Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
Vörumst hroka kynhreinna
eftir Björn Sigfússon
Lokun íslands er ekki frarn-
kvæmanleg né bætir þjóðina. Veitt
er eftirtekt skilningi, sem ríkisstjórn
sýnir þessu. Til marks þessa daga
er haft að 1990-91 tekur ísland við
60 Víetflóttamönnum og kom fyrri
helmingur þeirra til landsins 28.
júní sl. í þeim hóp var meira en
þriðjungurinn börn og er þess vænst
um síðari flóttamannahópa hihgað,
að það hlutfall verði ógjarna lækk-
að, m.a. vegna íslenskunáms þeirra
fjölskyldna, sem hlut eiga að máli
(og þær voru í þetta sinn 8). Ein-
beitt skólanám til aðlögunar bíður
nú hópsins. „Þeir verða okkar sgm
tunguna tala“ mælti Einar Bene-
diktsson um það mál, einhver
víðsýnasti þjóðvarnarmaður fyrsta
þriðjungs þessarar aldar, og fylgdi
þar forskrift Jóns forseta, sem frá
upphafi Nýrra félagsrita fyrir hálfri
annarri öld kvaðst bjóða til íslands
velkominn hvern dugandi mann,
hvaðan sem kæmi, en íslensku yrðu
þá þeir menn að læra fyrr en þeim
megi fela opinber störf (þá mundi
fjöldinn takmarkast, taldi Jón).
Uppreisn gegn þessu skynsemd-
armati á kynþáttum og íslensku-
vörn var sjaldheyrð í Reykjavík fyrr
IHVAÐA
VEÐRISEMER
Meö Meco þarftu ekki
að hafa áhyggjur
af veðrinu, það er alltaf
hægt að grilla.
Hönnun MECO:
Loftflæðið gerir Meco
að frábæru útigrilli:
• Það sparar kolin.
• Brennur sjaldnar við.
• Hægt er að hækka og
lækka grindina frá glóðinni.
• Tekur styttri tíma að grilla
og maturinn verður
safaríkari og betri.
• Auðveld þrif.
Ö
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
ó SOMMUfUHO
en stutt var eftir til hátíðarhalds
1930. Útlendur kynþáttahroki (Ort-
egay Gasset, af rómanskri hálfu,
kennifeður hitlerismans af þýskri
hálfu, o.s.frv.) varð þá um stund
að neysluvöru í áróðusbrölti hér;
ég hélt að lok hefðu fengist á því.
Við höfðum aldrei verið því mót-
fallnir að eiga að forfeðrum svar-
teygan Egil á Borg, Óttar skáld
svarta, Sighvat stallara samlitan
Óttari og langar ættkvíslir bland-
aðra litbrigða, a ógleymdum lit, sem
dökkur er kominn frá lausaleiks-
börnum hraktra sjómanna í fáeinum
strandbyggðum, og blöndun við
„asíska“ liti framvegis breytir jafn-
lítið þjóðinni.
Undantekningarlaust sverja allir
fyrir kynþáttahatur, þeir sem hræð-
ast að hér fjölgi litbrigðum fólks.
Þeir bara vilja að þjóðflokki sé hald-
ið hveijum í eigin landi, oft þá í
fangavinnubúðum eins og land-
flótta Víetnamar eiga kost á heima
fyrir. Grein mín á ónóg rúm til að
beijast gegn þeirri afneitun flótta-
staðreynda. Rétt er að hlutfalls-
skerfur, sem niðuijafnað verður
áfram á ísland, fólkinu til bjargar,
verður að fá sín takmörk, sem
kynnu um 1999 að verða umdeild
á EB-vettvangi. Það bíður. í vænt-
ingu eftir Víetnömum, viku fyrir
komuþeirra nú í júní, lét'hrl. Magn-
ús Öskarsson, borgarlögmaður
Reykjavíkur, Mbl. birta fyrir sig
gi-einina Varnaðarorð, sem ég gríp
nú upp fáein minnisstæð atriði úr.
Grein sú hófst á hálfsögðum
meðmælum með því að gefa 3.
heims þjóðum traktora, leysa sig
með því undan að bjarga flótta-
mönnum, því „líklega mundu fáein-
ir traktorar á réttum stöðum gera
meira gagn“. „Dapurlegt tilgangs-
leysi þessarar fórnar (og traktors,
sem Islendingar gáfu til Rússlands
fyrir vel hálfri öld) kemur í hugann
þegar“ þessi eða önnur hjálp „skilur
sjálft vandamálið eftir. Er þá að
því að hyggja hver hagur er að því
að leysa svo lítinn hluta vandans
ef við það_ skapast önnur og ný
vandamál. íslendingar geta sparað
sér þau ósannindi að þeir séu öðru-
vísi og betri en aðrar þjóðir og verði
lausir við vandamál í náinni sambúð
við fólk af framandi kynstofnum,"
sagði M.Ó.
Öbragð úr kaldastríði, sem skipti
pólitískt þjóðernum í hópa maklegr-
ar eða ómaklegrar miskunnar, er
að orðavali hans „á réttum stöðum“
en ekki dugi að hjálpa þeim sem
skilji pólitíska „vandamálið eftir".
Vilji lögmaðurinn skýra slíka af-
stöðu betur ætti hann fyrst að læra
af Bush forseta, Helmut Kohl kansl-
ara og fleiri framsýnum íhaldsleið-
togum, sem fátt spara nú í sáttaleit-
un við Moskvu og jafnvel við smá-
stalína eins og Gaddafi Líbýu. Frétt
1. júlí um hið síðastnefnda átti þá
forsögu að með leyfi góðs Allahs
hafði flugnahöfðinginn Kölski sent
Líbýu slátraraeldflugur suðuramer-
ískar, sem ollu þjóðarpest, mest til
að fækka börnum og það drægi
aftur úr flóttaþörf úr Norður-
Afríku. En þar hitti Kölski ömmu
sína, sem er honum klókari, vill
SAT/l
TOPP ▼ GÆÐI
SLÁTTUORF - HEKKKLIPPUR
Garðsnyrtitæki frá Skil eru byggð samkvæmt
ströngustu öryggis- og neytendakröfum,
viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins.
SPÁÐU í VERÐIÐ!
annað og á nógar flugur. Frelsis-
gyðjan úr New York-höfn gefur
sem sé Gaddafi 100 þúsund graðar
slátraraeldflugur, sem sleppt verður
ófijóum úr flugvélum og þeim
treyst til að kokkála allan innlendan
karlpening sinnar tegundar í Líbýu
svo flugnahöfðinginn, mótleikari
Gaddafis, fari flugnalaus og svo að
segja geltur út úr þessu sem öðrum
velmeintum tilraunum sínum til að
leyfa ekki 3. heims þjóðum fjölgun.
Gæti nú aðrir Ijölgunarstöðvendur
sín að þeir fái ekki hlálega útreið
í sögu 21. aldar.
Víkjum inn fyrir landsteina og
til þjóðblendings, sem hefur borg-
ararétt eða er handviss um að fá
réttinn þegar áratala og íslensku-
nám dugir fólkinu. Það á sér lang-
feðgatölu úr öllum hornum heims,
oftast mikið til gleymda og þýðing-
arlitla en nóga til þess að aldrei vex
út úr því hérlendur „tribe“ eða sam-
þættar „Asean roots“ eða hvað það
mundi nú heita í amerískri sérhátta-
félagsfræði. Aðeins „lePen-
afstaða“ hinna kynhreinu til að-
fluttra gæti þjappað saman svo
hálfíslenskum hópum til varnar og
hún þekkist tæplega á Norðurlönd-
um. Meðan svo er laga þessir verð-
andi kjósendur vorir sig vel að
íslenskri hefð, spilla hvorki tungu
né uppeldi yfirleitt.
Tíðkað er að vísa til þess þegar
sérlegir hópar Svía gerist ögn
drukknir, þá fari þeir að jafna um
útlendinga, oft í sérlegum hverfum,
og til að hefna einhvers sem saka
má einstaklinga um, enda seu út-
lendingarnir margir hefnigjarnir.
Áfengi og stundum fíknilyf fléttast
þessu mjög, síður hörundslitur.
Heimilisofbeldi í blönduðum hjóna-
böndum kemur oftar fyrir en í
óblönduðum, þáttur áfengis í því
er einhver. Nefna má að til Kvenna-
athvarfs í Reykjavík höfðu á næst-
liðnum missirum 13 innfluttar kon-
ur leitað gistingar og stuðnings
gegn meintum brotum manna
sinna, oftast íslenskra. Ekki er upp-
lýst hver af þeim tilfellurti gætu
skýrst vegna mismunandi trúar-
bragða og litar en ekki er þar nema
partur tildraganna og í 100 þús-
unda borg er slík óhappatala langt
fyrir neðan það að vera tölfræðilega
marktæk. Hún er það ekkert betur
en háðglósa lögmannsins, sem býst
ekki við að „mannúð og hamingja
hafi ráðið komu allra eiginkvenn-
anna frá Asíu hingað".
Tvítugar og gjafvaxta eru nú
flestar þeirra 20-30 Kóreustúlkna,
sem íslensk hjón ættleidddu barn-
ungar frá munaðarleysingjahæli í
Seoul og hafa frá þeirri stundu alist
upp sem fullgerir Islendingar, enda
jafnokar þeirra á skólabekk, jafnt
og til erfiðis. Kjörbarnahópar lengra
að sunnan sóttir eru að mestum
hluta yngri, sum keypt til landsins,
segir lögmaður hneykslaður, því
„Sama sagan hefur gerst í nær öll-
um löndum í kringum okkur. Of
seint hafa menn vaknað upp við
þann vonda draum að hjá þeim
væri komið upp alvarlegt kynþátta-
vandamál.“
Hjá þeirri ályktun verður tæplega
komist að greinin Varnaðarorð frá
21. júní sjái kynslóðirnar næstu á
íslandi þannig fyrir sér að sá minni-
hluti þeirra, sem ber með sér lit eða
augnsvip úr Austurlöndum nær og
fjær eða langt að sunnan, vei'ði
þrátt fyrir þegnrétt settur í paría-
stétt svo kynhreinir geti glaðst yfir
ímynduðum yfirburðum sínum.
Þessu mótmæli ég / þjóðarnafni,
það væri verra en glæpur, það er
heimska, svo frægt franskt sann-
yrði sé notað. Hitt sýndi greind að
Varnaðarorð nefndu ekki beint nýj-
asta tilefni sitt, Víetnamana, því
fólk það hefur gott orð og verð-
skuldað, fólk sem Rauði krossinn
hefur hingað kosið af þeim, von-
laust að reyna að æsa gegn því.
Sú blaðagrein (laus við hatur)
efar fastlega að skynsamlegt sé að
skipuleggja, eins og núna var gert,
„flutning á þessu vandænáli til ís-
lands“. Rétt ^ins og M.Ó. telji lokun
Islands framkvæmanlega og brýna.
Björii Sigfússon
„Þeir verða okkar sem
tunguna tala“ mælti
Einar Benediktsson um
það mál, einhver
víðsýnasti þjóðvarnar-
maður fyrsta þriðjungs
þessarar aldar.“
Ég er sammála honum að ekki veit-
um við hæli piltungum, sem ófriðar-
karlai’ á borð við Gaddafi og Khom-
eini hafa kennt lífsreglur. Vissulega
þarf mæragæslu og skipulag, sem
á sínum tíma verður að innlima í
EFTA-EB-samninga fyrir vora
hönd. Hver aukning þá verði er
ekki komið á dagskrá. En samnor-
rænn rétturvinnuafls, sem leitar
fyrir sér landa milli, spyr ekki að
hvort þegnar þeir kunni að vera
þjóðblendingar eða innfluttir. Og
skipulag, sem á að banda vand-
ræðafólki frá, má fyrir alla muni
ekki styðjast við kynþáttaeinkenni.
Berum saman tvo ólíka samn-
inga, sem skerða lokun íslands og
ég hlýt að taka fram yfir vilja ein-
strengingsmanna. Sem þjóðvarnar-
maðut' hef ég séð í 40 vetur að
varnarsamningur, sem við náðum
1951, er stórum betri kostur en að
láta hann ógerðan. Það að veita
einstaklingum úr hundrað mismun-
andi kynþáttum smám saman borg-
ararétt á Norðurlöndum, ekki síst
hinn íslenska, með hinum kunnu
skilyrðum, það er afar smávaxin
hætta, hjá öðru, fyrir heimasprottna
eða borgvædda menning vora. En
sú dýrmæta veiting er annað meira.
Hún er varnarsanmingur um að
nasjónin, blönduð eftir atvikum
hvers nýs mannsaldurs, standi þó
saman í vörn fyrir mennt sína,
mannan og auðlindir. Það eitt er
þjóðvörn. Hitt að gleypa nasískar
eða ísraelskar hreinkynskreddur
leiðir ávallt í ógæfu og þaðan í for-
herðing.
Höfumlur er menntamaður í
lnndafræði og íslenskum fræðum
og fyrrv. Iiáskólnbókavörður.
Árétting
Tvö skýringarlínurit féllu niður
við birtingu greinar Einars Júlíus-
sonar í blaðinu 29. júní sl. Eru þau
birt héi' til glöggvunai' fyrir ])á, sem
lásu greinina. - Blaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum.