Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 Opið bréf til Eyfirðinga Vegna áhuga sumra þeirra á álverksmiðju við Eyjaflörð eftir Stefán Valgeirsson Þrátt fyrir allan fyrirganginn, fjölmiðlaáróðurinn, sendinefndimar til ríkisstjórnar og þingmanna að ógleymdum hinum sjálfskipuðu ag- entum fyrr og síðar fyrir byggingu álverksmiðju við Eyjafjörð, hef ég ekki tilfinningu fyrir því, að slík óhamingja geti átt eftir að henda það gjöfula og fagra hérað, að þar verði byggð verksmiðja, sem dreifir eimyrju yfír byggðirnar. Eg stend í þessari trú þrátt fyrir MEÐ SÉRSTÖKUM SAMNINGIVIÐ GRAM-VERKSMIÐJURNAR, FENGUM VK) EINA SENDINGU AF ÞESSUM FJÓRUM GERÐUM Á ALVEG EINSTAKLEGA HAGSTÆÐU VERÐl GRAM KF265 200 Hr. kælir slgr. kr.S1.960.- GRAM KF250 173 Itr. kælir 70 Itr. fryslir H 126,5 tm !35,0cm (stillanleg) B 59,5 cm D 62,1 cm áður kr. 57.990.- nú ki. 54.700.- slgr. kr.51.960,- GRAM KF355 277 Itr. kælir 70 Hr. frystir H 166,5 cm 175,0 cm (stHlonleg) B 59,5 cm D 62,1 cm áður kr. 72.960.- nú ki. 68.900.* stgr. kr. 65.450.- GRAM KF344 198 Itr. kælir 146 Itr. frystir H 166,5 cm 175,0 cm fstillanleg) B 59,5 cm D 62,1 cm áðurkr. 79.950.- iiii kr. 75.400.- ster. kr. 71.630.- GRAM-KÆLiSKAPAR hágæða læki í eldhúsið, - á tilboðsverði 5% Stcidgreidsluafsláttur Kaupir þú Ivö heimilistæki í einu í verslun okkar, gerum vii enn betur og bjóium 10% afslátt gegn staigreiislu /FOnix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 fullyrðingarnar um að það sé komin þjóðarsátt um að stefna að því, að álver verði byggt þar sem erlendir álfurstar óska og þrátt fyrir neyð- aróp einstaklinga úr eyfírskum byggðum, að ef þar verði ekki byggt hið umtalaða álver sjái þeir fram á eyðingu byggðarinnar. Já, ég stend ennþá í þeirri trú, þó nú nýverið væri haft eftír varaformanni Ein- ingar á Akureyri, að hann sjái fram á dauða og djöful ef Eyfirðingar fái ekki álver. Mér finnst slíkar upp- hrópanir flokkast undir hrein öfug- mæli sé málið athugað niður í kjöl- inn. Merkisberar álversins eru ekki vandir að meðulum í þessari bar- áttu sinni. Þeir hafa t.d. fullyrt í mín eyru, að það sé algjör einhugur um málið norðan fjalla, en mér heyrist að annað sé að koma fram og að vísu vissi ég það fyrir. Ástæð- an fyrir því að lítið hefur heyrst í þeim, sem ekki telja álver bjargráð fyrir Eyfírðinga, er að allar áætlan- ir fram að þessu hafa verið við það miðaðar að slík bygging yrði reist í námunda við Straumsvík. Þeir hafa litið svo á, að yfiriýsingar sumra stjórnmálamanna um hið gagnstæða væri helber sýndar- mennska, enda málflutningurinn þannig fram settur að auðvelt væri að kenna hinum erlendu álfurstum um staðsetninguna, þar sem þeir hafa alltaf haldið því hátt á lofti að þeir réðu staðarvalinu. Það sýn- ir að risið á ráðamönnum þjóðarinn- ar er ekki hátt þessa stundina, e.t.v. sem betur fer, sé litið tii umræðunn- ar um byggingu álvers. Ég vil taka það skýrt fram, að ég er ekki að væna neinn um það að fólk sé vitandi vits að beijast fyrir uppbyggingu atvinnurekstrar í Eyjafírði sem yfírgnæfandi líkur eru á að muni valda umtalsverðri mengun og alvarlegu tjóni, nái það fram að ganga. Æði margir hafa haft samband við mig og ýmsa sam- heija mína í þeim tilgangi að reyna að hafa áhrif á okkur í þá átt, að við förum ekki að leggja stein í götu álmanna í eyfírskum byggð- um. Þegar farið er að ræða um þetta við þetta fólk og benda á ýmsar staðreyndir um þennan at- vinnurekstur, þá hefur það vakið athygli mína að fyrstu viðbrögð flestra eru að þeir fara að telja upp fólk sem hefur lýst yfir fylgi sínu við að byggt verði álver við Eyja- fy'örð, þar á meðal ráðherrar, þing- menn, verkalýðsforingjar og meira að segja eyfirskir bændahöfðingjar að ógleymdum bankastjórum. Að upptalningunni lokinni er sagt: Heldur þú að þetta fólk viti ekki hvað okkur er fyrir bestu? Þegar spurt er, hvað veist þú um mengun frá álverum, er yfirleitt ekkert svar, en í stað þess bent á málatilbúning fjölmiðlanna, endurtekin upptalning á þessu átrúnaðarfólki og bætt við: Hér er atvinnuleysi, okkur stendur ekki annað til boða, annars flytja allir suður. Eftir því sem málið er meira rætt minnkar trúin á átrún- aðarfólkið og þar með á álið. Þessi reynsla mín hefur orðið til þess að ég skrifa þetta bréf. Ég mun m.a. rökstyðja að álver er ekki hag- kvæmur kostur fyrir okkur íslend- inga, veldur alvarlegri rnengun og eykur misrétti, bæði milli kynja og byggðarlaga. Er staðsetning og bygging álbræðslu byggðamál eða er það líka öfugmæli? Reynsla okkar íslendinga af verðbólgu og háum vöxtum ætti ekki að leiða til þess að við gerðum neitt vitandi vits til þess að verð- bólguskriða fari af stað á nýjan leik. Bygging 200 þús. tonna ál- bræðslu ásamt nauðsynlegum virkj- unarframkvæmdum næstu árin, sem kallar á 3-4 þús. starfsmenn yfír sumarmánuðina sum árin, hlýt- ur að hafa veruleg verðbólguáhrif. Ráðaniönnum mun vera þetta Ijóst. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri hefur þegar bent ríkisstjórninni á hvemig best sé að koma í veg fyrir þensluáhrif frá slíkum framkvsemd- um. Hans ráð eru að það opinbera stöðvi að mestu leyti framkvæmdir og reyni að hafa áhrif á sveitarfé- lögin í landinu að gera slíkt hið sama á meðan á framkvæmdum stendur. Ef eftir þessari stefnu yrði farið, væri þá ekki réttnefni á þess- ari nýju stefnu, að kalla hana byggðaeyðingarstefnu?. í þessu sambandi verða allir að hafa það í huga, að Atlantal-hópur- inn svokallaði hefur sett þá ósk fram, að ef þeir fari í byggingu álbræðslu hér á landi, þá vilji þeir tryggja sér rétt til að tvöfalda fram- leiðsluna þegar henta þykir. Ef far- ið yrði í þá stækkun í beinu fram- haldi af verklokum hinnar fyrri, sem er efalaust hagkvæmt, þá sé ég ekki betur en að heildarfram- kvæmdatíminn gæti orðið allt að 8-10 árum. Ef atvinnuuppbygging og að mestu leyti aðrar fram- kvæmdir verða látnar bíða í öðrum héruðum Iandsins þar til þessum framkvæmdum verður lokið, hveij- ar yrðu þá afleiðingarnar? Hver og einn ætti að hugleiða það, jafnvel þó kyrrstaðan yrði aðeins 4 ár. Ef slík bygging risi við Reyðarfjörð eða við Eyjafjörð, hvað þá á suðvestur- hominu, yrði þenslan gífurleg í kringum byggingarsvæðið, en kyrr- staða annars staðar. Er þetta byggðastefnan, sem ríkisstjórn, sem kennir sig við jafnrétti og fé- lagshyggju, ætlar að hrinda í fram- kvæmd? Hér er um að ræða nýja og mjög athyglisverða atvinnumálastefnu, sem líklega enginn stjórnmálaflokk- ur vill eða þorir að gangast við, þótt allt bendi til að ríkisstjómin sé að leggja grunn að henni með gerð samninga um byggingu ál- bræðsluverksmiðju á íslandi. Þessi stefna myndi einnig leiða af sér, að hlutur kvenna yrði algjörlega fyrir borð borinn ef ekki kæmi önn- ur umtalsverð atvinnuuppbygging . til. í ísal er atvinnuþátttaka kvenna 9,6%^ eða ein kona á móti 10 körl- um. I byggingarstarfsemi er hlutur kvenna enn minni, eða aðeins 6%. Þessi stefna er því ekki til að jafna Iífsafstöðu milli kynjanna heldur til þess að auka misréttið og launa- muninn. Er það stefna ráðamanna á íslandi árið 1990? Slík atvinnu- málastefna hentar engan veginn okkar fámennu þjóð. Við þurfum að stefna að jafnari uppbyggingu á sem flestum stöðum á landinu, því eigum við að færa atvinnufyrirtæk- in til fólksins en ekki fólkið að fyrir- tækjunum, eins og verður raunin ef álstefnan verður látin ráða. Byrgjum brunninn: Vímuefiianey sla- vaxandí vandamál eftirÞórarin Gíslason Undanfarinn áratug hefur neysla margs konar vímuefna margfaldast hérlendis og jafnframt hafa komið fram nýjar gerðir vímuefna. Erlend- is hefur framleiðsla vímuefna, sér- staklega ofskynjunarefna, sífellt orðið einfaldari og hafa markaðir sums staðar mettast og seljendur leita nú nýrra kaupenda. Fjárhags- legur ávinningur af innflutningi og sölu vímuefna er verulegur og hefur sýnt sig, að hann freistar jafnvel þeirra sem ekki eru sjálfír vímu- efnaneytendur. Frásagnir fjölmiðía undanfarna mánuði um að stórir hópar tengist innflutningi vímuefna benda til þess að með öllu óbreyttu sé engin von til þess að hér verði neysla vímuefna frábrugðin því sem gerist erlendis. Spurningin er einfaldlega hvað er til ráða? Dugar ef til vill að efla tollgæslu og fíkniefnalögreglu og „hindra“ þannig innflutning? Því miður er það svo að aðeins tekst að upplýsa um örlítinn hluta markaðarins (15-20%). Efling löggæslu stuðlar vissulega að erfíðleikum við útveg- un vímuefna og einnig verður með því móti lögum komið yfír suma þá er gerst hafa brotlegir. Því er stundum haldið fram, að það séu þrátt fyrir allt svo fáir ein- staklingar sem ánetjist vímuefnum, að ekki sé ástæða til að leggja mikið í sölumar vegna þessara mála, og að jafnvel sé auðvelt að hjálpa þessum einstaklingum með meðferð. í því sambandi má nefna, að meðferðarárangur yngri vímu- efnaneytenda er mjög lélegur og þarf þetta unga fólk margra ára meðferð ef von á að vera um árang- ur. Sérstaklega er árangur með- ferðar lélegur meðal þeirra, sem mjög eru orðnir háðir vímuefnum. -Nýlega -var- sagt í sænska Iækna- blaðinu frá afdrifum tæplega tvö hundmð langt leiddra vímuefna- neytenda í Stokkhólmi. Þetta fólk var þvingað til „bestu fáanlegrar meðferðar". Þegar árangur var metinn ári síðar gat enginn þeirra talist læknaður. Fyrirbyggjandi aðgerðir Að mínu mati er það vænlegasta leiðin til þess að spoma við aukinni vímuefnanotkun á Islandi að byggja fólk upp, sem getur sagt nei. Ein tilraun til þess felst í námsefni Lions-Quest, sem á íslensku hefur verið kallað „að ná tökum á tilver- unni“. Kennsluefni þetta kemur frá Bandaríkjunum en er nú kennt víða um lönd. Tilraunakennsla hófst í skólum hér á landi haustið 1987. Að tilhlutan íslensku Lions-hreyf- ingarinnar hefur allt námsefnið ver- ið þýtt og staðfært og einnig hafa kennarar fengið sérstaka þjálfun vegna þessa verkefnis á fjórum kennaranámskeiðum, sem _ Lions- hreyfíngin hefur einnig styrkt. Stefán Valgeirsson „ Astæðan fyrir því að lítið hefiir heyrst í þeim, sem ekki telja ál- ver bjargráð fyrir Ey- firðinga, er að allar áætlanir fram að þessu hafa verið við það mið- aðar að slík bygging yrði reist í námunda við Straumsvík.“ Ríkisstjórnir, en þó sérstaklega iðnaðarráðherrar, hver fram af öðr- um, hafa lagt þunga áherslu á byggingu álvera á liðnum árum og lagt fram mikla fjármuni til þess að leita eftir auðhringum til að reisa hér slíka verksmiðju. Ekki hefur heyrst að leitað hafi verið eftir öðr- um möguleikum sem betur henta við okkar aðstæður. Hafi það verið gert, þá hefur því verið haldið leyndu. Er álbræðsla hagkvæmur kostur? Talið er að rafvirkjunarkostnaður til að fullnægja 200 þús. tonna ál- bræðslu muni verða a.m.k. 40 millj- arðar króna á verðlagi 1989, þrátt fyrir að til þeirra framkvæmda yrðu valdir ódýrustu virkjunarstaðimir. Þegar samið er um orkuverð til ál- Þórarinn Gíslason „Námsefhið er ætlað unglingum í efri bekkj- um grunnskóla og felst í því þjálfun í að takast á hendur ábyrgð, taka ákvarðanir, hafa sam- skipti við aðra, efla sjálfstraustið og setja sér markmið.“ Námsefnið er ætJað unglingum í efri bekkjum grunnskóla og felst í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.