Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAI 1990
3
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kafarar leita að litla drengnum í lóninu fyrir ofan stífluna í Glerá. Drengurinn fannst látinn við stífluna.
Glerá á Akureyri:
| Sjö ára drengur drukknaði
Fannst þegar vatninu var hleypt úr stíflunni
^ Akureyri.
SJÖ ÁRA gamall drengur
drukknaði í Glerá í gær. Til-
kynning barst til lögreglunnar
laust fyrir hádegi um að drengs-
ins væri saknað og var strax
Félagar úr Hjálparsveit skáta,
Flugbjörgunarsveit og Sjóbjörgun-
arsveit tóku þátt í leitinni sem
stóð allan daginn.
Áin var koimórauð og í henni
miklar leysingar. Vatni var hleypt
úr stíflunni og fannst litli drengur-
inn þar látinn uppúr klukkan 18.
Seðlabankinn:
Bindiskylda innláns-
stofhana lækkuð
SEÐLABANKINN ákvað á mánudag að höfðu samráði við viðskipta-
ráðherra að breyta reglum um bindiskyldu og lausafjárhlutfall inn-
lánsstofnana. Bindiskylda lækkar úr 11% í 7% og lausafjárhlutfall
hækkar úr 9% í 12% af ráðstöfúnarfé. Framvegis verður lausafjár-
hlutfall miðað við meðaltal tveggja undangenginna mánaða í stað
eins áður. í frétt frá Seðlabankanum segir að ljóst sé að aukið
lausaQárhlutfall innlánsstofnana stafí ekki síst af halla ríkissjóðs og
þessar aðgerðir séu til að draga
valdi þenslu i peningamálum.
Breytingarnar gerast í nokkrum
áföngum frá og með 1. maí og er
áætlað að þær verði að fullu um
garð gengnar í lok júlímánaðar.
Auk breytinganna hefur Seðlabank-
inn fengið heimild viðskiptaráð-
herra til að hækka bindiskylduhlut-
fallið í 8% eða lækka það í 6% án
sérstakrar heimildar.
Tilgangur breytinganna er að
veita innlánsstofnunum aðhald og
afstýra því að aukið lausafé, sem
myndast hefur hjá þeim að undan-
förnu, leiði til „óhóflegrar aukning-
ar útlána“, segir í frétt Seðlabank-
ans. Einnig eiga þær að auðvelda
innlánsstofnunum aða minnka
vaxtamun inn- og útlána.
í fréttinni segir: „Ljóst er að
aukið lausafé, sem myndast hefur
hjá innlánsstofnunum að undan-
förnu, stafar ekki síst af halla ríkis-
úr hættunni á að ríkisfjárinálin
sjóðs. Enda þótt spornað sé við
þensluáhrifum þessa með framan-
greindum breytingum, er brýnt að
leita leiða til að draga úr hættunni
á því að ríkisfjármálin valdi þenslu
í peningamálum. Fjármögnun halla
ríkissjóðs með skuldasöfnun í Seðla-
bankanum eða erlendum lántökum
hefur bein áhrif á peningaþenslu í
landinu, eins og Seðlabankinn hefur
ítrekað bent á,. nú síðast í árs-
skýrslu bankans fyrir síðastliðið ár
og skýrslu bankastjórnar á nýaf-
stöðnum ársfundi. Áðeins með því
að afla ríkissjóði fjár með útgáfu
verðbréfa á innlendum markaði, og
ti-yggja honum þannig hluta af
raunverulegum sparnaði þjóðarbús-
ins, er unnt að koma í veg fyrir,
að ríkissjóðshalli leiði til þenslu og
viðskiptahalla.“
I
I
i
óttast að hann hefði farið í ána.
Til tveggja drengja sást niður
við ána, við lónið ofan stíflunnar,
en þegar sá yngri kom ekki til
baka var farið að óttast um hann.
Borgarstjóri býður sjötugum i afmæliskaffi:
700 manns í Höfða
UM 700 manns komu í móttöku í Höfða 1. maí, sem Davíð Oddsson
borgarstjóri Reykjavíkur hélt þeim borgarbúum, sem verða sjötugir
á árinu. Að sögn Ólafs Jónssonar upplýsingafúlltrúa Reykjavíkur-
borgar hefur það verið hefð undanfarin ár að efna til slíks boðs
þennan dag.
Barn lést
í bílslysi
2 ‘/z árs gamall drengur varð
fyrir bíl og beið bana í Hafiiar-
firði laust fyrir hádegi í gær.
Slysið varð í Funabergi í Hafnar-
firði. Þar var drengurinn að leik
og varð undir sorpbíl, sem verið var
að snúa við í húsagötu. Hann er
talinn hafa látist samstundis.
Ólafur segir að hópurinn hafi
verið stærri nú en undanfarin ár,
einkum vegna þess að fullkomnari
listar hafi verið notaðir til boðunar
heldur en áður var unnt. .
Borgarstjórinn í Reykjavík hefur
á undanförnum árum heiðrað þá
borgarbúa sem verða sjötugir og
boðið þeim að þiggja veitingar á
hátíðisdegi verkalýðsins, 1. maí.
Að þessu sinni var hópurinn svo
ljölmennur, að skipta þurfti móttök-
unni í tvennt og kom fólkið klukkan
15 og klukkan 17.30. Ólafur Jóns-
son segir að boð borgarstjóra hafi
heppnast mjög vel og gestir verið
ánægðir með þann heiður sem þeim
var sýndur.
Davíð Oddsson.
hefði lent í snjóflóðinu. En einn úr
þeim bíl varð eftir að minni ósk við
að aðstoða mig við að keyra bílinn
til Bolungarvíkur því mín eina hugs-
un á þessu augnabliki var að koma
mér í burtu frá staðnum með börn-
in. En rétt í þeirri svipan kallar
eiginmaður Elínar að þau séu að
koma heil á húfi, en hann hafði
farið uppá flóðið að svipast um eft-
ir þeim. Það augnablik var ólýsan-
legt. Mikill fögnuðúr og óendanlegt
þakklæti hversu vel þetta fór. Að
upplifa atburð sem þennan er mikil
reynsla og margt hefur skotið uppí
huga mér síðan og þar eru efin
mörg. Til dæmis get ég sagt það
að sonur minn stakk upp á því við
mig strax og við komum inní veg-
skálann að við færum gangandi á
móti Einari. Ég þori ekki að hugsa
þá hugsun til enda ef ég hefði látið
verða af því“, sagði Sigrún. Hún
bætti einnig við „Ég vil láta koma
fram þakklæti til björgunarsveitar-
manna í Bolungarvík, því það var
með ólíkindum hversu fljótir þeir
voru að bregðast við og koma á
staðinn. Þó, sem betur fer i þessu
tilfelli, þurfti ekki á að halda“.
Eftir þennan atburð á Óshlíð hinn
1. maí, lokaði lögreglan veginum
og var hann ekki opnaður aftur
fyrr en um kl. 11 daginn eftir.
Á þessum tíma árs þegar snjóa
leysir eru vegir sem liggja utan í
hliðum, líkt og Óshlíðarvegur, við-
sjárverðir hvað varðar snjóflóða-
hættu. Það er því full ástæða til
að brýna fyrir fólki að á þeim dög-
um sem mikil hlýindi eða hláka er
þá er mun meiri snjóflóðahætta á
þessu svæði.
- Gunnar
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Snjóflóð fór yfir vegskálann og við enda hans. Myndin var tekin af sjó í gær þegar vegagerðarmenn
unnú við að ryðja veginn.
Þegar ég kem að vegskálanum sé
ég hvar Einar keinur gangandi fyr-
k ir innan hann og held ég því áfram
inn í skálann þar sem ég ætlaði að
bíða eftir honum. Inní skálanum var
bíll sem í var eiginmaður Elínar og
dóttir þeirra. Stuttu eftir að ég
hafði stöðvað bílinn heyrðust miklar
drunur og fyrirgangur og engu
----------------------------—
li'kara en að skálinn væri að hrynja.
Snjór fyllti nærfellt fyrir opið ísa-
fjarðarmegin og snjór spýttist inn
um gluggaop sem eru framanvert
á skálanum. Ég var sem lömuð,
minnug atburða á Óshlíð fyrir réttu
ári. Taldi ég víst að þau hefðu
bæði lent í snjóflóðinu. Sonur minn
og barnið í hinum bílnum hlupu út
úr bílunum, kallandi á mömmu og
pabba. Ég hljóp út úr göngunum
Bolungarvíkurmegin, og sá ég þá
hversu umfangsmikið snjóflóðið var
og ekkert lífsmark að sjá. Ég reyndi
að kalla en fékk ekkert svar. í þann
mund ber að bifreið frá Bolung-
arvík og bið ég fólkið í þeim bíl að
sækja hjálp hið snarasta því fólk
Davíð Oddsson
svarar lesendum
Morgunblaðsins
DAVIÐ Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík og efsti maður á fram-
boðslista sjálfstaeðismanna í
borgarstjórnarkosningunum sem
fram fara 26. maí næstkomandi,
svarar spurningum í Morgun-
blaðinu um borgarmál í tilefni
kosninganna.
Lesendur Morgunblaðsins geta
hringt til ritstjórnar blaðsins í síma
691187 á milli kl. 11 og 12 árdeg-
is, frá mánudegi til föstudags, og
lagt spurningar fyrir borgarstjóra,
sem blaðið kemur á framfæri við
hann. Svörin birtast síðan í þættin-
um spurt og svarað um borgarmál.
Einnig má senda spurningar í
bréfi til blaðsins. Utan á bréf skal
rita: Spurt og svarað um borgar-
mál, ritstjórn Morgunblaðsins, póst-
hólf 1555,121 Reykjavík. Nauðsyn-
legt er að nafn og heimilisfang
spyijanda komi fram.
Steingrím-
ur til Tékkó-
slóvakíu
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra fer í heimsókn
til Tékkóslóvakíu hinn 17. maí
næstkomandi og dvelst tvo til
þijá daga í landinu.
Á meðan forsætisráðherra verður
í Tékkóslóvakíu gefst honum tæki-
færi til að ræða við Vaclav Havel,
forseta landsins, sem kom hingað
til lands í febrúar. Einnig eru ráð-
gerðar viðræður við forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og ut-
anríkisviðskiptaráðherra Tékkólsó-
vakíu.
Margeir tap-
aði forystu
MARGEIR Pétursson tapaði skák
sinni við Norðmanninn Berge
Ostenstad í síðustu umferð skák-
mótsins í Gausdal. Ostenstad
varð því einn efstur á mótinu
ineð 7 vinninga. Margeir varð í
2.-4. sæti með 6 'h vinning ásamt
Reeh frá Þýskalandi og Ernst frá
Svíþjóð.
Karl Þorsteins fékk 5 '/z vinning,
Snorri Bergsson 5 og Lárus Jóhann-
esson og Tómas Björnsson 3 'A vinn-
ing.
I