Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAI 1990 Hjartans þakkir til a/lra þeirra sem samglödd- ust mér á 80 ára afmœlinu mínu. Elísabet Waage. SIEMENS Nr. Rafmagnsofnar frá Siemens í miklu úrvali SMITH &NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 Stóri bróðir snýr sér að tannréttingnm eftir Teit Jónsson Þref um endurgreiðslu vegna tannréttinga hefur nú staðið í nokkra mánuði og sér ekki fyrir endann á því. Ekkert er endurgreitt til þeirra sem hafa byijað slíka meðferð eftir 1. nóv. 1989. Fram að síðustu áramótum gilti sú megin- regla hér á landi að allir yngri en 17 ára áttu kost á 50% endur- greiðslu. Þeir sem leggja á sig óþægindin af tannréttingu og greiða sinn skerf samkvæmt slíkri reglu fá þá allir jafnstóran hluta endurgreiddan. Slík tilhögun hefur þann kost að skattgreiðendur njóta allir sama réttar til sjúkratrygg- inga, en er ekki mismunað eftir því hvort hið opinbera mælir meiri eða minni þörf fyrir meðferð hjá börn- um þeirra og unglingum. Deilt um jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu í lögum um heilbrigðisþjónustu frá árinu 1983 segir: „Allir lands- menn skulu eiga kost á fullkomn- ustu heilbrigðisþjónustu, sem á hveijum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og fé- lagslegri heilbrigði. Heilbrigðisþjón- usta tekur til hvers kyns heilsu- FIIIIEI, II li A R! Ævintýraleg sumardvöl fyrir 6-12ára börn að sumardvalarheimilinu Kjarnholtum í Biskupstungum Á sjötta starfsári okkar bjóðum við upp á fjölbreytta og vandaða dagskrá: Reiðnámskeið, íþróttir, leiki, sveitastörf, siglingar, ferðalög, sund, kvöldvökur o.fl. V E R Ð : 1 vika 15.800 kr., 2 vikur 29.800 kr. Staðfestingargjald fyrir 1 viku 5.800 kr., 2 vikur 9.800 kr. Systkinaafsláttur: 1 vika 1.200 kr., 2 vikur 2.400 kr. T í M A B I L : 27. maí - 2. júní (1 vika) 3. júní — 9. júní (1 vika) 10.júní — 16.júní (1 vika) 17.júní - 23.júní (1 vika) 24.júní — 6.júlí (2vikur) 8.júlí — 14.júlí (1 vika) 15. júlí — 21. júlí (1 vika) 22.júlí - 3. ágúst (2vikur) 6. ágúst - 12. ágúst (1 vika) 12. ágúst - 18. ágúst (1 vika) Innritun fer fram á skrifstofu SH verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði Sími 65 22 21 2 gæslu, heilbrigðiseftirlits, tann- lækninga o.s.frv.“ Heilbrigðisyfir- völd vilja nú spara með því að lækka eða fella niður endurgreiðslu fyrir tannréttingar þegar meðferðin hef- ur h'tinn eða engan svokallaðan „læknisfræðilegan" tilgang. Tann- réttingafélag Islands (TRÍ) hefur hinsvegar lagst gegn sparnaði á grundvelli slíkrar flokkunar vegna þess að fyrir henni eru litlar fagleg- ar forsendur. Þörfin fyrir meðferð ræðst ekki eingöngu af mælingum sérfræðinga, líkum þeim sem gerð- ar eru á gripasýningum, heldur einnig af afstöðu einstaklingsins og öðru sem ekki verður mælt í milli- metrum. Athyglisvert er að deilan snýst ekki um gjaldskrá tannlækna, heldur skriffinnskutilburði sem heil- brigðisyfirvöld hafa í frammi til þess að leyna skerðingu á þjónustu. Sparnaðarfrumvarp heilbrigðisráðherra Forsaga málsins er sú að sl. haust þurfti ríkisstjórnin einu sinni sem oftar að skera niður útgjöldin. Heil- brigðisráðherra skipaði nefnd í málið til þess að leggja sitt af mörk- um til sparnaðarins og dreif í krafti meirihlutans lagabreytingu gegn- um þingið rétt fyrir jólin. Helsta breytingin fólst í því að nú er að- eins heimilt að endurgreiða allt að 50% og eftir reglum sem kveði á um flokkun eftir eðli aðgerða. Höf- undar frumvarpsins byggðu það á fljótfærnislegum ágiskunum um að helmingur barna og unglinga fengi tannréttingu og helmingur þess hóps að óþörfu. Með því að hætta endurgreiðslum fyrir þessar óþörfu tannréttingar og ferðakostnað við- komandi hugðust þeir spara ríkinu um 80 milljónir króna. TRÍ dró þessar sparnaðarforsendur í efa og bauð samvinnu um könnun og rétt-^ mæti þeirra, en því var ekki sinnt. Seinna hefur athugun hjá Trygg- ingastofnun ríkisins (TR) leitt í ljós að aðeins 31,5% 16 ára unglinga í Reykjavík hafa farið í tannréttingu. Yfir allt landið er þessi tala eflaust lægri. TRÍ hefur gefið upp tölur úr athugun meðal tannréttinga- sérfræðinga sem sýnir að af hveij- um 614 tilvikum eru aðeins 32, eða um 5%, vegna minniháttar fegrun- araðgerða. Sparnaðarhugmyndir yfirvalda eru því byggðar á sandi, en lýsa vilja til að velta yfir á barna- fjölskyldur kostnaði við þennan þátt heilbrigðisþjónustunnar. Faglegar forsendur fyrir flokkun á meðferðarþörf Höfundar lagabreytingarinnar studdust við norskar reglur um þetta efni og hugsuðu sér t.d. að 9 mm yfirbit gæfi rétt á 50% endur- greiðslu frá TR, en 8 mm aðeins 30%. Með sama áframhaldi má hugsa sér að við lagfæringu á út- stæðum eyrum sem mynda 60 gráða horn við höfuðið verði kostn- aðarhluti sjúklings 30%, en hækki í 50% ef hornið milli eyrans og höfuðsins mælist ekki nema 50 gráður. TRÍ benti frumvarpssmið- unum á að flokkun af þessu tagi væri út í hött og leiddi ekki til rétt- látari skiptingar þeirra fjármuna sem hið opinbera ver til tannrétt- inga. TRÍ benti einnig á að í Banda- ríkjunum hefur endurgreiðsluaðil- um verið bannað með dómi að mis- muna einstaklingum eftir formúlum af þessu tagi. Ennfremur má nefna að nýjar rannsóknir á Norðurlönd- um staðfesta að mjög erfitt er að greina mörkin milli tannréttinga í svokölluðu læknisfræðilegu skyni og af huglægum ástæðum. Þar hefur verið sýnt fram á að félagsleg og sálfræðileg sjónarmið vega þungt í raunverulegri þörf fyrir meðferð. Það skiptir máli hvernig unglingnum líður með sínar tennur og sú líðan hefur skiljanlega ekki nema takmarkaða fylgni við tann- Teitur Jónsson „ Athyglisvert er að deilan snýst ekki um gjaldskrá tannlækna, heldur skriffinnskutil- burði sem heilbrigðis- yfirvöld hafa í frammi til þess að leyna skerð- inguáþjónustu.“ skekkju mælda í millimetrum. Til marks um ný sjónarmið má líka nefna að í Bandaríkjunum hefur National Institute of Dental Rese- arch beint rannsóknum í vaxandi mæli að sálrænum og félagslegum afleiðingum tannskekkju (psycho- social impact). Reglugerðin Lögin tóku gildi að nafni til 1. janúar sl. og nokkrum dögum síðar hætti TR að endurgreiða sam- kvæmt eldri ákvæðum, án þess að ný reglugerð væri komin um nýju lögin. Reglugerð er enn ókomin vegna þess að sá starfsmaður TR sem settur var til að semja hana hefur barist þijóskulega fyrir því að tannlæknar fylli út eyðublöð og gefi kerfisbundnar upplýsingar til að draga umsækjendur í dilka. Skriffinnat’ Tryggingastofnunar geta auðvitað dundað sjálfir við að mismuna sjúklingum á þennan hátt og stendur til boða að nota sjúkra- gögn eða almenna sjúkdómsgreim ingu frá tannlæknum til þess. TRI hefur hinsvegar ákveðið að skipta sér ekki af því vafasama föndri, enda hljóta viðskipti TR og hinna tryggðu að teljast tannlæknum óviðkomandi. Tannlæknar vinna þó eftir gjaldskrá sem er bundin samn- ingi við TR og gefa sem fyrr sund- urliðaðar kvittanir sem TR getur endurgreitt eftir, ef vilji er fyrir hendi. Hugsanlegar Iausnir Það skal tekið fram að hingað til hefur ekkert tillit verið tekið til ábendinga Tannlæknafélags ís- lands og TRÍ í þessu dæmalausa máli. Heilbrigðisyfirvöld hafa með vanhugsuðum einhliða aðgerðum siglt því í strand og bera því ein ábyrgð á því hvemig komið er. Skynsamleg framtíðarlausn er varla möguleg án nýrrar vel undirbúinnar lagasetningar, en til bráðabirgða ættu heilbrigðisyfirvöld að taka mark á tillögum og reglugerðar- drögum sem TRÍ hefur sent for- manni tryggingaráðs. Þar er ítrek- að að eigi að halda umræddri flokk- un til streitu verði hún á vegum TR, en bent er á leiðir til þess að einfalda framkvæmd hennar sem mest. Höfundur er formnöur Tannrétiingafélags Reykja víkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.