Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 35

Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990 35 Slökkviliðs- stjórar heiðraðir Brunamálastofnun ríkisins heiðraði fjóra slökkviliðsstjóra við athöfn sem fram fór þann 29. desember siðastliðinn. Er þetta í fyrsta skipti sem stofnunin heiðr- ar slökkviliðsstjóra. Slökkviliðs- stjórarnir eru: Guðmundur Guðmundsson, slökkviliðsstjóri, fæddist 13. nóv- ember 1919. Hann var starfandi sem slökkviliðsstjóri á Reykjavíkur- flugvelli frá árinu 1947-1989 eða samtals 42 ár. Guðmundur bytjaði sem varamaður í slökkviliðinu 18 ára gamall og var varamaður í tvö ár, en síðan fastur starfsmaður upp frá því. Bjarni Eyvindsson, slökkviliðs- stjóri, fæddist 3. maí 1920. Hann var slökkviliðsstjóri í Hveragerði frá 1965-1989 eða samtals 25 ár. Bjarni var í slökkviliðinu frá byrjun þess (stofnað 1951). Guðjón Jónsson, slökkviliðsstjóri, fæddist 19. september 1929. Hann var slökkviliðsstjóri á Suðureyri frá 1971-1989, samtals 19 ár. Jón Kristinsson, slökkviliðsstjóri, fæddist 4. maí 1912. Hann var slökkviliðsstjóri á Stokkseyri frá 1973-1987 eða í samtals 14 ár. Jón var varaslökkviliðsstjóri frá 1964- 1973. Norræni menningarsjóðurinn: Sinfóníu- v hljómsveitin fékk um 3 milljónir kr. ÚTHLUTAÐ var úr norræna menningarsjóðnum í lok des- ember samtals 4.018.000 dönskum krónum, um 37,2 milljónum íslenskra króna, til menningarstarfeemi 40 aðila á Norðurlöndum. Með- al styrkþega voru Sinfóníu- hljómsveit íslands sem fékk 150.000 d. kr. til tónleika- ferðar í Finnlandi. Sinfóníuhljómsveit íslands hafði fyrr á árinu fengið sömu upphæð í styrk þannig að sam- tals nemur styrkveitingin tæp- um þremur milljónum íslenskra króna. Jazzvakningu var úthlutað 90.000 d. kr. til þáttöku í norr- ænum jassútvarpsdögum og Æskulýðs- og tómstundaráði Reykjavíkur 50.000 d. kr. til þáttöku í ráðstefnu um menn- ingu unglinga á Norðurlönd- um. Stærsti styrkurinn, 400.000 d. kr., rann til George Pompidou-miðstöðvarinnar í París en þar er ráðgert að efna til kynningar á sögu norrænna kvikmynda auk þess sem sett verður upp sýning og gefin út bók um norrænar kvikmyndir. Þá hlaut Miðstöð fyrir rann- sóknir í Norður-Atlantshafi, sem starfar í tengslum við háskólann í Árósum, 50 d. kr. til ráðstefnuhalds um „Hval- veiðiþjóðir í Norður-Atlants- hafi“. Eiður Guðnason, sem sæti á í Norræna menningarsjóðnum, sagði að umsóknir um styrki séu ævinlega miklu fleiri en unnt sé að veita. Sjóðurinn hafði í ár á milli 11-12 milljón- ir d. kr. til ráðstöfunar og er úthlutað úr honum fjórum sinnum á ári. Framlög til sjóðs- ins eru ákveðin í fjárlögum Norðurlandaráðs. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Frá vinstri: Jón Kristinsson, Guðmundur Guðmundsson, Bergsveinn Gissurarson, brunamálastjóri, Bjarni Ey vindsson og Guðjón Jónsson. NAMSAÐSTOÐ viðþásemviíjaná (erujraískóta • grunnskóla • framhaldsskóla • háskóla Við bjóðum einnig: • fullorðinsfræðslu • námsráðgjöf • flestar námsgreinar • stutt námskeið - misserisnámskeið • litlir hópar - einkakennsla • reyndir kennarar Innritun í síma: 79233 kl. 14.30-18.30 Nemendaþjórcustan s/. Þangbakka 10, Mjódd. STAÐGREÐSLA 1990 SKATTHLUTFALL OG PERSÓNUAFSLÁTTUR ÁRÐ1990 Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiðanda ber hins vegar að nota ofangreint skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar við útreikning staðgreiðslu. Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttar sem fram kemur á skattkorti hans. rIkisskattstjóri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.