Morgunblaðið - 06.06.1990, Page 19
19
Broddason reynir að gera heilmikið
úr þessu atriði, en í raun skiptir
það nákvæmlega engu máli um það
sem síðan gerðist og deilt hefur
verið um.
Broddi telur mig birta ranga
leiðréttingu í grein minni. Hann
hefur þá ekki lesið það sem á und-
an fór. Ég birti þá leiðréttingu sem
framkvæmdastjóri hljóðvarps og
starfandi útvarpsstjóri ætluðust til
að lesin yrði. Hana þurfti frétta-
stjóri hins vegar að „ritskoða“ þótt
stutt væri orðin, og lýsi ég því í
grein minni að um sé að ræða leið-
réttinguna eins.og hún átti að vera
í upphafi.
Lokaorð
Enn skal ítrekað að samkvæmt
útvarpslögum er það skylda út-
varpsráðs að sjá til þess að út-
varpsefni, þar með taldar fréttir,
samræmist lögunum. Er það m.a.
gert með reglum um fréttaflutn-
ing. Berist kæra um frétt, skal
úrskurða um það hvort hún hafi
verið í samræmi við reglur eður ei.
Verði niðurstaðan sú að fréttin
sé hlutdræg, sem sjaldan kemur
fyrir en gerðist þó í því tilviki sem
hér er til umræðu, ber fréttastof-
únni að birta leiðréttingu.
Fylgi slík furðuyfirlýsing í kjöl-
far leiðréttingar sem nú varð, þ.e.
að fréttastofan standi við fréttina,
eru fréttamenn einfaldlega að not-
færa sér fréttamiðiiinn umfram
það sem þeim er heimilt reglum
samkvæmt.
Spyija má: Hver er tilgangur
úrskurðar um að frétt sé röng eða
hlutdræg, verði hún áfram lýst
rétt eða óhlutdræg af fréttamönn-
um og er þar með í raun áfram
hin formlega frétt?
Svo virðist sem sú þróun sé að
verða að fréttamenn telji sig yfir
það hafna að virða „órökstudda
og löglausa geðþóttaúrskurði
gæslumanna stjórnmálaflokkanna
í Utvarpsráði“, eins og varafrétta-
stjóri útvarpsins kallar það að fara
eftir útvarpslögum.
Hjá því verður ekki komist, svo
hugsanlegt dæmi sé nefnt, að með
reglum sé reynt að koma í veg
fyrir að fréttamenn geti átölulaust
lagt einstaklinga, fyrirtæki eða
stofnanir í einelti í fréttatímum.
Það er mat mitt að fréttamenn
hafi í umræddu máli á ósköp skýr-
an og einfaldan hátt staðfest nauð-
syn þess að um fréttaflutning
Ríkisútvarpsins gildi sömu reglur
áfram.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
Hljómsveitin Orgill verður með
tónleika á Hótel Borg í kvöld.
■ HLJÓMSVEITIN Orgill held-
ur tónleika á Hótel Borg í dag
miðvikudaginn 6. júní. Hljómsveitin
mun leitast við að koma því til skila
hversu skemmtileg tónlist hennar
er. Tónleikarnir hefjast klukkan lO.
■ GUTTORMUR íónssQn opnaði
sýningu á skúlptúr í Stöðlakoti,
Bókhlöðustíg 6, laugardaginn 2.
júní sl. Verkin eru öll unnin í gijót.
Guttormur stundaði nám í högg-
myndadeild Myndlistaskóla
Reykjavíkur. Hann hefur haldið
eina einkasýningu á Kjarvalsstöð-
um, 1984 og auk þess tekið þátt í
samsýningum. Efnið í myndverkin
hefur hann fengið í nágrenni Akra-
ness. Sýningin stendur yfir til 17.
júní.
15-20 °7o
AFMÆLISAFSLÁTTUR
DÚKAR
ItPFABÚDIN H/F. SUÐURLANDSBpAUT 26
S-91-68 19 50
Sígilt form. Litað eða ólitað.
Afgreitt í lengdum að ósk kaupenda.
Hagstætt verð.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
BÁRUSTÁL
KLÆÐIR HÚSIÐ ÞITT
VEL!
SERLA - ÞEGAR MÝKTIN SKIPTIR MÁLI
SERLA salernispappírinn er svo undur mjúkur
vidkomu að hann hentar jafnt litlum kvefuðum nebbum
sem öðru viðkvæmu hörundi.
SERLA salernispappírinn er tvöfaldur, silkimjúkur
og einstaklega góður.
AUK/SlA k642d21-8