Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 51

Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 51 SUMARKOMA Skátar fögmiðu sumri með hátíðahöldum Á þriðja hundrað skátar á Selfossi og fjöldi íbúa gengu í skrúðgöngu til kirkju á sumardaginn fyrsta og fögnuðu sumri. Skátastarf á Sel- fossi er mjög öflugt um þessar mundir eftir að hafa legið niðri um nokkurra ára skeið. Skátarnir söfnuðust saman við barnaskólann og þaðan var gengið um nokkrar götur, stansað við Ljós- heima, sjúkraheimili aldraðra, á leið til ktrkjunnar. Veður var gott, sól skein í heiði með dálítilli kælu. í ræðu sinni í skátamessunni gat séra Sigurður Sigurðarson sóknar- prestur þess sérstaklega hversu ánægjulegt það væri að skátafélag- ið Fossbúar starfaði með svo mikl- um þrótti. Skátastarfið væri gef- andi og hefði mikið uppeldislegt gildi fyrir hvern og einn ásamt því að vera veigamikill þáttur í samfé- laginu. Nýir foringjar voru vígðir til starfa í skátamessunni af skátafor- ingjum Fossbúa. Þeir báru íslenska fánann í og úr kirkju og heilsuðu með fánahyllingu. Síðar um daginn var mikil skáta- skemmtun í Hótel Selfoss þar sem margt var sér til gamans gert og var skemmtunin vel sótt af börnum og fullorðnum. - Sig. Jóns. Ungir skátar á Selfossi í skrúðgöngu á sumardaginn fyrsta. Skátaforingjar fóru fyrir skrúðgöngunni með fánaborg. DRYKKJULÆTI Hopper ánægðari þurr Leikarinn góðkunni Dennis Hopper er nýr maður þessa dagana, eða eftir að hann kom úr meðferð vegna hrikalegrar áfengis- og pilluneyslu. Sjálfur segir hann að það hafi ekki runnið af sér í svo mörg ár að hann muni ekki hversu mörg þau eru. Vinir og vandamenn Hoppers voru ævinlega eitthvað að rella í honum, en hann afgreiddi allt slíkt eins og hvert annað raus og taldi sig hafa góða stjórn á neyslu sinni. Var hann einn um þá skoðun. Tvö atvik urðu til þess að hann fór að skoða hlutina í öðru Ijósi. Hann var að vinna við kvikmyndatökur í frumskógi og sturtaði í sig víni í tíma og ótíma. Allt í einu missti hann stjórn á sér og hann æddi um allt svæðið, fletti sig loks klæðum og hljóp öskrandi inn í frumskóg- inn. Fjórir tæknimenn veittu honum eftirför og drógu hann nauðugan viljugan til búða. Nokkrum dögum seinna var Dennis svo enn drukkn- ari og þá stóð til að fljúga frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna. En áður en vélin komst í loftið þurftu tæknimennirnir enn að grípa í taumana, því skyndilega var Hopper kominn út á væng vélarinn- ar og þvertók fyrir að snúa í sætið. Voru þá kallaðir til fílefldir menn sem afgi-eiddu Hopper snyrtilega, en er hann 'fékk minnið á ný féllst hann á að fara í meðferð. Hefur hann nú verið óvirkur í nokkra mánuði og segist líka lífið betur en nokkru sinni fyrr. Hopper t.h. ásamt Kiefer Sutherland en þeir leika saman í mynd- inni „Rebellion". Richard Pryor. KRANKLEIKI Pryor fékk hjartaáfall í Astralíu Heilsu gamanleikarans banda- ríska Richards Pryors hrakar nú töluvert, en hann er sagður haldinn ms-sjúkdómnum. Hef- ur Pryor horast gífurlega síðustu mánuði, svo mjög, að orðrómur fór á kreik um að hann væri haldinn alnæmi, en nú hefur annað komið í ljós. Það síðasta sem brast á leik- arann var vægt hjartaáfall fyr- ir nokkrum vikum er hann var staddur í Ástralíu. Var hann lagður inn á sjúkrahús í Bris- bane þar sem hann jafnaði sig undir ströngu eftirliti lækna. Læknar tilkynntu að áfallið hefðu ekki valdið teljandi skaða. Hallvarður erkigaur hefur nú gengið í íslenskra manna tölu og er hættur að sletta útlenskum orðum. Hann iðrast þess að hafa vaðið yfir þjóðina með enskuslett- una "slim'7 og hefur heitið því að finna íslenskt orð í staðinn. Hann leitar nú log- andi ljósi í alíslensku orðabókinni sinni að rétta orðinu. Hann væri afar þakklátur ef íslenska þjóðin gæti sameinast í þessu átaki og hjálpað honum að finna íslenskt orð á umbúðimar í staðinn fyiir "slim". Fyllið út seðilinn héma fyrir neðan - og sendið hann til AUKhf, Auglýsinga- stofu Kristínar, Pósthólf 5212,125 Reykja- vík, merkt: Floridana hvað?, fyrir 1. ágúst 1990. Verðlaun að upphæð kr. 100.000 verða veitt fyrir besta heitið. Dómnefnd velur besta heitið. Ef fleiii en einn eru með sama heitið, verður dregið um hver hlýtur verðlaunin. Til- kynnt verður um úrslit 3. september 1990. AUGLÝSINGASTOFA KRISTlNAR I— „Ekkert sull fyrír mig takk! Aðeins 100% hreinan Florídana safa í_______________________umbúðum." Nafn_______________________________ Heimilisfang __________ Póstnr__________Staður Sími __________________

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.