Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAI 1990
19
Listskreytingar
opinberra bygginga
eftir Birgi ísleif
Gunnarsson
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp
til laga um Listskreytingarsjóð
ríkisins. Það frumvarp er flutt til
að uppfylla ákveðna lagaskyldu um
endurskoðun núgildandi laga um
þennan sjóð. Það gefur hins vegar
tilefni til að hugleiða nokkuð það
fyrirkomulag sem nú gildir í þessum
efnum.
1-2% af byggingarkostnaði
þennan sjóð árlega. Það hefur ekki
tekist betur en raun ber vitni.
Erum við á réttri braut?
Ég bendi á þetta hér til þess að
menn hugleiði hvort við séum á
réttri braut með sérstakan list-
skreytingarsjóð. Er það ekki
líklegra til árangurs að leggja þá
skyldu á byggjendur hverrar bygg-
ingar að þeir veiji 1-2% af bygging-
arkostnaði til listskreytinga? Er
„Nú er nokkur reynsla
komin á þennan sjóð og
ég held að hún hafi
kennt okkur að ótti
manna við þessa leið
hafi verið á rökum
reistur. “
Birgir ísleifur Gunnarsson
ekki líklegt að þannig renni meira
Ijármagn til þess að fegra um-
hverfi okkar með góðum listaverk-
um? Er ekki búið að setja of þröngt
hlið með því að stýra þessu fjár-
rriagni í gegnum Listskreytingar-
sjóð?
Þessar hugleiðingar vil ég setja
fram nú þegar Alþingi hefur til
meðferðar frumvarp til laga um að
endurnýja Listskreytingarsjóðinn.
Ég set þetta fram til að áhugamenn
um þessi mál geti hugieitt þetta og
rætt það sín á milli. Ég mun hins
vegar styðja frumvarpið í aðalatrið-
um því að breytt fyrirkomulag
þarfnast lengri undirbúnings en
gefst á þessu Alþingi.
Höfundur er einn af
alþingismönnum
Sjálfstæöisflokksins fyrir
Reykja víkurkjördæmi.
Veturinn 1979-80 flutti ég á Al-
þingi, ásamt þeim Halldóri Blöndal
og Ólafi G. Einarssyni, frumvarp
til laga um listskreytingar opin-
berra bygginga. Þar var gert ráð
fyrir að skylt væri að vetja til list-
skreytinga fjárhæð sem næmi 1-2%
af byggingarkostnaði opinberra
bygginga. Þetta frumvarp endur-
fluttum við síðan á tveimur næstu
þingum. Þetta frumvarp komst
aldrei lengra en í nefnd, en umræð-
an varð til þess að þáverandi
menntamálaráðherra, Ingvar Gísla-
son, flutti frumvarp um sérstakan
listskreytingarsjóð á vegum ríkisins
og varð það frumvarp að lögum.
Ekki uppfyllt vonir manna
Nú er nokkur reynsla komin á
þennan sjóð og ég held að hún
hafi kennt okkur að ótti manna við
þessa leið hafi verið á rökum reist-
ur. Það hefur sýnt sig að stofnun
sérstaks sjóðs sem Alþingi veitir
fjármagn í árlega hefur ekki upp-
fyllt vonir manna. Auðvitað hefur
þessi sjóður stuðlað að gerð margra
listaverka, en sjóðurinn hefur aldrei
fengið það fjármagn sem lögin
gerðu ráð fyrir. Mest hefur sjóður-
inn fengið 66% af því sem hann
átti að fá árið 1984 og minnst 23,5%
árið 1989.
Dýrari byggingar
Við höfum í gildi margs konar
reglugerðir og staðla um frágang
opinberra bygginga. Við fáum góða
arkitekta til að hanna opinberar
byggingar og þeir gera kröfur um
frágang og útlit. Allt miðar þetta
að því að gera byggingarnar vand-
aðri og fegurri, en jafnframt oftast
dýrari. Enginn segir neitt við því
að slíkt sé hluti af eðlilegum bygg-
ingarkostnaði. En þegar kemur að
jafnsjálfsögðum hlut og að list-
skreyta opinberar byggingar þá
vandast málið. Þá þarf að miðstýra
öllu, setja á stofn sérstakan sjóð
með sérstakri stjórn og Alþingi að
ákveða sérstaklega fjárveitingar í
__________Brids_____________
AmórRagnarsson
Bridsfélag kvenna
Nú er fjórum kvöldum af fimm lokið
i hraðsveitakeppninni og breyttist staða
efstu sveita ekkert og er staðan þannig:
Sv. ÖlduHansen 1912
Sigrúnar Pétursdóttur 1870
Soffíu Theodórsdóttur 1844
Vénýjar Viðarsdóttur 1816
Maríu Ásmundsdóttur 1770
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Lokið er fjórum umferðum af fimm
í 32 para barometer-tvímenningi og er
staða efstu para þessi fyrir síðasta
kvöldið:
Jón Ólafsson —
Ólafur Ingvarsson 276
Gísli Tryggvason — Tryggvi Gíslason 239
Friðjón Guðmundsson — Snorri Guðmundsson 236
Gunnar Birgisson — JóngeirHlynason 161
Rafn Kristjánsson — Bragi Jónsson 121
Birgir Sigurðsson — GuðlaugurNielsen 121
Mcðalskor 0
BBffljsaw
Wmm,
■ ■
. .
',V- ,■
V v ■' \
■ ; ■
r -rr-iL——«
V /,i.
■
8 i >
H ¥ ‘ "
/
■ '
Spítalastíg 8 við Oðinstorg símar 14661 26888
Geró af bandarísku hugviti
og japanskri tæknisnilld = Muddy Fox
Alvöru fjallahjól!
- 20 ára ábyrgó -
Einkaumboó á Íslandi
Reidhjólaverslunin
Stofnsett 1925