Morgunblaðið - 06.07.1990, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bæta almennt heilsufar
með því að neyta hollefiia
KAFFIVAGNINN
Ásgeir Hannes Eiríksson,
þingmaóur Borgaraflokksins
og fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga-
nefnd Alþingis, veróur í
Kaffivagninum, Grandagarði
í daq, föstudaqinn 6. júlí,
kl. 12.00-14.00.
Komið og spjallið við þingmann
Reykvíkinga.
Til Velvakanda.
Það er ótrúlegt hvað góð hollefni
geta bætt heilsufar okkar og langar
mig til að segja frá góðri reynslu
minni af hollefninu Polbax, sem ég
er búin að taka í nokkra mánuði
með sérstaklega góðum árangri.
Ég sendi þessar línur ef það mætti
verða öðrum til góðs.
Það sem hqaði mig, fyrir utan
bakverk og stirðleika í liðamótum,
var þreyta, svefnleysi og meltingar-
truflanir, dæmigerður krankleiki
sem hijáir ótrúlega marga.
Eftir að hafa neytt Polbax í
mánuð fór ég að finna fyrir breyt-
ingum til batnaðar, geta sofið eðli-
lega, þreytan horfin og það sem
meira var að ég er miklu upplagð-
ari til allra verka og svartsýnin
horfin. Jafnvel stirðleikinn í liða-
mótunum og bakverkurinn eru á
undanhaldi sem er það ánægjuleg-
asta við þetta allt.
Ég verð að segja eins og er, að
áður hafði ég ekki alltof mikla til-
trú á hollefnum til heilsubótar en
eftir þessa góðu reynslu er ég allt
annarrar skoðunar um heilsubæt-.
andi áhrif góðra hollefna og nauð-
syn þeirra ásamt góðum göngutúr-
um og almennri heilsurækt. Mér
var ráðlagt í einni heilsubúðinni að
reyna Polbax-hollefnið og Ester
C-vítamín saman og má með sanni
segja að góður árangur lét ekki á
sér standa.
Þetta hollefni er blanda af blóma-
fijókornum og fræjum ásamt
andoxunarefninu SOD, í töfluformi
og er ráðlagt að taka 4 töflur dag-
lega. Byijað er á 2 töflum á dag,
meðan verið er að venjast því og
síöan aukið í 4 töflur. Mér var ráð-
lagt að taka það ekki eftir kvöld-
mat því það væri svo kröftugt að
maður gæti ekki sofnað. Það er
ofnæmisprófað og er það gott fyrir
þá sem eru ofnæmisgjarnir.
Nýlega bætti ég við mig hvítlauk,
en hann er talinn vera góður fyrir
öndunarfærin, blóðrásina og vörn
gegn kolesteroli.
Mér var ráðlagt að kaupa þýska
Skemmtileg og
lifandi menn
ingardag-
skrá á Rás 1
Til Velvakanda.
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til Ríkisútvarpsins fyrir
skemmtilega og lifandi menningar-
dagskrá á Rás 1. Sérstaklega eru
það þrír þættir sem ég reyni að
missa aldrei af en það er menning-
arþátturinn Sinna sem er á laugar-
dögum og er hreint frábærlega
áheyrilegur og skemmtilegur, þá
er það Samhljómur sem er eins og
fögur eyja í hafróti dægurlaganna
og að lokum morgunstund með
Randveri Þorlákssyni. Ég sakna
þess að Randver skuli ekki hafa
fleiri morgunþætti og skora á hann
og ráðamenn á Rás 1 að bæta úr
því. Ég verð einnig að þakka fyrir
þættina hans Hermanns Ragnars
því þó ég hlusti ekki sjálfur á þá
nema með öðru eyranu veit ég það
fyrir víst að þeir eru eitt alvinsæl-
asta útvarpsefni gamla fólksins og
mjög þægilegir áheyrnar. Að lokum
vil ég svo þakka hinum frábæru
útvarpsmönnum Ævari Kjartans-
syni og Jónasi Jónassyni fyrir flest
það sem þeir gera og bera fram
þá ósk að Sigurður G. Tómasson
bætist í þeirra hóp og flytji sig yfir
á Rás 1.
Ilja Rogoff-hvítlaukinn því hann
væri alveg hreinn og allicin-auðug-
ur og innihéldi öll mikilvægustu
efni fersks hvítlauks, þar sem hann
væri unninn með svokallaðri frysti-
þurrkun og viðhéldi þannig fersk-
leika. hann væri ekki blandaður
með E-vítamíni, lecetini eða ger sem
margir þola ekki vegna ofnæmis-
valdandi verkana. Þessi hvítlaukur
er alveg lyktarlaus og eru töflurnar
húðaðar með magnesíum, kísil, bý-
flugnavaxi o.fl., sem gera það að
verkum að töflurnar leysast fyrst
upp í görnunum og berast með
blóðrásinni um líkamann og sér-
staklega eldra fólki.
Okkur verður sennilega tíðræð-
ast um heilsufarið og veðráttuna
og ekki af ástæðulausu. Vegna
mikils vinnuálags og óblíðrar veðr-
áttu þjást margir af öndunarkvill-
um, gigt, höfuðverk, meltingar-
truflunum og langvarandi þreytu.
Því reyna æ fleiri að laga heilsufar
sitt með því að breyta til með holl-
ara mataræði og tileinka sér göng-
ur og heilsurækt.
Ekki er verra að neyta góðra
hollefna og stuðla þannig að betri
árangri. Þeir sem reykja, ættu ein-
dregið að hætta reykingum og þó
ekki væri annað gert en að hætta
þeim slæma lesti, þá væri það stórt
skref í átt til betri heilsu. Eins og
allir vita, eru reykingar stórhættu-
legar lieilsu okkar og orsök margra.
alvarlegra sjúkdóma. Þetta eru okk-
ar ágætu læknar stöðugt að brýna
fyrir okkur en því miður með alltof
litlum árangri.
Heilsuunnandi
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
Fáanlegar fyrir sex, átta, tiu, tólf, sextán, átján eða
tuttugu og sex mælistaði. - Ein og sama miðstöðin
getur tekið við og sýnt bæði frost og hita, t.d. Celcius-i-
200+850 eða 0+1200 o.fl. Hitaþreifarar af mismunandi
lengdum og með mismunandi skrúfgangi fáanlegar. -
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur. - Ljósstaf-
ir 20 mm háir. - Það er hægt að fylgjast með afgas-
hita, kælivatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda íkælum,
frystum, lestum, sjó og fleiru.
id.
SÖQJKrOSKLQgJILOIF <gj ©@0 y/[^
Vesturgötu 16 - Símar 14680 - 21480 - Telef. 26331
Erum flutt af Laugaveginum
í Kringluna
Bjóéum nú einnig upp ó herrafatnaó
JOSS X
Kringlunni 8-12, sími 689150
Hlusíandi