Morgunblaðið - 27.04.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.04.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990 t Ástkaer eiginmaftur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN Þ. ÓLAFSSON fiskmatsmaður, fyrrum bóndi að Leirum, Austur-Eyjafjöllum, lést á heimili sínu, Hraunbæ 132, Reykjavík, aðfaranótt 25. apríl sl. Kristín Pétursdóttir, Vigdís Kjartansdóttir, Þorvarður Þórðarson, Pétur Sævar Kjartansson, Ingibjörg Hrönn Sveinsdóttir, Ólafur Marel Kjartansson, Guðný Védís Guðjónsdóttir og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, ANNA S. GUÐMUNDSDÓTTIR JULNES, 6420 Aukra, Noregi, lést í sjúkrahúsinu í Molde 17. apríl. Jarðarförin hefur farið fram. Johan Julnes, HildaJulnes, LeifJulnes, Jenny Julnes, Ásta S. Þórarinsdóttir, Guðmundur G. Guðmundsson, Þórarinn B. Guðmundsson, Kristin Líndal, Úlfar Ágústsson, Guðrún J. Gísladóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, SIGURÞÓR ÁRNI ÞORLEIFSSON, Skólavegi 9, Keflavík, lést 23. apríl. Útförinferframfrá Keflavíkurkirkju laugardaginn 28. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlegast bent á Krabba- meinsfélagið. Sigrfður Björnsdóttir, Þorleifur Kristinn Sigurþórsson, Unnur Birna Þórhallsdóttir, Jón Þór Harðarson, Ólafur Jóhann Harðarson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Ragna Sif Newman, Þorleifur Sigurþórsson, Ágústa Þorleifsdóttir, Guðmundur Karl Þorleifsson, Júlíana Pietruszewski, Karolína Margrét Þorleifsdóttir. Björn Kjartan Sigurþórsson, Raymond Newman, Anna Marie Kjærnested, Unnar Örn Ólafsson, Margrét Karlsdóttir, Kristófer Þorgrfmsson, Sigurlaug Björnsdóttir, Paul Pietruszewski, t Frændi okkar og vinur, GARÐAR SVEINN ÁRNASON (frá Neskaupstað), Austurgötu 4, Hofsósi, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 30. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Salgerður Ólafsdóttir, Lára Ólafsdóttir, Hafsteinn Ólafsson, Baldvin Þorsteinsson, Einar Ágúst Kristinsson, Rebekka Ingvarsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN MARTEINSDÓTTIR frá Freyju, Neskaupstað, síðar búsett i' Bogahlíð 13, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, föstudaginn 27. apríl, kl. 15.00. Ada Elísabet Benjamínsdóttir, Jón Benjamínsson, Benjami'n Friðriksson, Baldur Friðriksson, Magnús Friðriksson, Ragnheiður Jónsdóttir, Friðrik Á. Magnússon, Guðný M. Kjartansdóttir, Birna Magnúsdóttir, Lilja Björnsdóttir, Bryndfs Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir og barnabarnabörn. + Ástkær móðir og amma, MATTHILDUR MATTHÍASDÓTTIR frá Litluhólum, Vestmannaeyjum, er andaðist á Hvítabandinu aðfaranótt 22. apríl, verður jarðsung- in frá Innri-Njarðvíkurkirkju laugárdaginn 28. apríl kl. 1 5.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Hjartavernd. Sigrún María Sigurðardóttir, Þórhildur Sylvi'a Magnúsdóttir. Eyvör Guðmunds- dóttír — Minning Fædd 27. júlí 1904 Dáin 21. apríl 1990 Hún amma mín, Eyvör Guð- mundsdóttir, lést á Hvítabandinu þann 21. þ.m. á 86. aldursári, þrot- in að kröftum, södd lífdaga. Hún var fædd 27. júlí 1904 á Bolungarvík, en fluttist kornabarn í Garðinn, þar sem hún ólst upp. Árið 1924 giftist hún afa, Þor- valdi Kristjánssyni, síðar málara- meistara, og fluttist hún þá til Reykjavíkur, en síðar bjuggu þau í Hafnarfirði. Aii lést árið 1976. Amma naut góðrar heilsu vel fram yfir áttrætt en síðustu árin reynd- ust henni erfið sökum ellihrumleika. Hún var af fátæku fólki komin, sjálf var hún fátæk af veraldlegum eig- um alla sína tíð og fékk ríflega sinn skerf af erfiðleikum lífsins. Það sem einkenndi ömmu þó alla tíð var brosið, létt iund og hlýja. Hvern dag þakkaði hún guði fyrir lífið í verki, með lífsgleði og hjartahlýju. Hún helgaði líf sitt fjölskyldu sinni, var hlý og hjálpsöm vinum sínum og nágrönnum. Eg geymi í huga mér fjölmargar dýrmætar minningar í samneyti við ömmu og afa í heimsóknum okkar systkinanna á Laufásveginn og síðar á Austurbrúnina. Sem fyrr segir urðu síðustu árin ömmu erfíð og dvaldist hún þá mestmegnis á sjúkrastofnunum borgarinnar, vil ég þakka hjúkr- unarfólki því sem annaðist hana góða aðhlynningu á undanfömum árum. Ég geymi í huga mér minninguna um ömmu sem geislaði af gleði og hlýju allt sitt líf. Hún var fátæk en hafði samt svo mikið að gefa. „Perla í mannhafinu". Megi guð geyma hana. Haukur Þór Hauksson í dag er til moldar borin mikil öðlingskona, tengdamóðir mín Ey- vör Guðmundsdóttir. Foreldrar hennar voru þau Guðfinna Magnús- dóttir og Guðmundur Sveinsson sjó- maður. Eyja fæddist í Bolungarvík, en fluttist kornung í Garð á Suður- nesjum og síðan til Hafnarfjarðar. Þar bjó hún uns hún giftist Þor- valdi Kristjánssyni málarameistara í júlí 1924. Hann lést ánð 1976. Eyja og Þorvaldur eignuðust eina dóttur, Arndísi, f. 23. mars 1924, sem gift er undirrituðum. Kynni okkar Eyju hófust um þær mundir, sem við Arndís giftumst og hafa því staðið á 5. áratug. Samskipti hennar við okkur og börnin og barnabörnin hafa verið ákaflega náin og gefandi. Um- hyggja hennar fyrir fjölskyldunni hefur alla tíð gengið fyrir öllu öðru. Eyja var mjög glaðlynd og flutti með sér gleði, og hógværð hennar var börnunum góð fyrirmynd. Hun var góður fulltrúi sinnar kynslóðar og þeirra, sem ólust upp við vinnu- semi og kröpp kjör. Eyja kunni þó að meta þau lífsgæði, sem til boða stóðu á efri árum. Minnist ég þess með ánægju hversu hughrif hennar voru sterk af ferðalögum með öldr- uðum til sólarstranda. Var það mik- il upplifun fyrir hana og uppspretta ánægju og gleði. Síðustu árin urðu Eyju erfið. Heilsunni hrakaði og varð hún að gista sjúkrastofnanir löngum. Síðustu árin bjó hún á vistheimilinu Seljahlíð og síðustu mánuðina var hún á sjúkradeild Hvítabandsins, þar sem hún lést. Á báðum þessum stofnunum naut hún besta aðbúnaðar, sem hægt er að láta í té, og stöndum við í mikilli þakkarskuld við starfsfólk þessara stofnana fyrir frábæra umönnun hennar. Að leiðarlokum þakka ég og fjöl- skylda mín Eyju fyrir samferðina, fyrir alla ástúðina og umhyggjuna. Minning hennar mun lifa með okk- ur, sem nutum samvista við hana. Haukur Benediktsson Einar Þorgeirs- son - Kveðjuorð Þegar náttúran kallar til sín mik- inn mann, leitar hugurinn út á sjón- deildarhringinn að öðrum til saman- burðar, en enginn kemur til greina eða mun koma. Sjö breiddarbaugar og tveir lengdarbaugar aðskildu okkur, 8.000 mílur; Atlantshafið og meginland Bandaríkjanna að Kyrrahafinu. Vinur minn Einar Þorgeirsson hefur yfirgefið þetta jarðneska líf. Þessi mikla fjarlægð milli okkar og mörgu ár sem liðu milli þess að við hittumst riðlaði aldrei þeim sterku vináttuböndum sem við höfð- um bundist. Engan hef ég vininn átt sem var eins traustur og hann. Gerðum við með okkur bræðralag að halda þessari vináttu til eilífðar, sem í mínum huga er án mæli- kvarða í rúmi og tíma. Óháð tilveru jarðneskrar tilveru. — Vinátta án + Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VALDIMARS STEFÁNSSONAR frá Laugardæium, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 28. apríl kl. 13.30. Jarðsett veröur í Laugardælum. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, ÁRNI JÓN SIGURÐSSON, fyrrverandi kaupmaður, Langholtsvegi 174, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 30. apríl kl. 13.30. Guðrún Árnadóttir, Þorgeir Árnason, Aðalheiður Árnadóttir, Sigurður Árnason. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengda- föður og afa, HARALDAR JÓNSSONAR, Þórufelli 20. Svanborg Sighvatsdóttir, Auður Agnes Haralsdóttir, Ingvi Pétursson, Þorsteinn Jón Haraldsson, Bjarney Þórarinsdóttir, Haraldur Ingvason. endis. Það liðu jafnvel mánuðir milli símtala, en hugur okkar var alltaf hvor hjá öðrum. Gagnkvæm virðing tveggja einstaklinga, vina sem örlögin aðskildu. Einar heitinn var atorkumaður, bar sinn eigin plóg með glæsibrag. í mínum huga var Einar Þorgeirs- son ímynd atorku, hagleikni og jarðbundinnar greindar. Hann var gæddur skemmtilegri kímnigáfu sem honum var einum leikin og gat fengið heilan hóp til að veltast um af hlátri. Allir menn eru miðjan í sínum eigin hring og miðjur okkar mætt- ust oft í huganum, þó fjarlægðin væri mikil. Fátt er svo göfugt sem slík vináttubönd. Þér, Helga mín, Sirrý, Bjarna, Einari og öðrum aðstandendum votta ég dýpstu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk. Á þessum hljóðlátu tímum þegar draumar fæðast og ráfandi mistur hugans reikar í vídd tímans: Geng ég út og ráfa inn á rás hugvíddar. Það er á þessum stað sem ég sé andlit hans. ímynd hans lifir þar. Ég geng með Einari á þá staði sem við höfum gengið gegnum áður fyrr. Minnist samræðna okkar er við létum hugann reika um tilver- una og framtíðardrauma. Á hljóðlátum stundum munum við hugsa/ til hans, þessa trausta heilsteypta vinar og þakka honum fyrir það sem hann var okkur og fjölskyldunni og varðveita minning- una um hann. Megi Einar vinur okkar hvíla í friði. Svanborg og Auðunn Sæberg Einarsson, Vancouver, Washington.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.