Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 Bandarískum gísl sleppt í Líbanon: Hafðiu’ í haldi með íjór- um Vesturlandabúum Wiesbaden. Reuter. BANDARÍKJAMAÐURINN Frank Reed, sem öfgasamtök í Líbanon slepptu úr haldi á mánudag, sagði í gær að hann hefði hitt fjóra eða fimm vestræna gísla á þeim 43 mánuðum er hann var á valdi mann- ræningjanna. Reed dvelst nú í Wiesbaden í Vestur-Þýskalandi og segja læknar að hann sé við ágæta heilsu. Banda- rískir embættismenn í Vestur- Þýskalandi sögðu í gær að af fram- burði hans mætti ráða að flestir vestrænu gíslanna í Líbanon væru á valdi liðsmanna Hizbollah-sam- takanna (Flokks Guðs) en talið er að 15 Vesturlandabúar séu enn í gíslingu í Líbanon, þar af sex Bandaríkjamenn. Svíþjóð: Pettersson fær skaðabætur Reed ræddi stuttlega við blaða- menn í gær og kvaðst hann hafa verið í haldi ásamt tveimur gíslum öðrum, íranum Brian Keenan og Bretanum John McCarthy, frá því í októbermánuði og væru þeir báðir við ágæta heilsu. Þeir þrír hefðu verið geymdir i sama húsi alls í tæp þijú ár. Þá sagðist hann síðast hafa hitt Tom Sutherland í febrúar í fyrra og Terry nokkurn en af orðum hans var ekki ráðið hvort hann átti við Terry Anderson, fréttastjóra Associated Press-fréttastofunnar, sem verið hefur á valdi líbanskra öfgamanna í fimm ár eða Terry Waite, sendimann ensku biskupa- kirkjunnar. Aðra gísla sagðist Reed ekki hafa hitt frá því honum var rænt í Bejrút 9. september 1986. Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. TTÍctl U Tld • CHRISTER Pettersson, sem ILlStldllU. sýknaður var af ákæru um morð- ið á Olof Palme, þáverandi for- sætisráðherra Svíþjóðar, voru í gær dæmdar' 300.000 sænskar krónur í skaðabætur (um þrjár millj ísl kr.). Lögfræðingur Petterssons, Ame Liljeros, hafði farið fram á tvær milljónir sænskra króna í bætur til handa skjólstæðingi sínum á þeim fcrsendum að þess væri tæpast að vænta að hann gæti lifað eðilegu lífi á ný. Pettersson var hafður í gæsluvarðhaldi í tíu mánuði er hann var grunaður um ódæðið. Talsmenn dómsmálaráðuneytisins sögðu að tekið hefði verið tillit til fyrra lífern- is Petterssons er bæturnar voru ákvarðaðar en hann á langan af- brotaferil að baki og hefur margoft setið á bak við lás og slá. Ame Liljeros kvaðst í gær ekki vita hvort Pettersson vildi sækja sænska ríkið til saka og krefjast hærri miskabóta. Bætumar sem hann hefur þegar fengið eru á meðal þeirra hæstu sem greiddar hafa verið í sænskri réttarsögu og að auki undanþegnar skatti. Útvarp Frelsisgyðjan hrellir Kínasljórn Reuter Kínverskur blaðamaður réðst í gær harkalega á aðstandendur útvarpskipsins Frelsisgyðjan sem nú er í Singapore. Ætlunin er að sigla því að landhelgi Kína og kynna íbúum alþýðulýðveldisins kosti lýð- ræðis með útsendingum allan sólarhringinn. „Þeir ætla að valda ringulreið, stunda undirróður og lýð- skrum,“ sagði Li Yong Ming, fréttaritari fréttastof- unnar Nýja Kína, á blaðamannafundi sem eigendur útvarpsstöðvarinnar kölluðu saman. Þeir hétu að gætt yrði hlutlægni í útsendingunum og sögðust hafa beðið samtök útlægra, kínverskra stúdenta í Kína að draga sig út úr fyrirtækinu. Stjórn Kína hefur gefið í skyn að valdbeiting komi til greina verði af áformum skipveija. Sjálfstæði einungis af- stýrt með blóðbaði Tallinn. Frá Páli Þórhallssyni, blaðamanni NU þegar athygli heimsbyggðar- innar beinist að Litháum spyija Eistlendingar sig hvers vegna þeir verði ekki einnig fyrir eína- hagsþvingunum af hálfii sov- éskra yfirvalda, tilefiiin séu ærin. „Ég vona hálft í hvoru að þeir láti brátt til skarar skríða, þá gengur þetta fljótar yfir,“ segir Kersti Koat, tvítugur starfsmað- ur eistneska æskulýðssambands- ins. Þessi ummæli sýna glöggt hversu staðráðnir Eistlendingar eru að ná settu marki, endur- Morgunblaðsins. reisn lýðveldisins Eistlands. Að sama skapi virðist fjandskapur Eistlendinga við Rússa vera meiri en t.d. Letta; báðar þjóðirn- ar hafa næstum lent í minnihluta í eigin landi sökum innflutnings Rússa. Kersti Koat segir að sov- éska sjónvarpið sýni í sífellu við- töl við þá fáu Letta og Litháa sem leggjast gegn sjálfstæði „en þú fyndir ekki einn einasta Eistlend- ing sem myndi gera slíkt.“ Þessi harða afstaða Eistlendinga gegn Rússum er auðskiljanleg. Bandarísk rannsókn: Sjónvarpið hefiir slæm áhrif á fólk Vegna innflutnings Rússa eru Eist- lendingar komnir í minnihluta í höfuðborginni, Tallinn, þótt enn séu þeir 60 prósent íbúa landsins í heild. Rússarnir hafa ekki viljað aðlagast siðum Eistlendinga og menningu heldur þvert á móti reynt að þröngva eigin siðum upp á heimamenn. „Kommúnistarnir ætl- uðu að búa til nýja mannveru, Sovét-manninn, sem gæti látið sér líða vel hvar sem er í Sovétríkjun- um. Þetta gæti átt við Rússa en ekki við Eistlendinga." Það er í þessu andrúmslofti fjandskapar við Rússa sem öflug- asti stjórnmálaflokkur Eistlands, Þjóðarflokkurinn, hefur sprottið upp. Flokkurinn stóð fyrir því að á einu ári voru skráðir rúmlega 500.000 borgarar lýðveldisins Eist- lands frá árinu 1918 til 1940 og afkomendur þeirrá. „Þetta eru hinir raunverulegu Eistlendingar sem vilja sjálfstæði, allir sem einn,“ seg- ir Alge Súlla, starfsmaður flokks- ins. Rússum og öðrum þjóðum sem landið byggja verður boðið að sækja um ríkisborgararétt. „ Það ætti að vera auðsótt mál ef undan eru skild- ir 250.000 sovéskir hermenn í landinu og rússneskir glæpamenn.“ • Undir lok fjórða áratugarins töldu Eistlendingar sig standa jafn- fætis frændum sínum Finnum. „Sjáum nú hvar við stöndum í sam- anburði við þá,“ segir Goivo Júrgen- son, einn af leiðtogum flokks kristi- legra demókrata. Hann segir að Eistlendingar vilji ná sjálfstæði á ný á lögformlega réttan hátt. „Við lítum á Eistland sem hernumið land, Æðsta ráðið í Tallinn er tilbúningur hersetuveldisins. Þess vegna hleyptum við þingi Eistlands af stokkunum. Þar eru hinir sönnu fulltrúar eistnesku þjóðarinnar." Aðspurður um viðbrögð erlendra ríkja svarar Júrgenson: „Það er ljóst að við verðum að standa á eigin fótum og getum ekki treyst á er- lend ríki er við vörpum af okkur hlekkjunum. En það er eitt sem getur reitt Eistlendinga til reiði og það er þegar við erum kallaðir „fá- mennur hópur öfgamanna.“ Júrg- enson segir að sjálfstæði Eystra- saltsríkjanna verði aðeins afstýrt með blóðbaði „Hvað hefði á sínum tima getað komið í veg fyrir sjálf- stæði Tslands?" segir hann og hefur ekki um það fleiri orð. New York. Daily Telegraph. SJÓNVARP er viðsjárverður förunautur og má segja að þar leiði leið- ur leiðan. Sjónvarpsgláp krefst sáralítillar einbeitingar og oft á tíðum líður notandanum verr eftir að hann hefúr setið fyrir framan skjáinn heldur en honum leið áður en hann settist, að sögn tveggja banda- rískra sálfræðinga sem rannsakað hafa viðbrögð sjónvarpsnotenda í 13 ár. Sálfræðingarnir tveir, dr. Robert Kubey sem starfar við Rutgers- háskóla í New Jersey og dr. Mihaly Csikszentmihalyi sem starfar við Cicago-háskóla, segja að rannsóknin leiði í ljós að því lengur sem notand- inn sitji fyrir framan skjáinn því ■ fjaðri, leiðari, daprari, umkomu- •íiusai-i ogfjandsamlegri verði hann. I'ram kom einnig að þeir sem kvoiktu á sjónvarpstækinu í því kyni að „slappa af“ sýndu aukin ..treitumerki þegar þeir slökktu á tækinu. Vísindamennirnir telja að þessi niðurstaða muni líklega koma almenningi og sjónvarpsfólki mest á óvart. Niðurstöður rannsóknarinnar komu út í bókarformi á mánudag. Titill bókarinnar er „Sjónvarpið og lífsgæðin: Áhrif áhorfs á hvers- dagslífið". Þó að hér verði ekki um neina metsölubók að ræða má búast við að hún verði dapurleg lesning fyrir sjónvarpsfólk. Sálfræðingarnir fengu 1200 manns á aldrinum 10 til 82 ára til að taka þátt í rannsókninni. Viðkom- andi báru svonefnda friðþjófa á sér og gáfu skriflega lýsingu á líðan sinni í hvert skipti sem tækið gaf frá sér hljóðmerki. „Við söfnuðum saman skyndimyndum af því sem þátttakendumir aðhöfðust og hvern- ig þeim leið á meðan,“ segir dr. Kubey. „Þannig gátum við fengið glögga yfirsýn yfir hugarástand þeirra og hegðunarmynstur — sem þeir hafa ef til vill ekki haft sjálfir." Um það bil 90% af áhorfstímanum var fólkið að horfa af því að það langaði til þess. Hins vegar vann það aðeins 15% af vinnutímanum með sama hugarfari. Rannsóknin leiddi í Ijós að Banda- ríkjamenn veija að meðaltali nærri helmingi frítíma síns í að horfa á sjónvarp — um tveimur tímum á dag eða sem svarar sjö árum á meðalæ- vitíma. Vísindamennirnir komust að raun um að Bandaríkjamenn horfa á sjón- varp hvenær sem þeim gefst tími til þess fremur en af þeirri ástæðu að þá langi til að horfa á ákveðna dag- skrárliði. Þar að auki kjósa þeir fremur sjónvarpsþætti sem eru kunnuglegir og með hefðbundinni framvindu heldur en óvenjulega þætti og örvandi fyrir hugann. Þátttakendurnir 'voru sammála um að bóklestur væri erfiðari og reyndi meira á einbeitinguna en sjón- varpsgláp. Samt voru þeir að jafnaði afslappaðri eftir að hafa lesið bók en eftir að hafa setið fyrir framan skjáinn. Zsa Zsa Gabor lengi aðfarða sig Bandaríska leikkonan Zsa Zsa Gabor hlýðir á dómara úrskurða að hún skuli afplána dóm sem kveður á um 145 og hálfrar stund- ar vinnu að félagslegu hjálpar- starfi. Leikkonan, sem sennilega er komin undir sjötugt þótt hún haldi öðru fram, var dæmd í 120 stunda vinnu í september sl. fyrir að beija lögregluþjón í Beverly Hills-hverfinu í Hollywood. A þriðjudag sagði dómari að þegar vinnustundirnar voru taldar saman hefði þokkagyðjan fagra, sem tek- in er ofurlítið að fölna, reiknað með þann tíma sem hún notaði til að farða sig fyrir starfið, hvorki meira né minna en fimm stundir á dag! Dómarinn var ekki sáttur við þetta og bætti því nokkru við fyrri dóm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.