Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Eyjólfur
tók Ásgeir
á orðinu
Kom inn á sem varamaður gegn Nurnberg og
opnaði markareikning sinn hjá Stuttgart. Skor-
aði með skalla eftir hornspyrnu frá Ásgeiri
EYJÓLFUR Sverrisson tók Ás-
geir Sigurvinsson á orðinu í
ieik gegn Nurnberg á Neckar-
leikvanginum í fyrradag, er
hann opnaði markareikning
sinn fyrir Stuttgart, sem vann
4:0. Þegar Eyjólfur kom inn á
sem varamaður fyrir Danann
Peter Rasmussen á 52. mín.,
sagði Ásgeir við Eyjólf: „Farðu
^>nú fram og skoraðu."
Eyjólfur hafði ekki verið inni á
vellinum nema í fimmtán mín.
er hann var búinn að skora. Hann
skoraði með skalla eftir hornspyrnu
frá Ásgeiri Sigurvinssyni. „Send-
ingin frá Ásgeiri kom á nærstöng-
ina. Ég skaust fram fyrir markvörð-
inn Köpke og skallaði knöttinn í
markhomið. Það var ljúft að sjá
knöttinn hafna í netinu,“ sagði
jEyjólfur við Morgunblaðið. Hann
■ iék vel þann tíma sem hann var
inni á. „Eyjólfur nýtti tækifærið og
kom vel frá leiknum,“ sagði Ásgeir
Sigurvinsson, sem lék sinn fyrsta
leik í langan tíma í byrjunarliðinu
og fékk hann góða dóma. „Ég er
að ná mér eftir meiðslin.“
Eyjólfur var nær búinn að skora
fyrr. Varnarmaður Nurnberg náði
þá að varna skoti frá honum. Knött-
irnn fór til Fronzeck, sem skoraði,
2:0. Áður hafði Manfred Schnalke
skorað. Eyjólfur skoraði þriðja
markið og Fritz Walter það fjórða.
Stuttgart leikur næst á útivelli
gegn Mönchengladbach. „Ég reikna
ekki með að vera í byijunarliðinu
þá,“ sagði Eyjólfur, sem vonast þó
“*til að koma inn á sem varamaður.
Fjóröi íslenski dúettinn
Ásgeir og Eyjólfur er ijórði ís-
lendingadúettinn sem leikur saman
í Bundesligunni. Atli Eðvaldsson og
Magnús Bergs léku saman hjá Dort-
mund, Atli og Pétur Ormslev hjá
Dússeldorf og Atli og Lárus Guð-
mundsson hjá Bayer Uerdingen.
Eyjólfur fagnar markinu gegn Núrnberg;
fyrsta marki sínu fyrir aðallið Stuttgart.
Fram og Víkingur
mætast í kvöld
Fyrri undanúrslitaleikurinn á
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu fer fram
í kvöld. Fram og Víkingar mætast á gervi-
grasvellinu Laugardal kl. 20.30. Síðari
leikurinn fer fram á sama stað á laugar-
dag kl. 15.00. Þá mætast Þróttur og KR.
Ásgeir á fullri ferð í leiknum gegn Núrn-
berg á þriðjudag. Hann var talinn besti
maður Stuttgart í leiknum.
Asgeir fuHtrúi hjá Stuttgart
Asgeir Sigurvinsson mun
leggja knattspyrnuskóna á
hilluna 12. maí, eftir leik gegn
Homburg á Neckar-leikvanginum
í Stuttgart. „Það verður minn
síðasti opinberi leikur í móti,“
sagði Ásgeir, en hann er þó samn-
ingsbundinn Stuttgart til 1993.
Dieter Höness, framkvæmdastjóri
félagsins, kom til Ásgeirs á dög-
unum og bauð honum ákveðið
starf.
„Höness óskaði eftir því að ég
verði tengiliður Stuttgarts við þá
aðila sem fjármagna félagið.
Þetta er óneitanlega spennandi
starf,“ sagði Ásgeir. „Það verður
örugglega erfitt að hætta eftir
sautján ára feril sem atvinnu-
knattspyrnumaður. Ég hef undir-
búið mig vel fyrir þessi tímamót,
þannig að ég á að geta sætt mig
betur við að hætta knattspyrnu.
Ásgeir mun fara á námskeið í
markaðsfræðum áður en hann
tæki við nýja starfinu.
Ásgeir ætlar að taka sér gott
sumarfrí og síðan mun hann setj-
ast niður í september og fara að
huga að framtíðinni. „Ég hef lengi
haft áhuga á að mennta mig sem
knattspyrnuþjálfara. Til þess að
fá þjálfararéttindi verð ég að fara
í knattspyrnuþjálfaraskólann í
Köln. Áður verð ég að taka A-
stigs námskeið í þjálfun og ég
gæti vel hugsað mér að taka það
stig með haustinu,“ sagði Ásgeir.
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Bjarni
Þau bestu og efnilegustu
GUÐJÓN Árnason, fyrirliði FH, og Guðríður Guðjónsdóttir úr Fram voru kjörin bestu leikmenn 1. deildanna í handknattleik í vetur. Kjörinu var lýst
í lokahófi handknattleiksmanna, eins og greint var frá í blaðinu á þriðjudaginn. Þau eru á hægri myndinni að ofan. Á þeirri vinstri eru leikmennirnir
sem voru kjörnir þeir efnilegustu í hvorri deild; Laufey SigValdadóttir úr Gróttu og Magnús Sigurðsson, HK-
ÚRSUT
Knattspyrna
REYKJAyÍKURMÓTIÐ
Þróttur - Armann..................3:3
Haukur Magnússon, Sverrir Pétursson, Óskar
Óskarsson - Amar Halldórsson 2, Jens
Ormslev.
LITLA-BIKARKEPPNIN
A-riðill:
FH-Víðir.........................1:0
Hörður Magnússon.
FH........................2 2 0 0 5:1 4
Víðir.....................3 1 1 1 3:3 3
Keflavík..................1 0 1 0 0:0 1
Breiðablik.................2 0 0 2 3:7 0
B-ríðill:
Selfoss - Akranes.....................1:3
Salih Porca, vítasp. - Bjarki Pétursson 2,
Guðbjöm Tryggvason.
Ilaukar - Stjaman.....................1:2
Rúnar Sigurðsson - Ragnar Gíslason 2.
Akranes..................3 2 1 0 8: 4 5
Selfoss..................2 1 0 1 8: 5 2
Stjaman..................2 1 0 1 3: 4 2
Haukar....................3 0 1 2 5:11 1
ENGLAND 1. DEILD
Man. Utd. - Wimbledon.................0:0
29.281.
Liverpool - Derby.....................1:0
Gary Gillespie (81.). 38.038
leikir í gærkvöldi:
Arscnal - Southampton.................2:1
Lee Dixon vítasp., David Roeastle - Barry
Home.
Nottingham For. - Man. Utd............4:0
Garry Parker (4.), Stuart Pearce (19.), Nigel
Clough (21.), Steve Chettle (25.)
Wimbledon - C. Palace.................0:1
- Mark Bright
2. DEIUO:
Blackbum - Sheff. United..............0:0
Hull-Ipswich..........................4:3
Oldham - Oxford.......................4:1
Port Vale - Sunderland................1:2
Middlesborough - Bamsley..............0:1
West Ham - Leicester..................3:1
3. DEILD:
Bolton - Huddersfíeld...i.............2:2
Cardiff - Reading.....................3:2
Walsall - Rotherham...................1:1
Bradford - Swansea....................2:1
Bristol R. - Bristol C......:.........3:0
Tranmere - Northampton.„..............0:0
4. DEILD:
Aldershot - Herefoid..................0:2
Cambridge - Gillingham................2:1
Chesterfield - Scunthorpe.............1:1
Exeter - Bumley.......................2:1
SOVÉTRÍKIN
Bikarúrslitaleikur.
Dynamo Kiev - Lokomotiv Moskva........6:1
Óleg Salenkó 3, Alexei Mikhailttsjenkó, Vasílí
Rats, Gennadí Litóvtsjenkó - Evgení Mflesjkín.
FRAKKLAND
Leikir í 8-liða úrslitum frönsku bikarkeppninn-
ar
Avignon - Montpellier.................0:1
Cannes - Mprseille....................0:3
Racing París - Bordeaux............. 1:1
(París vann í vítaspymukeppni 5:4)
Mulhouse - St. Etienne................2:2
(St. Etienne vann í vítaspymukeppni 7:6)
V-ÞÝSKALAND
Bochum - Mönchengladbach..............2:1
Frankfurt - Homburg...................1:1
Stuttgart - Numberg...................4:0
Köln - Mannheim.......................6:0
Kaiserslautem - Bremen.................2:2
Diisseldorf - Bayer Ieverkusen.........2:0
Bayem Múnchen - St. Pauli..............1:0
Uerdingen - Dortmund...................1:3
Hamburg - Karlsruhe...................1:0
Handknattleikur
Leikir í 1. deildarkeppninni á Spáni:
Barcelona - Valladolid..................23:18
Caja Madrid - Bidasoa...................30:20
Atletico Madrid - Teka..................19:23
Granollers - Pajautordera...............35:25
■Geir Sveinsson fékk eina sendingu inn á
línuna og skoraði. Atli Hilmarsson lék ekki
með Granollers vegna meiðsla.
■Staða efstu liðanna: Teka 41, Barcelona 40,
Granollers 39, Atletico Madrid 34, Valencia
33, Bidasoa 30, Caja Madrid 30.
Körfuknattleikur
Leikið var í úrslitakeppni NBA-deildarinnar á
þriðjudaginn:
Milwaukee - Chicago Buils..........119:112
(Bulls er yfir 2:1)
Cleveland - Philadelphia..........122: 95
(Philadelphia er yfir 2:1)
Dctroit Pistons - Indiana.........108: 96
(Pistons vann 3:0)
Houston - LA Lakers................114:108
(Lakers er yfir 2:1)
Portland - Dallas.................106: 92
(Portland vann 3:0)
San Antonio - Denver..............131:120
(San Antonio vann 3:0)
Frjálsar íþróttir
Vorhiaup Ungmennafélags Akureyrar fór
fram 1. maí á Akureyri. Bestum tíma náðu:
Konur 15 ára og cldir (3,4 km);
Sigríður Gunnarsdóttir, UMDE.............14,55
Valdís Hallgrímsdóttir, UMSE.............15,10
BryndísL. Stefánsdóttir..................15,32
Brynhildur Á. Stefánsdóttir..............15,33
ÞóraG. Baldursdóttir.....................15,45
■Þtjár þær síðastöldu era ófélagsbundnar.
Karlar 15 ára og eldri (6,8 km):
Jón Illugason, HSÞ......._...............27,52
Rafn Ingi Rafnsson, HVÍ..................27,57
Sigurður Aðalsteinsson, SRA..............27,56
Sigurður Bjarklind, KA...................28,02
Sveinn Trau^tason, FHótum................28,17