Morgunblaðið - 06.07.1990, Page 41

Morgunblaðið - 06.07.1990, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR G. JÚLÍ 1990 41 félagsins, enda þurfti ákærði ekki að kanna sérstaklega verk annars löggilts endurskoð- anda án sérstaks tilefnis, sbr. og það sem rakið hefur verið um starfsskyldur hans. Með hliðsjón af því, sem hér var rakið, ber að sýkna ákærða Inga Randver. Sakaferill ákærðu, sem sakfelldir eru Ákærði Helgi hefur samkvæmt vottorði frá sakaskrá ekki áður hlotið refsingu, en ákærðu Björgólfur og Páll Bragi hafa nokkr- um sinnum hlotið refsingu fyrir umferðar- lagabrot, sem ekki skiptir máli við refsiákvörðun. Refsingar Eins og þegar er fram komið eru 14 af hinum ákærðu sýknaðir. Refsingar ákærðu, sem sakfelldir eru verða ákveðnar með hliðsjón.af 77. gr. almennra hegningarlaga, sakaferli þeirra og því, að ákærði Björgólfur stóð fljótlega skil á and- virði víxla þeirra, sem hann er sakfelldur fyrir að hafa dregið sér. Refsing ákærða Björgólfs Guðmundssonar þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 5 mánuði og ákærða Páls Braga fangelsi í 2 mánuði, en þar sem hvorugur hefur áður brotið gegn hegningarlögum, þykir mega ákveða að fresta skuli fullnustu refsinga þeirra, og nið- ur skulu þær falla að 2 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi þeir hvor um sig halda almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22,1955. Refsing ákærða Helga þykir hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og vararefsing hennar 20 daga varðhald sem ákærði telst með hliðsjón af 76. gr. al- mennra hegningarlaga hafa afplánað með 20 daga gæsluvarðhaldi sínu, sem frá grein- ir hér á eftir. Gæsluvarðhald Sex hinna ákærðu sátu í gæsluvarðhaldi á árinu 1986 sem hér segir: Ákærði Björgólfur frá 21. maí kl. 17.47 til 18. júní kl. 14.07 eða í 28 daga. Ákærði Ragnar frá 21. maí kl. 18.37 til 18. júní kl. 14.07 eða í 28 daga. Ákærði Páll Bragi frá 21. maí kl. 17.15 til 7. júní kl. 15.10 eða í 17 daga. Ákærði Helgi frá 21. maí kl. 18.55 til 9. júní kl. 21.00 eða í 20 daga. Ákærði Sigurþór Charles frá 21. maí kl. 16.45 til 26. maí kl. 19.30 eða í 6 daga. Ákærði Þórður Hafsteinn frá 21. maí kl. 18.18 til 28. maí kl. 19.00 eða í 8 daga. Samkvæmt 76. gr. almennra hegningar- laga skal framangreint gæsluvarðhald ákærðu Björgólfs og Páls Braga koma refs- ingum þeirra til frádráttar, komi þær til fram- kvæmda, 28 dagar hjá hinum fyrrnefnda, en 17 dagar hjá hinum síðarnefnda. Krafa um sviptingu réttinda löggilts endurskoðanda Þess er krafist í málinu, að ákærði Helgi verði með dóminum sviptur réttindum lögg- ilts endurskoðanda samkvæmt 1. mgr. 15. gr., sbr. 7. gr. laga nr. 67, 1976 um löggilta endurskoðendur, sbr. 68. gr. almennra hegningarlaga. 68. gr. almennra hegningarlaga hefur að geyma skilyrði þess, að maðui' verði sviptur heimild, sem hann hefur öðlast til að stunda starfsemi, sem opinbert leyfi, löggildingu, skipun eða próf þarf til að gegna. Skilyrðin eru þau, að veruleg hætta sé áþví að sakborn- ingur muni fremja brot í stöðu sinni eða starf semi. Þá má svipta menn þessum rétti, þeg- ar brot er stórfellt og maður telst ekki fram- ar verður að rækja starfann eða njóta réttindanna. Það er mat dómsins, að brot ákærða Helga séu ekki stórfelld og er hann því sýkn- aður af kröfu ákæruvaldsins að þessu leyti. Sakarkostnaður Sakarkostnaður verður ákveðinn með hlið- sjón af 140. gr., 141. gr. og 142. gr. laga nr. 74, 1974 um meðferð opinberra mála. Gerðar hafa verið kröfur um málsvarnar- laun fyrir lögmennina Berg Guðnason héraðs- dómslögmann og Hjört Torfason, fyri’verandi hæstaréttarlögmann, sem gegndu i fyrstu veijendastörfum fyrir ákærðu Árna og Jó- hann Sigurð, en létu af störfum undir rekstri málsins. Verður þóknun þeirra ákveð- in ásamt öðrum sakarkostnaði. Málsvarnarlaun ákveðast, sem hér segir: Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða Björgólfs, Guðmundar Ingva Sigurðssonar, hæstaréttarlögmanns, ákveðast 3.000.000 krónur og skulu greiðast að 1/20 hluta af ákærða en 19/20 hlutum af ríkissjóði. Málsvarnarlaun skipaðs veijanda ákærða Páls Braga, Jónasar A. Aðalsteinssonar, hæstaréttarlögmanns, ákveðast 1.700.000 krónur og skulu greiðast að 1/40 hluta af ákærða en 39/40 hlutum af ríkissjóði. Málsvarnarlaun skipaðs veijanda ákærða Helga Jóns Steinars Gunnlaugssonar, hæsta- réttarlögmanns, ákveðast 2.100.000 krónur og skulu greiðast að 1/40 hluta af ákærða, en 39/40 hlutum af ríkissjóði. Önnur málsvarnariaun skulu greiðast úr ríkissjóði og ákveðast, sem hér segir: Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður, 2.800.000 krónur vegna ákærðu Ragnars og Árna. Bergur Guðnason, héraðsdómslögmaður, 200.000 krónur vegna ákærða Árna. Eiríkur Tómasson, hæstaréttarlögmaður, 650.000 krónur vegna ákærða Sigurþórs Charlesar. Skúli Pálsson, hæstaréttarlögmaður, 650.000 krónur- vegna ákærða Þórðar Ilafsteins. Helgi V. Jónsson, hæstaréttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Halldórs Ágústs. Andri Árnason, héraðsdómslögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Lárusar. Hákon Árnason, hæstaréttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Ólafs. Þorsteinn Júlíusson, hæstaréttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Axels. Brynjólfur Kjartansson, hæstaréttarlög- maður, 650.000 krónur vegna ákærða Inga Randvers. Sveinn Snorrason, hæstaréttarlögmaðui', 1.000.000 krónur vegna ákærðu Valdimars, Garðars, Kristmanns og Jóhanns Sigurðar. Hjörtur Torfason, fyrrverandi hæstaréttar- lögmaður, 200.000 krónur vegna ákærða Jóhanns Sigurðar. Örn Ilöskuldsson, hæstaréttarlögmaður, 650.000 krónur vegna ákærða Arnbjörns. Ákærðu Björgólfur, Páll Bragi og Helgi skulu greiða óskipt í saksóknarlaun, er renni í ríkissjóð, 300.000 krónur. . Ákærði Björgólfur skal greiða annan sak- arkostnað að 1/20 hluta og ákærðu Páll Bragi og Helgi að 1/40 hluta hvor. Að öðru leyti skal annar sakarkostnaður greiðast úr ríkissjóði. Dómsorð Ákærði, Björgólfur Guðmundsson, sæti fangelsi í 5 mánuði. Akærði, Páll Bragi Kristjónsson, sæti fang- elsi í 2 mánuði. Fresta skal fullnustu refsinga ákærðu, Björgólfs og Páls Braga, og niður skulu þær falla að 2 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi ákærðu hvor um sig almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Komi refsing ákærðu Björgólfs og Páls Braga til framkvæmda, skal koma til frá- dráttar gæsluvarðhald þeirra, hins fyrrnefnda 28 dagar, en hins síðarnefnda 17 dagar. Ákærði, Helgi Magnússon, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem telst afplánuð með 20 daga gæsluvarðhaldi ákærða. Ákærðu, Ragnar Kjartansson, Árni Árna- son, Sigurþór Charles Guðmundsson, Þórður Hafsteinn Hilmarsson, Halldór Ágúst Guð- bjarnason, Lárus Jónsson, Ólafur Helgason, Áxel Kristjánsson, Ingi Randver Jóhannsson, Valdimar Indriðason, Arnbjörn Kristinsson, Garðar Sigurðsson, Kristmann Karlsson og Jóhann Sigurður Einvarðsson, eru allir sýkn- aðir af kröfum ákæruvaldsins í máli þessu. Ákærði Helgi Magnússon, er sýknaður af kröfu um sviptingu réttinda löggilts endurskoðanda. Málsvarnarlaun skipaðs veijanda ákærða Björgólfs, Guðmundar Ingva Sigurðssonar, hæstaréttarlögmanns, ákveðast 3.000.000 krónur og skulu greiðast að 1/20 hluta af ákærða en 19/20 hlutum af ríkissjóði. Málsvarnarlaun skipaðs veijanda ákærða, Páls Braga, Jónasar A. Aðalsteinssonar, hæstaréttarlögmanns, ákveðast 1.700.000 krónur og skulu greiðast að 1/40 hluta af ákærða en 39/40 hlutum af ríkissjóði. Málsvarnarlaun skipaðs veijanda ákærða, Ilelga, Jóns Steinars Gunnlaugssonar, hæsta- réttarlögmanns, ákveðast 2.100.000 krónur og skulu greiðast að 1/40 hluta af ákærða, en 39/40 hlutum af ríkissjóði. Önnur málsvarnarlaun skulu greiðast úr ríkissjóði og ákveðast, sem hér segir: Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður, 2.800.000 krónur vegna ákærðu Ragnans og Árna. Bergur Guðnasón, héraðsdómslögmaður, 200.000 krónur vegna ákærða Árna. Eiríkur Tómasson, hæstaréttarlögmaður, 650.000 ki'ónur vegna ákærða Sigurþórs Charlesar. Skúli Pálsson, hæstaréttarlögmaður, 650.000 krónur vegna ákærða Þórðar Hafsteins. Helgi V. Jónsson, hæstaréttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Halldórs Ágústs. Andri Árnason, héraðsdómslögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Lárusar. Ilákon Árnason, hæstaréttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Ólafs. Þorsteinn Júlíusson, hæstai'éttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærða Axels. Brynjólfur Kjartansson, hæstaréttarlög- maður, 650.000 krónur vegna ákærða Inga Randvers. Sveinn Snorrason, hæstaréttarlögmaður, 1.000.000 krónur vegna ákærðu Valdimars, Garðars, Kristmanns og Jóhanns Sigurðar. Hjörtur Torfason, fyn-verandi hæstaréttar- lögmaður, 200.000 krónur vegna ákærða Jóhanns Sigurðar. Örn Höskuldsson, hæstaréttarlögmaður, 650.000 krónur vegna ákærða Arnbjörns. Ákærðu Björgólfur, Páll Bragi og Helgi skulu greiða óskipt í saksóknarlaun, er renni í ríkissjóð, 300.000 krónur. Ákærði Björgólfur skal greiða annan sak- arkostnað að 1/20 hluta og ákærðu Páll Bragi og Helgi að 1/40 hluta hvor. Að öðru leyti skal annar sakarkostnaður greiðast úr ríkissjóði. Sverrir Einarsson, Arngrímur Isberg, Ingibjörg Benediktsdóttir. Annáll Hafskipsmálsins frá 1985-1990 985 Mfl27jún? 4 7únT... 1985 18. nóvember H Hafskipi hf. er veitt greiðslustöðvun. 6. desember Hafskip tekíð til gjaidþrotaskipta. Q 7. maí Skiptaráðandi sendir ríkissaksóknara skýrslu um meint brot tengd gjaldþrotinu. Ríkissaksóknari felur RLR opínbera rannsókn. 20. maí Sex forráðamanna handteknir og færðir til yfirheyrslu 21. maí H Mennirnir úrskurðaðír f gæsluvarðhaid 26. mai Fyi lat thm laus 29. maí Hæstiréttur styttir varðhald Hafskips- manna til 11. júní. fííil IMMÍtlfii Ultiim I sijornanormanns framlengt í sakadómi. Hæstiréttur úrskurðar Æí að stjórnarmaður og forstjóri skulu látnir -------lausir. 1. júlí Hallvarður Einvarðsson rann- sóknarlögreglustjóri skipaður ríkis- saksóknari. 24. september Rannsókn RLR lokið og málið sent til ríkissaksóknara. 11. nóvember Rannsóknarnefnd skilar viðskiptaráöherra skýrslu um þátt Utvegsbankans. 1987 7. apríl Utvegsbanki Islands hf. stotnaður 9. apríl Ríkissaksóknari gefur út ákæru á hendur forráðamönnum pankastjórum Utvegsbankans. aKærum a nenaur V\ bankastjórunum frá 1----* vegna vanhæfis Hallvarðs. 24. júlí Hæstiréttur vísar ákærum á hendur forráðamönnum Hafskips frá. 6. ágúst Jónatan Þórmundsson skipaður sérstakur rikissaksóknari. 16. október Sérstakur ríkissaksóknari biður RLR um rannsókn. 1988 11. nóvember Sérstakur ríkissak- sóknari gefur út ákæruáhendur16 mönnum, forráða- mönnum og trúnað- armönnum Hafskíps og Útvegsbankans. 11. nóvember Ákæra gefin út á hendur Jóhanni Einvarðssyni alpingismanni að fengnu samþykki Alþtngis. 1989 17 apríl 30. maí Akærur þingfestar í sakadómi. Verjendur 11 sakborninga krefjast frávísunar. Hæstiréttur hafnar frávísunarkröfum. Úthlutunargerð í þrota- þúi Hafskips. Tap Utvegsbankans nemur 292 milljónum króna, aukvaxta. Almennir kröfuhafar fá um helming hötuðstóls greiddan. 10. október Hæstiréttur staðfestir neitun sakadóms um að skýrsla Ragnars Kjartanssonar fyrrum stjórnarformanns um rannsóknar- og ákæru- meðferð verði lögð fram. 25. októberv 4 Frávísunarkröfu verjenda hafnað í sakadómi. Krafan er reist á þeim rökum að Hallvarður Einvarðsson hafi rannsakað málið að stærstum hluta. 14. nóvember Munnlegur málflutningur fyrir Hæstarétti um frávísunarkröfu verjenda. 17. nóvember Frávísun hafnað í Hæstarétti. 4. desember Yfirheyrslur hefjast í sakadomi. Málflutningur sérstaks ríkissaksóknara hefst í sakadómi. Málflutningi saksóknara lýkur og varnarræður hefjast. 24. maí Málið dómtekið. 5. jlílí Dómur kveðinn upp í sakadómi Reykjavíkur. Dóminn skipa Sveinn Einarsson dómsforseti, Ingibjörg Benediktsdóttir og Arngrímur Isbergsson. Morgunblaðið/BS/PG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.