Morgunblaðið - 06.07.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
Ný stjórn FSA:
Fyrsta verkið verður að
ráða íramkvæmdastjóra
VALTÝR Sigurbjarnarson for-
stöðumaður Byggðastofnunar á
Akureyri hefur verið skipaður
formaður nýrrar stjórnar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri,
en heilbrigðisráðherra skipar
formann stjórnarinnar.
Fyrsta verk nýrrar stjórnar verð-
ur væntanlega að fjalla um ráðn-
ingu nýs framkvæmdastjóra FSA,
en sem kunnugt er hefur Halldór
Jónsson sem gegnt hefur stöðunni
sl. fimm ár verið ráðinn bæjarstjóri
á Akureyri. Gert er ráð fyrir að
Halldór taki við starfi bæjarstjóra
1. ágúst næstkomandi.
Valtýr sagði að fyrsti fundur
nýrrar stjórnar sjúkrahússins yrði
haldinn við fyrstu hentugleika og
sinn vilji væri að ganga sem allra
fyrst frá ráðningu framkvæmda-
stjóra. Umsóknir um stöðuna voru
18 og hefur stöðunefnd fjallað um
þær og metið hæfni umsækjenda.
Aðrir í stjórninni eru Friðrik E.
Yngvason læknir tilnefndur af
starfsfólki, Björn Magnússon for-
stöðumaður Fasteignamats ríkisins
á Akureyri, Kristín Hjálmarsdóttir
formaður Iðju, félags verksmiðju-
fólks og Ársæll Magnússon um-
dæmisstjóri Pósts og síma, en þau
voru tilnefnd af Akureyrarbæ.
Þjónustumiðstöð:
Teikningar samþykktar
BYGGINGANEFND hefúr sam-
þykkt teikningar af þjónustumið-
stöð við íbúðir aldraðra við Víði-
lund. Verkið sjálft verður boðið
út eftir helgi og er stefnt að því
að búið verði að steypa bygging-
una upp fyrir áramót og miðstöð-
in verði fúllfrágengin næsta sum-
ar.
Þjónustumiðstöðin verður rúmir
670 fermetrar og verður byggð á
milli tveggja 30 íbúða fjölbýlishúsa.
I kjallara húsanna beggja verða um
200 fermetrar í hvoru húsi einnig
nýttir undir þjónustumiðstöðina,
þannig að hún verður tæpir 1.000
fermetrar að stærð alls.
í miðstöðinni verður stór borðsal-
ur, eldhús, verslun og vinnustofur,
þá verður þar einnig aðstaða fyrir
heimahjúkrun og heimilishjálp. í
kjallara annars hússins verður að-
staða fyrir hár- og fótsnyrtingu og
leikfimisalur, en í hinu húsinu starfs-
mannaaðstaða, lítið trésmíðaverk-
stæði og handavinnustofa.
Dalvík:
Skikkjur saumað-
ar á skátahópinn
Dalvík.
STÓR hópur skáta frá Dalvík þátt í landsmóti eða um 45 skát-
lagði land undir fót nú um helg-
ina á landsmót skáta sem haldið
er á Úlfljótsvatni og hefur sjaldan
jafnstór hópur frá Dalvík tekið
Æld
Laugardagur:
Mið
alda
menn
ieika fyrir dansi
Glæsilegur
sérrétfamatseöiH
Borðapantanir í
síma 22200.
Hótel KEA
ar.
Á síðasta ári hefur nýju Iífi verið
blásið í skátastarf á Dalvík og var
starfsemi félagsins á síðasta ári
öflug. Mörg ungmenni, drengir og
telpur hafa verið þátttakendur í
hollri tómstundastarfsemi skáta-
hreyfingarinnar þar sem áhersla er
lögð á hvers konar útivist, að bera
virðingu fyrir umhverfinu og að
geta mætt og leyst út hvers konar
vanda. Aðstaða skáta á Dalvík er
allgóð þar sem þeir eiga húsnæði
fyrir starfsemi sína og þá er um-
hverfi bæjarins kjörið fyrir hvers
konar útivist, sumar og vetur.
Áður en haldið var á landsmótið
var að mörgu að hyggja. Skátarnir
fengu mæður sínar í lið með sér
og saumaðar voru skikkjur á allan
hópinn svo hlýrra væri að sitja við
varðeldinn á kvöldin. Hátíðahöldin
17. júní voru góður undirbúningu
en þá sáu skátarnir um að byggja
hvers konar leiktæki fyrir börn og
unglinga og allt var gert úr timbri
sem súrrað var saman með böndum.
Þá kunnáttu munu þeir efalaust
nýta sér við uppbyggingu búða
sinna á Úlfljótsvatni.
Fréttaritari
Morgunblaðið/Einar Falur
Fyrsta þotan í beinu leiguflugi á milli Zurich í Sviss og Akureyrar lenti skömmu fyrir miðnætti í fyrra-
kvöld með um 150 farþega. Tekið var á móti farþegum með viðhöfn, þeim gefnir íslenskir steinar til
minningar um komuna, ávörp flutt og veitingar veittar. Konur á íslenskum þjóðbúningum tóku á móti
hópnum og á neðri myndinni má sjá Sigríði Stefánsdóttur forseta bæjarstjórnar flytja ávarp, en hún
er lengst til hægri á myndinni, þá Kristín Sigfúsdóttir, Helena Dejak framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunn-
ar Nonna og Beat Iseli forstjóri Saga Reisen.
Fyrsta beina flugið milli Zíirich og Akureyrar:
Mikil lyftistöng fyrir ferða-
þjónustuna á Norðurlandi
- segir Þorleifiir Þór Jónsson ferðamálafiilltrúi
UM 150 farþegar komu til Akur-
eyrar þegar fyrsta þotan af sjö
í beinu leiguflugi á milli Ziirich
í Sviss og Akureyrar Ienti á Ak-
ureyrarflugvelli skömmu fyrir
miðnætti í fyrrakvöld. Flestir far-
þeganna voru á leið á landsmót
hestamanna á Vindheimamelum
í Skagafirði. Sjö ferðir verða
farnar á milli þessara staða í
sumar, á timabilinu frá 4. júlí til
12. ágúst, en farþegar verða um
700 talsins. Tekið var á móti
fyrsta hópnum með viðhöfn á
flugvellinum. Flugið er á vegum
ferðaskrifstofanna Saga Reisen
og Nonna.
„Þetta er mikil lyftistöng fyrir
ferðamannaþjónustuna á Norður-
landi, það hefur oft verið undir
hælinn lagt hvort ferðamenn sem
lent hafa á Keflavíkurflugvelli hafi
sloppið norður, en með beinu flugi
hingað höfum við tryggt að þeir eru
hér á svæðinu,“ sagði Þorleifur Þór
Jónsson ferðamálafulltrúi Iðnþró-
unarfélags Eyjafjarðar á blaða-
mannafundi sem haldinn var í gær
í tilefni af fluginu. Á fundinum
voru einnig þeir Beat Iseli forstjóri
Saga Reisen, Markus Seiler for-
stjóri Trans European Airways,
Reynir Adolfsson hjá Vest Norden
á Ákureyri og Árni Þór Árnason
deildarstjóri í samgönguráðuneyt-
inu.
Beat Iseli sagði að fyrirhugað
væri að fjölga ferðum til Ákureyrar
næsta sumar og gætu þær jafnvel
orðið tíu. Þá væri hugmyndin einn-
ig að fljúga beint til Egilsstaða
þegar flugvöllurinn þar verður til-
búinn að taka á móti slíku flugi
árið 1992. Á fundinum kom fram
að þó svo að einnig yrði flogið beint
til Egilsstaða hefðu Akureyringar
ekki ástæðu til að óttast að hætt
yrði að fljúga þangað.
„Við fengum afar hlýjar móttök-
ur við komuna hingað og við erum
stolt af þessum ferðum sem við
erum að bjóða,“ sagði Beat Iseli.
Fríhöfii á Akur-
eyri innan tíðar?
SALA á tollfjálsum varningi í lítilli fríhöfn á Akureyri gæti hafíst
áður en langt um líður, en á vegum samgönguráðuneytis liefur ver-
ið unnið að því að koma upp slíkri fríhöfh. Það yrðu einkum farþegar
í Grænlandsflugi Flugfélags Norðurlands sem gæfist kostur á að
versla í fríhöfninni, en FN myndi sjá um og reka fríhöfnina.
Ámi Þór Sigurðsson deildarstjóri
í samgönguráðuneytinu sagði að
þess væri vænst að innan fárra
daga myndi svar berast frá fjár-
málaráðuneytinu varðandi fríhöfn á
Akureyrarflugvelli. Hann sagði að
samgönguráðuneytið hefði haft
frumkvæði að því fyrir nokkru að
kanna möuieikann á því að koma
upp fríhöfn á Akureyri og hefði það
verið gert í samvinnu við fjármála-
ráðuneyti, en fríhöfn heyrir undir
það ráðuneyti og Fríhöfnina á
Keflavíkurflugvelli. Fulltrúar þess-
ara aðila skoðuðu aðstæður á Ákur-
eyrarflugvelli fyrir skömrnu.
„Við erum að vinna í þessu máli
og bíðum nú eftir grænu ljósi frá
fjármálaráðuneytinu, en við eigum
von á að frá þessu máli verði geng-
ið á allra næstu dögum," sagði Árni.
Fríhöfnin yrði á vegum Flugfé-
lags Norðurlands og myndi einkum
þjóna farþegum í Grænlandsflugi
félagsins. Herbergi á flugvellinum
yrði tekið undir starfsemina þar
sem tollfijáls varningur verður seld-
ur. Farþegum í leiguflugi frá Sviss
yrði einnig gefinn kostur á að versla
í þessari fríhöfn, en mikil sala er á
tollfijálsum vörum um borð í flug-
vélinni, þannig að ekki er reiknað
með umfangsmikilli sölu til leigu-
flugsfarþega.