna kerfisbreytinguna
fyrir alvöru. Það væri viðbúið að
fleiri kynningarfundi þyrfti á næst-
unni, því spurningar vöknuðu í raun
ekki fyrr en á reyndi.
Pálmi sagði að n\jög erfitt væri
að segja um áhrif skattkerfisbreyt-
ingarinnar á verðlag. Áhrif in á bygg-
ingarkostnað maddan samkvæmt
byggingarvísitölu væru hverfandi
lítil vegna endurgreiðslu stjórnvalda.
Hins vegar væri mjög erfitt að segja
um raunveruleg áhrif á byggingar-
kostnað. Það væri fyrst og fremst
vegna þess að mjög erfitt væri að
skilgreina hversu víðtækur sölu-
skatturinn hefði verið í fyrra kerf-
inu. Það væri hans mat og fleiri að
áhrifin á byggingarkostnað væru
kannski 3-5% umfram það sem
mælist í byggingarvísitölu. Engar
undanþágur væru frá virðisauka-
skatti, en þær hefðu verið talsverðar
frá söluskattinum og verulegt mis-
ræmi hefði verið á milli þess hversu
víðtækt hann hefði verið skilgreindur
af stjórnvöldum og svo fyrirtækjun-
um.
Morgunblaðið/Þorkell
Forráðamenn Flugleiða, Samvinnuferða - Landsýn og sjö launþega-
samtaka undirrita samning um 4.500 farmiða í orlofsferðir næsta
sumar.
Samvinnuferðir - Landsýn:
Samið um 4.500 flugsæti
fyrir sjö launþegasamtök
GJALDSKRÁ. utanlandsþjónustu
Pósts og síma hækkaði um 15,8%
um áramótin vegna innheimtu
virðisaukaskatts af fjarskipta-
þjónustu við útlönd. Mínútujald
fyrir símtal til Bandaríkjanna
hækkar úr 111 krónum í 128,50
krónur. Samsvarandi gjald til
Bretlands hækkar úr 73 krónum
í 84,50 krónur og til Danmerkur
úr 60 krónum í 69,50 krónur.
í athugun er hjá Pósti og síma
hvort unnt sé að veita afslátt af
símtölum til útlanda á kvöldin, að
sögn Guðmundar Björnssonar, fjár-
málastjóra Pósts og síma. Hann
sagði að vandkvæðum sé bundið
að lækka gjaldskrá utanlandsþjón-
ustunnar vegna þess að hlutur Pósts
og síma í símtölum á móti viðkom-
andi símayfirvöldum er mismun-
andi hár.
UNDIRRITAÐ hefúr verið sam-
komulag um 4.500 flugsæti í or-
lofsferðir sumarið 1990 milli Flug-
leiða og Samvinnuferða - Land-
sýn fyrir hönd sjö launþegasam-
taka. Aðild að samkomulaginu
eiga BSRB; ASÍ, VR, KÍ, BHMR,
FFSÍ og BI.
Að sögn Helga Jóhannessonar for-
stjóra Samvinnuferða - Landsýn, er
heildarupphæð samningsins á bilinu
80 til 90 milijónir króna og er þetta
stærsti samningur, sem gerður hefur
verið um orlofsferðir til þessa. Boðið
verður upp á ferðir til Norðurlanda
og Mið- Evrópu og verður innifalið
í verðinu gisting, dvöl í sumarhúsum
og bílaleigubíll. Sagði Helgi að á
næstunni færi fram kynning á ferð-
atilhögun innan hvers félags en end-
anlegt'' verð farmiða hefur enn ekki
verið ákveðið.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Fóru á ferðina til að
ná sér í ódýrt áfengi
Húsavík.
Aramótafagnaður og jólagleðin á Húsavík fór fram með hefð-
bundnum hætti, friðsamlega og án óhappa í hagstæðasta veðri.
Kirkjusókn um hátíðirnar var góð.
Kvenfélagið stóð fyrir barna- hlaða bálkesti. Það getur ekki tal-
balli næstsíðasta dag ársins og svo
dönsuðu þeir eldri út árið á gaml-
árskvöld og inn i hið nýja ár með
mikilli gleði í Félagsheimilinu á
nýársnótt.
Á nýársdagsmorgun sáust fáir
á ferli þrátt fyrir veðurblíðu. Tvær
litlar brennur voru á gamlársdag.
Ungmennin virðast hafa dvínandi
áhuga fyrir að safna í brennu og
ist góð þróun að hafa ekki áhuga
og ánægju að leggja eitthvað á
sig ef ekki er fyrir það greitt í
peningum.
Afkoma manna á árinu mun
mega teljast góð, ekki síst ef mið-
að er við það að til kaupa á flug-
eldum áttu Húsvíkingar eftir um
eina milljón króna.
- Fréttaritari.
PILTARNIR íjórir sem voru handteknir í fríhöfninni í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar fyrir áramót hafa viðurkennt að hafa stolið brottfararspjöld-
unum frá Flugleiðum. Þeir höfðu farið tvisvar sinnum áður inn í fríhöfii-
ina, áður en þeir voru handteknir.
Fyrst fóru þeir í vettvangskönnun.
Þá fengu þeir sér drykk á barnum
og könnuðu útgönguleiðir. Næst fóru
þeir til að versla ódýrt áfengi og
tóbak og komust með varninginn í
gegnum hhðardyr. Upp komst um
þá í þriðju ferðinni, er þeir fóru í hóp
erlendra farþega á leið til Sviss. í
þeim hópi áttu ekki Islendingar að
vera og vakti það grunsemd tolt-
varða. Þrír piltanna voru handteknir
í frihöfninni, en einn var gripinn á
flótta, eftir að hafa komist út um
hliðardyrnar.
Það er nú búið að fyrirbyggja að
þessi leikut' verði leikinn aftur í Flug-
stöðinni, en öll brottfararspjöld fara
í gegnum tölvu og fá farþegar spjöld-
in þegar þeir skrá sig til brottferðar.
♦O
5. janúar
Veröld þakkai' viðskiptavinum sínum og velunnurum frábærar
móttökur á afstöðnu ferðaári og býður ferðaþyrstum listunnendum
á glæsilegan nýársfagnað á Hótel íslandi þann 5. janúai’, fylltan
dansi, söng, gleði, gríni og glensi ásamt glæsilegri veislumáltíð
að suðrænum hætti.
ÚR DAGSKRÁ NÝÁRSFAGANAÐAR
Húsið opnað kl. 19.00. ARGENTÍSKUR TANGO - suður-
Glæsileg dans- og tískusýning frá Mod- amerísk stemmning í kjölfai' Veraldar-
el ’79 og Dansstúdíói Sóleyjai'. re'su ' hi Suður Ameríku.
Ómar Ragnars, Hemmi Gunn og Hauk- Spánskur gítarleikur á heimsmælikvarða
ur Heiðar rifja upp sumar á Spáni 1989. ~ Pétur Jónasson.
Glæsilegt ferðahappdrætti. EHNSÖNGUR — Sigrún H,iálmtýsdóttir,
MYNDASÝNING - stemmningar frá “ Onnu Guðnýju Guðmundsdóttur.
síðasta sumri. Foremekkui' að feiðaúivali
næsta sumars.
FEBilMlflSlfifllN Veislustjóri: Hermann Gunnai'sson.
Veðurblíða í ísafjarðardjúpi um áramót:
Draumkeimdur unaður
gagntók hug’a fólksins
Kirkjubæ.
VEÐURBLÍÐAN hér í ísafjarðardjúpi var með eindæmum á
gamlársdag, stillilogn og átta stiga hiti. Hér í ísafjarðarbæ var
um níuleytið kveikt í tveimur stórum áramótabrennum í þessu
mikla blíðuveðri, þar sem fjöldi fólks var samankominn í kvöld-
kyrrðinni.
Blys og sólir blossuðu um him-
inhvolfið og lýstu sem mildur
vorboði fjörðinn milli fjallanna.
Blikandi ljósadýrðin speglaðist
svo í blankandi logninu hér í firð-
inum að draumkenndur unaður
gagntók huga fólksins, og þá
ekki síður barnanna, sem á
slíkum stundum ljóma af fegurð
og gleði.
Hinn glæsilegi togarafloti ís-
firðinga lá allur ljósum skreyttur
stafna á milli hér í höfn um hátí-
ðirnar, og það er ekki oftalað
að þar í fremsta flokki fljóti þau
fögru fley, sem í öllu sinu veldi
að landi bera þann gullna munað
sem undirstaða er til allrar þeirr-
ar velsældar og hamingju sem
hér í bæ ríkir. Og nú í blíðu
nýja ársins á öðrum degi þess
leystu landfestar sínar með vel
hvíldum áhöfnum út á hið breiða
haf til áframhaldandi gulleitar í
þann gula.
Jens í Kaldalóni
Matseðill
kvöldsins
Fordrykkur Al-A ndalus
Kon ungleg spœnsk siípa
meö ostabrauði
Grilluö grisakótiletta
að hœtti andalusiskara
aöalsmanna
Verð aðeins kr.
2.500,-
fyrir manninn.
Aðgangseyrir og
kvöldverður.
Borðapantanir og
miðasala á Hótel
íslandi kl. 9.00-17.00
alla daga í síma
687111.
á Hótel Islandí