Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990 23 Eru þeir að fá 'ann "? Morgunblaðið/GG Það er aðeins farið að bera á eldisfiski. Sá sem þarna liggur fyr- ir ofan glæstan 12 punda hæng, með skemmdan eyrugga, étinn sporð og klesst trýni, veiddist í Elliðaánum. Há meðalvigt í Miðfirðinum „Eg segi nú engar stórveiði- sögur, en þetta gengur svona hægt og sígandi. Laxarnir mættu vera fleiri, en það bætir úr skák að þeir eru geysilega vænir. Þannig er hollið sem nú er í ánni með 14,5 punda meðal- vigt og þar á meðal eru 19 og 17 punda fiskar, en stærsti lax sumarsins vó 20 pund og kom úr Teigahúshyl. Alls eru komnir um 170 laxar úr ánni sem er lélegra en í fyrra, en meðahngtin er mun hærri,“ sagði Böðvar Sigvaldason á Barði í samtali við Morgunblaðið. Böðvar sagði lax- inn dreifðan um alla á, helst að hann vantaði í Núpsá sem er afar vatnslítil eftir úrkomuleysið. Þó er laxinn að reyna, í fyrradag veiddist til dæmis,17 punda fisk- ur í Grenshyl, neðarlega í ánni. Lítið hefur sést af smálaxi enn sem komið er, en veiðimenn á silungasvæðinu fyrir neðan brú sáu slíka fiska stökkvandi síðustu daga, bæði í ánni og í sjónum fyrir utan ósinn. Tekur illa í Elliðaánum. Alls munu komnir um 110 laxar úr Elliðaánum og er mikill lax víða í ánum, einkum þó fyrir neðan Foss og á Breiðunni, eins á svæðinu frá Árbæjarstíflu og niður öll gijótin. Margt af þess- um fiski er mjög smátt, 2-4 pund, en hann tekur illa, enda hraðm- innkandi vatn og endalaust bjart- viðri auk þess sem álagið er óv- íða meira á fáum veiðistöðum. Stöku vakt hefur farið niður í einn og tvo fiska, en síðan kom- ið þetta 10 til 15 á vakt inn á milli. Mest er veitt á maðk, en einstaka reynir flugu með góðum árangri. Líkast til færi laxinn að taka betur ef fleiri væru með fluguna, þvi hann þolir maðkinn illa orðið, laxinn sem legið hefur eitthvað að ráði, og hóparnir sundrast er þeim slímuga er slak- að að þeim. Hér og þar Opnunin í Hrútaijarðará var daufari en menn vonuðust tii, aðeins tveir laxar veiddust og lítið sást. Lítið hefur batnað í Grímsá þar sem aðeins milli 50 og 60 laxar hafa veiðst. Einnig er iítið um að vera í Leirvogsá þar sem nokkrir fiskar veiddust fyrsta daginn, en lítið síðan. TIL AFGREIÐSLU STRAX Verð aldrei hagstæðara Fjölbreytt úrval af Massey-Ferguson hjólagröfum - mest seldu vinnuvélum hér á landi, með hæsta endursölugildi. AJHUGIÐ að vélarnar eru til á lager. Þetta er því rétti tíminn til að huga að kaupum. Hagkvæm greiðslukjör. Greiðslutími allt að 5 ár. Vinnuvélaeigendur - verktakar! Gangið frá kaupum NÚ! HÓFÐABAKKA 9 112 MYKJAVIK SIMI 91-670000 ffl UÍs 0$fia Nýjung! BÓNDABRIE lítill ostur með sterk áhrif MUNDU EFTIR OSTINUM AUK k9d2i*5l0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.