Morgunblaðið - 07.04.1990, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990
Aagot Vilhjálmsson
- Afmæliskveðja
Frú Aagot Vilhjálmsson, Miðleiti
5, Reykjavík, er 90 ára í dag, 7.
apríl. Hún er elst 9 barna Rolfs
Johansen, kaupmanns á Reyðarfirði
og eiginkonu hans, Kristine Över-
land, eða frú Kitty, eins og hún var
ávallt kölluð. Þau voru bæði af
norsku bergi brotin, en fluttust ung
að árum til íslands og bjuggu hér
alla tíð, lengst af á Reyðarfirði. Þar
rak Rolf Johansen umfangsmikla
verslun, ásamt útgerð, póstaf-
greiðslu og afgreiðslu strandferða-
skipa. Af öllum þessum umsvifum
leiddi að heimilisreksturinn varð
mjög umfangsmikill. Fjöldi vanda-
lauss fólks var þar við störf og
gestagangur mikill. Myndarskap
húsfreyjunnar frú Kitty var við
brugðið og duldist engum að þar
fór mikil hæfileikakona. Hún sinnti
margskonar félags- og menningar-
málum auk þess að reka þetta stóra
heimili.
Börnin voru alin upp við mikla
trúrækni. Þau höfðu heimakennara
í nokkur ár og mikil áhersla var
lögð á að þau lærðu góða íslensku,
þótt hjónin töluðu norsku sín á
milli og börnin skildu bæði málin.
Þarna hefur verið lagður traustur
grunnur að framtíð þessara barna,
sem þau hafa búið að um langa
ævi. Er amma mín, frú Aagot, besta
dæmið um það, því að enn í dag
ber þessi níræða kona uppi merki
þeirrar óbilandi bjartsýni og
lífsgleði, sem einkenndi móður
hennar og hún fékk sjálf svo ríku-
lega í vöggugjöf.
Af níu börnum Johansens-hjón-
anna komust sjö á legg, en tvö dóu
í blóma lífsins. Þijú þeirra eru enn
á lífi, Hákon, f.1905, og Olga, f.
1908, auk Aagotar.
Elstu systurnar tvær, Aagot og
Valborg (f. 1901), fylgdust löngum
að og fóru saman til Akureyrar í
gagnfræðaskóla tvo og hálfan vetur
á árunum 1915-1917, eftir að hafa
verið tvo vetur í skóla á Seyðisfirði
hjá Rögnu föðursystur sinni. En
Valborg varð ekki langlíf og lést
árið 1928.
Árið 1920 giftist Aagot Árna
Vilhjálmssyni lækni. Þau fluttust
nýgift til Noregs og bjuggust jafn-
vel við að setjast þar að, þar sem
læknishéruð á íslandi lágu ekki á
lausu. Vorið eftir fór hún svo heim
til Reyðarfjarðar til þess að eignast
fyrsta barnið. Árni kom síðan heim
næsta vetur og starfaði sem læknir
á ýmsum stöðum þangað til honum
bauðst embætti héraðslæknis á
Vopnafirði og settust þau þar að
árið 1924. Þar bjuggu þau síðan
allt til ársins 1960. Börnin urðu 11
og komust þau öll til fullorðinsára:
Snorri (1921-1972); Kjartan
(1922-1978); Ámi (1924); Kristín
(1926); Sigrún (1927); Valborg
(1930); Vilhjálmur (1932); Aagot
(1935); Rolf (1937); Aðalbjörg
(1939) og Þórólfur (1941).
Að mörgu leyti má segja að í lífi
læknishjónanna á Vopnafirði endur-
speglist líf kaupmannshjónanna á
Reyðarfirði. En munurinn er sá að
hér var ekki um kaupmanninn að
ræða, heldur embættismanninn,
héraðslækninn. Árni læknir var í
hreppsnefnd og oddviti staðarins í
áratugi. Á heimili þeirra þurfti því
ekki aðeins að veita þreyttum ferða-
löngum beina heldur var þar sjúkra-
húsið í héraðinu, hótelið og gisti-
heimilið. í apótekinu, sem aldrei var
nefnt annað, var móttaka fyrir alla
sjúklinga sem komu og þar voru
gerðar aðgerðir. Ef um meiriháttar
aðgerðir var að ræða þurfti að taka
sjúklinginn inn á heimilið og veita
honum þar aðhlynningu. Frú Aagot
þurfti því að vera margt í senn.
Hún var ekki aðeins húsmóðir á
sínu stóra heimili og móðir barna
sinna, heldur var hún einnig hjúkr-
unarkona og aðstoðarlæknir, þótt
hún 'hefði ekki til þess skólamennt-
un og sennilega hefur ekki liðið sá
dagur að hún væri ekki sótt til
aðstoðar við tanntöku eða annað
slíkt. Allt lín og umbúðir sjúkling-
anna varð að þvo með öðrum þvotti
heimilisins og öll læknisáhöld og
tæki varð að sótthreinsa í eldhús-
inu. Á heimilinu var rekinn smábú-
skapur, svarðar- og mótekja til eldi-
viðar og mikið var unnið að heimil-
isiðnaði. Frú Aagot eignaðist rokk
og lærði að spinna og síðan var
pijónað, heklað og saumað. Fljót-
lega eignaðist hún pijónavél og eft-
ir það sá hún ekki aðeins eigin
heimili fyrir pijónlesi, heldur pijón-
OPIÐ PRÓFKJÖR
Á NÝJUM
VETTVANGI
Opinn fundur meö Ólínu í Múlakaffi
laugardag 7. apríl kl. 10.00
MUNIÐ PRÓFKJÖpiÐ UM HELGINA
Við undirrituð
lýsum ánœgju okkar
með framboð
Ólínu Porvarðardóttur
í sameiginlegu prófkjöri
Alþýðuflokks,
Samtaka um nýjan vettvang
og annarra félagasamtaka.
Alfreð Gíslason — handknattleiksmaður
Atli Heimir Sveinsson - tónskáld
Árni G. Stefánsson - kennari
Ásgerður Bjarnadóttir - bankaritari
Baldur Jónasson — markaðsstjóri
Birna Kristín Baldursdóttir - háskólanemi
Bubbi Morthens - tónlistarmaður
Dagbjört Óskarsdóttir - snyrtifrœðingur
Elínborg Óladóttir — verslúnarmaður
Elísabet Jökulsdóttir - rithöfundur
Gísli Helgason — tónlistarmaður
Guðmunda Elíasdóttir - söngkona
Gunnar Eyjólfsson - leikari
Hannibal Valdimarsson - Fv ráðherra
Haukur Haraidsson - deildarstjöri
Haukur Morthens - söngvari
Helga María Ástvaldsdóttir — hjúkrunarfræðingur
Helgi Björnsson — tónlistarmaður og leikari
Helgi Hafliðason - fisksali
Hermann Sigurðsson - deildarstjóri
Hörður Óskarsson — prentsmiðjustjóri
Ingi Bæringsson - verkamaður
Jakob Frímann Magnússon - tónlistarmaður
Jóhannes Guðmundsson - framkvrzmdastjóri
Próf. Jón Bragi Bjarnason - lífeðlisfræðingur
Jónas V. Magnússon - rafiðnfræðingur
Jónas Sveinsson — bifreiðastjóri
Margrét Einarsdóttir - borgarslarfsmaður
Margrét Haraldsdóttir — menntaskólakennari
Margrét Jódís Sigurðardóttir - verkakona
Oddur Malmberg - guðfræðinemi
Pálmi Gestsson - leikari
Kjörstaðir eru: í KRINGLUNNI 4
GERÐUBERGI
VÖRÐUSKÓLA
KOLAPORTI
Rögnvaldur Sigurjónsson - tónlistarmaður
Skúli Johnsen — borgarlæknir
STUÐNINGSMENN Viggó Sigurðsson - íþróttakennari
Vilborg Halldórsdóttir - leikkona
Vilhelm Ingimundarson - fulltrúi
aði hún bókstaflega fyrir alla sveit-
ina í mörg ár. Oftast varð greiðslan
fyrir pijónaskapinn lítið annað en
þakklæti þess sem við tók. Lengi
hafði hún litla hannyrðaverslun inn
af lækningastofunni og var það
umboð frá verslun Balduins Ryel á
Akureyri.
En þótt önn dagsins væri mikil
fann hún alltaf tíma til að sinna
félagsmálum. Hún starfaði mikið í
Kvenfélagi Vopnaijarðar og var þar
lengst af gjaldkeri. Hún sat um
langt skeið í sóknarnefnd Vopna-
Ijarðarsóknar. Þá er ótalinn áhugi
hennar á leiklist. Hún hafði mjög
gaman af að leika og var ein aðal-
driffjöðrin í leikfélagi á Vopnafirði
og lék oft sjálf í ýmsum hlutverkum.
Eftir að þau hjón fluttust til
Reykjavíkur starfaði Árni læknir
um árabil hjá Tryggingastofnun
ríkisins, en hann lést í apríl 1977.
Afkomendur þeirra eru að nálgast
100, börnin voru 11, við barnabörn-
in erum 36, barnabarnabörnin um
50 og eitt barnabarnabarnabarn.
Þó að amma Aagot standi ekki
lengur á leiksviði er hún samt sem
áður enn í stóru hlutverki, því að
hún er sá tengiliður sem heldur
þessari stóru fjölskyldu saman. Hún
hefur alltaf jafngaman af að hitta
fólk, fara í leikhús, á tónleika, eða
gera eitthvað annað skemmtilegt,
enda hrókur alls fagnaðar hvar sem
hún fer. Hún tekur virkan þátt í
félagsstarfi aldraðra og stundar þar
reglulega leikfimi og handavinnu.
Einnig er hún meðlimur í Félagi
austfirskra kvenna og sækir þar
fundi reglulega. Ekki eru mörg ár
síðan hún hætti pijónaskapnum, en
handavinnan er samt aldrei langt
undan, t.d. útsaumur eða barnahos-
ur.
Þessi níræði unglingur lætur
engan bilbug á sér finna og heldur
upp á afmælið með opnu húsi í
Miðleiti 5 í dag kl. 3-6.
Elsku amma, til hamingju með
daginn, ég vona að sem flestir njóti
hans með þér, lifðu heil.
Auður Árnadóttir
Elsku amma.
Nú þegar þú leggur af stað inn
í tíunda áratuginn langar okkur að
senda þér svolitla kveðju.
Við kynntumst þér ekki mikið
sem miðaldra konu þegar við vorum
börn, þá skildu torfærur Austijarð-
anna. En það hefur verið okkur
mikil gjöf að fá að kynnast þér sem
unglingi fram á hárrar elli ár. Við
höfum kynnst brosi og bjartsýni,
hláturmildi, hlýju viðmóti og léttri
lund; fallegri manneskju. Við höfum
séð að það er hægt að komast í
gegnum langa ævi, umbrotasamt
lífsstarf og gagngerar þjóðfélags-
breytingar með bros á vör, og við
höfum lært hvernig jákvætt lífsvið-
horf lýsir upp tilveruna og gefur
henni tilgang.
Frá þér fer betra fólk með bjart-
ari lífssýn.
Til hamingju með daginn.
Birna, Árni, Anna og Sigbjörn
■ HINIR árlegu vortónleikar
Lúðrasveitar Laugarnesskóla
verða haldnir í skólanum í dag,
laugardag, kl. 14. Kaffiveitingar
að tónleikum loknum.
M SÝNING stendur yfir í Hafhar-
borg þessa dagana á málverkum
úr safni Hafnarborgar. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá
kl. 14—19. I páskavikunni verður
opið skírdag og annan í páskum en
lokað á föstudaginn langa, laugar-
dag og páskadg.
■ SAMEIGINLEGUR fundur
stjórna Félags sjónvarpsþýðenda
RÚV og Félags þýðenda Stöð 2
hefur skorað á menntamálaráð-
herra og Alþingi að hlutast nú þeg-
ar til um að sett verði lög sem kveði
á um lágmarkskröfur fyrir þýðend-
ur á kvikmynda- og sjónvarpsefni
og gera dreifingaraðila ábyrga fyrir
því að þýðingar í myndmiðlum séu
ekki í höndum fúskara. Einnig skor-
ar fundurinn á menntamálaráð-
herra og Alþingi að hvika hvergi
frá þeirri stefnu að lögfesta þýðing-
arskylduna í nýjum útvarpslögum
og sýna þannig íslenskri menningu
og tungu rækt í verki.