Morgunblaðið - 07.04.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990
27
Sýníng um helgina, opið laugardag kl. 13-17.
Sovéskum gyð-
ingum leyft að
fara um Finnland
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FINNSK stjórnvöld tilkynntu á miðvikudag, að 100 sovéskum
gyðingum yrði leyft að fara um Finnland á leið sinni til ísraels.
Talið er að allt að nokkur hundruð þúsund gyðinga hyggist flytj-
ast frá sovétríkjunum til fyrirheitna landsins en upp á síðkastið
hefiir þeim reynst erfítt að komast þangað. Ungveijar hættu ný-
lega að annast flutninga á sovéskum gyðingum vegna hótana frá
palestínskum öfgahópum.
Pertti Paasi^ utanríkisráðherra
Finna segir að ísraelum hefði verið
sett það skilyrði að gyðingarnir sem
færu um Finnland yrði ekki vísað
til byggða á herteknu svæðunum.
Hefðu þeir fallist á það og segist
Paasio sannfærður um að Israelar
standi við orð sín. Fulltrúi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO) í
Helsinki, Zuheir al-Wazir, er hins
vegar uggandi og segist ekki
treysta Israelsmönnum. Margir
þeirra gyðinga sem hafa flust frá
Sovétríkjunum til ísraels á undan-
förnum árum hafa einmitt sest að
á herteknu svæðunum. Af þeim
sökum hafa palestínskir öfgamenn
haft í hótunum við þjóðir og flugfé-
lög sem tengjast flutningum á so-
véskum gyðingum til ísraels.
Ekki hefur verið látið uppi hvort
vænta megi að fleiri sovéskir gyð-
ingar fái að fara um Finnland en
þeir 100 sem fengið hafa til þess
leyfi. Heldur hefur ekki verið skýrt
frá því hvenær mennirnir 100 verða
a ferðinni.
Finnar voru lengi milliliðir í sam-
skiptum ísraela og Sovétmanna
meðan þjóðirnar tvær höfðu ekki
með sér stjórnmálasamband. Und-
anfarið hafa verið stofnuð hér í
landi félagasamtök Finna tii þess
að undirbúa mikla fólksflutninga
frá Leníngraðsvæðinu og Eistlandi
til Israels.
Næturvörður sýru ausinn
Reuter
Maður var handtekinn í ríkislistasafninu í Amster-
dam í gær eftir að hafa sprautað sýru úr brúsa
yfir hið fræga máiverk Rembrandts Næturvörðinn.
Að sögn starfsmanna safnsins tókst að koma í veg
fyrir að sýran skemmdi listaverkið sem málað var
árið 1642.
t ■
V..
.
Bretland:
Hrotur
varða við
mengnn-
arlöggjöf
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
ENSKUR dómari komst að
þeirri niðurstöðu í síðustu
viku, að hrotur vörðuðu við
mengunarlög. Mengunarvald-
urinn var þó ekki sektaður.
Davies-hjónin búa á efri hæð
í húsi í borginni Leeds og frú
Philips býr þar á neðri hæð með
dóttur sinni. Frú Philips er 87
ára gömul og eru það hrotur
hennar sem valdið hafa Davies-
hjónunum ónæði. Þau ákváðu
að stefna granna sínum fyrir
rétt til að fá bættan skaða vegna
ónæðisins af hrotunum, sem
hafa lengi borizt af neðri hæð-
inni.
í málarekstrinum kom fram,
að Davies-hjónin hafa kallað inn
lögregluna og heimilislækni til
að reyna að stilla til friðar, en
án nokkurs árangurs. Síðan var
loftið hjá frú Philips og gólfið
hjá hjónunum hljóðeinangrað.
Þá höfðu vandræðin staðið í
hálft annað ár.
Lögmaður Davies hjónanna
hélt því fram, að hrotur væru
hávaði, sem gæti valdið tjóni.
Sama mætti segja um hanagal
í morgunsárið og orgelleik. Lög-
maður frú Philips sagði hrotur
hennar stafa af hálsveiki. Hrotur
væru fullkomlega eðlilegar,
bættu heilsuna, hjartsláttinn og
lækkuðu blóðþrýsting. Svo bætti
hann við: „Það vill enginn hijóta,
en það kann enginn ráð við því.“
Dómarinn komst að þeirri nið-
urstöðu, að hroturnar væru beint
tilræði við heilsu og vellíðan
nágrannanna og vörðuðu við
mengunarlög. Hann taldi þó
óeðlilegt að frú Philips væri
dæmd til að greiða skaðabætur
eða allan málskostnað. Þetta er
í fyrsta skipti í enskri réttar-
sögu, að hrotur eru taldar varða
við lög.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, sími 42600