Morgunblaðið - 03.01.1990, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 1990
51
Lilja Jóhannes-
dóttir - Minning
Fædd 8. ágúst 1923
Dáin 23. desember 1989
Mig langar til að minnast í fáum
orðum vinkonu minnar, Lilju Jó-
hannesdóttur. Hún lést á Sólvangi
í Hafnarfirði á Þorláksmessu 66 ára
gömul.
Lilja fæddist í Hafnarfirði og ólst
upp hjá föður sínum, Jóhannesi
Þorsteinssyni, og fósturmóður,
Þóru Jónsdóttur, Vesturhamri 5,
Hún átti fjögur hálfsystkini, Þor-
stein sem dó ungur, Jón, Sigurð og
Einhildi sem er tengdamóðir mín.
Það er í gegnum íjölskyldu eigin-
manns míns sem ég kynnist Lilju.
Kynni mín af henni voru ekki mikil
framan af, en urðu nánari þegar
árin liðu. Hún var mikill sjúklingur
seinni hluta ævi sinnar og þurfti
oft að dveljast langdvöjum á hjúkr-
unarheimilum,
Ung giftist Lilja Benedikt Þórar-
inssyni og eignuðust þau tvo syni,
Þorvald Benediktsson yélstjóra og
Rúnar Benediktsson trésmið. Þau
slitu samvistum. Síðar eignaðist
Lilja þriðja soninn, Kristleif Inga
Lárusson-sjómann, faðir hans var
Lárus Ingimarsson. Barnabörnin
era nú orðin sex að tölu,
Ég kynntist Lilju best þegar hún
dvaldi hjá mér nokkrum sinnum,
sér til tilbreytjngar og okkur heimil-
isfólkinu til ánægju. Það var ávallt
skemmtilegt að fá hana í heimsókn,
þvi hún var fróð um menn og mál-
efni. Hún hafði mikla samkennd
með því fólki sem bágt átti og hafði
ekki glatað þeim eiginleika þrátt
fyrir erfitt lífshlaup. Lilja hafði
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
VALGEIR ÞÓRÐUR GUÐLAUGSSON,
Hörðalandi 24,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 3. janúar kl.
13.30.
Hrefna Sigurðardóttir,
Halldór Valgeirsson, Erna Helgadóttir,
Elísabet Valgeirsdóttir, Sigfús Þór Magnússon,
Böðvar Valgeirsson, Jónína Ebeneserdóttir,
Þórey Valgeirsdóttir, Eggert Hannesson,
Ásta Dóra Valgeirsdóttir, Ægir Ingvarsson,
Sigurður Guðni Valgeirsson, Valgerður Stefánsdóttir,
Þurfður Valgeirsdóttlr, Friðbert Friðbertsson.
skemmtilega frásagnargáfu og
minnist ég skemmtilegra yiðræðna
við hana á kyrrlátum kvöldstund-
um.
Við hjónin þökkum allar góðu
samverustundirnar og vottum börn-
um hennar og öðrum ættipgjum
samúð okkar. Guð blessi minningu
hennar.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta. Á grænum grundum lætur hann
mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem
ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns
síns.
(23. Daviðssálmur)
Aðalheiður Hafsteinsdóttir
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför,
SIGRlÐAR BOGADÓTTUR,
Hlíðarstræti 6,
BolungaRvík.
Margrét Eyjólfsdóttir, Jón Karl Þórhallsson,
Áslaug Jóhannsdóttir,
Gunnar Jónsson, Gróa Guðjónsdóttir,
Guðjón Bjarnason, Ásthildur Ólafsdóttir,
Valur Karlsson, Gunnhildur Halldórsdóttir,
Ingþór Karlsson, Elisa Baldursdóttir,
börn og barnabörn.
Lokað frá kl. 13-17 vegna jarðarfarar VALGEIRS
GUÐLAUGSSONAR.
Ferðaskrifstofan Atlantik hf.
Hallveigarstíg 1.
Lokað
fyrir hádegi á fimmtudag 4. janúar vegna jarðarfarar
JÓNS JÚLÍUSSONAR.
Fiskverslun Hafliða Baldvinssonar,
Hverfisgötu 123.
SKIPULAG SJUKRATRYGGINGA
FRÁ ÁRAMÓTUM
Hinn 1. janúar 1990 taka gildi sem kunnugt er
breytingar á skipulagi sjúkratrygginga innan
almannatryggingakerfisins. Þá verða lögð niöur
öll 40 sjúkrasamlög landsins og starfsemi þeirra
falin Tryggingastofnun rikisins. Sýslumenn og
bæjarfógetar munu frá 1. janúar 1990 taka að sér
umboö sjúkratrygginga utan Reykjavikur, eins og
gilt hefur um aðra þætti almannatrygginga
hingað til, en aöalskrifstofur Tryggingastofnunar
ríkisins að Laugavegi 114 og Tryggvagötu 28
munu annast sjúkratryggingar Reykvikinga.
Miðað er við, aðflestallar greiðslur, sem sjúkra-
samlögin hafa annast fram að þessu, fari fram
eftir breytinguna i viðkomandi umboðum Trygg-
ingastofnunar rlkisins hjá bæjarfógetum og
sýslumönnum eða ( útibúum þeirra. Stefnt er að
þvl, að innan tveggja ára geti almenningur fengið
greiddar hvers kyns sjúkrabætur ( hvaða umboði
sem er eða hjá aðalskrifstofunni ( Reykjavlk.
Þangað til verður það hins vegar meginreglan, að
hver og einn haldi sig við það umboð (í Reykjavík
aðalskrifstofu Tryggingastofnunar,) þar sem hann
á lögheimili. Séu hins vegar sérstakar ástæður
fyrir hendi svo sem tlmabundin dvöl vegna
atvinnu eða náms eða annars þess háttar, er i
lagi að skipta við annað umboö eöa aðalskrif-
stofu. Þetta gildir þó ekki um greiðslur á sjúkra-
dagpenjngum eða ferðakostnaði innanlands, en
þær verða fyrst um sinn eingöngu bundnar við
afgreiðslustað þar sem viðkomandi á lögheimiji,
HYERT ATTU AÐ LEITA?
b)
f)
í REYKJAVÍK
1. Á skrifstofunni í Tryggvagötu 28 mun
fólk sækja áfram alla þá þjónustu, sem
þaö hefur hingað til sótt til Sjúkra-
samlags Reykjavíkur nema afgreiðslu
lyfjasklrteina og endurgreiðslu á
erlendum sjúkrakostnaði, sem hvort
tveggja verður á Laugavegi 114.
í Tryggvagötu fer því fram eftirtalin
afgreiösla til almennings:
a) Endurgreiðsla tannlæknareikninga,
sem ekki þarf að samþykkja sérstak-
lega af hálfu Tryggingastofnunar.
b) Afgreiðsla sjúkradagpeninga til
Reykvíkinga.
c) Greiðsla vegna endurkræfs læknis-
hjálparkostnaðar.
d) Greiðsla vegna endurkræfs sjúkra-
flutningskostnaðar.
e) Greiðsla á ferðakostnaði sjúklinga
innanlands til Reykvikinga.
f) Útgáfa skfrteina til örorku- og ellilif-
eyrisþega vegna 12 skipta hjá
sérfrafeðingum.
g) Útgáfa réttindaskírteina sjúkra-
trygginga.
h) Val og skráning hjá heimilislæknum
I Reykjavík.
2. Á Laugavegi 114 mun fólk sækja
áfram þá þjónustu, sem það hefur
hingað til sótt til sjúkratryggingadeildar
Tryggingastofnunar rikisins og auk
þess afgreiðslu lyfjaskírteina og endur-
greiðslu áerlendum sjúkrakostnaði.
A Laugavegi fer því fram eftirtalin
afgreiðsla tii almennings:
a) Afgreiðsla hjálpartækjaumsókna.
b) Afgreiðsla tannlæknareikninga, sem
þurfa sérstakt samþykki Trygginga-
stofnunar til greiðslu.
c) Útgáfa lyfjaskirteina.
d) Greiðsla vegna læknismeðferðar
erlendis.
Þessi starfsemi verður eingöngu að
Laugavegi 114 fyrir allt iandið.
Til að byrja með verða gömlu sjúkrasamlagsskirteinin látin halda gildi sinu þar til sérstök
sjúkratryggingaskírteini leysa þau af hólmi.
Þá skal áróttað, að framangreindar breytingar hafa engin áhrif á þjónustu lifeyris- og slysa-
trygginga, sem verður þvi meö óbreyttum hætti á sömu stöðum og verið hefur.
UTAN REYKJAVIKUR
í umboðum Tryggingastofnunar rlkisins
hjá bæjarfógetum og sýslumönnum og
mögulpgum útibúum þeirra mun fólk
sækja áfram alla þá þjónustu, sem það
hefur hingað til sótt til sins sjúkra-
samlags, þó ekki afhendingu lyfja-
skírteina og endurgreiðslu áerlendum
sjúkrakostnaði. Vegna húsnæðiseklu
verða bæjarfógetar á nokkrum stöðum
á landinu að nýta tímabundið húsnæði
sjúkrasamlaganna fyrir þessa nýju
starfsemi. Gildir þettaá Akranesi,
Akureyri, í Hafnarfirði og Kópavogi
fyrst um sinn. I umboðunum fer því
fram eftirtalin afgreiðsla til almennings:
a) Endurgreiðsla tannlæknareikninga,
sem ekki þarf að samþykkja sérstak-
lega af hálfu Tryggingastofnunar.
Afgreiðsla sjúkradagpeninga til
sjúklinga með lögheimili á svæði
umboðsins.
Greiðsla vegna endurkræfs læknis-
hjálparkostnaðar.
Greiðsla vegna endurkræfs sjúkra-
flutningskostnaðar.
Greiðsla á ferðakostnaði sjúklinga
innanlands til þeirra, sem eiga
lögheimili á svæði umboðsins.
Útgáfa skirteina til örorku- og ellillf-
eyrisþega vegna 12 skipta hjá
sérfræðingum.
Útgáfa réttindaskírteina sjúkra-
trygginga.
Milliganga gagnvart aðalskrif-
stofunni á Laugavegi 114 I Reykjavlk
vegna þeirrar starfsemi, sem
eingöngu fer fram þar.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS