Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 42

Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 NEYTENDAMAL Þriðja kryddið (monosod- ium glutamat) í eldlínunni Á síðustu árum hefur það aukist að margskonar bragðaukandi efni séu sett í matvælin m.a. til að bæta bragðið. Eitt þessara aukefna er „monosodium glutamat" (MSG) sem hér er þekkt undir nafninu „þriðja kryddið". Aukefnið sjálft er bragðlaust, en það hefur hæfileika til að draga fram besta bragð matarins, með örvun og deyfingu ákveðinna tauga í bragðlaukum munnsins. Aukefni þetta hefur lengi verið umdeilt og í ljósi nýrra rannsókna á áhrifum þess á starfsemi heila- og taugakerfis barna og ann- arra viðkvæmra einstaklinga, hefur umræðan verið vakin enn á ný, eins og fram kemur í vísindatímaritinu „Scienee" sem út kom 5. janúar á þessu ári. Fyrir rúmum 20 árum benti sérfræðingur í taugalífeðlisfræði, John Olney, sem þá starfaði við Washington University, á áhrif monosodium glutamats (öðru nafni þriðja kryddið (MSG)) á starfsemi heilans. Hann sýndi fram á, að væri aukefnið gefið rottum eða öpum með inntöku,' yki það glutamatmagnið í blóði sem ylli skemmdum á þeim hluta heilans sem stjórnar sjáifvirka taugakerfinu. Þessi athugun leiddi til uppgötvunar á „örvuna- reitrun" eða excitotoxicity sem er hæfileiki amínósýra eins og gluta- mats til að örva taugafrumur til dauða og valda þar með heilask- aða. Örvunareitranir hafa síðan ver- ið viðurkenndar sem staðreynd, segir í Science, þó enn sé umdeilt á hvern hátt glutamatið valdið eitrunum. En vonir standa til aó rannsóknir á því muni geta skýrt taugahrörnunarsjúkdóma eins og Parkinsons- og Alzheimersjúk- dóma. John Olney var sannfærður um að þetta aukefni, þriðja kryddið, væri skaðlegt börnum. Rannsókn- ir hans höfðu leitt í ljós að ung tilraunadýr voru mun viðkvæmari fyrir skaða vegna örvunareitrunar af völdum þriðja kryddsins í fæð- unni en hin fullorðnu. Hann áleit því að hið sama myndi gilda um börn og þá sérstaklega ungbörn. Þetta var upphaf baráttu hans við bandaríska Fæðu- og lyfjaeft- irlitið (FDA) um að fá settar regl- ur um notkun þriðja kryddsins í matvæli, en fram til þess tíma hafði þetta bragðaukandi efni verið sett í allan barnamat. Hinn opinberi eftirlitsaðili FDA neitaði að setja reglur þar um, en árið 1969 ákváðu framleiðendur sjálfir að hætta að nota þriðja kryddið í barnamat. Olney hefur bent á, að það nægi ekki vegna þess að aukefnið er sett í pakkasúpur og annan mat sem gefinn er börnum. Olney hefur einnig bent á, að börnum stafi hætta af sætuefninu aspartam (NutraSweet) vegna þess að það innihaldi aspartat, hún er amínósýra sem örvar einn- ig glutamatmóttakara í heila. Hann hefur einnig gagnrýnt óná- kvæmni í rannsóknum á efninu sem framkvæmdar hafa verið með fjáhagsstuðningi frá matvæla- framleiðendum. Rannsóknir Olneys hafa einnig verið gagnrýndar og því m.a. haldið fram, að í austurlöndum fjær hafi aukefnisins verið neytt jafnvel af börnum án þess að skaðlegra líkamlegra áhrifa hafi orðið vart. Nýjar rannsóknir eru sagðar styðja kenningar Olneys um að þær taugafrumur sem eru við- kvæmar fyrir skemmdum vegna glutamats, séu sérstaklega við- kvæmar í ungum tilraunadýrum. Olney telur það styðja þá kennngu sína að þriðja kryddið sé börnum sérstaklega varasamt. Fleiri þættir styðja þessar kenningar. Barátta Olneys hefur haft mikil áhrif á umræðuna og rannsóknir á þessu sviði, þó að sérfræðingar í taugafrumurann- sóknum séu ekki að öilu leyti sam- mála í þeim efnum. En rannsóknir ná yfir mun breiðara svið en glutamats sem aukefnis í matvælum. Þessir örv- unareiturefni geta verið til staðar í sumum fæðutegundum frá náttúrunnar hendi og jafnvel í það mikiu magni að það valdi heila- skemmdum sé þeirra neytt. Örv- unareitur hefur verið tengt ákveð- inni baunategund sem sumir íbúar Afríku og Asíu borðuðu á tímum hugursneiðar. Efnið hefur einnig verið tengt taugahrörnunarsjúk- dómi sem á upphaf sítt á eyjunni Guam í Kyrrahafi. Örvunareitrið í umhverfinu er ekki aðal áhuggjuefnið. Vísinda- menn hafa komist að því, að glutamat í heilanum sjálfum getur orðið að örvunareitri. Uppsöfnun glutamats getur orðið í hluta heil- ans og valdið heilaskemmdum í kjölfar heilablóðfalls, blóðsykurs- korts og losts. Vísindamenn telja einnig að taugahrörnun í Hungt- ingtons-, Parkinsons- og Alzhei- mers-sjúkdómum geti stafað af því að eðlileg starfsemi glutamats hafi raskast. í desember árið 1986 fengu 150 manns skelfiskeitrun í Kanada eftir neyslu skelfisks sem við rannsókn reyndist innhalda mikið magn af domoic-sýru sem er áþekk glutamati. Fjórir þeirra sem sýktust létust og tólf þeirra urðu fyrir varanlegu heilsutjóni sem kom fram í minnisleysi svipað því sem fylgir Alzheimer. Krufn- ing á þeim sem létust leiddi í ljós, að taugar í þeim hluta heilans sem hefur með minnið að gera, höfðu orðið fyrir skemmdum. Þó ekki séu öll kurl komin til grafar í sambandi við þessa skel- fiskeitrun hefur það verið íhugun- arefni vísindamanna, hvers vegna svo fáir, af þeim fjölda sem taiið er að neytt hafi skelfisksins, hafi hlotið af varanlegan skaða. Þegar því hefur verið svarað, má vera að auðveldara verði að finna skýr- ingu á því, hvers vegna ákveðinn hópur þjóðfélagsins er svona miklu viðkvæmari fyrir öiwuna- reitrun en aðrir. Sérstæður sjúkdómur kom upp á eyjunni Guam í Kyrrahafi og hafa vísindamenn lengi leitað skýringa á. Sjúkdómur þessi hefur verið kallaður Guam ALS Parkin- sons og lýsir sér á svipaðan hátt og Parkinsons- og Alzheimers- sjúkdómurinn. Upphaf hans er rakið til neyslu eyjabúa á sérstök- um fræjum sem þeir lögðu sér til munns í matarþrengingum sem kom í kjölfar seinni heimsstyijald- í flestum þessara matvæla er notað þriðja kryddið. arinnar. Tilgátur eru um að sjúk- dómnum hafi valdið efnið beta- methylamino-alanine, sem er að finna í þessum fræjum. Það hefur komið fram, að margir þeir sem fengið hafa þennan sjúkdóm fengu hann ekki fyrr en mörgum árum eftir neyslu á þessum fræj- um. Skýring á því getur verið sú, að örvunareitrið getur drepið taugafrumur eftir neyslu þessara efna, en að sjúkdómur komi ekki fram fyrr en þegar frumum þess- um fækkar með aldrinum. Ein- kennin kæmu þá í ljós þegar taugafrumum skaddaða hluta heilans hefur fækkað niður fyrir það sem talist getur eðlilegt og rutt þannig leið fyrir fyrrnefndan taugarýrnunarsjúkdóm — árum síðar. Fæðu- og lyfjaeftirlit Banda- ríkjanna (FDA) er mjög gagnrýnt fyrir að sýna þessum rannsóknum á glutamati og taugaeitrunum ekki nægjanlegan áhuga. Farið er fram á að FDA hlusti á þá vísindamenn sem vinna á opinber- um styrkjum, þar sem möguleiki sé á því að þær rannsóknir sem gerðar eru á vegum matvælafyrir- tækjanna sjálfra séu ekki fullkom- lega hlutlausar, sérstaklega þær sem gerðar eru á glutamati, segir í greininni. Þessar rannsóknir a glutamati sem hér hafa verið teknar til umræðu eru mjög umhugsunar- verðar og þá ekki síst ef skaði af neyslu þess kemur ekki fram hjá viðkvæmum einstaklingum fyrr en árum eftir neyslu. Hvað með börn sem alin voru á mon- osodium glutamati í barnamat fram til ársins 1969, hafa þau hlotið af varanlegan heilaskaða. Getur þetta mikla magn af þriðja kryddinu, sem hér er leyfilegt að setja í matvæli, haft heiisuspill- andi áhrif á okkar uppvaxandi kynsióð. Hér á landi er leyfilegt að láta þriðja kryddið (MSG) í fjölmargar matvælategundir eins og pylsur og aðrar unnar matvörur bæði úr kjöti og fiski. Það vekur einnig athygli, að samkvæmt aukefna- listanum er jafnvel leyfilegt að setja þriðja kryddið í ferskt hakk- að kjöt og fars. Það er einnig leyfi- legt að setja í majones, í súpur, álegg og tilbúna rétti úr kjöti og fiski, — matvæli sem gjarnan eru gefin ungum börnum. M. Þorv. MYNDBOND OGMANNLEG (Ó)NÁITÚRA Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bióborgin Kynlíf, lygi og myndbönd — „Sex, Lies and Videotapes“ Leikstjórn og handrit Steven Soderbergh. Aðalleikendur James Spider, Peter Gallagher, Andie Macdowell, Laura San Giacomo. Bandarísk. Miramax 1989. Ef Gallagher hefði grunað hvaða ósköp og skelfingu hann kaliaði yfir sig er hann bauð göml- um vini og félaga (Spider) að gista hjá sér í nokkrar nætur, hefði hann örugglega látið það ógert. Nóg vandamál fyrir! Sjálfur er hann lögfræðingur í vel launuðu starfi, sjálfselskur, lyginn og ómerkilegur. Konan orðin honum fráhverf kynferðislega en ber sorpvandamál Jarðarbúa þess meira fyrir brjósti á vikulegum mótum hennar við sálfræðinginn sinn. En Gallagher lætur sér það í léttu rúmi liggja, enda þarf hann á allri sinni orku að halda að friða hina ungu og bólfimu mágkonu sína (Giacomo). Inní þennann margflókna til- finningavef kemur svo Spider, líkt og laungraður foli. Hættur að gagnast kvenfólki en á sínar sælu- stundir vfir myndböndum sem hann tekur af konum sem vilja ræða við hann opinskátt um kynlíf sitt. Harla óvenjuleg skoðun á vel þekktum vandamálum og glúrin persónuskoðun, enda er handritið óvenju hnyttið og viturlegt. Mynd- in kom feykilega á óvart á síðasta ári, hlaut yfirleitt mikið lof gagn- rýnenda og almennings þó svo að leikstjórinn og handritshöfundur- inn Soderbergh væri næsta óþekktur og allir hans meðreiðar- menn. Eina kunna nafnið Spider, sem fram til þess tíma hafði verið víðsfjarri öllum stórvirkjum á leik- listarsviðinu. En leikhópurinn virkjar safaríkan textann og text- inn leikhópinn. Þessir lítt kunnu listamenn fara allir á kostum og eru aukinheldur hárrétt valdir í krefjandi hlutverk. Hér leysast hin snúnustu kynferðis- og sam- skiptavandamál á amerískum hraða og sum harla ódýrt, og reyndar kemur allt lofið aðeins á óvart. Þegar margir þekktustu gagnrýnendur Vesturheims halda vart vatni af hrifningu á maður von á meira kjöti á beininu. Því þó Gallagher og Giacomo séu fast- mótaðar, kunnuglegar persónur vantar talsvert á fyllingu og trúð- verðugleika hinna tveggja, eink- um Spiders, sem vissulega er þungamiðja dramans. Og mál- gleðin er mikil. En kostirnir eru margfalt fleiri. Kynlíf, lygar og myndbönd er óvenju fersk og frumleg kvikmynd og leikstjór- inn/handritshöfundurinn með giftuvænlegustu kvikmyndagerð- armönnum sem fram hefur komið um árabil. Bandaríkjamenn eru ekki aideilis á flæðisken' staddir á meðan þeir eiga byrjendur sem þessa! KINNA KALLIOG KYIKMYNDIRNAR Laugarásbíó: Fjórða stríðið — „The Fourth War“ Leikstjóri John Frankenhei- mer. Aðalleikendur Roy Scheider, Jtírgen Prochnow. Ensk- bandarísk. Kodiak Films 1989. Hvað er að gerast hjá Fran- kenheimer, þeim gamalkunna mektarleikstjóra sem á að baki myndir á borð við The Manchur- ian Candiate og þótti manna snjallastur í gerð sjónvarps- mynda sem sendar voru beint út á bernskudögum þess og þykja ein mesta þolraun í kvikmynda- sögunni? Þessi nýjasta mynd hans er éinfaldlega svo lítið áhugaverð og klisjukennd að áhorfandinn á í mestu vandræð- um með að halda athyglinni vak- andi á meðan á sýningu stendur. S4 sem þessar línur skrifar átti reyndar eitt hláturbofs, það kom reyndar ekki til af góðu. Einbeit- ingin var orðin svo domm, undir vita líflausu og margtuggnu lokaatriðinu, að upp fyrir honum riljaðist aldeilis makalaus frétt sem hann las um morguninn af gervitenntum bankaraufara sem tók einfaldlega útúr sér stellið til að villa á sér heimildir! En það er önnur saga ... Ég ætla hvorki að ergja sjálfan mig né aðra á að fara djúpt í efnisþráðinn sem segir af átökum stríðsþreyttra bardagajálka, (Scheider og Prochnow), sitt hvoru megin landamæra Þýska- lands og Tékkóslóvakíu. Hann er ein samfelld rökleysa og ekki sæmandi gömlum þungavigtar- mönnum sem Frankenheimer, Scheider og Prochnow að fást við slíkt Iéttmeti. Og þó svo það leyni sér ekki að hér fari vanir menn er Fjórða stríðið sannkölluð lognmolla, stúrið afkvæmi snjallra manna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.