Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAI 1990
9
Hef flutt
snyrtistofu mína frá Sólheimum 1 að Fákafeni
11 í húsakynni Hárstúdíós Reykjavíkur.
Snyrtistúla Þárúísar,
Fákafeni 11, s. 688805.
TOYOTA
NOTAÐIR BÍLAR
TOYOTA COROLLA GTi ’89
Svartur. 5 gíra. 3ja dyra. Ekinn 13
þús/km. Verð kr. 1.150 þús.
PEUGOT 205 XR '88
Svartur. 5 gíra. 3ja dyra. Ekinn 38 þús.
Verð kr. 570 þús.
NYBYLAVEGI 6-8, KOPAVOGI
TOYOTA
TOYOTA CAMRY 4 x 4 ’88
Hvítur. 5 gíra. 4ra dyra. Ekinn 18
þús/km. Verð kr. 1.470 þús.
TOYOTA LANDCRUISER ’86
Hvítur. 5 gíra. 5 dyra. Upphækkaður. 35'
dekk. Ekinn 106 þús. Verð kr. 1.950 þús.
MMC GALANT GTSi '89
Grænn. 5 gíra. 4ra dyra. Ekinn 15
þús/km. Verð 1.180 þús.
VW GOLF GTi '87
Grár. 5 gíra. 3ja dyra. Vökvastýri. Álfelg-
ur. Ekinn 31 þús/km. Verð kr. 1.100 þús.
Svavar Gorbatsjov
Gorbatsjov fór
Sú var tíðin að sérfræðingar í Kremlarfræð-
um settu sig í sérstakar stellingar hinn 1.
maí ár hvert og grandskoðuðu þá sem
röðuðu sér á grafhýsi Leníns við Kremlar-
múra í Moskvu. Þá töldu menn það ótví-
ræða vísbendingu um völd og vegtyllur í
Kreml, hvar foringjarnir stóðu á grafhýsinu
og leyfðu fólkinu að hylla sig. Þetta er liðin
tíð og var það raunar áður en Mikhaíl
Gorbatsjov skipaði mesta heiðurssessinn.
Á þriðjudaginn gerðist það hins vegar í
fyrsta sinn að höfðinginn sjálfur yfirgaf
hátíðahöldin á Rauða torginu, áður en
göngu almennings lauk. Hvarf Gorbatsjov
af vettvangi þegar fólkið púaði á hann og
stuðningsmenn sjálfstæðs Litháens birt-
ust. í Staksteinum í dag er minnst á efna-
hagsþrengingarnar í Sovétríkjunum og för
Svavars Gestssonar til Berlínar.
Hætta á borg-
arastyrjöld
Sovéski kommúnista-
flokkurimi verður að afsala
sér völdum og mynda þarf
nýja stjóm, skipaða fulltrú-
um sem flestra afla í þjóðfé-
laginu, til að hægt verði
að afstýra borgarastyijöld
í Sovétríkjunum. Þetta seg-
ir þekktur sovéskur hag-
fræðingur, Vassílíj Selj-
únín, í viðtali sem sovéska
tímaritið Zebozekník birti
um helgina. Sovéski um-
bótasinninn Borís Jeltsín
lét svipuð orð lalla eftir
viðræður við Margaret
Thatcher, forsætisráð-.
herra Bretlands, i siðustu
viku og sagði að almenn-
mgur í Sovétríkjunum
myndi gera uppreisn á ár-
inu, yrði elhaliagur lands-
ins ekki bættur innan nokk-
urra mánaða.
Seljúnín hefur hmgað til
reynst sannspár í yfirlýs-
ingum sínum um framvind-
una í efnahags- og stjórn-
málum í Sovétríkjunum.
„Við þurfum öfluga sljóm
sem getur sagt við almenn-
ing: Kommúnistar hafa lagt
efnahaginn í rúst og við
getum ekki boðið ykkur
neitt annað en versnandi
lífskjör, erfiði og svita,“
segir liagfræðingurinn.
Hann telur slíka stjóm hafa
það fram yfir núverandi
valdhafa landshis að þurfa
ekki „að framfylgja úreltri
hugmyndafræði og vali
okkar í byltingunni árið
1917, sem virðist hafa átt
að gilda til cilífðar".
Seljúnín segir að stjómin
þurfi að vera skipuð fulltrú-
um verkalýðshreyfingar-
innar og lýðræðisafla, auk
bæjar- og héraðsráða, þar
sem lýðræðissinnar hafá
komist til áhrifa eftir kosn-
ingar.
Þessi ummæli em í
beirnii mótsögn við ræðu,
sem Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti hélt í iðnaðar-
borginni Sverdlovsk á
fdstudag, þar sem hann
ræddi „forystuhlutverk
kommúnistaflokksins" og
„kommúnískt val þjóðai--
innar“. Flokkurinn myndi
ekki afsala sér völdum
heldur „gegna á ný hlut-
verki sem framsækið
stjómmálaafl eins og Lenin
boðaði".
Borís Jeltsín, fyrmm
flokksleiðtogi í Moskvu,
sagði að hálfkákið í efiia-
hagsstefnu Gorbatsjovs
væri engin lausn á vanda
Sovétríkjanna. Hami spáði
versnandi lífskjömm, óða-
verðbólgu og áframhald-
andi vöraskorti í landhiu.
„Stjórnin verður að ná ár-
angri innan nokkurra mán-
aða annars gerir almenn-
ingur uppreisn á árinu,"
bætti hann við.
Á 1. maí mátti Gorbatsj-
ov síðan hlusta á það á
Rauða torginu, áður en
hami yfírgaf maimfagnað-
inn í fússi, að aðalræðu-
maður dagshis hvatti til
þess að tekhm yrði upp
markaðsbúskapur í Sov-
étríkjunum.
Svavar í
Berlín
Hvarvetna í þeim lönd-
um Austur-Evrópu þar sem
kommúnistaflokkar hafa
verið við völd og almenn-
mgur hefur fengið tækifieri
til að láta í Ijós hug sinn
hefur sósíalisma/kommún-
isma verði hafiiað. Fólkið
vill fa að búa við markað-
skerfið og krafan um það
hljómaði raunar á sjálfu
Rauða torginu á 1. maí.
Gömlu kommúnistai’nir
hafa þó ekki lagt niður
störf í þessum löndum þrátt
fyrir þetta. í kosningunum
í Austur-Þýskalandi fékk
gamli kommúnistaflokkur-
inn þar, sem nú er þekktur
undir skammstöfuninni
PDS, nokkuð fylgi í kosn-
ingunum í mars og hann á
emi fulltrúa á þingi, sem
segjast ekki hafa sagt skilið
við sósialisma/kommún-
isma.
Svavar Gcstsson,
memitamálaráðheiTa og
fyrrum formaður Alþýðu-
bandalagsins, sem á sínum
tima dvaldist við flokks-
störf í Aústur-Þýskalandi
(þegar konunúnistar höfðu
þar örugglega tögl og
hagldir) brá sér til Austur-
Berlmar um páskana, eins
og fram kom í Morgunblað-
inu 1. maí og ræddi þar
meðal annars við fulltrúa
PDS. Eflir hcimkomuna
hefúr hann ritað gi-einar í
Þjóðviijann, þar sem hann
boðar að í Berlm hafi sér
orðið ljóst, að sósíal-
ismi/kommúnismi eigi enn
framtið fyi-ir sér og ástæðu-
laust sé að láta merkið nið-
ur falla, þrátt fyrir það sem
gerst hafi í A-Evrópu. í
útvarpsviðtali eftir Berlm-
arferðina sagði Svavar, að
færi svo að Alþýðubanda-
lagið liði undir lok vegna
átaka Svavars og félaga við
flokksformanninn Ólaf
Ragnar Grhnsson yrði að-
eins stofiiaður nýr flokkur
til að standa vörð um hinar
hálcitu hugsjónir, arfinn
frá Kommúnistaflokki Is-
lands.
Linan frá Berlín er skýr.
Svavari nægði að hitta
sljómmálamenn í A-Berlín
til að fa pólitískt, veganesti
í komandi átökum innan
eigin flokks. Þá komst
hann austur yfir landa-
mærin en sagði að biðröð
austur á bóginn hafi komið
i veg fyrir-að hann gæti
sinnt stefhumótum sem
hann átti sem menntamála-
ráðherra Islands. Hvaða
hlið skyldi blessaður ráð-
herraim hafa valið? Hvern-
ig er passinn Iians á lithm?
Er einhver gæsla yfirleitt
á landamærunum sem tef-
ur fyi-ir umferð yfir þau?
Ráðherraskyldur Svav-
ai-s eru auðvitað aukaatriði
i augum flokkssystkina
hans, sem nú hafa fengið
nýja línu er nær austur
yfir hhm hrunda Berlin-
armúr. Emi skal miimt á
þá staðreynd, að þeir sem
eru í Alþýðubandalaginu
og aðhyllast skoðanir Svav-
ars geta kosið lista flokks-
ins, G-listann, í komandi
kosnhigum hér í Reykjavík.
Þeir sem vilja kjósa Ólaf
Ragnai- Grímsson, formann
Alþýðubandalagsins, geta
hins vegar kosið lista Nýs
vettvangs.
UPPLÝSINQAR
UM FJARMAL
Hjá Kaupþingi eru starfandi ráðgjafar, sem hafa þann starfa einan að veita
fólki alhliða upplýsingar og aðstoð við fjármál. Þar má m.a. nefna aðstoð við:
VAL A MISMUNANDI
SPARNAÐARLEIÐUM
Þar þarf að taka tillit til hversu
lengi þú ætlar að fjárfesta, hvort
þú þurfir að geta gengið að fénu
snögglega o.s.frv. Valið stendur
m.a. á milli Einingabréfa,
Skammtímabréfa og Spariskír-
teina ríkissjóðs, en þessi verð-
bréf eru öll seld hjá KAUPÞINGI.
UMONNUN FJARÞINSí
FJÁRVÖRSLU OG VERÐ-
BRÉFASÖLU þar sem við sjáum
um kaup á verðbréfum í þínu
nafni, innheimtum þau og endur-
fjárfestum fyrir innkomið fé.
Yfirlit yfir heildareign er sent fjór-
um sinnum á ári.
GERÐ GREIÐSLUYFIRLITA
Auðveldar þér að gera þér grein
fyrir útgjöldum og afborgunum
næsta/næstu ára.
SÖLU Á ÖLLUM GERÐUM
VERÐBRÉFA, s.s. veðskulda-
bréfum, spariskírteinum og
bankabréfum.
Allar frekari upplýsingar
gefa ráðgjafar KAUPÞINGS HF.
Sölugengi verðbréfa 3. maí 1990:
EININGABRÉF 1 ..4.841
EININGABRÉF 2 ..2.648
EININGABRÉF 3 ..3.186
SKAMMTÍMABRÉF ..1.644
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki,
Kringlunni 5, 103 Reykjavík,
sími 91-689080