Morgunblaðið - 27.04.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990
27
Kortið sýnir siglingaleiðir sem NVSV býður uppá á næstunni.
Sjóferðir NVSY að
heflast á nýjan leik
í VOR mun Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands standa fyrir sjó-
ferðum með farþegabátnum
Hafrúnu fyrir almenning og
skóla eins og í fyrravoí' og í haust
sem leið.
Siglingaleiðin um Kollafjörð,
Skeijafjörð og Hvalfjörð verður með
svipuðu sniði og áður en ýmsu öðru
verður breytt. Þar má nefna að
ferðaáætlunin fyrir laugardaga og
sunnudaga verður breytileg eftir
veðri, sjólagi og af öðrum ástæðum.
Þá geta hópar farið í sérferðir virka
daga og einnig um helgar. Athug-
anir á vorkomunni í og á sjónum
með mælingum, botnsköfu og gildr-
um verða gerðar fjölbreyttari og
fólki gefst kostur á að taka þátt í
þeim. Þá verða sérstakar útsýnis-
ferðir og sjóferðir á milli staða.
Áætlað er að 10 eftirtaldar ferð-
ir verði í boði og hægt verði að
láta skrá sig í þær fyrirfram. 1.
Siglt verður kringum Viðey og
Engey. 2. Siglt með eyjum og um
sund á Kollafirði. 3. Siglt verður
um allan Kollafjörð. 4. Siglt verður
út fyrir Gróttu og inn á Skeija-
fjörð. 5. Siglt verður upp í Hval-
fjörð. 6. Siglt verður suður í Hafnar-
fjörð. 7. Farið í eyjar á Kollafirði.
8. Siglt verður með ströndinni suð-
ur í Keflavík. 9. Siglt verður upp í
Borgarfjörð. 10. Siglt út á Faxaflóa.
Næstkomandi laugardag og
sunnudag verður, eftir veðri og sjó-
lagi, boðið upp á sjóferðir nr. 2, 4,
5 og 7. Þátttaka í sjóferðunum er
öllum heimil.
(Fréttatilkynning)
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
26. apríl.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 85,00 80,00 82,87 17,121 1.418.819
Þorskur(óst) 80,00 59,00 67,72 17,591 1.191.188
Þorskur(smár) 52,00 52,00 52,00 1,018 52.936
Ýsa 111,00 100,00 104,05 5,424 564.303
Karfi 36,00 36,00 36,00 0,790 28.440
Ufsi 38,00 38,00 38,00 3,870 147.052
Steinbítur 47,00 43,00 45,10 0,669 30.170
Langa 48,00 46,00 46,18 0,828 38.240
Lúða 275,00 250,00 262,70 0,209 54.773
Koli 20,00 20,00 20,00 0,256 5.120
Keila(óst) 33,00 33,00 33,00 0,602 19.869
Rauðmagi 89,00 50,00 58,48 0,207 12.105
Samtals ! 73,28 48,804 3.576.513
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 106,00 72,00 104,21 28,270 2.946.078
Þorskur(óst) 72,00 58,00 66,19 6,753 446.997
Ýsa 98,00 93,00 94,60 1,541 145.786
Ýsa(óst) 111,00 50,00 97,31 15,316 1.490.336
Karfi 38,00 37,00 37,46 25,541 956.759
Ufsi 47,00 44,00 44,60 2,303 102.705
Lúða 330,00 150,00 213,03 0,556 118.445
Skarkoli 40,00 20,00 37,63 0,285 10.725
Rauðmagi 95,00 90,00 94,48 0,258 24.375
Samtals 76,24 83,337 6.353.494
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 97,50 45,00 74,70 59,670 4.457.288
Ýsa 100,00 62,00 87,71 31,326 2.747.749
Karfi 40,00 29,00 37,00 9,016 333.622
Ufsi 33,50 26,00 31,01 5,193 161.027
Steinbítur 45,00 36,00 43,67 6,433 280.951
Langa 62,00 46,00 59,01 0,311 18.352
Langlúra 15,00 15,00 15,00 0,136 2.040
Lúða 355,00 59,00 193,90 0,708 137.279
Skarkoli 47,00 25,00 41,97 1,266 53.133
Sólkoli 65,00 63,00 64,21 0,058 3.724
Keila 25,00 21,00 23,70 1,460 34.600
Samtals 71,21 115,819 8.247.137
Selt var m.a. úr Jóhanni Gíslasyni ÁR. f dag verður selt úr dagróðrabátum.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMÖRKUÐUM - YTRA
SKIPASÖLUR í Bretlandi 26. apríl. Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.)
Þorskur 120,07 69,100 8,296.837
Ýsa 1 11,00 14,800 1,642.800
Ufsi 53,96 18,400 992.864
Karfi 51,58 2,550 131.529
Samtals 105,50 108,125 11.407.400
Selt var úr Náttfara NK 122 í Hull.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 26. apríl
Þorskur 155,63 115,86
Ýsa 161,88 117,44
Ufsi 71,42 60,31
Karfi 66:6b
■ / FRÉTT á blaðsíðu 2 í Morg-
unblaðinu í gær, þar sem skýrt er
frá þremur ströndum við Höfn í
Hornafirði er strandstaðurinn
nefndur Faxasker. Nú hefur kunn-
ugur maður bent Morgunblaðinu á
að ekkert örnefni þar eystra beri
þetta nafn, heldur heiti strandstað-
urinn Faxeyri. Þetta leiðréttist hér
með.
■ / DAGBÓK viðskipablaðs
Morgunblaðsins í gær, þar sem
boðað er til aðalfunda slæddust inn
tvær villur um fundartíma og skeik-
aði í báðum tilfellum um hálfa
klukkustund. Aðalfundur Sam-
vinnubankans hefst kl. 13:30 í dag
en ekki kl. 13 eins og stóð í blaðinu
og aðalfúndur íslandsbanka hefst
kl. 16:30 nk. mánudag en ekki kl.
16 eins og kom fram í blaðinu.
Eru viðkomandi aðilar beðnir
velvirðingar á mistökunum.
■ VEGNA frétta af þeirri ákvörð-
un aðalfundar Fríkirkjunnar í
Reykjavík að safnaðarfólk greiddi
hér eftir ekki fyrir aukaverk presta
skal áréttað, að hið sama gildir
ekki um Fríkirkjuna í Hafnar-
firði. í Morgunblaðinu sl. sunnudag
og í gær var' fjallað um þessa
ákvörðun. í fréttinni í gær láðist
að geta þess að ákvörðunin á ein-
göngu við_ um Fríkirkjuna í
Reykjavík. í Hafnarfirði er annar
Fríkirkjusöfnuður, en engin tengsl
eru á milli þessara söfnuða. Söfnuð-
urinn í Hafnarfirði hefur fylgt þjóð-
kirkjunni í launamálum.
Guðrún
■ ÁLAFOSS
kynnir nýja
værðarvoð-
alínu í húsnæði
Epals, Faxa-
feni 7, dagana
26. apríl til 17.
maí nk. Textíl-
listamaðurinn
Guðrún Gunn-
arsdóttir hef-
ur únnið við
hönnun og vöruþróun á nýju
línunni. Línan sem er úr 100%
lambsull er kölluð Art Line —
Listalína. Voðirnar eru sex talsins
og notaðir hafa verið sex mismun-
andi litir. Nýju voðirnar eru gjör-
ólíkar þeim voðum sem Álafoss
hefur áður haft á boðstólum. Þær
eru þunnar, þétt ofnar og léttar.
Hægt er að nota þær sem ábreiður
og sjöl. Álafoss hefur látið hanna
sérstakar gjafapakkningar fyrir
línuna, svartan sexhyrndan kassa.
Álafoss hefur fengið myndlista-
manninn Bergljótu Kjartansdótt-
ur til að mála málverk af værðar-
voðunum, sem nota á til kynningar
á línunni, og eru þau til sýnis í Epal.
■ EVRÓPUFERÐIR verða með
ferðakynningu í Miklagarði við
Sund í dag, föstudag, og á morg-
un, laugardag. Sérstök áherzla er
lögð á að kynna áfangastaði Evr-
ópuferða í Portúgal.á Madeira
og Azoreyjum. Þá má nefna nýjan
áfangastað: Costa Verde í Norður
Portugal. Kynningin er opin á
föstudag kl. 13—19.30 og á laugar-
dag frá kl. 10—16. Dregið verður
um ferðaverðlaun til Portugal í
léttri getraun.
■ LJÓÐA TÓNLEIKAR Eddu
Moser og Dalton Baldwin, sem
vera áttu í íslensku óperunni, á
morgun, laugardaginn 28. apríl, kl.
16.30 á vegum Tónlistarfélagsins,
falla niður vegna veikinda söngkon-
unnar. Til stóð að listamennirnir
héldu námskeið fyrir söngvara og
píanóleikara í húsnæði Tónlistar-
skólans í Reykjavík, og fellur það
einnig niður. Aðgöngumiðar verða
endurgreiddir á sölustað.
- Tónlistarfélagið
■ BANDARÍSKA kammersveitin
The California E.A.R. Unit heldur
tónleika að Kjarvalsstöðum í
kvöld, föstudaginn 27. apríl kl.
20.30. The California E.A.R. Unit
er níu manna hópur sem hefur sér-
hæft sig í flutningi nýrrar tónlistar.
Þau hafa unnið náið með mörgum
af frægustu tónskáldum samtíðar-
innar, mönnum eins og John Ad-
ams, Milton Babbit, John Cage,
Elliott Carter, Peter Maxwell
"Davies, MörtönTéldinan ogMor-
ton Subotnick. Á þessum tónleik-
um mun The California E.A.R.
Unit flytja verk eftir Elliott Cart-
er, Arthur Jarvinen, Stephen
Mosko, Steve Reich og Frederic
Rzewsky, auk þess að frumflytja
nýtt verk eftir Hilmar Þórðarson.
Á morgun, laugardaginn 28. april,
ki. 10—12 f.h. mun hópurinn balda
námskeið í sal Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar við
Hraunberg, Breiðholti. Þar munu
þau sýna ýmsar aðferðir til þess
að miðla nútímatónlist til barna og
leikmanna, auk þess að leyfa þátt-
takendum að spreyta sig sjálfir við
tónsköpun. Aðgangur að námskeið-
inu er ókeypis og öllum heimill.
The California
ur tónleika að
kvöld.
■ LJÓÐA-
KVÖLD verð-
ur í Lista-
mannahúsinu,-
Hafnarstræti
4, á morgun,
laugardaginn
28., apríl, í til-
efni af útkomu
ljóðabókarinn-
ar LífeftirSig-
urð Ingólfs-
son. Þeir sem
lesa auk Sig-
urðar eru Þorsteinn Gylfasonsem
mun lesa úr eigin verkum, Ari Gísli
Bragason og Kristján Þórður
Hrafnsson lesa úr ljóðabókum
sínum. Þá verður lesið úr verkum
Þorgeirs Þorgeirssonar. Ljóða-
veisla Sigurðar mun hefjast kl. 16
og er öllum opin.
■ FARIÐ verður í hina árlegu
vorferð barnastarfs Fríkirjunnar í
Haftiarfirði laugardaginn 28. apríl.
Lagt verður af stað frá kirkjunni
kl 13 og haldið í fjöruferð suður
með sjó. Farið verður í fjöruna við
Garðskagavita og staldrað þar við
góða stund. Þá verður farið í Út-
skálakirkju til helgistundar á
heimleið. Nauðsynlegt er að börnin
komi vel búin og hafi með sér
nesti. Þá er þess vænst að sem flest-
ir aðstandendur sjái sér fært að
koma með í ferðina sem er lokaþátt-
urinn í barnastarfi kirkjunnar á
þessum vetri. Allir eru hjartanlega
velkomnir. Næstkomandi sunnudag
verður guðsþjónusta í kirkjunni kl
14. Það er síðasta guðsþjónusta
safnaðarprestsins fyrir námsleyfi
hans sem stendur til 5. ágúst nk.
(Fréttatilkynning)
Fríkirkjan í Hafnarfirði
■ GUNNAR Ásgeir Hjaltason
sýnir í Hafnarborg. Sýningin er
opin daglega kl. 14—19 og stendur
til 6. maí. Á sýningunni eru mynd-
verk unnin í pastel og akrýl, vatns-
litamyndir, teikningar, grafík og
ýmsir smíðisgripir. Gunnar Ásgeir
Hjaltason, er fæddur 21. nóvember
1920 að Ytri-Bakka við Eyjaijörð.
Fluttist þaðan ungur til Reykjavík-
ur og síðan til Hafnarfjarðar 1952.
Gunnar lærði gullsmíði hjá Guð-
mundi Guðnasyni og Leifi Kaldal
1943—1947. Hann stundaði nám
við teikniskóla Björns Björnssonar
og Marteins Guðmundssonar
‘nokkrum námsskeiðum á vegum
Handíðaskólans m.a. í tréristu hjá
Hans Alexander Muller 1952.
Gunnar hefur haldið einkasýningar
í Haftiarfirði, Reykjavík, Kópa-
vogi, Vestmannaeyjum, Hvera-
gerði, Borgarnesi og Hvamms-
tanga frá 1964. Hann hefur einnig
tekið þátt í samsýningum í Hafnar-
firði, Reykjavík, Uppsölum
(Svíþjóð) og í Vínarborg (Aust-
urríki).
■ TÓNLEIKAR verða í Nor-
ræna húsinu þar sem tónlistar-
mennirnir Matts Eriksson, fiðlu-
leikari og Carl Otto Erasmie,
píanóleikari leika verk eftir nor-
rænu tónskáldin Lars-Erik Lars-
son, Einar Englund og Edvard
Grieg. Þetta er í fyrsta skipti sem ■*-
þeir halda tónleika saman hér á
landi, en Carl Otto Erasmire hefur
tvívegis áður leikið á tónleikum í
Norræna húsinu ásamt einsöngvur-
um. Eriksson og Erasmire hófu að
leika saman haustið 1986. Þeir
leggja áherslu á að spila sem fjöl-
breyttust tónverk frá ýmsum tíma-
bilum pg kynna tónskáld sérstak-
lega. Á þessum árum hafa þeir
haldið tónleika bæði heima og er-
lendis. Frumraun þeirra í Stokk-
hólmi var veturinn 1987 er þeir
léku í Menningarmiðstöð borgar-
innar. Norræni menningarsjóðurinn
hefur veitt þeim styrk til tónleika-
ferða .um Norðurlöndin og hafa
þeir leikið í Munch-safhinu í Osló
auk tónleika í Finnlandi. Þeir
hyggjast halda tónleika í Dan-
mörku og síðar á Grænlandi,
Færeyjum og Svalbarða. Matts
Eriksson leikur með Kammersveit
Stokkhólms og í Swedenborgar-
kvartettinum. Hann ferðast með
þessum sveitum um flest lönd
Evrópu, Bandaríkin og Suður-
Ameríku. Hann stundaði nám við
tónlistarháskólann í Stokkhólmi
og framhaldsnám í Vín og Köln.
Kennarar voru Alban-Berg kvart'-
ettinn og Amadeuskvartettinn.
Carl-Otto Erasmie hlaut píanó-
menntun sína í Gautaborg, Lon-
don og Brussel. Hann hefur leikið
á Norðurlöndunum, í Frakklandi
og Eyptalandi. Hann hefur marg-
oft leikið í útvarpi. Hann hefur leik-
ið með ýmsum þekktum söngvur-
um, m.a. Hakan Hagegard, Loa
Falkman og fleirum. Þá hefur hann
einnig fengist við hljómsveitar-
stjórnun.
Carl Otto Erasmie, píanóleikari
og Matts Eriksson, fiðluleikari
leika á tónleikum í Norræna hús-
inu á laugardag.
■ HANY Hadaya mun dansa
„Adam“ í ballettnum „Adam og
Eva“ eftir Birgit Cullberg á
síðustu_ sýningum Vorvinda, sýn-
ingu Islenska dansflokksins í
Borgarleikhúsinu. Áður dansaði
Joacim Keusch þetta hlutverk.
Hany Hadaya er austurrískur en
hefur dansað með íslenska dans-^
flokknum síðastliðin þrjú ár. Hann
■stundaði ballettnám í Hollandi, í
Scapino, Nel Roos Akademie í
Amsterdam og nútímadans í Rott-
erdamse Dansakademie. Mót-
dansari Hany Hadaya í „Adam og
Evu“ er Ásdís Magnúsdóttir.
Sfðustu sýningar verða um helgina,
föstudaginn 27. apríl og sunnudag-
inn 29. apríl.
(Fr éttatilky nningf)
Ásdís Magnúsdóttir og Hany
1933—1942 ögTðk" éinnig þáfí“T Hadáýá daiisa ;,Adam og Evu“i
E.A.R. Unit held-
Kjarvalsstöðum í