Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
4
IÞROTTIR UNGLINGA
Körfuknattleikur:
íslands-
meistarar
ÍBK í
drengja-
flokki
Keflvíkingar sigruðu KR-inga
í úrslitaleik í drengjaflokki
fyrir skömmu. Á myndinni eru,
efri röð frá vinstri: Guðbrandur
Stefánsson, þjálfari, Ólafur Pét-
ursson, Sigurður Valur Árnason,
Birgir Guðfinnsson, Nökkvi Már
Jónsson, Garðar Jónsson og Pétur
Guðmundsson. Neðri röð frá
viiistri: Ingvar Eyfjörð Jónsson,
Kristinn Ingólfsson, Jón Júlíus
Árnason, Hjörtur Harðarsson, Jón
Stefánsson og Rúnar Valdimars-
son.
Morgunblaðið/Einar Falur
JÚDO / ISLANDSMOT YNGRI FLOKKANNA
Kampakátir Akureyringar eftir glæsilega frammistöðu á mótinu í Grindavík.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Glæsilegur árangur
KA-manna í Grindavík
Fengu tuttugu og sjö verðlaun á íslandsmóti yngri flokkanna um síðustu helgi
ÍSLANDSMÓT íflokki 6-16 ára
íjúdó varhaldið sl. helgi í
íþróttahúsinu í Grindavík. Um
-150 þátttakendur tóku þátt í
mótinu, þar af 57 frá KA, Akur-
eyri. Aðrir komu frá UMFG,
Ármanni, ÍBK og JFR.
Keppt var í 17 þyngdarflokkum,
2-4 í hveijum aldursflokki. KA
fékk flest gull, 11 samtals og reynd-
ar flest verðlaun eða 27 samtals
sem er frábær
Frimann
Ótafsson
skrífarfrá
Gríndavik
arangur.
Jón Óðinn Óðins-
son hefur séð um
þjálfun hjá KA und-
anfarin fimm ár sagði við Morgun-
blaðið að mikill áhugi væri á íþrótt-
inni á Akureyri og um 100 stund-
uðu júdó þar. Hann sagði að júdó-
menn æfðu mikið auk þess sem
mikil áhersla væri lögð á aga.
,Það er góður andi í hópnum og
með þessum góða árangri eykst
áhugi á júdó,“ sagði Jón Óðinn,
„auk þess er metnaðurinn mikill og
ég veit að þeir sem fengu silfur og
brons eru ekki fullkomlega ánægðir
því allir komu til að vinna."
Jón Óðinn sagði að strákarnir
sem hann hefði byijað að þjálfa
fyrir fimm árum hefðu séð um þjálf-
un í vetur þegar hann sjálfur var
í skóla í Reykjavík og þeir ættu
hrós skilið fyrir árangurinn.
Ármenningar stóðu sig vel í eldri
flokkunum og fengu þrenn gull-
verðlaun og 15 samtals. Heima-
menn ollu nokkrum vonbrigðum og
fengu ekki nema 1 gullverðlaun og
þrenn silfurverðlaun. Úrslit voru
birt í Morgunblaðinu á þriðjudag.
Mótið fór í alla staði vel fram
og gekk snuðrulaust fyrir sig.
Grunnskólar
Reykjavíkur:
Rúmlega
2.000 þátt-
takendur á
Íþróttahátíð
Iþróttahátíð grunnskóla
Reykjavíkur 1990 fer fram á
morgun og verður sett í Laugar-
dalshöll. Þátttakendur verða um
2.000, auk þeirra sem taka þátt í
öðrum viðfangsefnum sem í boði
eru.
Hátíðin verður sett í Laugardals-
höll kl. 13. Unglingar úr Ármanni
sýna fimleika og Reykjavíkurmeist-
arar í frjálsri aðferð sýna dans. Að
því loknu verður keppt í hinum
ýmsu greinum, handknattleik,
knattspyrnu, körfuknattleik, boð-
sundi, boðhlaupi, langstökki og
víðavangshlaupi. I Laugardal verð-
ur keppt í torfæruakstri á reiðhjól-
um, fólki gefst kostur á að æfa sig
í hjólreiðaþrautum og hjólabretta-
pallur verður settur upp, auk leik-
tækjasvæðis.
Dagskrá Iþróttahátíðarinnar er á
þessa leið:
Laugardalshöll kl. 14.00
Handbolti, 7. og 8. bekkur drengja
og stúlkna. 42 lið.
Gervigrasvöllur kl. 14.00
Knattspyrna, 6. bekkur drengja og
stúlkna. 31 lið.
Álftamýraskóli kl. 14.
Körfuknattleikur, 9. bekkur
drengja og stúlkna. 19 lið.
Laugardalslaug kl. 14.30
Boðsund, 4., 6., 7. og 9. bekkur,
blönduð lið. 25 íið.
Valbjarnarvöllur 13.45.
Boðhlaup, 4. og 6. bekkur, blönduð
lið. 17 lið.
Langstökk, 1. og 3. bekkur, frjáls
þátttaka.
Kl. 15.00 Víðavangshlaup, 1. og
9. bekkur, fijáls þátttaka.
Að auki verður íþróttasvæðið í
Laugardal öllum opið og m.a. keppt
í blaki, ratleik, tennis ofl.
ÚRSLIT
Vorhlaup UFA
Vorhlaup Ungmennafélags Akureyrar fór
fram á Akureyri 1. maí. Keppendur voru 87.
Stelpur 11-12 ára, 1,3 km:
Berglind Gunnarsdóttir, UMSE..........5,47
Þórdis Jónsdóttir, UMSE...............5,56
Sigurlaug Níelsdóttir, UMSE...........6,03
ValaHarðardóttir, UMSE................6,11
GunnurÝr Stefánsdóttir, UMSE..........6,17
Strákar 11-12 ára, 1,3 km:
Bergvin Gunnarsson, UMSE..............5,22
Smári Stefánsson, UFA.................5,29
Jóhann Finnbogason, UFA...............5,51
Logi Siguijónsson, UMSE...............6,09
Róbert Kárason, UFA,..................6,14
Telpur 13-14 ára, 2,1 km:
Unnur Kristín Friðriksdóttir, UFA....10,16
Heiðdís Þorsteinsdóttir, UMSE........11,35
Hafdís Heiðarsdóttir, UMSE...........11,42
Jóhanna Eria Jóhannesdóttir, UFA.....12,31
Hólmfríður Jónsdóttir, UFA...........12,42
Piltar 13-14 ára, 2,1 km:
Anton Ingvason, UMSE..................9,07
Birgir Öm Reynisson, UFA..............9,53
->
1990
ÍÞRÓTTASEÓLI
Hálfsmánaðar fjölbreytt íþróttanámskeið
fyrir 6-13 ára börn