Morgunblaðið - 06.06.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
43
Sameiginlegfur grund-
völlur trúarbragða
eftir Böðvar
Jónsson
Ef menn kynna sér þróun manns-
ins, eins og hún er skráð á spjöld
sögunnar má ljóst vera að aflvakar
allra mannlegra framfara eru þeir
einstaklingar, sem koma öðru hvoru
og boða sannleika sem mannkynið
hefur ekki áður þekkt. Uppfinninga-
maðurinn, brautryðjandinn, snilling-
urinn, spámaðurinn — þetta eru
mennirnir sem umsköpun heimsins
hvílir á.
Við finnum fjölmörg dæmi um
þennan sannleika í sögu vísindanna,
tónlistarinnar og annarra lista, en
hvergi verður okkur gífurleg þýðing
mikilmennisins og boðskapar hans
betur ljós en í trúarbrögðunum.
Leyndardómsfyllstur allra manna er
spámaðurinn, sem kemur fram á
tímum þegar andlegu lífi manna
hefur hrakað og siðir þeirra spillst.
Einn rís hann gegn heiminum sem
sjáandi meðal blindra til að kunn-
gera guðspjall réttlætis og sannleika
án nokkurs sem skilið getur hann
til fulls eða deilt með honum ábyrgð
hans.
Nokkra meðal spámanna
ber hæst
Með nokkurra alda millibili hefur
mannkyninu birst mikill guðlegur
opinberandi, trúarbragðahöfundur.
Þeir sem við þekkjum best eru t.d.
Krishna, Búddha, Móses, Jesús og
Múhameð og Bahá’u’lláh frá miðri
síðustu öld. Eins og andlegar sólir
lýstu þeir upp myrkvaða hugi mann-
anna og vöktu sálir þeirra af svefni.
Gegnum spámennina uppfræðir
ástríkur og aimáttugur Guð mann-
kynið stig af stigi. Kenningar þeirra
„eiga eina sameiginlega uppsprettu
og birtan sem þeir bera eru geislar
eins og sama ljóss“. Að þeir eru frá-
brugðnir hver öðrum getum við eign-
að hinum mismunandi þörfum
mannkynsins á hveijum tíma.
Trúarbrögð eru tvíþætt
Trúarbrögð byggjast upp af
tveimur þáttum. Annars vegar and-
legum lögmálum, sem eru óumbreyt-
anleg og eilíf og hins vegar lögum
og helgisiðum, en sá þáttur gildir
aðeins tímabundið og hefur ekki
sama mikilvægi. Þessi þáttur er líka
ólíkur meðal hinna ýmsu trúar-
bragða og þjóða, en samræmist þörf-
Böðvar Jónsson
„Það sem hér hefur ver-
ið rakið sýnir okkur að
trúarbrög'ðin eru í eðli-
legu framhaldi hvert af
öðru og ekki í innbyrðis
keppni, heldur fylla
hver önnur upp eins og
nótur í guðlegri sin-
fóníu.“
um og skilningi þess fóiks sem að-
hyllast þau. Við finnum aftur á
móti sameiginlegan grundvöll allra
trúarbragða í andlegu lögmálunum,
hinum eilífa og óbreytanlega þætti.
Eftirfarandi tilvitnanir eru gott
dæmi um þá samsvörun sem er að
finna í andlegum lögmálum nokk-
urra trúarbragða:
Hindúatrú: Hin sanna regla er,
að þú gætir eigna annarra sem
væru þær þínar.
Gyðingdómur: Allt sem þú vilt
ekki að nábúi þinn geri þér það
skalt þú ekki gera honum.
Parsatrú: Ger þú eins og þú vildir
að þér væri gert.
Búddhatrú: Við ættum að æskja
öðrum þeirrar hamingju, sem við
þráum sjálfum okkur til handa.
Kristni: Það sem þér viljið að aðr-
ir menn gjöri yður það skuluð þér
og þeim gjöra.
Islam: Látið engan koma fram við
bróður sinn á þann hátt sem hann
vildi eigi að komið væri fram við sig.
Bahá’ítrú: Blessaður er sá sem
tekur bróður sinn fram yfir sjálfan
sig-
Gjöf Guðs til þessarar upplýstu
aldar
Þekking manna á trúarbrögðum
í fjarlægum heimshlutum er vernju-
lega mjög takmörkuð. Þetta er skilj-
anlegt í ljósi þess að ýmsir hlutir
jarðarinnar sem við byggjum voru
þar til fyrir nokkrum áratugum svo
aðgreindir landfræðilega að ekki var
nein auðveld eða fljótleg leið til inn-
byrðis þekkingaröflunar á menningu
og siðum. Á þessu er orðin alger
umskipti. Vísindin hafa breytt heim-
inum. Nútíma samgöngutækni hefur
hreinlega komið þjóðunum í nánari
snertingu hverri við aðra. Þessi
tækni gerir okkur fært að skjótast
yfir risavaxna fjallgarða, sem væru
þeir smáhæðir.
Rauði kross íslands óskar eftir
íbúðum til leigu frá 15. juní nk.
Upplýsingar í síma 91-26722
frá kl. 08-16.
Rauði Kross Islands
Sá tími er nú runninn þegar ryðja
þarf á sama hátt þeim andlegu og
siðferðilegu hindrunum úr vegi sem
standa gegn einingu mannkynsins.
I aldir hafa trúarbrögðin, sem áttu
að leiða til einingar verið óþijótandi
uppspretta . sundurlyndis, fordóma,
óeiningar og styijaldar. En spá-
mennirnir töluðu aldrei illa hver um
annan. Ovildin er runnin frá fylgj-
endum þeirra. Spámennirnir kenndu
aftur á móti sama grundvallarsann-
leikann, þræddu sama veg og lýstu
upp veröldina með ljósi sem rekja
má til sömu uppsprettu — Guðs.
Það sem hér hefur verið rakið
sýnir okkur að trúarbrögðin eru í
eðlilegu framhaldi hvert af öðru og
ekki í innbyrðis keppni, heldur fylla
hver önnur upp eins og nótur í guð-
legri sinfóníu, sem á sinn þátt í sköp-
un heildarverksins, sem í þessu til-
felli er þróun mannkyns fram til
sameiginlegrar þrár um frið, ein-
ingu, bræðralag og andlega vakn-
ingu. Bahá’u’lláh sagði: „Gjöf Guðs
til þessarar upplýstu aldar er þekk-
ingin á einingu mannkyns og sani-
eiginlegum grundvelli allra trúar-
bragða. Stríð milli þjóða mun hætta
og fyrir velvilja Guðs verður hinum
mesta frið komið á. Heimurinn verð-
ur sem nýr heimur og bræðralag
mun ríkja manna meðal.“
Höhmdiir er starfandi
lytjafrædingur. Hann er ritari
Andlegs þjóðarráðs Bahá ’ía á
íslandi.
Tölvusumarskólinn
fyrir börn og unglinga 10-16 ára
Upplýsingar og skráning 9-19 virka daga og 10-16 um helgar
Tölvu- og verkfræðiþjónustan - Grensásvegi 16 - 68 80 90
f BORÐELDAVÉL med GRILLI 1
Ytri mál í cm: Hæð 33 - Breidd 58 - Dýpt 35
Innanmál ofns: Hæð 20 - Breidd 40 - Dýpt 28
2 hellur, 14,5 cm 1000W og 18,0 cm 1500W. Ofn með
650 W undir- og 500 W yfirhita - og 1000W grillelementi.
V
AÐEINS KR. 18.270,- (16.990,- STGR.)
Einnig gott úrval af
ELDUNARHELLUM,. einföldum
og tvöföldum.
^onix
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
J
I .Dúbflb
| Metsölubbö á hverjum degi!
íW /•
í 2. flokki.
Gleymið ekki að endurnýja!
Stjórfjölgun vinninga!
Miði ö mann fyrir hvern aldraðan!
Allir vinna - fyrr eða síðar!
nHBHHU'i MiMtiwnii
--Áxv iMB Lkd 1 '
heimilis aldraðra