Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
41
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nú verður í fyrsta sinn hægt að skoða stóra bíla, vörubíla og rútur,
á viðunandi hátt hér í skoðunarstöðinni á Hesthálsi.
ÍSWNUS HK
4lPil
Æ M
Ástand undirvagnsins kannað á einni fólksbilabrautinni. Slangan á
púströrinu fylgir bílnum þar til honum er ekið af lyftunni og út. Þá
fer slangan sjálfkrafa til baka.
A
Ný skoðunarstöð Bifreiðaskoðunar Islands í Reykjavík;
Tæknivædd skoðun eft-
ir samræmdum reglum
BIFREIÐASKOÐUN íslands hf. hefiir starfsemi í nýju húsnæði í
dag þegar hin nýja skoðunarstöð félagsins í Reykjavík verður að
fullu tekin í notkun. Skoðunarstöðin var vígð þann 28. desember
síðastliðinn og embættisbilireið forseta íslands skoðuð við þá at-
höfh, fyrsta bifreiðin sem þar er skoðuð. Mikil breyting verður á
bifreiðaskoðun hérlendis með þeirri aðstöðu og þeim aðferðum sem
nú hafa orðið að veruleika.
Priðja tíigiö er hemlatítoðun með r*'*
tífrtíókum búnadi sem fram ler á
annarri braul. Hemlor cru pró/aðir að
franian og aflan. Sami skoðunarmaður
“'ir bilnum allan hringinn og gengur
' Pegar bilnum hefur verið ektð inn á
skoðunarbrautina ter fram ytri skoðun.
(jós eru athueuð, célamúmer borið
saman við skrdninganMrteini oA
Skmgo er lcngd l ið útbldstursrðrið ft/_-
að utiloko ólofl og um leið fet fram
Kartí er bfttinn shoðaður á b ftu,
undirvagn athugaður, hjólobúnaður og 'ý
tgur skoðaður ogerma \. \
lil þess sérslakur hnstari „ \
------Jur gctur fylgst með störfum \\ \
skoðunarmonns A
Tæknivædd skoðun
innandyra
Nýja skoðunarstöðin er staðsett
á Hesthálsi 6-8 í Reykjavík í nýju
húsi, sem sérstaklega var gert fyr-
ir þessa starfsemi. í austurenda
byggingarinnar eru skrifstofur og
afgreiðsla viðskiptavina. í vestur-
endanum fer sjálf skoðunin fram.
Þar er hægt að skoða samtímis sex
minni bíla og einn stóran, vörubíl
eða rútu.
í afgreiðslunni, fá viðskiptavinir
afgreiðslunúmer. Síðan bíða þeir í
bílum sínum þar til númer þeirra
birtist á ljósatöflu yfir einhveijum
dyrum stöðvarinnar. Þá aka þeir
inn um þær dyr og skoðun hefst.
Mengunarmæling
Byijað er á að setja sogslöngu
upp á púströr bílsins, þannig að
hægt er að hafa hann í jjangi inn-
an dyra allan tímann. Utblásturs-
loftið er sogað út úr húsinu um
slönguna, en hún hefur einnig ann-
að hlutverk. í henni eru nemar
fyrir mælitæki, sem mæla efna-
samsetningu útblástursloftsins.
Þannig er mælt hvort mengun frá
bílnum er innan þeirra marka sem
reglur segja til um. Þess vegna er
einnig mikilvægt, að á meðan beð-
ið er eftir afgreiðslu utan dyra, sé
bíllinn hafður í gangi, þar sem
mengunarmælingin er ekki mark-
tæk nema vél bílsins sé heit.
Skoðunarmaður kannar þarna
ástand bílsins hið ytra og ber einn-
ig saman framleiðslunúmerin, eins
og þau eru í skráningarskírteini
og á vél og yfirbyggingu bílsins.
Því næst eru ljósin skoðuð og er
hægt að framkvæma minni háttar
stiliingar á staðnum, ef þörf kref-
ur.
Hnykkir og hemlaprófanir
Að ljósaskoðun lokinni er bíllinn
færður á lyftu þar sem undirvagn-
inn er kannaður. Á lyftunni er
búnaður til að hnykkja bílnum til,
í þeim tilgangi að sjá .hvort óeðli-
legt slit er komið í hjóla- og stýris-
búnað. Þar er einnig hægt að lyfta
hjólum bílsins til að kanna ástand
hjólleganna.
Af lyftunni er bílnum ekið á
sérstaka hemlaprófunarvél í vest-
urenda hússins. Þar er hægt að
prófa átak hemlanna á hveiju hjóli
fyrir sig og hvort átaksmunur á
milli hjóla er innan settra marka,
sem eru 30%.
Þegar hemlaprófun er lokið er
skoðun jafnframt lokið og á að
jafnaði ekki að hafa tekið lengri
tíma en 20 mínútur.
Eigandinn fylgist með
Áhersla er lögð á að eigandi
bílsins fylgist með skoðuninni og
fræðist þannig um gerð og ástand
bílsins. Skoðunarmaðurinn getur
bent honum á það sem ekki er i
lagi, sýnt hvað er að og útskýrt
hvers vegna eitthvað þarf að gera
við bílinn. Jafnframt gefst eigand-
anum kostur á að sjá niðurstöður
mælinganna á útblæstri og
hemlaátaki um leið og mælt er.
Samræmdar reglur um skoðun-
ina, reglur sem farið skal eftir
hvar sem er á landinu og hver sem
skoðunarmaðurinn er, eiga að
tryggja að bíleigandinn fái sam-
bærilega skoðun á bíl sínum, hver
sem framkvæmir og hvar sem það
er gert.
Stórir bílar
í fyrsta sinn er nú mögulegt að
prófa og skoða til hlítar ástand
stórra bíla, vörubíla og langferða-
bíla. Stórir bílar fara á sérstaka
skoðunarbraut, þar sem er hemla-
„í skoðuninni eins og hún hefur
verið hingað til, hefur aðstaðan
til að skoða stóra bíla verið lang
lökust,“ segir K'arl. „Þess vegna
er ástand á stórum bílum kannski
hvað lakast, þannig að búast má
við því að mesta röskunin verði
hjá stóru bílunum þegar við förum
profunartæki og gryfja fyrir skoð-
unarmann að kanna ástand undir-
vagnsins. Þar er á sama hátt hægt
að kanna ástand festi- og tengi-
vagna sem slíkir bílar draga. Skoð-
unarferli fyrir þessi tæki er -frá-
brugðið því fyrir minni bílana, að
því leyti að skoðunin fer öll fram
á sama staðnum og bílunum er
ekki lyft nema einum öxli í senn.
400 bílar á dag
Nýja skoðunarstöðin getur ann-
að um 400 fólksbílum á dag, auk
stórra bíla. 13 skoðunarmenn
vinna við hana, auk annars starfs-
fólks. Viðskiptavinir geta pantað
að skoða þá hér. Ég á von á því
að þar finnum við mestu gallana,
miðað við það sem verið hefur.“
Karl var spurður hvort öruggt
sé, að við skoðun í þessari skoðun-
arstöð muni finnast bilanir eins
og þær sem á liðnu sumri ollu
slysum þegar tveir fólksf lutninga-
tíma fyrirfram og þannig lagað
skoðunina að áætlunum sínum.
Síðasti tölustafur í skráningar-
númeri ökutækisins segir til um
hvenær á að færa það til skoðun-
ar. Sé síðasti stafurinn til dæmis
4, segir það að í fjórða mánuði
ársins á að skoða, það er í apríl.
Tvo mánuði til viðbótar hefur eig-
andinn frest til að koma með öku-
tæki sitt til skoðunar. Eftir þann
tíma, er notkun tækisins óheimil
og skoðunargjaldið hækkar. Heim-
ilt er að færa ökutæki til skoðunar
allt að sex mánuðum fyrir skoðun-
armánuð, þó ekki fyrir áramót.
Skoðunargjald er á þessu ári
bílar urðu hemlalausir og fóru út
af vegi.
„Við teljum það, að báðar rú-
turnar sem lentu í slysunum í
sumar hefðu mælst með ónýtar
bremsur hér og verið teknar úr
umferð. Þær voru reyndar báðar
tiltölulega nýskoðaðar þegar þær
lentu í slysunum og ástæður þess
að þessar bilanir fundust ekki
voru einfaldlega þær, að engin
aðstaða var til að kanna bremsur.
Við rannsókn á Kílunum eftir slys-
in kom það í ljós að bremsurnar
voru nánast ónýtar í báðum bílun-
um,“ segir Karl Ragnars.
Karl Ragnars framkvæmdastjóri Bifreiðaskoðunar:
Mesta byltingin í
skoðun stórra bfla
SKOÐUNARSTÖÐ Bifreiðaskoðunar íslands hf. sem nú er verið
að taka í notkun og þær sem síðar koma munu valda byltingu í
umferðaröryggi hér á landi, að sögn Karls Ragnars framkvæmda-
stjóra Bifreiðaskoðunar. „Ymis tæki og tækni eru notuð hér, sem
ekki hefur verið aðstaða fyrir til þessa, og nýjar skoðunarreglur
eiga að tryggja samræmi í vinnu skoðunarmannanna,“ segir
Karl. Hann segir að mesta byltingin verði varðandi vörubíla og
rútur.
Karl Ragnars framkvæmdastjóri
Bifreiðaskoðunar útskýrir
hvernig átak hemlanna kemur
fram á mælitækjum við hemla-
prófunina.
2.350 krónur, það hækkaði um
24% um áramót í samræmi við
vísitölu og á að vera óbreytt allt
árið.
Endurskoðun
Standist ökutækið ekki skoðun
þarf að lagfæra það sem ekki var
í lagi og færa tækið til endurskoð-
unar innan mánaðar. Eigandinn
getur ráðið því, hvort hann lættý
Bifreiðaskoðun annast endurskoð-
unina, eða viðurkennt bifreiðaverk-
stæði.
Á meðan tölvukerfi Bifreiða-
skoðunar er ekki að fullu komið í
gagnið, þarf að framvísa staðfest-
ingu þess að ábyrgðartrygging sé
í fullu gildi. Síðar á að vera hægt
að ganga úr skugga um það á
meðan afgreitt er hjá Bifreiðaskoð-
un. Hjá Bifreiðaskoðun er einnig
hægt að greiða gjaldfallin bifreiða-
gjöld, hafi það ekki verið gert áð-
ur.
1.750 fermetrar
Gólfflötur hins nýja húss Bif-
reiðaskoðunar er alls 1.750 fer-
metrar, þar af eru 1.250 undir
sjálfa skoðunarstöðina. Heildar-
kostnaður við húsnæðið, búnað
þess og tæki, er um 200 milljónir
króna. Byggingarkostnaður er um
160 milljónir og tæki kosta um 40
milljónir. Sverrir Norðfjörð arki-
tekt og Ágúst Þór Jónsson verk-
fræðingur önnuðust hönnun húss-
ins og aðalverktaki við bygginguna
var Loftorka hf.
Þessi skoðunarstöð er hin fyrsta
sem tekin er í notkun af sérhönn-
uðum stöðvum, að frátalinni fær-
anlegri stöð. Á þessu ári er ráð-
gert að hefja smíði skoðunarstöðv-
ar á Akureyri og stefnt er að-því,
að innan næstu fimm ára ’verði
komin svipuð skoðunaraðstaða í
öllum 11 skoðunarstöðvum fyrir-
tækisins. Aðrar skoðunarstöðvar
verða á Akranesi, Borgarnesi,
ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki,
Akureyri, Húsavík, Fellabæ, Eski-
firði, Hvolsvelli, Selfossi og í
Keflavík.
Skoðunarstöðin í Reykjavík er
fyrst og fremst ætluð höfuðborgar-
svæðinu, en þó verða skoðuð þar
ökutæki frá öðrum landshlutum,
ef leitað er eftir.
Aðalskrifstofa Bifreiðaskoðunar
íslands hf. verður til húsa í ný-
byggingunni við Hestháls. Stjórn
fyrirtækisins skipa sjö menn, þrír
frá ríkinu og þar af einn frá FIB,
tveir frá tryggingafélögunum og
tveir frá Bílgreinasambandinu.
Stjórnarformaður er Þorsteinn
Geirsson og framkvæmdastjóri er
Karl Ragnars.