Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 52

Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 52
52 MÖHGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990 fclk í fréttum Þorstemn skorar eitt af fjórum mörkum sínum í leik gegn Rich- mond-háskóla. ^ KNATTSPYRNA Islenskur marka- kóngur Sautján ára skiptinemi úr Kópavogi, Þorsteinn Hall- grímsson, hefur vakið nokkra at- hygli vegna hæfni sinnar í knatt- spyrnu þar sem hann stundar nám, nánar tiltekið við Wiscaset- háskólann í Maine í Bandaríkjun- um. í skólaliðakeppninni í Maine gerði hann sér lítið fyrir og skor- aði 35 mörk í 15 leikjum og var langmarkahæsti leikmaður móts- ins, Þrátt fyrir markaregnið hjá Þorsteini hafnaði lið hans í 7. sæti í forkeppni og var þar með úr leik. Þess má geta, að mörk Þorsteins voru fleiri heldur en í Mame heilu liðin gátu státað af í keppn- inni. „Þetta eru gloppótt lið og varn- arleikurinn hjá okkur var lélegur, því fór sem fór. Það hefði verið gaman að komast lengra, því að sigurvegarar í svæðakeppninni leika til úrslita og skólameistara- lið ýmissa ríkja leika saman,“ sagði Þorsteinn. Hann hefur leikið með yngri flokkum ÍK í Kópa- vogi. Á árinu 1988 lék hann í þriðja flokki ÍK og skoraði þá 9 mörk og síðasta .sumar iék hann með 2. flokki, en sleit liðband og var úr leik meiri hluta sumarsins. HEIMKOMA Dræmar undirtektir Wolf Biermann, lagasmiður og söngvari, hraktist frá heimalandi sínu Austur-Þýska- landi árið 1976. Þá hélt hann í 10 daga söngferðalag tii Vestur- Þýskalands og ákvað að setjast að í Hamborg fyrir vestan múr- inn. Hann var sviptur austur- þýskum ríkisborgararétti. Fyrir skömmu sneri hann aftur til Aust- ur-Þýskalands og kom þar fram í fyrsta sinn á tónleikum í 24 ár. Að sögn vestur-þýskra blaða vakti hann takmarkaða hrifningu. Biermenn er nú 52 ára og seg- ir blaðið Hannoverische Allge- meine, að hann hafi greinilega staðnað þannig í efnisvali sínu og pólitískum skoðunum, að ungu fólki í Austur-Þýskalandi þyki ekki mikið til hans koma við nú- verandi aðstæður. Hann efndi til tónleika í Leip- zig og Austur-Berlín og andrúms- loftið á þeim sýndi, að allt hefur breyst frá því að Biermann naut mestra vinsælda og höfðaði til áheyrenda sinna. Aðeins einu sinni hitti hann í mark á tónleik- unum í Leipzig, en það var þegar hann vísaði til núverandi ástands í A-Þýskalandi og veittist að Egon Krenz, sem þá var enn í forystu- sveit kommúnista. í þýska blaðinu er þetta haft eftir námsmanni, sem var á tón- leikunum: „Þetta höfðar ekki til okkar kynslóðar, menn höfða ekki til tvítugs fólks í Austur-Þýska- landi núna með gömlum söngvum Wolf Biermann sneri aftur heim til Austur-Þýskalands og söng en við dræmar undirtektir. og draumum um sósíalískt sam- félag.“ Annar sagðist hafa farið á tónleikana af forvitni og bætti við: „Ég botna ekkert í honum. Biermann tengist ekkert því sem hér er að gerast." Bolholti 6. Símar 68 74 80 og 68 75 80 Fjölbreytt námskeiðahald fyrir ðllð hefst í næstu viku. Hvaða hópur hen ar jiér? Ungar konur á ðllum aldri Snyrting Hárgreiösla Framkoma Borösiöir Fataval Hreinlæti Gestaboö Mannleg samskipti Ungar stúlkurog 13-16 ára Snyrting Framkoma Fataval Hreinlæti Borösiöir Mannleg samskipti Ganga Bjóöum fyrirtækjum námskeiö fyrir starfsfólk sítt Framkoma Kurteisi Simaþjónusta Hreinlæti Klæönaöur Snyrting Mannleg samskipti Sérhópar Starfshópar Saumaklúbbar Snyrting Framkoma Borösiöir Gestaboó Mannleg samskipti Unnur Arngrímsdóttir, framkvæmdastjóri. SÓSÍALISMI Demantskór Elenu Hulunni hefur nú verið svipt af ríkidæmi Ceausescu-hjónanna. Er talið að þau hafi stungið undan allt að milljarði bandarískra dollara, eða rúmlega 60 milljörðum íslenskra króna. Auk þess lifðu þau við kjör sem ekki er unnt að bera saman við annað en lifnaðarhætti milljarða- mæringa í auðvaldsheiminum. Rúm- enskur almenningur fékk hins végar ekki nóg að borða, enda voru mat- væli flutt úr landi til að standa und- ir eyðslu höfðingjastéttarinnar. Þá var rafmagn skammtað þannig og hiti í húsum var af skornum skammti. í ríki hjónanna var sem sé hungur og kuldi. Á þessari mynd sést hve langt óhófið gekk hjá einræðishjónunum. Hún er af skóm Elenu Ceaucescu, sem eru smíðaðir af Charles Jordan í París. Sérstaka athygli vekur, að demantsrós er ofan á tánni og hæll- inn er einnig gerður úr demöntum. HÉGÓMI Rambo fékk að hnykla betur A FIMA* Alþjóðleg umboösskrifstofa. Nú er farið að sýna nýja löggu- kvikmynd með hörkutólunum Sylvester Stallone, Rambo, og Kurt Rgssel í aðalhlutverkunum. Leika þeir þar tvo harðsvíraða lögreglu- menn sem kalla ekki allt ömmu sína. Rauði þráðurinn í myndinni er metingur og rígur þeirra tveggja, stanslaus keppni þeirra að gera betur með sem stórkostlegustum aðferðum. Ekki er sagt að samstarfið hafi gengið að óskum, raunar fór lygi- legur tími í margar tökurnar og stafaði það allt af sérvisku Rambos sem var mikið ( mun að hann væri karlmannlegri og glæsilegri á tjald- inu heldur en mótleikarinn Russel. Sagd- er enn fremur að Russel hafi kært sig kollóttan um samanburð- inn og hent gaman að ollu saman. Rambo skoðaði gaumgæfilega margar tökurnar og heimtaði að þær væru endurunnar ef vöðvar hans virtust ekki nægilega hrika- legir fyrir smekk hans sjálfs. Var þá skotið aftur þannig að kappinn gat hnyklað kjötið betur. Innritun alla daga í símum 687480 og 687580 fró kl. 16-19. Unnur Arngrímsdóttir, sími 36141. Nýtt - Nýtt 1. Föt og föröun Litgreining Litakort 2. Andlitssnyrting Litakassar 6 Stutt snyrtinámskeió Handsnyrting Húðhreinsun Andlitssnyrting 7 Herrar á öllum aldri Framkoma Fataval Hreinlæti Snyrting Hárgreiösla Borösióir Mannleg samskipti Ganga 8 Módelnámskeió fyrir verðandi sýningarfólk 1. Ganga Snúningaro.fl. Sviósframkoma o.fl. 2. Upprifjun framhald Umboðsmaður ó íslandi:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.