Morgunblaðið - 07.04.1990, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRIL 1990
36
VORGULL
(Forsythia)
llmsjón:
Ágústa Björnsdóttir
I60.þáttur
Það hefur verið ýjað að því við
undirritaðan að þeir sem fylgjast
með þessum þætti kynnu að hafa
ánægju af smárabbi um forsýtíu.
Hér er um ættkvísl að ræða, sem
gengur undir nafninu „Forsythia"
á máli fræðimanna, en hún er
kennd við þekktan enskan garð-
yrkufræðing W.A. Forsyth, sem er
löngu liðinn. Á íslensku hefur for-
sýtíu einnig verið gefin nöfnin vor-
gull og gullrunni. Mun ég halda
mig við fyrra nafnið og tína til sitt
lítið af hveiju um þennan runna,
sem víða er rómaður fyrir óvenju-
lega blómsælni og glæsilegt blóm-
skrúð. Fáar tegundir skrautrunna
munu eins algengar í görðum nær-
liggjandi landa og. einmitt vorgull.
Þetta eftirlæti margra er sannkall-
að tákn sumarkomunnar, því runn-
inn byijar að töfra fram fagurgul
og fínleg blóm sín fljótlega eftir
að góður ylur fer að leika um jörð
og loft. Blómgun hefst rétt áður
en örla tekur á laufi runnans. Ekki
síst þess vegna verða blóm hans
svo áberandi og blómgun tilkomu-
mikil.
Ættkvíslin vorgull á heima í
olíuviðarætt (Oleaceae) sem einn-
ig nefnist smjörviðarætt, en ætt-
arblóminn þar er hið alkunna olíu-
tré ævagömul og stórmerk yrki-
planta í Miðjarðarhafslöndum og
víðar. Annað kunnugt tré ættarinn-
ar er askur (Fraxinus). Enn aðrir
ættingjar vorgulls eru sýrenur,
jasmína og gecðarunni (Ligustr-
um). Til vorgulls teljast einar 8
tegundir. Upprunalegir heimahag-
ar flestra þeirra eru Kína, Kórea
og Japan. Ein þeirra vex þó í fjal-
lendi Albaníu.
Vorgullstegundirnar eru stæði-
legir sumargrænir runnar, 1—3 m
á hæð með kröftugum og stinnum
greinum sem standa þétt. Stundum
eru þær bogsveigðar í endann.
Greinar eru ýmist sívalar eða kant-
aðar, gulbrúnar og stinga í stúf
við margt annað. Blöðin eru gagn-
stæð, fagurgræn. Blómin spretta
aðallega fram á tveggja ára stutt-
greinum en gætir þó einnig á að-
eins ársgömlum, þau eru ekki stór
en sitja oft mjög þétt.
Vorguíl er auðvelt í fjölgun með
kurlgræðlingum, á sama máta og
víðir. Sama gildir um sumargræðl-
inga. Tegundirnar þrífast best í
frekar þurrum jarðvegi og þær eru
taldar nægjusamar á næringu í
jörð. Vorgull þarf langan og hlýjan
vaxtartíma til að geta myndað
blóm, er því borin von að runninn
geti átt framtíð fyrir sér í görðum
hér. Öðru máli gildir ef hann nyti
vistar í stofu eða garðskála. Það
skyldi þó athugað að runninn er
plássfrekur og því væri ráðlegast
að rækta hann í rúmgóðu íláti og
beita klippunum óspart, samt á
ákveðinn hátt.
Afskornar greinar vorguljs eru
mjög auðveldar í ylræktun. í þeim
tilgangi er töluvert fengist við að
rækta þær og selja sumsstaðar
erlendis. Hér hefur í mörg ár verið
svolítið framboð af innfluttum
blómstrandi greinum í blómaversl-
unum á veturna. Þær eru ylræktað-
ar hér. Fyrst og fremst sjást þær
þegar páskar fara að nálgast og
bjóðast eitthvað fram eftir vori.
Það eru fyrst og fremst ýmsir
blómviljugir bastarðar sem þykja
fegurstir í þessu skyni, en blóm
flestra þeirra hafa skærari lit en
sjálfar tegundirnar. Tveggja ára
greinar skila flestum blómum, en
þær eru látnar standa í vatni við
allt að 20° hita á björtum stað.
Koma þá blómhnappar mjög fljót-
lega fram.
Að lokum má geta þess að í
Noregi þrífast sumar vorgullsteg-
undirnar vel í austurhluta landsins
og hér og þar í strandhéruðunum
allt til Þrændalaga.
Óli Valur Hansson
ATVINNUAUGl YSINGAR
Siglufjörður
Blaðberi óskast á Hólaveg.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 71489.
ffatngtuiIilfiMfe
FfíAMHALDSSKÓLINN A HÚSAVlK
SKOLAGARDI - POSTHOLF 74 - 540 HÚSAVlK
SlMI 96-41344 96-42095
Kennarastöður
Kennarastöður við Framhaldsskólann á
Húsavík eru lausar til umsóknar. Um er að
ræða heilar stöður í ensku, samfélagsgrein-
um, íslensku, stærðfræði, þýsku og við-
skiptagreinum. Ennfremur hlutastöður í
dönsku, frönsku, rafiðngreinum, sérgreinum
bifvélavirkjunar, vélritun og námsráðgjöf.
Umsóknarfrestur um stöður þessar er til 30.
apríl 1990. Umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, skal senda undir-
rituðum, sem veitir nánari upplýsingar.
Skólameistari.
Sérkennarar
Sérkennara vantar að Barnaskóla Húsavíkur
næsta skólaár. Útvegum húsnæði, barna-
gæslu o.fl. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Upplýsingar veitir Halldór Valdimarsson,
skólastjóri, vinnusími 96-41660 og heima-
sími 41974.
Skóianefnd Húsavíkur.
Prcnltcekni hf
KÁRSNESBRAUT 108 • 200 KÓPAVOGI
Prentari óskast
Viljum ráða duglegan pressumann sem fyrst.
Prenttækni hf.,
Kársnesbraut 108, Kópavogi,
sími 44260.
Umsjónarmaður
félagsmiðstöðvar
Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns
Félagsmiðstöðvar Selfoss.
Um er að ræða fullt starf til eins árs frá júní
eða júlí nk. Umsjónarmaður ber ábyrgð á
rekstri félagsmiðstöðvarinnar og skipuleggur
starfsemi hennar í samvinnu við íþrótta- og
tómstundaráð Selfossbæjar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi uppeldis-
menntun eða reynslu af sviði unglingastarfs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir undirritað-
ur á bæjarskrifstofum Selfoss, þar sem um-
sóknum skal skilað eigi síðar en 23. apríl nk.
Bæjarstjórinn á Selfossi.
KENNSLA
Lærið ensku í Englandi
Sumarnámskeið í Bournemouth bjóðast enn
fyrir alla sem eru 15 ára og eldri. Eitt slíkt
námskeið hefst 22. júní nk., þar sem flugferð-
ir, kynnisferðir, leiðsögn, bækur o.fl. er inni-
falið í einu verði.
Áratugareynsla.
Allar upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson,
Kvisthaga 3, Reykjavík, sími 14029.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Þriðjudaginn 10. aprfl 1990
fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum í dómsal
embættisins, Hafnarstræti 1, og hefjast þau kl. 14.00:
Brekkustig 7, Suðureyri, þingl. eign Aðalbjörns Þórhalls Jónssonar,
eftir kröfu Sparisjóðs Súgfirðinga.
Brautarholti 10, ísafirði, þingl. eign Árna Sædal Geirssonar, eftir
kröfum Tryggingastofnunar ríkisins, íslandsbanka, (safirði, veðdeildar
Landsbanka (slands og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Brimnesvegi 16, Flateyri, þingl. eign Finnboga I. Hallgrímssonar,
eftir kröfum veðdeildar Landsbanka Islands, Lifeyrissjóðs Vestfirðiga
og Kreditkorta hf.
Nesvegi 5, Súðavík, þingl. eign Auðuns Karlssonar, eftir kröfum
Sparisjóðs Súðavíkur, Kreditkorta hf. og innheimtumanns ríkis-
sjóðs.
Pólgötu 10, ísafirði, talinni eign Magnúsar Haukssonar, eftir kröfum
Lífeyrissjóðs Vestfiðinga, Bæjarsjóðs isafjarðar, veðdeildar Lands-
banka islands og innheimtumanns ríkissjóðs. Annað og síðara.
Sólgötu 3, isafirði, þingl. eign Jóns Benónýs Hermannssonar, eftir
kröfum Lífeyrissjóðs Vestfirðinga og veðdeildar Landsbanka islands.
Stórholti 11, 3.h.b, þingl. eign. Sigurrósar Sigurðardóttur o.fl., eftir
kröfum Búnaðarbanka islands, Blönduósi, Kreditkorta hf., Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna og veðdeildar Landsbanka islands. Annað
og síðara.
Suðurgötu 11, ísafirði, þingl. eign Niðursuðuverksmiðjunnar hf.,
eftir kröfum Iðnþróunarsjóðs og Byggðastofnunar. Annað og
síðara.
Sunnuholti 3, ísafirði, þingl. eign Sævars Gestssonar, eftir kröfum
Bæjarsjóðs isafjarðar og Bóksölu Eggerts og Guðmundar. Annað
og síðara.
Tangagötu 26, ísafirði, þingl. eign Kjartans Brynjólfssonar, eftir kröfu
Kreditkorta hf.
Túngötu 9, Suðureyri, þingl. eign Suðureyrarhrepps, eftir kröfu veð-
deildar Landsbanka islands. Annað og síðara.
Verksmiðjuhúsi við Sundahöfn, ísafirði, þingl. eign Niðursuðuverk-
smiöjunnar, eftir kröfum, Iðnlánasjóðs, Byggðastofnunar, Skipadeild-
ar Sambandsins og innheimtumanns ríkissjóðs. Annað og síðara.
Þriðja og síðásta nauðungaruppboð
á fiskverkunarhúsi og beitingarskúr, Flateyri, þingl. eign Snæfells
hf. fer fram eftir kröfum Sæplasts hf., Glerborgar hf., Stefnis hf.,
Fiskveiðasjóðs og innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 10. april 1990 kl. 16.00.
Þriðja og síðasta nauðungaruppboð
á Grundarstíg 11, Flateyri, þingl. eign Helgu Matthiasdóttur og
Gunnhalls Gunnhallssonar fer fram eftir kröfu veðdeildar Lands-
banka fslands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 10. apríl 1990 kl. 16.30.
Þriðja og síðasta nauðungaruppboð
á Mánagötu 4, ísafirði, þingl. eign Bernharðs Hjaltalín, fer fram eft-
ir kröfum Verðbréfasjóðsins, Guðjóns Ármanns Jónssonar og Búnað-
arbanka Islands, Austurbæ, á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11.
apríl 1990 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn á isafirði,
sýsiumaðurínn í ísafjarðarsýsiu.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
é
t Krabbameinsfélagið
Aðalfundur Krabbameins-
félags Reykjavíkur
Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur
verður haldinn í húsi Krabbameinsfélagsins,
Skógarhlíð 8, mánudaginn 9. apríl 1990 og
hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Að loknum fundi verða kaffiveitingar í boði
félagsins. Stjórnin.
ATVINNUHUSNÆÐI
Verslunarhúsnæði
við Síðumúla
Til leigu á besta stað við Síðumúla ca 160
fm verslunarhúsnæði á jarðhæð.
Upplýsingar gefur Sigmundur Hannesson
hdl., Pósthússtræti 13, í símum 25959 á
skrifstofutíma og 24455 á kvöldin og um
helgar.