Morgunblaðið - 06.06.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
21
Nýlega var stofhað fyrsta katta-
ræktarfélag á Islandi.
■ FYRSTA kattaræktarfélag á
íslandi var stofnað þann 5. apríl
sl. Hlaut það nafnið Kynjakettir,
kattaræktarfélag íslands. Mark-
mið félagsins er að kynna katta-
ræktun með fundum félagsmanna,
kattasýningum, útgáfu á frétta-
bréfi, skráningu katta og útgáfu á
ættartölum. Félagið ætlar að vinna
með öðrum kattafélögum að bar-
áttu fyrir málefnum katta, katta-
ræktenda og kattavina. Símatímar
félagsins eru á mánudögum, þriðju-
dögum, miðvikudögum og um helg-
ar kl. 20—21 í síma 91-624007.
Þeir sem hafa áhuga á að fá upplýs-
ingar eða gerast félagsmenn geta
hringt í þann síma.
(Fréttatilkynning)
■ Á FUNDI Foreldrafélags mis-
þroska barna í Æfingadeild
Kennaraháskóla Islands hinn 16.
maí sl. var samþykkt eftirfarandi
ályktun: Umönnun misþroska barna
er oft ekki síður erfið en umönnun
annarra fatlaðra barna. Nú hefur
10. greinin svokallaða verið endur-
skoðuð með það fyrir augum að
kippa burt stuðningi við þennan hóp
án þess að nokkrar aðrar ráðstafan-
ir hafi komið í staðinn. Kvótar um
sérkennslu í grunnskólum eru enn-
þá jafn naumir og gefa þeir áhuga-
sömum kennurum og sérkennurum
naumast nokkurt svigrúm til þess
að sinna að gagni þessum hópi
barna, sem þó á í flestum tilfellum
fullt erindi í almenna skóla, fái þau
rétta aðstoð. Foreldrafélag mis-
þroska barna lýsir yfir þungum
áhyggjum sínum með þessa með-
ferð mála á báðum vígstöðvum og
skorar á yfirvöld, jafnt félagsmála
sem menntamála, að bregðast við
án tafar, kanna í samráði við fag-
fólk og foreldra hvernig bæta megi
aðstöðu misþroska barna, og í fram-
haldi af því gera allar þær ráðstaf-
anir sem nauðsynlegar eru.
■ JON Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra, skipaði þann 16. maí sl. Pál
Kr. Pálsson, verkfræðing, í stöðu
forstjóra Iðntæknistofiiunar Is-
lands til næstu fjögurra ára, frá
1. júní 1990 að telja. Páll hefur
gegnt starfi forstjóra Iðntækni-
stofnunar frá 1. júní 1986.
''S. N
NISSAN
MAXIMA
Vél: 3.0, V6, bein innspýting
(multi point, dual port),
173 hestöfl, framhjóladrifinn.
Skipting: Sjálfskipting, fjögurra
gíra með tölvustýrðu skiptivali
(comfort, medium og fast),
cruise control.
Innrétting: Allur leðurklæddur.
Rafmagn í öllu þ.ám.
sætastillingum.
Brsmsukerti: ABS.
Aukahlutlr: Allt innifalið, m.a.
15 tommu álfelgur, upphitaðir
speglar, fullkomið útvarp og
segulband með 4 stórum
hátölurum, rafmagnsloftnet.
Lesendur erlendra bílatímarita, evrópskra jafnt sem
amerískra, þekkja þá einróma hrifningu sem Nissan
Maxima hefur vakið. Niðurstöður eins og
„Hann er fullkominn“
„Ég get ekkert fundið að“
„Einfaldlega bestu kaupin“
höfum við engu við að bæta.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, sími 91-674000
Nýtt
símanúmer
Frá og með 1. júni 1990
er símanúmer skiptiborðs
Pósts og síma 63 60 00
og myndsendisnúmer 63 60 09.
Nánari upplýsingar eru
á blaðsíðum 338 og 339
í símaskránni.
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörutn þér sporin
'é'fj
GOTT FÓLKI SlA 5500-1S7