Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
45
aldri. Á þeim árum hittum við afa-
Kaj oft, ýmist heima hjá okkur eða
hjá honum. Og það er sérstaklega
eitt sem situr fast í minningunni
hjá mér, því mér þótti það alltaf
stinga dálítið í stúf við þennan ann-
ars ráðsetta, aldraða mann, en það
var hvað honum fannst gaman að
horfa á Tomma og Jenna í sjón-
varpinu. Þetta þekkti ég ekki hjá
fullorðnu fólki og fannst það bráð-
fyndið að hann gæti hlegið að þessu
þegar meira að segja mér fannst
ég vera vaxin upp úr svona löguðu.
Annað sem festist í manni voru
ýmis skondin dönsk orðatiltæki sem
hann notaði, t.d. þegar hann þurfti
að fara snemma á fætur, sagðist
hann þurfa að vakna „for fanden
faar sko paa“ eða þegar hann
heyrði eitthvað sem gekk fram af
honum þá varð honum oft á orði
„man skal hore meget far arene
falder af“.
Ég vil að lokum þakka honum
þá velvild sem hann hefur ætíð sýnt
mér frá því að ég kom fyrst inn í
fjölskyldu hans.
Megi hann hvíla í friði.
Lóa
Minningarnar um vin okkar og
tengdaföður dóttur okkar, Kaj Pind,
koma upp í hugann er við kveðjum
hann í hinsta sinn. Fundum okkar
bar fyrst saman er við vorum að
fara með dóttur okkar að veita
móttöku stúdentsprófsskírteini í
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
hann var að fara með son sinn í
sömu erindagjörðum. Við vorum
eitthvað sein fyrir og ókum með
hraði niður heimkeyrsluna að húsi
okkar er þeir feðgar keyrðu fram
hjá í sömu andrá og lá við að þar
yrði árekstur sem þó ekki varð. En
upp frá þeim degi má segja að leið-
ir okkar hafi legið saman. Kynni
okkar þróuðust í vináttu sem aldrei
bar skugga á enda var Kaj traustur
félagi.
Kaj Pind var danskur, fæddur
og uppalinn í Kaupmannahöfn, en
kom hingað til Islands rúmlega
tvítugur að aldri í leit að atvinnu.
Upphaflega ætlaði hann að dvelja
hér í eitt ár eða svo en árin urðu
yfir fimmtíu. Fyrst vann hann við
bólstrun húsgagna á ýmsum verk-
stæðum en svo kom að því að hann
stofnaði eigið húsgagnaverkstæði
og -verslun. Síðar á ævinni fékkst
hann einnig við innflutning á vörum
fyrir húsgagnaframleiðslu. Hús-
gögnin sem hann framleiddi voru
bæði vönduð og smekkleg.
Kaj giftist danskri konu, Önnu
Guðrúnu Sand frá Herning á Jót-
landi, en leiðir þeirra lágu saman
hér á landi. Hún kom hingað eftir
seinna stríð í atvinnuleit. Þau stofn-
uðu heimili sitt hér á landi árið
1950 en sambúðin varð ekki löng
því að Anna Guðrún veiktist árið
1966 og lést um aldur fram aðeins
41 árs að aldri. Þau eignuðust tvö
börn, Jönu sem var aðeins 11 ára
og Jörgen sem var 17 ára er móðir
þeirra féll frá. Fráfall hennar var
mikið áfall fyrir þau öll en Kaj stóð
af sér þessa raun og fórst honum
uppeldi barna sinna vel úr hendi.
Heimili þeirra var bæði smekklegt
og hlýlegt og þangað var gott að
koma. Börnin komust vel til manns.
Jana er kennari við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti, gift Ara Skúlasyni
hagfræðingi ASÍ og eiga þau tvær
dætur. Jörgen er forstöðumaður
Orðabókar Háskólans, giftur Aldísi
Guðmundsdóttur menntaskóla-
kennara og eiga þau tvær dætur
og einn son.
Samband okkar við Kaj var hvað
nánast er sonur hans og dóttir okk-
ar voru við nám í Englandi en þá
hittumst við í hverri viku og rædd-
um mikið saman. Kaj var bæði
ræðinn og gamansamur, oft var
talað um pólitík, enda var hann
mikill verkalýðssinni og hafði sterk-
ar taugar til þeirra er minna máttu
sín í þjóðfélaginu. Hann fylgdist vel
með á vettvangi stjórnmálanna,
bæði hér heima og erlendis, og
hafði oft ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum. Pólitísk við-
horf hans hafa sjálfsagt mótast að
verulegu leyti af harðri lífsbaráttu
á kreppuárunum.
Eins og áður segir var Kaj dansk-
ur og hafði hann sterkar taugar til
ættjarðar sinnar. Hann dreymdi um
að lifa sín síðustu ár í heimalandi
sínu Danmörku, sem hann og gerði
um tíma, en er heilsu hans fór _að
hraka ákvað hann að flytja til ís-
lands aftur enda bæði börn hans
búsett hér. Keypti hann sér íbúð í
húsi aldraðra við Sunnuhlíð í Kópa-
vogi en hann hafði verið búsettur
í Kópavogi áður en hann flutti til
Danmerkur. En dvölin í íbúðinni
varð ekki löng því heilsu hans hrak-
aði stöðugt. Flutti hann þá inn á
hjúkrunarheimili Sunnuhlíðar og
dvaldi þar síðasta árið. Þar fékk
hann góða aðhlynningu og leið eft-
ir atvikum, en hann lést þar að
kvöldi jóladags 25. desember.
Við hjónin viljum þakka fyrir nær
tuttugu ára vináttu og margar góð-
ar samverustundir, ekki síst fýrir
góðvild og hlýleika í garð barna
okkar og barnabarna. Hvíl hann í
friði.
Olöf og Guðmundur
kenns
rfáað
126908
Krakkar!
Óskar og Emma verða í hátíðarskapi í dag þegar þau skunda um borgina
og heimsækja nokkur útibú íslandsbanka.
Þar gefa þau öllum krökkum endurskinsmerki, Íslandsbanka-Ópal og
skemmtileg plaköt.*
Þið hittið Óskar og Emmu á þéssum stöðum:
Góða skemmtun!
'Ath. að allir þessir hlutir eru líka í boði í öðrum útibúum íslandsbanka.
í takt vió nýja tíma!
Strandgötu 1, Hafnarfiröi kl. 9.30
Hörgatúni 2, Garðabæ kl. 10.30
Háaleitisbraut 58 kl. 11.30
Þarabakka 3, Mjódd kl. 12.30
Glæsibæ, Álfheimum 74 kl. 13.30
Austurstræti 19 kl. 14.30
Eiðistorgi kl. 15.30