Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/LESBOK
82. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Kosningarí Ungveijalandi
Reuter
Önnur umferð þingkosninganna í Ungveq'alandi
verður á morgun, sunnudag, og er því spáð, að
Lýðræðishreyfingin verði helsti sigurvegarinn. Þess-
ir ungversku æskumenn sitja undir vegg, sem gefur
dálitla hugmynd um kosningaáróðurinn og flokka-
fjöldann, sem er í framboði.
*
Akvarðanir teknar á
næstu flórum vikum
Ludwig'shafen. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, sagði í gær að allar
ákvarðanir varðandi myntbandalag þýsku ríkjanna yrðu teknar á
næstu fjórum vikum. Theo Waigel fjármálaráðherra lét svo ummælt
að ekki yrði skrifað undir samning um slíkt nema að höfðu samráði
við önnur ríki Evrópubandalagsins (EB). Leiðtogafundur EB verður
haldinn í Dyflinni 28. apríl næstkomandi.
Kohl lét hins vegar ekki uppi hvort
ákvörðun yrði tekin fyrir borgar- og
sveitarstjórnarkosningar í Austur-
Þýskalandi 6. maí. Margir kristilegir
demókratar telja mikilvægt að kjós-
endur þar verði ekki látnir vera í
óvissu um gengi austur-þýska
marksins þegar kosið verður. Til
mikilla mótmæla kom í fyrrakvöld í
Austur-Þýskalandi þar sem Kohl var
minntur á kosningaloforð sín um að
myntbandalag kæmi ekki niður á
sparnaði Austur-Þjóðveija. Tillögur
vestur-þýska seðlabankans, sem
njóta stuðnings í ríkisstjórninni, um
að austur-þýska markið verði helm-
ingi verðminna en hið vestur-þýska,
þykja bijóta í bága við loforð Kohls.
Kohl fullyrti í gær að myntbanda-
lag myndi ekki leiða til skattahækk-
ana í Vestur-Þýskalandi. „Hinn
blómlegi efnahagur okkar gerir okk-
ur kleift að gangsetja austur-þýska
Frelsisbarátta Eystrasaltsríkjanna:
Lýsa Lettar yfir sjálfstæði
landsins í næsta mánuði?
Riga, Moskvu, Washington. Reuter.
BÚIST er við, að lettneski komm-
únistaflokkurinn klofni en nokk-
ur hluti hans hefúr hótað að
stofiia nýjan verði ekki farið að
dæmi Litháa og Eista og tengslin
við móðurflokkinn í Moskvu rof-
in. í Lettlandi er því spáð, að
þingið muni lýsa yfir sjálfstæði
landsins í næsta mánuði. Lit-
háíska þingið samþykkti í gær
ályktun þar sem látinn er í ljós
skilningur á áhyggjum stjórn-
valda í Moskvu en jafnframt skor-
að á þau að hefla tafarlausar við-
ræður um aðskilnað rikjanna.
Málefni Litháens voru ofarlega á
baugi í viðræðum þeirra Edúards
Shevardnadzes, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, og George
Bush Bandaríkjaforseto en sov-
éski utanríkisráðherrann hefur
aðeins ítrekað fyrri yfirlýsingar
um að fundin verði friðsamleg
lausn á deilunum.
Lettneski kommúnistaflokkurinn
hóf í gær tveggja daga fund í Riga,
höfuðborg Lettlands, og lýsti þá
hluti fulltrúanna yfir, að hann ætl-
aði að stofna nýjan flokk í næstu
viku yrðu tengslin við Moskvu ekki
slitin og þegar farið að vinna að
stofnun sjáifstæðs ríkis. Sjáifstæð-
issinnarnir í kommúnistaflokknum
eru aðallega innfæddir Lettar en
aðfluttir Rússar nálgast nú að vera
hehningur íbúanna.
í Lettlandi er því spáð, að þingið
muni lýsa yfir sjálfstæði landsins
þegar það kemur saman í maí en
Þjóðfylkinguna, baráttusamtökin
fyrir frelsi og sjálfstæði, vantar
aðeins eitt þingsæti upp á þann
meirihluta, tvo þriðju, sem þarf til
að samþykkja slíka yfirlýsingu.
Talið er fullvíst, að hún muni fá
það þingsæti og fleiri í kjördæmum
þar sem enn hafa ekki fengist end-
anleg úrslit.
Litháíska þingið samþykkti í gær
ályktun, sem þykir lýsa sáttfýsi en
þar er látinn í ljós skilningur á
áhyggjum Sovétstjórnarinnar. Lögð
er áhersla á, að Litháar vilji við-
halda efnahags- og menningarleg-
um samskiptum við Sovétríkin en
hvatt til, að tafarlaust verði teknar
upp viðræður um sambandsslitin.
I viðræðum Shevardnadzes, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna, við
bandaríska ráðamenn vegna fundar
Bush forseta og Míkhaíls Gorb-
atsjovs, forseta Sovétríkjanna, 30.
maí nk. var aðallega rætt um af-
vopnunarmál, sameiningu Þýska-
lands og Litháen. Vildi Shevardn-
adze aðeins endurtaka fyrri yfirlýs-
ingar um að friðsamleg lausn yrði
fundin á deilum Litháa og Sovét-
manna en svo virðist sem Sovét-
stjórnin standi- ekki jafn fast og
áður á kröfunni um, að sameinað
Þýskaland verði hlutlaust. Shev-
ardnadze sagði þó, að Sovétmenn
vildu ekki, að Þýskaland yrði í Atl-
antshafsbandalaginu en lét óút-
skýrt hver þriðji kosturinn væri.
Aðhaldsaðgerðir sænsku stjórnarinnar:
Ymist hrósað eða kallað-
ar svik við launþegana
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKA ríkisstjórnin lagði á fímmtudagskvöld fram nýtt frum-
varp um aðgerðir í efnahagsmálum og hafði náðst samkomulag
um það milli stjórnarflokksins, jafhaðarmanna og Þjóðarflokksins,
sem er í stjórnarandstöðu. Talsmenn fjármála- og atvinnulífsins
hafa tekið tillögunum vel en meðal jafnaðarmanna sjálfra er mikil
óánægja og ríkisstjórnin sökuð um að svíkja kosningaloforðin.
Meginefni frumvarpsins er, að
virðisaukaskattur verður hækkað-
ur 1. júlí um eitt prósentustig, upp
í 25%; frestað verður að lengja
barnsburðarleyfi foreldra í 15
mánuði og beðið verður með sjöttu
sumarleyfisvikuna. Þá hækka
barnabætur minna en til stóð og
á lengri tíma. Lög um launa- og
verðstöðvun gilda ekki lengur en
greiðslur launþega í atvinnuleysis-
sjóði hækka. Atvinnurekendum
verður að fullu bættur kostnaður
við að annast sjúkratryggingar
fyrstu tvær vikurnar og sveitarfé-
lögum er óheimilt að hækka skatta
í tvö ár.
Margir ja.fnaðarmenn eru mjög
óánægðir með frumvarpið og hafa
sumir á orði að mótmæla því í
kröfugöngunum 1. maí og aðalfyr-
irsögnin í Aftonbladet, sem styður
jafnaðarmenn, í gær var aðeins
eitt orð, „Svik“. í fjármála- og
atvinnulífinu hafa viðtökurnar hins
vegar verið betri. Nils Lundgren,
hagdeildarstjóri PK-bankans,
sagði, að frumvarpið yki tiltrú
manna á sænsku efnahagslífi og
legði grunninn að vaxtalækkun.
„I meginatriðum er verið að stíga
stórt skref í rétta átt,“ sagði hann,
og undir það hafa aðrir frammá-
menn í sænsku atvinnulífi tekið.
efnahagslífið og taka við skuldbind-
ingum gagnvart atvinnulausum og
ellilífeyrisþegum án þess að hækka
skatta."
Kosið í Grikklandi:
Efiiahags-
öngþveitið
veldur EB
áhyggjum
Aþenu. Reuter.
ALMENNAR þingkosningar
verða í Grikklandi á morgun,
sunnudag, en fátt bendir til,
að með þeim verði bundinn
endi á stjórnarkreppuna í
landinu. Auk þess eru kosn-
ingarnar haldnar i skugga
efnahagslegs öngþveitis og
gífurlegrar skuldasöfnunar.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um fær hvorugur stóru flokk-
anna, Nýi demókrataflokkurinn
eða Sósíalistaflokkurinn, hrein-
an meirihiuta og því gætu
kommúnistar og aðrir smáflokk-
ar ráðið miklu um samsetningu
næstu stjómar.
Ástandið í grísku efnahagslífi
er alvarlegt og frammámenn
innan EB hafa varað Grikki við
og segja, að(framtíð þeirra innan
bandalagsins sé í voða geti þeir
ekki leyst úr eigin málum. Verð-
bólga er 16,5%, sú mesta í Evr-
ópubandalaginu, ríkisskuldirnar
eru meiri en sem nemur árlegri
þjóðarframleiðslu og í landinu
þrífst mikill svartamarkaður,
sem borgar enga skatta til ríkis-
ins.
Sjá „í skugga..." á bls. 28.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra ásamt Allan Larsson Qár-
málaráðherra við umræður á
þingi um aðhaldsaðgerðirnar.
Myntbandalag þýsku ríkjanna: