Morgunblaðið - 27.04.1990, Page 38

Morgunblaðið - 27.04.1990, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990 fclk í fréttum SÖNGLÖG Á SUÐURLANDI Kveðja sigraði í dægurlaga- keppninni Urslit í dægurlagakeppninni Sönglög á Suðurlandi fóru fram laugardaginn 21. apríl. Þá voru flutt ellefu lög og af þeim varð Kveðja, lag og texti Herdísar Leósdóttur, hlutskarpast. Lagið Svona er lífið eftir Ingi- björgu Erlingsdóttur við texta Jóns Bjamasonar varð í öðru sæti og Horfnir vinir eftir Erling Bjamason í því þriðja. Dægurlagakeppnin hefur farið fram í vetur og mörg lög komið fram. Það er hljómsveitin Karma sem hefur staðið fyrir keppninni og annast undirleik við lögin. - Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Herdís Leósdóttir höfundur sigurlagsins ásamt Ólafi Þórarins- syni sem söng lagið. AFBROT Lestarræningi fær ill örlög Charlie Wilson, einn þeirra, sem stóðu að „Lestarráninu mikla“ í Bretlandi árið 1963, var skotinn til bana við heimili sitt á Costa del Sol á Spáni fyrir nokkrum dögum. Eftir morðið sáu vitni til manns forða sér burt á reiðhjóli. Lögregluna grunar, að morðið tengist ágreiningi um ránsfenginn, um 360 milljónir ísl. kr., en fénu eða peningásendingunni var rænt úr lestinni milli Glasgow og Lund- úna 8. apríl 1963. Talið er, að Wil- son, sem var áður veðmangari að atvinnu, hafi verið gjaldkeri glæpaflokksins en hann náðist eftir ránið og var dæmdur í 30 ára fangelsi. Úr því tókst honum þó fljótlega að flýja en þremur árum síðar náðist til hans í Kanada, Sat hann síðan í fangelsi til ársins 1978 þegar hon- um var sleppt. Árið 1985 var Wilson handtek- inn vegna annars ráns en slapp fyrir hom í það sinnið. í blöðunum var Wilson oft nefndur „Þögli maðurinn" vegna þess, að við réttarhöldin á sínum tíma og síðar hefur hann þagað sem fastast um þátttöku sína í „Lestar- ráninu mikla“. „Lestarránið mikla“ er nú orðið hluti af breskum þjóðsagnaarfi og hafa verið gerðar um það margar kvikmyndir. Heitir sú nýjasta „Buster" og fara þar með aðalhlut- verkin breski rokksöngvarinn Phil Collins og leikkonan Julie Walters. Sumir þeirra, sem stóðu að ráninu, og aðrir, breskir afbrotamenn hafa á síðustu árum sest að á Costa del Sol, sem nú er oft kallað „Costa del glæpur“ í bresk- um blöðum. Charlie Wilson, einn þeirra, sem skipulögðu „Lestarránið mikla“. Hugs- anlegt er, að nú, 27 árum síðar, hafi ágreiningur um ránsfenginn orðið honum að aldurtila. LAUSBLAÐA- MÖPPUR írá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur SÍMI: 62 84 50 5 co Z 2 Z3 3 2 K BRUNAMALASTOFNUN VIÐURKENNIN G VEITT FYRIR BJÖRGUNARAFREK Brunamálastofnun og brunavarnir A-Húnavatnssýslu afhentu á dögunum bræðrunum á Litlu- Giljá viðurkenningu fyrir að bjarga litla bróður sínum út úr brennandi bíl. Það var í ársbyijun að Gesti Fannari var bjargað á elleftu stundu úr brennandi vörubíl föður þeirra er stóð á hlaðinu á Litlu-Giljá. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Brunamálastofnun veitir slíka viðurkenn- ingu. Á myndinni eru frá vinstri: Smári Rafn Haraldsson, Þorleifur Arason, slökkviliðsstjóri á Blönduósi, Hallgrím- ur Ingvar Steingríms- son son og Gestur Fannar Steingríms- son. Faxafeni 11, VÖNDUÐ STÖK TEPPI OG MOTTUR STIGA OG SKRIFSTOFUTEPPI (10 ára ábyrgd) sími 686999

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.