Morgunblaðið - 06.06.1990, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Bai'áttan um stjórnar-
formennsku vekur mesta
athygli á aðalfundi SIS
Yerslunardeildin tapaði mestu fyrstu fjóra mánuði þessa árs
AÐALFUNDUR Sambands íslenskra samvmnufélaga verður
settur í húsakynnum Sambandsins við Kirkjusand kl. 9 á morg-
un, fimmtudag. Fundinum lýkur ekki fyrr en síðdegis á fóstu-
dag. Samvinnuhreyfingin stendur nú á þeim tímamótum að
taka í raun þá ákvörðun að leggja sjálfa sig niður sem samvinnu-
félagsform, og hverfa til hlutafélagareksturs, verði tillaga níu
manna sljórnar Sambandsins í þá veru á annað borð samþykkt
af fulltrúum þeim sem sitja aðalíúndinn, en þeir eru um 120
talsins. Það má því segja að tímamót blasi við, hvort sem tillag-
an verður samþykkt eða ekki: Það heyrir til stórtíðinda ef sam-
vinnumenn ákveða að hverfa frá samvinnunni; en það heyrir
einnig til stórtíðinda ef aðalfúndurinn ákveður að fella tillögu
stjórnar Sambandsins, þar sem allir níu stjórnarmennirnir
standa einhuga að þessari tillögu. Reyndar er talið afai' ólík-
legt að tillaga stjórnarinnar verði felld, en einhverjum breytíng-
um gæti hún tekið.
Afkoma Sambandsins á liðnu
ári er hroðaleg, og er tapið í
ársreikningi þeim sem kynntur
verður aðalfundarfulltrúum á
morgun rúmlega 700 milljónir
króna. Það segir þó ekki alla
söguna, því þá er búið að jafna
út afskriftir á töpuðum útistand-
andi skuldum og um 300 milljóna
króna hagnað af sölu Samvinnu-
bankans til Landsbanka um
síðustu áramót.
Verslunardeildin er
vandræðabarnið
Langmesta tapið í rekstri á
liðnu ári var hjá Verslunardeild
Sambandsins, eða um 400 millj-
ónir króna. Verslunardeildinni
hefur ekki tekist að snúa við
blaðinu á þessu ári, því ég hef
upplýsingar um að samkvæmt
fjögurra mánaða bráðabirgð-
auppgjöri sem kynnt var stjóm
Sambandsins síðla í maí, hafi
komið fram að megnið af nálægt
200 milljóna króna taprekstri
Sambandsins fyrstu fjóra mán-
uði þessa árs megi rekja til Versl-
unardeildarinnar.
Nú er það ekki svo að Verslun-
ardeildin verði sökuð um að vera
svo miklum mun verr rekin en
aðrar deildir Sambandsins. Af-
koma Verslunardeildarinnar hef-
ur lagast, en sannleikurinn er
sá að fjármagnskostnaður, rán-
dýrt og óhagkvæmt húsnæði og
töp liðinna ára eru og hafa verið
að sliga reksturinn. Þó svo að
byltingarkennd ákvörðun væri
tekin um að leggja deildina nið-
ur, hefði það ekki sjálfkrafa í för
með sér að skuldir hyrfu. Aðal-
fundarfulltrúar eiga von á því
að hagur Verslunardeildarinnar
og það hvemig framtíð hennar
verði best hagað verði mikið til
umræðu á fundinum.
Það kom glöggt fram í sam-
tölum við stjórnarmenn Sam-
bandsins að þeim er ekki öllum
Ijúft að leggja fram tillöguna um
breytt skipulag Sambandsins og
hlutafélagarekstur, en þeir telja
að með því að bijóta Sambandið
upp í sex hlutafélög verði því
bjargað sem bjargað verður, ella
blasi ekkert annað en gjaldþrot
við Sambandinu.
Reynt að bjarga því sem
bjargað verður
Eftir því sem næst verður
komist, sem má raunar lesa út
úr tillögu stjómarinnar, er meg-
inhugsunin á bak við skipulags-
breytingamar sú að gera sjálf-
stæðar rekstrareiningar úr deild-
unum, þannig að þær sem standi
best eins og Sjávarafurðadeildin
og Skipadeildin eigi sér einhveija
framtíðarvon í rekstrinum, en
verði ekki dregnar með í falli
þeirra deilda sem verst standi.
Óðru máli gegnir um Verslunar-
deildina og Jötun, sem eru sér-
staklega tilgreindar í tillögunni
og sagt að ef rekstri þar verði
ekki snúið til hagnaðar, þá verði.
eigur þessara deilda seldar og
rekstri hætt.
Viðmælendur mínir eiga von
á miklum umræðum á fundinum
um þessi mál og jafnvel hörðum
átökum. Vitað er um skiptar
skoðanir kaupfélagsstjóra úti á
landi í þessum efnum. Ákveðnir
kaupfélagsstjórar hafa sagt að
þeir séu engan veginn sannfærð-
ir um ágæti þeirrar leiðar sem
stjórnin leggur til, en fyrir fund-
inn vilji þeir ekki kveða upp úr
með það hvort þeir greiði tillögu
stjómar atkvæði sitt eða ekki.
Þeir þurfi að ræða málið út í
Framtíð Guðjóns B. Ólafssonar,
forstjóra Sambandsins, er á
huldu, ef skipulagsbreytingarn-
ar verða samþykktar. Hann
hefur ekkert viljað tjá sig um
hana fyrr en niðurstaða fúndar-
ins liggur fyrir.
Þorsteinn Sveinsson, varafor-
maður stjómar Sambandsins,
er af sumum talinn líklegur til
þess að taka við formennsku í
stjórninni.
Geir Magnússon, bankastjóri
Samvinnubankans, er enn einn
formannskandídatinn sem
nefiidur hefúr verið.
hörgul í sínum hóp. Það er þó
talið komið undir_ því á hvaða
hátt Guðjón B. Ólafsson, for-
stjóri Sambandsins, muni beita
sér í málinu hvort andstaða við
tillöguna verður hatrömm á
fundinum. Hann hafí verið
andvígur því að þessi leið verði
farin og það hafi legið fyrir strax
þegar stjórnin ákvað að kanna
möguleikana á slíkri skipulags-
breytingu . Hann greindi þá
strax frá þeirri skoðun sinni að
réttara væri að breyta Samband-
inu í heild í eitt hlutafélag, en
ekki að bijóta það upp í sex
hlutafélög og breyta Samband-
inu í eignarhaldsfélag.
Ólíklegt að Guðjón beiti sér
Stjómarmenn virðast nokkuð
sannfærðir um að tillagan um
skipulagsbreytingar verði í gróf-
um dráttum samþykkt eins og
Eins og málum var háttað í
gær, hölluðust þó fleiri ,að því
að Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri Sjávarafúrða-
deildar Sambandsins, væri
líklegri stjórnarformann-
skandídat.
Og loks er það Árni Benedikts-
son sem orðaður er við sljórn-
arformennskuna, en líklegast
er talið að aðeins einn þriggja
síðastnefndu muni etja kappi
við Þorstein um formennskuna.
þeir leggja til. Benda raunar á
að Guðjón sé ráðinn til þess aS
fylgja eftir ákvörðunum stjórnar
og framkvæma þær. Það geti
ekki talist eðlilegt að hann beiti
sér gegn því sem stjórn Sam-
bandsins hefur samþykkt, enda
hafi ekkert í máli hans á síðasta
stjórnarfundi bent til þess að
hann hefði slíkt í hyggju. Upplýs-
ingar liggja fyrir um að Guðjón
ætli ekki að beita sér gegú því
að tillaga stjórnarinnar verði
samþykkt.
KRON sem hætt hefur versl-
unarrekstri og sameinast Mikla-
garði mun eiga 39 fulltrúa á
fundinum og blöskrar mörgum
kaupfélagsstjóranum og fulltrú-
um utan af landi hlutfall það sem
KRON kemur til með að hafa —
félag sem sé hætt rekstri og þar
með dautt. Telja þeir í hæsta
máta óeðlilegt að KRON í skjóli
fulltrúafjölda síns skuli beinlínis
vera í þeirri aðstöðu að geta
haft úrslitaáhrif i skjóli atkvæða-
magns, með þriðjung allra aðal-
fundarfulltrúa innan sinna vé-
banda bæði á kjör nýrra stjórnar-
manna og ekki síður á kjör
stjómarformanns. KRON-full-
trúar benda á hinn bóginn á að
lög Sambandsins kveði á um
hver fulltrúafjöldi hvers félags
skuli vera, miðað við félagafjölda
og við því sé nú ósköp lítið að
segja. Fulltrúafjöldi á aðalfundi
nú miðast við félagafjölda í
hveiju félagi í upphafi ársins
1988. KRON kemur því til með
að eiga álíka marga fulltrúa á
aðalfundinum að ári, þar sem
viðmiðunin verður félagafjöldinn
í ársbyijun 1989. Það er ekki
fyrr en á aðalfundi Sambandsins
að tveimur árum liðnum sem
fulltrúum KRON fækkar veru-
lega.
Þrír menn ganga úr stjórn
Stjórn Sambandsins er þannig
kjörin að þrír stjórnarmenn
ganga út úr stjórn á hveijum
aðalfundi, þannig að menn eru
kosnir til þriggja ára. Þau sem
nú ganga út úr stjórn eru Ólafur
Sverrisson, stjórnarformaður,
Jónas R. Jónsson og Helga V.
Pétursdóttir. Hvorki Ólafur né
Jónas munu gefa kost á sér til
endurkjörs. Þótt ekkert liggi fyr-
ir um það hveijir verði kjörnir í
þeirra stað er talið mjög líklegt
að það verði starfandi kaupfé-
lagsstjórar. Þar hafa verið
nefndir til sögunnar menn eins
og Þorólfur Gíslason, kaupfé-
lagsstjóri á Sauðárkróki og Jón
Alfreðsson, kaupfélagsstjóri á
Hólmavík. Hermann Hansson,
kaupfélagsstjóri á Höfn í Horna-
firði, hefur einnig verið orðaður
við stjórnarkjör, en eftir því sem
næst verður komist mun hann
ekki ljá máls á því að gefa kost
á sér.
Þeir Sigurður Markússon,
framkvæmdastjóri Sjávaraf-
urðadeildar Sambandsins, Geir
Magnússon, bankastjóri Sam-
vinnubankans, og Árni Bene-
diktsson, framkvæmdastjóri
Framleiðni og stjómarformaður
Vinnumálasambands, samvinnu-
félaganna hafa einnig verið
nefndir, en ljóst þykir að einung-
is einn þeirra verði kjörinn og
þá veðja menn ýmist á Sigurð
eða Geir, en síður á Árna — flest-
ir þó á Sigurð. Fari leikar þann-
ig er talið að slagurinn um stjórn-
arformennskuna muni standa á
milli þeirra Sigurðar og Þorsteins
Sveinssonar. Af viðmælendum í
gær mátti ráða að fleiri töldu
að Sigurður yrði kosinn, en flest-
ir höfðu þó þann fyrirvara á, að
margt gæti gerst, þar til að for-
mannskjörinu kæmi. Stjómar-
formaðurinn er kjörinn beinni
kosningu á aðalfundinum.
Verði niðurstaða fundarins sú
að Þorsteinn Sveinsson verði
kjörinn formaður, má jafnvel líta
á það sem vísbendingu um þann
vilja fundarins að Guðjóni B.
Ólafssyni séu þökkuð forstjóra-
störfin, en ekki sé lengur óskað
eftir starfskröftum hans hjá
Sambandinu. Það hefur ekkert
farið leynt að á milli þeirra Guð-
jóns og Þorsteins eru takmarkað-
ir hlýleikar og því erfitt að sjá
þá starfa náið saman að því
gríðarlega viðfangsefni að koma
SÍS-skútunni á réttan kjöl.
Því segja ákveðnir fulltrúar
að ófært sé að gera Þorstein að
formanni stjórnarinnar. Reyndar
draga margir í efa að Guðjón
hugsi sér að sitja áfram á for-
stjórastól Sambandsins, ef skipu-
lagsbreytingarnar verða að veru-
leika. Hann muni einfaldlega
ekki geta unað við stórskert völd
og áhrif sem forstjóri valdalítils
eignarhaldsfélags Sambandsins.
Um þetta hefur Guðjón ekki vilj-
að tjá sig áður en niðurstaða
aðalfundarins liggur fyrir og lái
honum hver sem vill.