Morgunblaðið - 06.06.1990, Page 46

Morgunblaðið - 06.06.1990, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990 Fjögur sullatilvik á Fjórðungs- sjukrahúsinu á Akureyri 1984-88 eftir Guðna Arinbjarnarson íslendingar eru þekktir fyrir og dða vitnað til þeirra í tengslum við baráttuna gegn sullaveiki í erlendum læknisfræðibókum og tímaritum. Þannig segir í leiðara í Lancet 1987, að ekki hafi sést sullur á íslandi í aldarfjórðung og er þjóðin notuð sem ?kólabókardæmi um góðan árangur -»í baráttunni gegn þessum alheims- sjúkdómi. Síðast var skrifað um sullaveiki í Læknabláðið árið 1979 og segir Gísli Ólafsson þar frá síðasta tilfelli sulls á íslandi, sem var vitað um. Fannst það við krufningu árið 1969 og get- ur hann þess að eftir síðustu alda- mót hafi fimm manns tekið sulla- veiki svo vitað sé, samkvæmt krufn- ingaskýrslum. Næst þar á undan (1962) hafði dr. med. Bjarni Jónsson lýst í Læknablaðinu skurðaðgerð vegna suljs í mjaðmarbeini. í ljósi þess, að á árunum 1984- 1988 voru fjórir einstaklingar til neðferðar á FSA vegna sullaveiki ,, ar rétt að vekja athygli á þessum ildagamla fjanda, sem er að falla í j’leymsku. Rétt er að byrja á að rifja upp helstu atriði um orsakavaldinn; gulsull, Echinococcus granulosus og 'era grein fyrir helstu atriðum ein- cenna, greiningar og meðferðar. Á íslandi er »sullaveiki« notað yfir sjúkdóm sem orsakast af band- ormstegundinni Echinococcus gran- ulosus. Til eru fleiri tegundir band- orma, en þær eru ekki þekktar sem íjúkdómsváldur í mönnum hér á ^ landi. Aðalhýslar fyrir EG eru hundar, úlfar, refir og önnur skógardýr/kjöt- ætur). Þessi dýr smitast af fullorðn- um bandormi við að éta sullablöðrur úr innmat eða þegar hræætur éta sláturdýr. Þessi bandormur sem venjulega er 4-6 mm langur lifír fastur á smágirnistotum og hin smit- andi egg skiljast út í hægðum. Egg- in eru ónæm gegn flestum umhverf- isþáttum (nema hita og þurrki) og smitun getur orðið með menguðu vatni eða grænmeti. Bandormurinn í innyflum hunda vinnur upp smæð sína með því að vera í geysilegum fjölda (oft 50 þúsund ormar í hundi). !■ Eggin eru í kítínhylki en það leys- ist upp í magasýrum þegar millihýs- ill (maður, kind, nautgripur) hefur gleypt þau og lirfa þess borar sig gegnum slímhúð gamanna og berst þannig í lifrarblóðrás. Flestar lirfur stöðvast í lifur (70%), hluti fer með háræðablóðrás til lungna (20%) en 10% setjast að annars staðar í lík- amanum og getur það verið nánast hvar sem er (heili, nýru, bein, augu, milta). Óháð staðsetningu stækkar lirfan í litla blöðru sem hefur þriggja laga byggingu. Virki hluti blöðrunnar er kímlagið en það mynd- ar þykkt hýði og að lokum myndast frá því krókarnir. I holrúm blöðrunn- ar safnast vökvi sem er afar »ónæmi- sertandi«, einnig finnast oft dótt- urblöðrur á floti í vökvanum en þær geta skipt hundruðum í einni blöðru. Sullur vex mjög hægt og geta lið- ið áratugir áður en hann gerir vart við sig en það gerist helst með þrýst- ingseinkennum eða að hann springur og gefur einkenni sem geta verið bráðaofnæmislost vegna hins ónæm- isertandi blöðruvökva. Sullur í lifur er oftast stakur og þá annaðhvort í vinstri eða hægri hluta. Algengasta merkið er ein- kennalaus fyrirferð ofarlega í kviði. Stöku sinnum getur sullur í lifur komið fram með stíflugulu. í lungum geta sullblöðrur verið mjög margar, einkennalausar, nema þær trufli hjarta eða öndunarstarf- semi. Ef þær springa inn í berkju getur orðið sjálfkrafa lækning en ef þær springa inn í fleiðruhol geta komið bráðaofnæmi eða sýkingar. Nokkur einkenni við aðra stað- setningu. Krampar eða helftarlömun frá sulli í heila, sjúkleg brot frá sulli í beini, miltisstækkun vegna sulls í milta, blóðmiga vegna sulls í þvag- færum, þverlömun við sulli í/við mænu, skjaldkeppur, þegar sullur situr í skjaldkirtli, útstæð augu þeg- ar sullur þrýstir á augu. Eins og sést við þessa upptalningu geta einkenni sullaveiki verið nánast allt sem fyrirferð veldur. Almennt má segja að grunur um sullaveiki vakni þegar sjúklingar frá ákveðnum landsvæðum'i heiminum eru með ógreinda fyrirferð í hægri efri kviðarfjórðungi, en þetta gildir ekki á íslandi vegna þess, að þeir sullir sem finnast hér á landi upp- götvast oftast fyrir tilviljun, t.d. á yfirlitsmynd af kviði. Best er að sýna fram á sullblöðru á eftirfarandi hátt: 1) Með röntgenmynd, sérstaklega við sull í lungum. 2) Með ómun, ef sullblaðra er staðsett í lifur. 3) Með sneiðmyndum, ef um er að ræða skemmdir í öðrum vefjum. Þess ber að geta, að hættulegt getur verið að taka nálarsýni úr sullblöðru, þar sem innihaldið er mjög ónæmisertandi og sullblöðru- vökvinn getur sáð sér út. Til eru ónæmisfræðilegar rann- sóknaraðferðir sem geta verið stuðn- ingur við greiningu. Þessar aðferðir eru dýrar og aðeins til á fáum stöð- um í heiminum. Fyrsta meðferð hefur ávallt verið skurðaðgerð, en komin eru lyf sem hafa reynst lofa góðu við óskurð- tækri sullaveiki. Helsta lyfið er al- bendazol, en það drepur sullkrókana í blöðrunum. Leiða má rök að því, að fjarlægja beri sull sem finnst hjá sjúklingum, þrátt fyrir að hann gefí ekki einkenni vegna þess að: 1) Erfitt er að vera öruggur um að ekki sé illkynja æxli á ferðinni. 2) Ekki má stinga á til greiningar. 3) Ekki verður vitað um skurð- tæki síðar á ævinni. 4) Aðskotahlutur í líkamanum veldur sýkingarhættu. 5) Kölkun í sulli er enginn trygg- ing fyrir því, að hann sé dauður. Sjúklingar Sjúkrasaga 1: Sjúklingur er tæp- lega fertug kona, sem var alin upp í sveit norðanlands fyni hluta ævinnar. Hún átti hund, og á bænum var stunduð heimaslátrun. Fyrir sjö árum fór konan í nýrnamyndgtöku og sást þá kölkun í lifur sem talin var sullur. Konan hafði aldrei haft nein ein- kenni af sullinum og fyrir skurðað- gerð reyndust allar lifrarrannsóknir eðlilegar. Gerð var sneiðmyndataka 1984. Sýndi hún vel afmarkaða skemmd aftan og neðan til hægra megin í lifur, virtist þrýsta á hægra nýra en ekki á holæð eða vena porta. Einnig sást að ekki var um fleiri blöðrur að ræða. Innlögð til aðgerðar og var þá almenn skoðun fullkomlega eðlileg, þar með talin kviðarskoðun. Við aðgerð kom í ljós að sullurinn lá milli efri jaðars nýrils, fastur við efri bláæð og holbláæð og þétt upp undir lifrina en náði ekki inn í hana. Sullurinn reyndist kalkaður að litlum hluta og var hann sendur á Tilrauna- stofu háskólans í meinafræði á Keld- um og þaðan til Rannsóknastofu háskólans við Barónsstíg. Hvorugur aðilinn gat sagt að sullurinn hafi verið lifandi en gátu ekki útilokað það. Konan útskrifast rúmri viku eftir aðgerð vð góða heilsu. Sjúkrasaga 2: Sjúklingur var rúm- lega fímmtug kona, fædd og uppalin í sveit norðanlands. Ávallt verið heilsuhraust, fyrir utan magakvilla fyrir mörgum árum. Fyrir aldar- fjórðungi fór hún í magamyndatöku vegna magaóþæginda og greindist þá kalkaður sullur í vinstri lifrar- hluta. Var þá álitið, að sullurinn væri dauður og konan þyrfti engrar meðferðar við. Aftur var tekin rönt- genmynd tíu árum síðar og var þá sullurinn óbreyttur að stærð og lög- um. Enn tíu árum síðar fór sjúklingur að fá verki í mjóbak vinstra megin, fór í myndatöku af hrygg og sást þá að sullurinn hafði stækkað frá síðustu rannsókn. Gerðar voru ýms- ar rannsóknir, sem allar voru eðlileg- ar, þ.m.t. lifrarpróf. Nýmamynda- taka sýndi að vinstra nýra var fært til hliðar og niður á við og að sullur- inn lá við efri pól nýrans. I fjölskyldusögu kom fram að bróðir sjúklings lést erlendis á sjúkrahúsi eftir bráðaaðgerð vegna blæðingar frá lifur. Gerð var skurðaðgerð og kom þá í ljós að lifur og gallvegir voru eðli- leg, einnig skeifugörn, bris, magi og milta. Sullurinn var hnefastór, hreyfanlegur og sat aftan skinuhols, ofan við vinstri -nýril. í aðgerðinni sprakk sullshýðið og var innihaldið gráleitt, graftarkennt og þykkt. Meinafræðingur gat ekki staðfest að um sull hafí verið að ræða, en verður að telja að þetta hafí verið sýking í dauðum sulli. Sjúklingur útskrifast í sama mán- uði viði góða heilsu. Sjúkrasaga 3: Þriðji sjúklingurinn var rúmlega sextugur karlmaður, fæddur og uppalinn í sveit á Vesturl- andi fyrstu tuttugu árin. Á bænum var stunduð heimaslátrun, og einnig voru þar hundar. Fyrir átta árum var gerð nýrna- myndataka vegna blóðmigu og greindist þá um leið kalkaður sullur í lifur. Á röntgenlýsingu þremur árum síðar er sagt að sjáist óljós hringlaga skuggi sem ber í vinstri hluta lifrar. í sjúkraskrá er sagt frá því, að einhvern tímann á árunum á milli 1960 og 1970 hafi verið tæmdur sullur sem hafði sprungið og lýst sér svipað og lífshættulegur cholecystit- is gangrenosa. Sjúklingur hefur langa óskýrða bakverkjasögu sem rekja mætti til sullsins. Gert var Casoni-próf, sem var neikvætt. í aðgerðinni nú fannst sullur, stærri en tennisbolti, í afturbrún vinstra lifrarsvæðis og fastur við holæð, innkýldur á milli hennar, þindar og efra lifrarsvæðisins ofan og aftan við rófublað lifrar. Hnútur- inn var mjúkur viðkomu. Einnig fannst annar tvöfalt stærri sullur í hægra lifrarsvæði og var sá mun mýkri. Þessi sullur hafði ekki sést með ómun eða á röntgenmynd. Minni sullurinn var sex sm í þver- mál en sá stærri 97 sm. Niðurstaða meinafræðings var að báðir sullimir væra lifandi. Sáust krókar og spor- öskjulaga skýrt afmarkaðar lífverur. Sjúklingur útskrifast við góða heilsu. Fjötrar alvinnulífeins eftir Borgþór Atlason Árátta þeirra sem fara með stjóm þjóðmála til að blanda sér í atvinnurekstur, sem þeir annars bera enga ábyrgð á, vex stöðugt fí«kur um hrygg. Miðstýring at- vinnuveganna sem hófst í landbún- aði ætti að vera mönnum ljóst víti til vamaðar. Ef áfram heldur sem horfír þá á það ofstjómaræði sem gripið hefur verið til á sjávarútvegi eftir að hefna sín grímmilega. Eftir að skömmtunarkerfi var komið á með nýrri fiskveiðstefnu fyrir sjö árum, þá hafa þeir aðilar sem af lifðu stöðugt verið að leita nýrra leiða til að bæta sinn hlut og ekki veitt af. Burtséð frá þeirri nýju fískveiði- stefnu sem þá hét og óvíst er því miður hvort hafi komið fískistofn- unum til góða, þá virðist það upp- haf til að ráðskast með og stjórna þeim sem stunda atvinnufyrirtæki í sjávarútvegi ekki ætla að taka neinn enda. Ljósið í myrkrinu Á undanförnum árum hafa sprottið upp ný fyrirtæki í sjávarút- vegi. Má þar nefna fískmarkaði, milliliði sem útvega þeim hráefni sem ekki eiga skipin sjálfir. Með tilkomu fískmarkaða hafa nýir aðil- ar bæst við í vinnsluna. Þessir nýju þátttakendur hafa síðan reynst ódeigir við að leita nýrra markaða fyrir sína vöru erlendis og tekist vel. Þetta hefur haft jákævð áhrif á fískverð til skipa og komið sjó- mönnum til góða. Þetta hefur og haft áhrif á þá sem fyrir voru í vinnslunni til að hagræða og gera betur í samkeppni vegna hærra verðs á hráefni. Ekki svo með öllu illt að ekki finnist dæmi um góða hluti sem hafa verið að gerast. „Gróska miðstýringar- aflanna er meiri en nóg fyrir, svo ekki sé verið að næra hana á sundur- lyndi meðal hagsmuna- aðila í sjávarútvegi.“ Dökk ský á lofti Á sl. vetri kom til árekstra milli þessara nýju aðila í vinnslunni og eldri samtaka, aðila sem töldu hags- munum sínum ógnað. Samtök salt- fískframleiðenda innan SÍF gerðu þá athugasemd er upp kom mis- ræmi milli þeirra og þessara nýju söluaðila hér heima hvað varðar reglur um innflutningstolla ein- stakra ríkja. I þeirri stöðu var ekk- ert óeðlilegt við að málið sem slíkt væri skoðað. Sú aðferð sem SÍF- menn beittu hinsvegar fyrir sig, þ.e. að leita strax á náðir miðstýr- ingarflanna til að setja öðramy lífs- reglumar verður þó vart talin stór- mannleg. Miðstýringarmenn sem vænta mátti ósínkir á boð og bönn vora ekki skilmerkilegri í sínum athöfnum en svo að bann þeirra tók yfir marga fleiri en þá sem SÍF- mönnum stóð stuggur af. Má þar nefna framleiðendur á léttsöltuðum karfaflökum til Frakklands. Þetta upphlaup SÍF manna gat og haft mjög slæm áhrif á þá fiskmarkaði sem nú eru starfandi. Gróska miðstýringaráflanna er meiri en nóg fyrir, svo ekki sé verið að næra hana á sundurlyndi meðal hagsmuna-aðila í sjávarút- vegi. Undirstaðan/eftirsótt vinna eða þrautalending Þenslan á vinnumarkaðnum hef- ur farið minnkandi undanfarin tvö ár og þá helst í hinum ýmsu þjón- ustu- og iðngreinum atvinnulífsins. Þessi gangur atvinnulífsins er ekk- ert nýtt fyrir landann þar sem trappan liggur ýmist niður eða upp. Nú bregður hinsvegar svo við að þessi og hinn spekingurinn hefur risið upp m.a. verkalýðsforingjar og fara þess á leit við æðstu ráða- menn að þeir hlutist til um í þeim fyrirtækjum sem eftir ganga. Nú skulu þessi fyrirtæki semsagt skaffa þeim vinnu sem í annan tíma töldu sér betur borgið við annað. Þá hefur meðal annars verið bent á innflutt vinnuafl til fullvinnslu sjávarafurða og látið líta svo út að þar séu atvinnutækifæri í afgangs- stærð. Þessu verður að breyta. Kjör þeirra sem vinna við undir- stöðu-atvinnuveg hverrar þjóðar eiga að vera svo eftirsótt að aðrar greinar atvinnulífsins keppi um það vinnuafl en ekki öfugt. Ef verka- lýðsforingjar telja sig geta heimtað af öðram vinnu þegar svo ber und- ir og þá sjálfa hentar, þá verða þeir líka í annan tíma að vera þess umkomnir að geta skaffað fólk í vinnu. Nýr hrærigrautur/- Ofstjórnaræði Tilkoma nýrrar fiskveiðistefnu á sínum tíma gerði miklar kröfur til starfandi aðila í sjávarútvegi. Að- lögunartíminn var stuttur og menn misjafnt í stakk búnir til að ganga í gegnum þær breytingar. Smátt og smátt hafa menn þó aðlagðað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.