Morgunblaðið - 06.06.1990, Qupperneq 60
Vetni sem eldsneyti:
Getur skap-
að mikla
möguleika
- segir Bragi
Árnason, prófessor
MIKLIR möguleikar kunna að
skapast hér á landi varðandi nýt-
ingu vatnsorku á næstu árum, ef
talið verður hagkvæmt að setja
hér á stofn verksmiðju til vetnis-
framleiðslu. Aðilar í Þýskalandi
kanna nú möguleika á að reisa
slika verksmiðju i Kanada en
verksmiðja á Islandi kynni að
reynast ódýrari kostur.
"^fkð sögn Braga Árnasonar, pró-
fessors í Háskóla íslands, hafa aðilar
innan Evrópubandalagsins, að frum-
kvæði þýskra efnaframleiðenda, hug
á að byggja 100 MW tilraunaverk-
smiðju á austurströnd Kanada til að
framleiða vetni, sem flutt yrði til
Þýskalands.
Hann segir að forsvarsmönnum
þessa verkefnis hafi verið bent á að
orkuverð hér á landi sé samkeppnis-
fært við orkuverð Kanadamanna,
auk þess sem þrisvar sinnum styttri
Jgið sé frá austurströnd Islands til
*~*skalands en frá Kanada. Þeir
gætu því hugsanlega komist að
•þeirri niðurstöðu, að hagkvæmara
væri að reisa verksmiðjuna hér á
landi.
Endanleg ákvörðun um að reisa
tilraunaverksmiðjuna í Kanada verð-
ur tekin í árslok og segir Bragi, að
Islendingar þurfi því að kanna
möguleika á þátttöku fljótt, enda
gætu við það skapast miklir mögu-
leikar í sambandi við orkunotkun
hér á landi.
Sjá ennfremur í miðopnu: „Nýir
valkostir í orkumálum"
Jll meðferð á
kappreiða-
hestum kærð
:-P-y-r-s.
- i'i'i ;• ~
i \ \\
Það var í nógu að snúast hjá starfsmönnum Vogalax í gærkvöldi.
Morgunbl aðið/R AX
Hafbeitarlaxinn skilar sér óvenjusnemma
LAX er bytjaður að ganga í hafbeitarstöðvarnar við Faxaflóa og Breiða-
fjörð og er það mun fyrr en undanfarin ár. Mest hefur skilað sér hjá
Vogalaxi, yfir 200 laxar. Allt er þetta stórlax, hrygnur sem verið hafa
tvö ár í sjó og segja fiskeldismenn að það styrki vonir þeirra um að
mikið af tveggja ára laxi skili sér í ár. Sá lax sem hefur gengið í haf-
beitarstöð Silfurlax hf. í Hraunsfirði á Snæfellsnesi er einnig stórlax,
sem verið hefur tvö ár í sjó. Yfir 40 laxar voru í gær gengnir í stöðina
en laxinn byijaði að sjást fyrir hálfri annarri viku og er það 2-3 vikum
fyrr en venjulega að sögn Júlíusar "Birgis Kristinssonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Vill afiiema verðtryggingu
spariQár og lána sem fyrst
Getur leitt til eignaupptöku, segir Brynjólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri Landsbankans
SAMBAND dýraverndunarfélaga
á íslandi hefúr kært til Rannsókn-
arlögreglu ríkisins illa meðferð á
hestum fyrir kappreiðar.
Kæra Sambands dýraverndunar-
félaga var lögð fram fyrir síðustu
helgi. Tilefni hennar eru fréttir um
að þess séu dæmi hér á landi, að
knapar hafi misþyrmt hestum sínum
fyrir keppni í þeim tilgangi að fá
fram óttavilja hjá þeim.
„ÉG TEL nauðsynlegt að fella lánskjaravísitölu niður sem fyrst og
afnema þannig verðtryggingu Ijármagns," segir Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra. Hann segir slíka ráðstöfun lið í því að
opna íslenskan fjármagnsmarkað og laga að aðstæðum í Evrópu.
Óeðlilegt sé að Qármagn sé verðtryggt en laun ekki, sama eigi að
gilda um þetta tvennt. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra segist telja
að afhám hinskjaravísitöIu þarfnist injög nákvæmrar og vandlegrar
athugunar. Á fundi Samtaka sparifjáreigenda í gær komu fram
áhyggjur af hugmyndum um afnám lánskjaravísitölunnar.
„Ég vísa eingöngu til samþykkt- I segir Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
ar ríkisstjórnarinnar frá því í fyrra,“ I herra. „Þar segir að stefnt skuli að
Taprekstur SIS um 200 millj-
ónir fyrstu flóra mánuðina
SAMBANDINU hefur ekki tekist að snúa taprekstri síðastliðins
árs til betri vegar, því samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrir
fyrstu fjóra mánuði þessar árs nam tapreksturinn um 200 milljón-
um króna. Langstærsti hluti þessarar upphæðar tapaðist í rekstri
Verslunardeildar Sambandsins. Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að taprekstur Sambandsins á sl. ári hafí numið liðlega 700
»milljónum króna. Þannig lítur dæmið út eftir að búið er að jafiia
út 300 milljóna króna söluhagnað vegna sölu Samvinnubankans
og afskriftir útistandandi, tapaðra skulda.
Ársreikningur Sambandsins hlutafélagsformið verði tekið upp
fyrir sl. ár verður afhentur fulltrú-
um Sambandsins sem koma sam-
an til aðalfundar kl. 9 í fyrramálið.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eru taldar líkur á að
' tillaga stjórnar Sambandsins um
breytt rekstrarform, þannig að
i stað samvinnufélagsformsins,
verði samþvkkt á aðalfundinum,
en hann stendur þar til síðdegis
á föstudag.
Óljóst er hver verður kjörinn
stjórnarformaður Sambandsins,
en Ólafur Sverrisson lætur nú af
því embætti. Fjórir menn hafa
verið nefndir til sögunnar, en við-
mælendur Morgunblaðsins telja
líklegast að val aðalfundarins
muni standa á milli þeirra Þor-
steins Sveinssonar, varaformanns
stjórnarinnar, og Sigurðar Mar-
kússonar, framkvæmdastjóra
Sjávarafurðadeildar Sambands-
ins. Formaður stjórnar Sam-
bandsins verður kosinn beinni
kosningu.
Sjá Af innlendum vettvangi:
Baráttan um stjórnarfor-
mennskuna vekur mesta at-
hygli bls. 24.
því að fjarlægja vísitölutengingu á
lánamarkaði en búa jafnframt vel
um hnúta á skuldbindingum til
langs tíma, eins og með tilliti til
gengisbreytinga." Jón vill engin
tímamörk setja í framvindu þessu
stefnumáls og segir að það verði
að athuga mjög vel.
Steingrímur Hermannsson bend-
ir einnig á málefnasáttmála ríkis-
stjórnarinnar og segir línurnar lagð-
ar þar: „Þegar verðbólga er undir
tíu af hundraði á sex mánaða
grundvelli er æskilegt að hætta vísi-
tölutryggingu fjármagns. Nú er
verðbólga um 8% og ég tel að stefna
beri á þessa breytingu. Auðvitað
geta nafnvextir breyst, hér er um
afnám verðtryggingar á fjármagni
að ræða. Sama á yfir launþega og
fjármagnseigendur að ganga og
miklu skiptir að hafa í huga að við
verðum að horfa til annarra Evr-
ópulanda hvað þessi mál varðar.
Vísitölubinding fjármagns þekkist
hvergi nema á Islandi og í Júgó-
slavíu þar sem óðaverðbólga geys-
ar. Aðstæður hér leyfa nú að snúa
málinu í eðlilegt horf.“
Pétur Blöndal, framkvæmda-
stjóri Kaupþings, sagði á fundi
sparifjáreigenda í gær að sparifjár-
eigendur yrðu varnarlausir gegn
verðlagsbreytingum ef láns-
kjaravísitalan yrði afnumin í haust,
en viðbúið væri að verðbólgan yrði
þá komin upp í 20.%.,
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagði
að kostir þess að afnema láns-
kjaravísitöluna væru einföldun
kerfisins og að það yrði í meira
samræmi við það sem tíðkaðist í
nágrannalöndunum. Hins vegar
hefði afnám vísitölunnar í för með
sér óvissu fyrir sparifjáreigendur
og gæti leitt til eignaupptöku ef
stjórnvöld beittu sér jafnframt gegn
vaxtabreytingum innlánsstofnana.
Innanlands-
floti Flugleiða
endurnýjaður
TILLAGA um endurnýjun innan-
Iandsllugfiota Flugleiða verður
lögð fram á stjórnarfúndi félags-
ins á morgun.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða verður lagt
til á stjórnarfundinum að gegnið
verði til samninga um kaup á þrem-
ur til fjórum nýjum flugvélum í inn-
anlandsflugið. Þar komi 3 tegundir
til greina; Fokker 50, ATR 40 og
Dash 7 eða 8. Flugvélarnar sem
félagið notar nú til innanlandsflugs
eru frá Fokkerverksmiðjunum.