Morgunblaðið - 07.07.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.07.1990, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990 i6 TENNIS/WIMBLEDON íþróttir helgarínnar Knattspyrna Essomótið, sem er ætlað 5. flokki, stendur yfír á Akureyri og lýkur sídegis í dag. Úrslitaleikir mótsins hefjast kl. 15.30 á KA-svæðinu. Alls eru 52 lið frá 21 félagi sem taka þátt í mótinu. Pollamót eldri flokks hóft á Þórs- svæðinu á Akuryeri í gær. Mótið verð- ur framhaldið í dag og um kl. 16.00 hefjast úrslitaleikimir. Alls eru 18 lið sem taka þátt í mótinu frá 15 félögum. 1. deild kvenna I dag leika UBK og Þór frá Akur- eyri í 1. deild kvenna kl. 14.00 á Kópavogsvelli. 2. deild kvenna í 2. deild kvenna leika Valur Rf. , og Höttur á Reyðarfirði kl. 16.30 í dag. Á morgun verða eftirtaldir leik- ir; Dalvík - KS, Völsungur - Tinda- stóll, Einheiji - Austri og Þróttur N. - Sindri. 2. deild karla Á mánudagskvöld verður heil umferð í 2. deild karla. Víðir og Tindastóll eigast við í Garði, UBK og Fylkir í Kópavogi, Grindavíkingar fá Selfyss- inga í heimsókn, ÍR og KS leika á ÍR-velli og Leiftur og IBK í Ólafs- firði. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00. 3. deild Einn leikur verður í 3. deild í dag, Haukar og Reynir Á. leika á Hvaleyr- arholtsvelli kl. 14.00. Á morgun leika ÍK og TBA á Kópavogsvelli á sama tíma. Þrír leikir verað síðan á mánu- dagskvöld kl. 20.00; Þróttur R. -' BÍ, Þróttur N. - Völsungur, Dalvík - Ein- heiji. 4. deild Sjö leikir verða í 4. deild í dag, laugardag. Fjölnir og Snæfell leika á Gervigrasinu, Hafnir og Ægir í Keflavík, HK og Hveragerði í Kópa- vogi, Neisti og Kormákur á Hofsósi, Hvöt og Geislinn á Blönduósi, Austri Rf. og UMSE-b á Raufarhöfn og Magni og Narfi í Grenivík. Á morg- un, sunnudag verða fjórir leikir í 4. deild; Neisti og Sindir leika á Djúpa- vogi, Austri og KSH á Eskifirði, Stjaman og Leiknir á Staðarborgar- velli og Huginn og Valur á Seyðis- firði. Allir leikirnir hefjast kl. 14.00. Frjálsar íþróttir íslandsmótið í maraþonhlaupi fer fram á Egilsstöðum á sunnudag og hefst kl. 12.00 við Esso skálann. Keppt er í maraþoni, hálfu maraþoni, 10 km og 4 km skemmtiskokki. Lyftingar Sumarmót KRAFT í karla og kvenna- flokki fer fram í Garðaskóla í Garðabæ í dag, laugardag. Mótið hefst kl. 13.00. Golf Meistaramót golfklúbbanna fara fram um helgina og lýkur þeim flestum á sunnudag. Stefan Edberg sigraði Ivan Lendl í undanúrslitum og mætir Boris Becker í úrslitum þriðja árið í röð. Edberg fær annað tækifæri Mætir Boris Becker í úrslitaleik þriðja árið í röð eftir sigur á Ivan Lendl STEFAN Edberg færtækifæri til að svara fyrir tapið í fyrra er hann mætir Boris Becker í úrslitum Wimbledonmótsins á morgun. Becker, sem vann Goran Ivanisevic í undanúrslit- um, sigraði í úrslitaleiknum í fyrra en Edberg árið 1988 og er þetta þriðja árið í röð sem þeir mætast í úrslitum. Ivan Lendl, sem æfði í sex mánuði, sérstaklega fyrir mótið, er hinsvegar úr leik eftir tap gegn Edberg en segist ætla að reyna aftur næsta ár að ná þessum eftirsótta titli. Fyrir mótið spáðu margir því að Ivan Lendl myndi sigra. Hann ákvað að taka ekki þátt í opna franska meistaramótinu, til að und- irbúa sig fyrir Wimbledon, en keppti á mörgum minni mótum á grasi. í •einu þeirra sigraði hann Boris Beck- er í úrslitaieik og héldu þá flestir að stundin væri runnin upp; nú næði Lendl eina titlinum sem hann ætti eftir. En draumur Lendls um sigur á Wimbledon fór fyrir lítið í undanúr- slitaleiknum gegn Stefan Edberg. Svíinn lék af miklu öryggi og upp- skar sanngjarnan sigur, 6:1 7:6 og 6:3. Hann vann fyrstu lotuna á aðeins 23 mínútum en átti í vand- ræðum með næstu. Lendl hafði yfir- höndina 4:3 en réði ekki við sterka bakhönd Edbergs í lokin. í síðustu lotunni sigraði Edberg nokuð ör- ugglega, 6:3, og tryggði sér sæti í sjöunda úrslitaleik sínum á stór- móti. „Mér fannst ég ekki vera á rétt- um hraða og ég var alltaf skrefi á eftir Edberg,“ sagði Ivan Lendl eft- ir leikinn. „En ég hef ekki gefist upp og á eftir að koma hingað aft- ur næsta ár,“ sagði Lendl. „Eg er mjög ánægður jneð leik minn í dag og náði að halda press- unni allan leikinn," sagði Edberg. „Ég vona að ég nái svipuðum leik á sunnudaginn en það verður erfitt. Ég verð að taka áhættu og er tilbú- inn til þess.“ Boris Becker var lengi í gang gegn Goran Ivanisevic en sigraði 4:6 7:6 6:0 7:6. Ivanisevic kom Becker í opna skjöldu og vann fyrstu lotuna með mjög kraftmikl- um leik. Onnur lota var mjög spenn- andi og hvað eftir annað varð Beck- er að kasta sér flötum til að bjarga stigi. Hann náði þó að knýja fram sigur í oddahrinu, 7:4. í þriðju lot- unni var hinsvegar aldrei spurning, Becker hafði mikla yfirburði og sigraði í sex hrinum á átján mínút- um. Sú fjórða var jöfn en Becker sigraði í oddahrinu, eftir mistök Ivanisevics. „Hann iék mjög vel í dag og muunurinn var ekki mikill nema í þriðju lotu,“ sagði Becker. „Edberg er frábær á grasi og við höfum átt marga góða leiki. Við þekkjum hvor annan mjög vel — svo vel að við gætum líklega ieikið blindandi.“ Bein útsending hjá RÚV Ríkissjónvarpið sýnir úrslitaleiki Wimbledonmótsins í beinni útsend- ingu um helgina. í dag hefst útsend- ingin kl. 13 með leik Martinu Navratilovu og Zinu Garrison í kvennaflokki og á sama tíma á morgun hefst leikur Boris Beckers og Stefans Edbergs. Undanúrslit á Wimbledon Tölur framan við nöfnin tákna sæti á styrkleikalista mótsins: Einliðaleikur karla: 3-Stefan Edberg (Svíþjóð)— 1-Ivan Lendl (Tékkósl.)........6:1 7:6 (7:2) 6:3 2-Boris Becker (V-Þýskal.)— Goran Ivanisevic (Júgósl.) ....4:6 7:6 (7:4) 6:0 7:6 (7:5) Tvíliðaleikur karla: 2-Pieter Aldrich/Danie Visser — Javier Frana/Leonardo Lavalle.6:4 6:3 6:2 1-Rick Leach/Jim Pugh — Stefan Kruger/Greg van Emburgh.4:6 6:4 7:6 (7:2) 6:3 Tvíliðaleikur kvenna: 1-Jana Novotna/Helena Sukova—10-Patty Fendick/Zina Garrison..7:6 (7:1) 6:4 6-Kathy Jordan/Elizabeth Smylie — 3-Larissa Savsjenkó/Natalía Zvereva 6:2 7:6 (7:3) HAUKA FÉLA6AR Mætið í gróðursetninguna ó Ásvöllum í dag, laugardag, kl. 14.00. Hafið skóflur með. Nefndin. Hvaleyrarholtsvöllur Hörkuleikur í 3. deild Haukar - Reynir, Árskógsströnd ídagkl. 14.00 50 fyrstu gestirnir fá Stjörnupopp Kalfistofan Kænan, Billiardstofan, Bókabúð Olivers Fornbúðum Hjallahrauni 13 Steins Áfram Haukar — Áfram Haukar REYKJAVIKURMARAÞON - 5 VIKURTIL STEFNU Æfingaáætlun og leiðbeiningarfyrirskokkara: Kosturínn við að fylgja æf ingaáætlun er að fá aðhald SIGURÐUR P. Sigmundsson, íslandsmethafi í maraþon- hlaupi, hefur fallist á að skrifa um undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþonið fyrir Morgunblaðið og munu greinar hans birtast alla laug- ardaga fram að hlaupinu. Fyrsta gein hans fer hér á eftir. Nú eru 5 vikur þar til Reykjavíkurmaraþon fer fram. Margir skokkarar eru eflaust komnir langt í undirbún- ingi fyrir hlaupið, enda fleiri og fleiri sem skokka reglulega allt árið. Fyrir þá sem eru skammt komnir áleiðis, en viija undirbúa sig markvisst ætla ég að setja upp aifingaáætlun fyrir viku í senn í hveiju iaugardagsblaði fram að hlaupinu. Aætlunin fyrir skemmt- iskokkið er miðuð við bytjendur, en áætiunin fyrir hálfmaraþon er meira fyrir þá skokkara sem hafa einhvern bakgrunn. Rétt er að taka fram að ekki á að fara bók- staflega eftir slíkum áætlunum. Allt í lagi er að breyta aðeins vegalengdum og skiptingu á daga.. Eins verður að taka Lillit til eymsla og veikinda. Aðalatriðið er að nokkur regla sé á æfingunum þannig að uppbyggingin verði markviss. Einn kosturinn við að fylgja æfingaáætlun er einmitt sá að fá aðhaid. I.vika Skemmtiskokk 1. d. 5 kmróelga 2. d. Hvíld 3. d. 3 km rólega l.d. Ilvíld 5. d. 4 km rólegíi 6. d. HvUd 7. d. Hvfld Hálbnaraþon lOkmrólega Hvíld 0 km jafnl 8 km rólega Hvíld Bkmjarnl Hvíld Hvort æfingavikan byrjar á sunnudegi eða mánudegi skiptir ekki máli, en margir hlauparar kjósa sunnudag og lilaupa þá gjarnan lengstu vegalengd vik- unnar. Hver og einn verður að Finna sinn eigin hraða. Til leið- beiningar miða ég við að rólegt fyrir byijendur sé 6 mín. og hæg- ara pr. km, en jafnl samsvari 5 - 6 mín. pr. km. Ef enhver vill hlaupa og ganga til skiptis þá er það að sjálfsögðu í lagi. Byrjendur skyldu hins vegar ekki tvöfalda ráðlagt æfingamagn vegna þess að slíkt kanna að leiða til meiðsla. Betra er að bæta við æfingar annars konar álagi t.d. sundi ef fólk vill. Þetta fer þó allt eftir því hvaða grunn hver og einn hefur. í næstu þáttum mun ég taka fyrir einstaka þætti í undirbún- ingnum s.s. búnuð og mataræði. Með kveðju Sigurður P. Sigmundsson -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.