Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 50

Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 SIEMENS Falleg tevél! TA 90001 • Hellir upp á 1 - 8 bolla. • Samowar-aðferð við telögun. • Valsnerill fyrir lengd bleytitíma NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 fclk f fréttum SELFOSS Skólaskæruliðar á ferð Stúdentsefni Pjölbrautaskóla Suð- urlands gerðu grín að ofbeldis- þætti hermennskunnar þegar þau héldu upp á síðasta kennsludaginn og það að næstu daga fara prófin í hönd. Búin sem sérdeildarher- menn eða skæruliðar heimsóttu þau fyrirtæki og stofnanir í bæn- um. Þessu fylgdu viðeigandi fóta- spörk, vélbyssugelt og ómissandi skólabros. Það þarf ekki að taka það fram að auðvitað var þessum skólaskæruliðum vel tekið hvar sem þeir fóru. Harry Hamlin og Laura Johnson. Harry Hamlin hegðar sér undarlega Þau þóttu hið fegursta par leik- ararnir Laura Johnson og Harry Hamlin og um tíma lýstu þau hvort öðru sem himnasendingu. En skjótt skipast veður í lofti, Harry féll fyrir Nicolette Sherid- an sem er undurfagurt smástirni og gæti aldurs vegna verið dótt- ir hans. Eiga þau Laura og Harry nú í hatrömmum meðlags- deilum fyrir dómstólum. En mál þeirra minnir í mörgu á efni kvikmyndarinnar I blíðu og stríðu, sem hér er sýnd um þess- ar mundir, þar sem Kathleen Turner og Michael Douglas deila um skipti eftir skilnað og hvor- ugt vill flytja á brott úr húsinu og er meðal annars reynt að skipta því í tvennt. Þetta hafa Laura og Harry gert, en árekstr- arnir eru margir og verða æ al- varlegri. Hefur það t.d. tvisvar gerst að sögn Lauru, að Harry hefur sprottið öskrandi út úr fataskáp á hennar svæði er hún taldi sig vera eina í húsinu og vildi hringja persónuleg símtöl og svo hefur hann auk þess au- sið yfír hana svívirðingum fyrir framan gesti og gangandi. Mála- ferlin eru flókin, en við þau hafa nú bæst tilraunir Lauru til að láta reka Harry úr húsinu. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Stúdentseftii Fjölbrautaskólans á Selfossi brugðu sér í gervi skæruliða siðustu kennsludaga fyrir próf. KLOSSAR-STIGVEL Hótel, sjúkrahús, mötuneyti, fisk- og kjötvinnslur o.fl. Á RV-Markaði fáið þið létta vinnuklossa (hvíta eða svarta) og hvít stígvél sem ekki verða hál. ÞEKKING — ÚRVAL — ÞJÓNUSTA 5% staðgreiðsluafsláttur. Kreditkorta þjónusta sfrh'SeW STORDAGUR Dóttir Jerry Hall 1 fótspor mömmu Elisabeth Scarlett Jagger, hinni sex ára gömlu dóttur ungfrú Jerry Hail og rokkarans heimsfræga Micks Jagger þykir kippa í kynið. Elisabeth Scarlett var meðal sýn- ingarbarna er árleg góðgerð- artískusýning í þágu blindra var haldin á Park Lane-hótelinu í Lund- únum, en bömin voru valin úr nem- endahópi Vacani-dansskólans. Þetta var frumraun Lísu litlu í sýningarstörfum, en móðir hennar er sem kunnugt er einhver þekkt- asta fyrirsæta hins vestræna heims. Glöggir menn töldu Lísu hafa erft hæfileika móður sinnar, en hún er há og grönn eins og Jerry, Mick er aftur á móti heldu rindilslegur og ekki beint til sýningarstarfa. Það voru stoltir foreldrar sem fylgdust með barni sínu stika í tvígang niður sýningarganginn og til baka. Jerry var örugg og brosandi, en Mick var aftur á móti allur á iði og gat ekki setið kyrr. Hann þrískipti um sæti meðan á sýningunni stóð. Elisabeth Scarlett sýnir skraut- legan ballkjól. ---—-—---- Stoltir foreldrar ásamt yngra barninum, peyjanum James,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.