Morgunblaðið - 28.02.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990 17 HBOKA Fáein orð um frelsi og núll eftir Gísla Jónsson Ég lifði Kreppuna miklu. Hún er mér í ^sáru, óafmáanlegu barns- minni. Ég veit að talsverð verðbólga er betri en kreppa og atvinnuleysi, hvað sem hagfræðikenningum líður. Mennirnir, sem sömdu um núllið á dögunum, lifðu fæstir Kreppuna miklu. Ég er þakklátur þeim Dags- bi'únarmönnum sem börðu í borðið og sögðu nei. Það lifír þó enn neisti í ösku íslenskrar verkalýðsbaráttu. Upp með hana, og dettur nú mönnum ekki framar í hug að tengja hana við hrunið kerfi sameignarinnar (kommúnismans). Alþýða Austur- Évrópu hefur risið upp og berst eink- um fyrir tvennu sem verður að fara saman: frelsi og bætt lífskjör, frelsi og mannúð. Ekkert af þessu hefur sameignarstefnan getað fært fólki og mun ekki geta. Er ekki reynslan nógu löng, nógu þungbær, nógu sár? Sjáið þið börnin í Rúmeníu, hrakin, forsmáð og eyðnismituð undan stjóm „sjarmörsins" Sjáseskús. En við skulum ekki fyllast of mik- illi sjálfumgleði. Þó slík ósköp við- gangist ekki hér á landi, þá er í ýmis hom, ýmis skúmaskot, að líta. Ég hef ekki komist hjá að lesa frá- sagnir fólks sem býr við svo rýran kost að firnum sætir. Svo rýran til dæmis að það hefur ekki efni á að fá sér kjöt í matinn nema með löng- um hléum. Gömul hjón hafa stöku sinnum keypt sér hálsabita utan há- tíða. Hálsabitar era vont kjöt. Ungur verkamaður getur ekki leyft sér og fólki sínu góða kjötmáltíð nema sára- sjaldan. Þetta eru aðeins lítil dæmi til þess að lengja ekki þennan grein- arstúf um of. En þetta ætti að snerta tilfinningar og taugar uppa og ístru- maga, og ég held reyndar að það komi við ýmis kaun. Mér finnst það. Ég er ekki jafnaðarmaður. Ég held að seint verði allir jafnir og veit ekki hvort það er gott. Mig grunar að viðleitni til þess að gera alla jafna endi í því, að sumir verði óheyrilega „jafnari en aðrir“. Þar fyrir þoli ég ekki hvaða ójöfnuð sem vera skal. Og ég veit að það gerir íslensk þjóðarvitund ekki. Vel má vera að núllsamningarnir hafi verið skynsamlegir frá ýmsum sjónarmið- um, einkum þó atvinnurekenda og ríkisvalds. En það skyldi nú ekki vera, að þeir gerðu ýmsa „jafnari" en áður. Þó að ég sé hættur skiptum af stjórnmálum, ætla ég að lyktum að biðja liðsodda flokksins míns að hyggja að þessum fáu orðum. Ég veit að þeir gera sér ljóst gildi frels- is og mannúðar, en ég bið þá að leggjast ekki undir höfuð ráðagerðir og athafnir til þess að rétta hlut fátækra manna á íslandi. Ég bið þá að reyna að koma í veg fyir að þjóð- in klofni í tvennt: þá sem eiga og I SPORTKLUBBNUM ÖLKRÁIN í SPORTKLÚBBNUM Borgartúni 32 - sími 624533. þá sem ekki eiga. Ég bið þá að sætta sig aldrei við núll handa þeim sem minnst geta. Frelsi með mannúð verður að setja sér það markmið, að öllum líði sóma- samlega, bæði efnalega og andlega. Sjálfsagt næst það markmið aldrei, en það er jafnsjálfsagt að keppa að því. Höfundur er cnnd. mag. í íslenskum fræðum. Gísli Jónsson LAUSBLAÐA- MÖPPUR íráMúlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur SÍMI: 62 8-4 50 BOLHOLTI 6 Janúar- og febrúarndmskeiöin voru fullbókuð. Þess vegna ætlum við að bæta við einu námskeiði í mars Sif, snyrtifræðingur Korl, hórgreiðslum. Unnur, framkvæmdastj. Fjölbreytt námskeiÖ fyrir alla. Leitið upplýsinga. Símar 687580 - 687480. Unnur Arngrímsdóttir, sími 36141. okkur er ekki sama hvernig öðrum líður • Níu manns starfa nú við hjáiparstörf (D c xO O m xO © - o C3 ■ -v. (Q RAUÐI KROSS ISLANDS Barna og unglingasíminn staðfestir að ailtof mörg börn á Islandi þurfa hjálpar við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.