Morgunblaðið - 07.07.1990, Blaðsíða 5
Norðurlandamót í brids
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990
5
Islendingar töpuðu
fyrir Norðmönnum
Fyrsti sigur Færeyinga á Norðurlandamóti
Færeyjum. Frá Sigmundi Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BAÐAR íslensku sveitirnar töpuðu fyrir Norðmönnum í sjöttu um-
ferð Norðurlandamótsins, en spiluð er tvöföld umferð. Kvennasveitin
sem byrjaði vel á mótinu tapaði 9-21, en karlasveitin tapaði 5-25.
Það bar helst til tíðinda í þessari
umferð að Færeyingar unnu Dani
19-11 við geysilegan fögnuð heima-
manna, en þetta er fyrsti sigurieik-
ur Færeyinga á Norðurlandamóti í
brids frá því þeir hófu þátttöku í
þessum mótum.
Staðan eftir sex umferðir í karla-
flokki er sú að Svíar eru efstir með
117 stig, Norðmenn aðrir með 98
stig, Danir þriðju með 93 stig, ís-
land er með 92 stig, Finnland 89
stig og Færeyjngar reka lestina
með 41 stig. í kvennaflokki eru
Danmörk og Noregur jöfn og efst
með 112 stig, ísland er með 110,
Svíþjóð 93, Finnland 70 og Færey-
ingar eru með 29 stig.
Kársnesprestakall:
Nýr prestur
SÉRA Ægir Fr. Sigurgeirsson
nýkjörinn sóknarprestur í Kárs-
nesprestakalli var settur inn í
embætti sitt í Kópavogskirkju
þann 1. júlí af sr. Guðbrandi
Þorsteinssyni dómprófasti.
Að lokinni guðsþjónustu bauð
sóknarnefnd Kársnesprestakalls
kirkjugestum upp á veitingar á
kirkjuhlaðinu. Nutu kirkjugestir
góðra veitinga undir beru lofti í
góðu veðri.
Sr. Ægir, sem áður var sóknar-
prestur á Skagaströnd, er tekinn
til starfa í Kársnesprestakalli.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Doktorsvöm í Odda
DOKTORSVORN við heimspeki-
deild Háskóla Islands fer' fram í
dag, laugardag.
Loftur Guttormsson, lic. es lettr-
es, ver doktorsritgerð sína „Uppeldi
og samfélag á íslandi á upplýsinga-
öld“, sem heimspekideild hefur
metið hæfa til doktorsprófs.
Andmælendur af hálfu heim-
spekideildar verða dr. Ingi Sigurðs-
son, dósént, og dr. Gísii Gunnars-
son, dósent. Deildarforseti heim-
spekideildar, dr. Þór Whitehead
prófessor, stjórnar athöfninni.
Doktorsvörnin fer fram í Odda,
stofu 101, og hefst klukkan 14.
Öllum er heimill aðgangur.
Morgunblnöið/RAX
Hópurinn fylgist með Vigdísi Finnbogadóttur setja niður síðustu
birkiplöntuna. Við það naut hún hjálpar barna Þorsteins Pálssonar,
Friðriks Sophussonar og Geirs H. Haarde.
Afinælisgjöf sjálfstæðismanna til forsetans:
Settu niður sextíu
birkitré í Vinaskógi
ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna og miðstjórn gróðursettu nýlega
sextíu birkiplöntur við Þingvelli í heiðursskyni við Vigdísi Finnboga-
dóttur forseta Islands. Trén eru afmælisgjöf til Vigdísar og valdi
hún þeim sjálf stað í svonefhdum Vinaskógi í landi Kárastaða í Þing-
vallasveit.
„A sextugsafmæli Vigdísar ákv-
áðum við að senda henni kveðju og
gróðursetja dálítinn lund í tilefni
tímamótanna og í heiðursskyni við
hana. Við fórum svo austur að
planta tijám á föstudegi fyrir rúmri
viku, þingflokks- og miðstjórnar-
menn, “ segir Ólafur G. Einarsson
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
manna. Fulltrúar Skógræktarfélags
íslands, þau Hulda Valtýsdóttir og
Kristinn Skæringsson, voru í Vina-
skógi við þetta tækifæri og hafa
vísast gefið heillaráð um tijáplönt-
unina. Trén sem sett voru niður
voru milli 1,50 og 2 metrar á hæð.
Forsetinn slóst í hópinn í Vina-
skógi og setti sjálf niður síðustu
plöntuna. Að svo búnu flutti hún
stutt þakkarávarp, lýsti ánægju
með gróðursetninguna og sagðist
fáar gjafir geta hugsað sér betri.
Þá hélt Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokkins stutta tölu og
árnaði Vigdísi heilla.
Kort sem sýnir helstu framkvæmdir Vegagerðarinnar í ár með grænum hringjum. Óskir um jarðgöng
eru sýndar með rauðum hringjum.
Þriðjungi minna lagt af
bundnu slitlagi en 1989
Meiri jarðganga- og brúagerð og langur óskalisti um jarðgöng
Áherslubreytingar hjá Vegagerð ríkisins og minni fjárveitingar en
gert var ráð fyrir, hafa orðið til þess að lagning bundins slitlags í ár
er um þriðjungi minni en á síðasta ári og aðeins rúmur þriðjungur
þess sem var 1987. Þar á móti kemur að ráðist hefúr verið í ýmsar
stórframkvæmdir; m.a. jarðganga- og brúagerð, sem ekki þótti hægt
að slá lengur á frest. Verða nokkur þeirra verkefna væntanlega tilbúin
á þessu ári, og má þar nefha jarðgöng í gegnum Olafsfjarðarmúla, veg
og brýr um Kópávogslæk og Arnarnes. Að sögn Snæbjörns Jónasson-
ar, vegamálastjóra, hefur áhugi einnig aukist á jarðgangagerð og óska-
listi um jarðgöng lengst verulega.
„Því hefur verið haldið fram að
það sé stefna okkar að minnka slit-
lag en það er ekki rétt. Síðasti ára-
tugur einkenndist af gerð bundins
slitlags en af 2.240 km slitlags sem
verða á vegum landins í haust, hafa
1.630 verið lagðir á þessum áratug.
Þetta hafði það í för með sér að
haldið var að sér höndum við fram-
kvæmd ýmissa annarra verkefna,
ekki síst þeirra stærri. En það var
ekki hægt að slá slíkum verkefnum
á frest til lengdar enda var gert ráð
fyrir auknu fjármagni til vegagerðar
í vegaáætlun fyrir 1990, um 5,25
milljörðum kr. Sú flárveiting fékkst
ekki við afgreiðslu fjárlaga en þá
höfðu þegar verið boðin út eða
ákvörðun tekin um verkefni, sem
ekki var hægt að hætta við. Þessi
lækkun fjárveitingar, úr 5,25 millj-
örðum niður í 4,54 milljarða, kom
fyrst og fremst niður á almennum
verkefnum og bundnum slitlögum,"
segir Snæbjörn Jónasson.
í ár verða lagðir 108 km bundins
slitlags, fyrst og fremst á nýbygging-
ar. Segir Snæbjörn að þrátt fyrir að
slitlagskaflarnir séu ekki allir langir,
valdi þeir þó verulegum bótum. T.d.
sé unnið á 2 km kafla í Hvalfirði sem
tengi bundna kafla sem fyrir séu og
þar með sé komið bundið slitlag á
hringveginn frá Markarfljótsaurum
norður fyrir Dalsmynni eða á um 270
km. Samfelldur 140 km kafli verði
einnig frá Fornahvammi að Bólstað-
arhlíð. Lengstu malarvegskaflarnir á
hringveginum eru frá Mývatnssveit
að Fellabæ, um 170 km, og úr Öræf-
um í Suðursveit um 65 km. Auk
þess eru langir malarkaflar á stofn-
brautum utan hringvegar, sérstak-
lega á Vestfjörðum og á Norðausturl-
andi.
Helstu framkvæmdir Vegagerðar-
innar á árinu eru:
1. Vegur um Kópavogslæk og Arn-
arnes með tilheyrandi brúm.
Vonast er til að hann verði til
þess að einn mesti slysastaður á
þjóðvegakerfi höfuðborgarsvæð-
isins sé úr sögunni. Stefnt er
að því að opna hann um mitt
sumar.
2. Brú og vegur um Álftá á Mýr-
um, leysir af hólmi gamla brú
og vondan vegarkafla.
3. Brú og vegur yfir Dýrafjörð.
Styttir leiðina um 13 km frá því
sem nú er og tekur af erfiðan
snjóa- og snjóflóðastað, Ófær-
una. Væntanlega lokið 1991.
4. Strákagöng. Endurnýjun ak-
brautar og frárennslislagna.
Verður unnið í haust og verða
göngin opin fyrir umferð klukk-
utíma í senn, kvölds og morgna,
á meðan viðgerð stendur yfir.
Ekki er talið mögulegt að opna
Skarðsveg til Siglufjarðar þar
sem vegur og brýr eru illa farin
og vegur gæti teppst vegna
snjóa.
5. Ólafsfjarðarmúli. Jarðgöng sem
væntanlega komast í gagnið í
haust, stærsta verk sem nú er
unnið að.
6. -7. Áframhaldandi nýbygging
Norðurlandsvegar í Blönduhlíð
og Hörgárdal.
8. Endurbygging Norðfjarðarvegar
milli Eskifjarðar og Norðfjarðar..
9. Lögn bundins slitlags í Berufirði
og Hamarsfirði.
10. Brú á Múlakvísl og tenging við
veg. Brúin kemur í stað brúar
sem sífellt var að bila og orðin
var hættuleg þeirri umferð sem
nú er á aðalvegum landsins.
Byggingu brúarinnar nánast
lokið en eftir er að tengja hana
við veg. Lokið í haust.
Þá hefur áhugi á að leysa umferð-
ai-vanda með jarðgöngum farið sífellt
vaxandi. Að sögn Snæbjörns liggur
þó engin allshetjarlausn í gerð ganga
þar sem gerð þeirra er gífurlega
kostnaðarsöm, ábilinu 300-600 millj-
ónir á kílómetra. Nefna má nokkur
jarðgöng sem óskað hefur verið eftir:
11. Göng undir Digranesháls til að
leysa þann umferðarvanda sem
Fossvogsbraut var ætlað að
gera.
12. Göng undir Hvalfjörð. Lög voru
sett á Alþingi í maí síðastliðnum
sem heimila hlutafélagi fram-
kvæmdir við vegtengingu um
Hvalfjörð og taka gjald af um-
ferðinni til að standa undir
kostnaði við þau.
13. Tenging Önundarfjarðar, Súg-
andafjarðar og Skutulsfjarðar.
Fé var veitt til að Ijúka undirbún-
ingi þessa verkefnis í ár með það
fyrir augum að bjóða rnegi það
út í byijun næsta árs. Ekki verða
lögð sérstök gjöld á Vestfirðinga
vegna tengingarinnar. Súgfirð-
ingar hafa óskað eftir því að
lögð verði tvenn göng í stað
• einna með krossgötum, svo að
umferð liggi í gegnum bæinn.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort tekið verður tillit til þess-
ara óska.
14. Tenging Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar með tvennum göngum.
15. Tenging Vopnafjarðar og Hér-
aðs með göngum undir Búr.
16. Göng milli fjarða á Austurlandi
og tenging við Hérað. Skipuð
hefur verið nefnd fulltrúa Vega-
gerðar, íbúa og samgönguráðu-
neytis, sem leggi til hvaða firðir
tengist. Hún hefur enn ekki skil-
að áliti sínu en meðal annars
hefur verið um það rætt að Mjói-
fjörður yrði tengistaður, t.d.
milli SeyðisQarðar og Norðfjarð-
ar.
17. Göng til Vestmannaeyja.
Samanlagt eru þessi göng um 60
km löng.
Morgunblaðið/Sverrir
Unnið að malbikunarframkvæmduin á Arnarneshæð. Að sögn Sigurð-
ar Sigurðssonar hjá malbikunarstöðinni Hlaðbæ/Colas, er gerf ráð
fyrir að þeim ljúki í júlílok.