Morgunblaðið - 06.07.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
Davíð Oddsson, borgarsljóri:
Borgin vill ekki selja eða
leigja Alþingi Hótel Borg
FORSETAR Alþingis hafa rætt
við Ðavíð Oddsson, borgarstjóra,
um möguleika á að þingið kaupi
eða leigi Hótel Borg af Reykjavík-
urborg. Borgarstjóri segir að
borgaryfirvöíd séu ekki reiðubúin
til slíkra samninga en vilji leita
annarra leiða til að lausn megi
fínnast á húsnæðis'vanda Aíþingis.
Borginni ber að
fara varlega í
aðábyrgjast
lán fyrirtækja
- segir borgarstjóri
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri
segist telja, að almennt beri
borgaryfirvöldum að fara var-
lega í að ábyrgjast lán einkafyrir-
tækja og heimildir sveitarfélaga
til þess hafi verið takmarkaðar.
Þetta kom fram í umræðum í
borgarsljórn í gær, þar sem
beiðni Stöðvar tvö um ábyrgð
borgarinnar vegna 200 milljóna
króna láns fyrirtækisins kom til
umræðu.
Árni Gunnarsson, forseti neðri
deildar Alþingis, segir að miklir erf-
iðleikar séu fyrirsjáanlegir í hús-
næðismálum þingsins og mat þing-
forseta hafi verið, að Hótel Borg
væri það húsnæði í nágrenni Alþing-
ishússins, sem best hentaði undir
starfsemi þess. Þegar Reykjavíkur-
borg hafi fest kaup á hótelinu í vor
hafi forsetamir farið að kánna
möguleika á kaupum á öðrum húsum
í nágrenninu en ekki fundið neitt
sem hentaði.
Árni segir að þegar það hafi legið
fyrir, hafi forsetar Alþingis rætt við
borgarstjóra og kannað hvort til
greina kæmi af hálfu borgaryfir-
valda að selja þinginu húsið, eða
leigja það með því skilyrði að áfram
verði veitingarekstur á neðstu hæð-
inni.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði borgarstjóri, að borgaryfirvöld
væru ekki reiðubúin til að selja eða
leigja Alþingi Hótel Borg, enda vildu
þau tryggja að áfram yrði hótel-
rekstur í húsinu. Hins vegar væri
fullur vilji fyrir því hjá borginni, að
leita annarra leiða til að fínna lausn
á húsnæðisvanda þingsins.
Á Iandsmóti hestamanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tveir hestar yfír 9 í forkeppni B-fíokks
Vindheimamelum, Skagafirði. Frá Valdimar Kritinssyni.
TVEIR hestar hlutu hærri einkunn en 9 í forkeppni
B-flokksins á landsmóti hestamanna í gær. Svartur
frá Högnastöðum, sem Sigurbjörn Bárðarson sat
fékk 9,27 í einkunn og Muni frá Ketilsstöðum, sem
Trausti Þór Guðmundsson sat, fékk 9,26. Trausti
Þór sat einnig hestinn, sem varð í þriðja sæti, Gími
frá Vindheimum, en hann fékk 8,99 í einkunn.
í forkeppni í úrvalstölti urðu úrslitin þessi: 1. Sævar
Haraldsson, Fáki, á Kjarna frá Egilsstöðum, 106,13
stig. 2. Rúna Einarsdóttir, Geysi, á Dimmu frá
Gunnarsholti, 100,80 stig. 3. Unn Kroghen, Fáki, á
Kraka frá Helgustöðum, 99,97 stig. 4. Hinrik Braga-
son, Fáki, á Darra frá Stóru-Gröf með 96 stig. 5.
Örn Karlsson, Andvara, á Golu frá Gerðum , 94,93
stig.
Sjá frásögn bls. 10.
Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins;
Rækjuframleiðendur fa greidd-
ar 5% verðbætur í júní og júlí
Verð á rækju hefiir lækkað um 8% firá því í maí
Á fundi borgarráðs 26. júní var
afgreiðslu á beiðni Stöðvar tvö
frestað. Er gert ráð fyrir að hún
verði að nýju tekin fyrir á borgar-
ráðsfundi næstkomandi þriðjudag.
Við umræður í borgarstjórn í gær
sagði Bjarni P. Magnússon, Nýjum
vettvangi, að hann teldi borgina
ekki geta gengið í ábyrgð fyrir fyr-
irtækið með þessum hætti. Hins
vegar kæmi til álita, að sínu mati,
að koma til móts við það með því
að kaupa hlutabréf fyrir allt að 200
milljónir króna.
Við umræðurnar sagði Davíð
Oddsson að hann ætlaði ekki á
þessu stigi að ræða beiðnina efnis-
lega. Hins vegar væri hann almennt
þeirrar skoðunar, að borginni bæri
að fara afar varlega í að veita
ábyrgðir af þessu tagi. Einnig bæri
á það að líta, að heimildir sveitarfé-
laga til að veita fyrirtækjum ábyrgð
vegna lána væru nú takmarkaðri
en áður.
Hann sagði að hins vegar væri
ekki veruleg áhætta fyrir borgina
að veita ábyrgð í þessu tilviki. Stöð
tvö þyrfti að verða gjaldþrota áður
en gengið yrði að borginni, auk
þess sem hér væri ekki um að ræða
háa upphæð hlutfallslega miðað við
þær ábyrgðir sem ýmis sveitarfélög
hefðu veitt fyrirtækjum.
STJÓRN Verðjöfhunarsjóðs sjáv-
arútvegsins hefur ákveðið að
framleiðendur skuli fá greiddar
verðbætur á rækju í júní og júlí,
sem nema 5% af fob-verðmæti
hennar, að sögn Ólafs Klemens-
sonar framkvæmdastjóra sjóðs-
ins. „Stjórnin hefur ekki séð til-
efni til verðjöfnunar á öðrum
tegundum. Hún kemur hins veg-
ar aftur saman fyrir 20. þessa
mánaðar til að ganga frá tillög-
um til sjávarútvegsráðherra um
verðjöfnun í ágúst og þá er að
sjá hvað verðhækkanir í júní og
júlí hafa að segja í því máli,“
sagði Ólafur Klemensson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Ólafur Klemensson sagði að það
væri nokkuð víst að verðjöfnun á
öllum botnfiskafurðum væri farin
að nálgast mjög og einungis væri
spurning um einn eða tvo mánuði
hvenær hún skylli á.
Lárus Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpudisk-
framleiðenda, sagði að framleiðend-
ur hefðu fengið greiddar 8% verð-
bætur á rækju í maí síðastliðnum
en síðan hefði rækjuverðið lækkað
um 8% í erlendri mynt, aðallega
vegna aukins framboðs frá Noregi.
„Hins vegar bendir ýmislegt til að
ekki ætti að vera tilefni tiþfrekari
verðlækkana á næstunni. Ég held
að kaupendur séu ekki með miklar
birgðir og Norðmenn séu búnir að
stöðva sínar veiðar í 3-5 vikur til
að minnka sínar birgðir,“ sagði
Lárus Jónsson.
Ólafur Klemensson sagði að í
nýjum lögum og reglugerð um
Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins,
sem tók við af Verðjöfnunarsjóði
fiskiðnaðarins, væri ekki tekið tillit
til afkomu sjávarútvegsfyrirtækja
varðandi verðjöfnunina. Hins vegar
væri tekið tillit til verulegs afla-
brests í lögunum. Einnig væri heim-
ilt að fella niður verðjöfnun þegar
innistæða í sjóðnum væri orðin
meiri en 30% af ársframleiðslu við-
komandi greingr og innistæða í
humardeildinni væri nú komin yfir
það mark, eða um 300 milljónir
króna.
Þegar Verðjöfnunarsjóður fisk-
iðnaðarins var lagður niður, 1. júní
síðastliðinn, var heildarinnistæða í
sjóðnum um 500 milljónir króna,
þar af 260 milljónir í humardeild
og 170 milljónir í rækjudeild, að
sögn Ólafs Klemenssonar. „Þessar
500 milljónir fóru inn á svokallaðan
óskiptan reikning hverrar deildar
fyrir sig í nýja sjóðnum í sömu hlut-
föllum og deildaskiptingin var í
gamla sjóðnum," sagði Ólafur.
Kjaradeila BHMR og ríkisins:
Hafrannsóknaskip-
Haínar^örður:
Skuldin við hafiiar-
sjóð greidd að hluta
Bæjarsljóra og bæjarráðsmanni falin meðferð málsins
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar fól í gær bæjarstjóra og fúlltrúa Sjálfstæðis-
flokksins að ákveða málsmeðferð vegna vangoldinnar skuldar lögfræð-
ings við hafnarsjóð. Hann tók að sér innheimtu á síðasta ári, en greiðsla
barst ekki i réttar hendur. I gær gerði lögfræðingurinn skil á höfuð-
stól skuldarinnar. en ekki á dráttarvöxtum.
Bandarískt kaupskip sigldi á
bryggjuna í Hafnarfjarðarhöfn á
síðasta ári og oili skemmdum. Krafa
var gerð um greiðslu 1,3 milljóna
króna í skaðabætur og lögfræðingur
í bænum tók að sér innheimtuna.
Hann mun hafa fengið innheimtu-
launin greidd fyrirfram. Tryggingar-
félag útgerðarinnar viðurkenndi
kröfuna umyrðalaust. Stóð það skil
á greiðslu við lögfræðinginn um
síðustu áramót. Hann gerði ekki skil
á fénu til réttra yfirvalda. Þegar
gengið var eftir skuldinni undir vorið
mun hann hafa lagt fram innistæðu-
lausa ávísun.
Á fundi bæjarráðs síðastliðinn
laugardag var samþykkt að fela
bæjarlögfræðingi að kæra lögfraeð-
inginn til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Tveir bæjarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins greiddu tillögunni
atkvæði sitt en fulltrúar Alþýðu-
flokksins, þrír að tölu, sátu hjá.
í gær barst greiðsla til bæjarsjóðs
á höfuðstóli skuldarinnar. Bæjarráð
kom saman til fundar síðdegis og tók
ákvörðun um að fela Guðmundi Árna
Stefánssyni bæjarstjóra og Jóhanni
G. Bergþórssyni bæjarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins að annast frek-
ari meðferð málsins. Samþykkt bæj-
arráðs frá því á laugardag stendur
óhögguð, en viðmælendur blaðsins
sögðu að bæjarlögmaðu r hefðj _enn
ekkert aðhafst í málinu.
in leggja úr höfii
Háskólamenntaðir starfs-
menn á Hafrannsóknastofhun
ákváðu á fúndi sínum í gær að
rannsóknaleiðangrar á hafrann-
sóknaskipunum Dröfin og
Bjarna Sæmundssyni yrðu farn-
ir strax og skipin væru tilbúin
til brottfarar.
Rannsóknaleiðöngrum skipana
var frestað á þriðjudag. Starfs-
menn komu þá saman til fundar
um framkvæmd kjarasamninga
Bandalags háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna. Þá var sú
ákvörðun tekin að fresta rann-
sóknaleiðöngrum skipanna. Dröfn
átti að leggja úr höfn á þriðjudag
til þorskrannsókna og Bjarni Sæ-
mundsson á miðvikudag til úthafs-
rækjurannsókna.
Þá hefur Félagsdómi borist
stefna á fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs vegna deilunnar.
Það er Félag íslenskra náttúru-
fræðinga sem er stefnandi. Málið
verður þingfest þriðjudaginn 10.
júií og_ stefndagefihn frestur til
að Teggja fram greinargerðT'Mál-
um fyrir Félagsdómi ber að flýta
eins og kostur er og má gera ráð
fyrir að niðurstaða liggi fyrir innan
nokkurra vikna.
Símasambands-
laust við lögreglu
BILUN varð í sjálfvirku símstöð-
inni í Landsímahúsinu um kl. 14
í gær þannig að ekki var unnt
að hringja í númer sem hefjast
á 61 og 62. Gert var við bilunina
um kl. 16. Erfitt reyndist meðal
annars að ná sambandi við lög'
reglu og slökkvilið.
I gærkvöldi fór síðan í sundur
símstrengur með 600 línum á milli
Múlastöðvar á Suðurlandsbraut og
Miðbæjarstöðvar þegar unnið var
við j arðvegsframkvæmdir. Erfitt
reyndist af þeim sökum að hringja
frá miðbænum í númer sem hefjast
á 1 og 3 í hverfunum við Múlastöð.
. Vonast var til að viðgerð á
strengnum til Múlastöðvar lyki í
■ nðttr ...