Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990 Þróunarsamvinnustoftmn: Trilla send til Grænhöfðaeyja TRILLA úr treflaplasti, sem Þróunarsamvinnustofnun íslands (ÞSSÍ) hefúr látið smiða, verður ferjuð í ágúst til Grænhöfðaeyja. Þetta er nýjasti áfangi í verkefni ÞSSI á eyjunum, sem staðið hefúr um árabil. Markmiðið með smíði trillunar er að leita leiða til að styrkja uppbygg- ingu á smábátaflota eyjanna. Stofnunin gerði út fjölnotaskipið Feng á Grænhöfðaeyjum, en hefur nú snúið sér að öðrum verkefnum. Smábátar á eyjunum eru taldir vera .1100 talsins. Megnið af þeim físki sem eyjarskeggjar leggja sér til munns er veitt með þessum bátum. Flotinn er afkastalítill, bátarnir smá- ir og orðnir úreltir. Stefna stjóm- vaida er að endurnýja bátana og búa þá betur. ÞSSÍ hefur því ákveðið að ráðast í tilraunir með bát og búnað af nýrri gerð. Trillan verður gerð út frá þorpinu Salamanza. Trillan er 5,9 brúttólestir, átta metra löng og 2,7 metrar á breidd. YMNMAR Loftkældar dieselrafstöðvar fyrir verktaka, bændur, sumarhúsaeigendur og útgerðarmenn. Eigum á lager margar stærðir frá 2000 w til 5500 w. Sala - Ráðgjöf - Þjónusta. SKUTUVOGUR 12A - 124 REYKJAVÍK S: 82530 Ganghraði er um 14 sjómílur á klukkustund. Hún var smíðuð hjá Trefjum hf. í Hafnarfirði og hönnuð af íslenskum bátasmið. í bátnum er vél og búnaður sem þekkist á Græn- höfðaeyjum, þannig að innlendir aðil- ar geta veitt viðgerðar- og varahluta- þjónustu. Báturinn átti upphaflega að vera stærri, en vegna niðurskurðar á fé til þróunarsamvinnu á þessu ári var smíðuð minni trilla. Nylega hefur verið gefið vilyrði fyrir aukafjárveit- ingu til ÞSSÍ og er stefnt að því að byggja bát samkvæmt upprunalegri áætlun. Fengur er eitt af nöfnum Óðins og eftir nokkrar bollaleggingar var trillunni valið nafnið Ullur. Hann var einn af sonum Þórs og þar með son- arsonur Óðins. Þessa dagana er Ull- ur stöðugum í reynslusiglingum. Að þeim loknum verður hann sendur með skipi til Grænhöfðaeyja. Morgunblaðið/Sverrir Trillan Uliur í Reykjavíkurhöfh. í næsta mánuði verður hún send til Grænhöfðaeyja, sem liður í þróunarsamvinnu íslands og eyjar- skeggja. Kennarasamtökin: Gengið verði frá lóðaleigusamningi vegna Kennaraskólans við Laufásveg RÍKISSTJÓRNIN hefúr ákveðið að fela menntamálaráðherra, heil- brigðisráðherra og fjármálaráðherra að ganga frá lóðaleigusamningi til langs tíma vegna Kennaraskólans við Laufásveg. Fyrir um hálfu öðru ári kynnti menntamálaráðherra þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gefa kennarasamtökunum skólann, sem síðan hafa undirbúið endur- byggingu hússins. Hafa samtökin siðan þá lagt mikla áherslu á að gengið verði frá formsatriðum vegna gjafarinnar, svo heíja megi fram- kvæmdir. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands Islands, segist vona að ákvörðun ríkisstjórnarinnar verði til þess að málið sé i höfn. „Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær verður gengið frá lóðaleigu- samningnum en ég veit að mennta- málaráðherra hefur fullan vilja á því að málið fái sem skjótasta úrlausn," segir Svanhildur. Frá því í nóvember 1989 hafa fulltrúar KI og HÍK unn- ið að því að fá úr því skorið hver lóðarréttindi fylgi Kennaraskólanum við Laufásveg, svo hægt verði að ganga frá afsali og hefja fram- kvæmdir við húsið, sem er í lélegu ástandi. í fréttatilkynningu frá kennara- samtökunum segir að húsfriðunar- nefnd hafi samþykkt breytingar á ytra útliti hússins, teikningar af ytra og innra skipulagi séu fyrir all löngu tilbúnar til að leggja fyrir Byggingar- nefnd Reykjavíkur og útboðsgögn séu tilbúin. Ljóst sé að HÍK og KÍ hafi lagt í verulegan kostnað vegna þessa. Það sé einlægósk samtakanna að málið fái farsæla lausn svo að þau fái tækifæri ti að standa að endurbyggingu Kennaraskólans við Laufásveg. B Y K O s B R E I D SOLARFAGNAÐURIBYKO Hvernig getum við annað en haldið veislu þegar sólin hefurskinið á hverjum degi íþrjárvikur? Sunnlenska sólin hefur skinið íyfir 200 tíma frá 15. júní. En hvernig hefur það verið fyrir norðan? Pylsugrillveislan verður fyrir framan BYKO verslunina í Breiddinni í dag frákl. 15.00-19.00. Verðlækkun á grillum, sláttuvélum, kæliboxum og að sjálfsögðu regnfötum. SJÁUMST MEÐ SÓLSKIIMSBROS Á VÖR. BVÍCO MJÓDDIN ; ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.