Morgunblaðið - 07.07.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.07.1990, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990 ÞIIMGBRÉF STEFÁN FRIÐBJARNARSON - varamenn ljósir. Jaftiréttisstj órn að einum ellefta Fleiri konur en karlar í bæj ar stj órnum Selljarnarness o g Garðabæjar INGIBJÖRG H. Bjarnason var kjörinn þingmaður árið 1922, fyrst íslenzkra kvenna, sjö árum eftir að konur öðluðust kjörgengi og kosningarétt hér á landi. Síðan hefur miðað hægt en sígandi til réttrar áttar. 25 konur aðrar hafa.verið kjörnar á þing. Að auki hafa 55 konur setið sem varamenn á þingi. Samtals hefur því 81 kona tekið þátt í þingstörfum. Aðeins 3 konur hafa gegnt ráðherra- embættum. Þrátt fyrir ellefu ráðherra í .núverandi ríkisstjórn er aðeins ein kona þeirra á meðal. Fjórtán konur sitja á Alþingi í dag: 22% þingheims. Hlutur þeirra er hótinu skárri í sveitarstjórnum: rúmlega 32%. í tveimur „hægri“ kaupstöðum, Garðabæ og Seltjarnarnesi, sitja fleiri konur en karlar í bajarstjórnum. I Konur hlutu kosningarétt og kjörgengi með stjórnarskrárbreyt- ingu 19. júní 1915. Fyrsta konan var kjörin á þing árið 1911: Ingi- björg H. Bjarnason og sat þar til ársins 1930. Hún var kjörin af sér- stökum kvennalista; gekk skömmu síðar í íhaldsflokkinn og var einn af stofnendum Sjálfstæðisflokks- ins. Sama ár og Ingibjörg lætur af þingmennsku, árið 1930, hlýtur Guðrún Lárusdóttir kosningu sem þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Hún gegnir þingmennsku til ársins 1934. Frá kjöri Guðrúnar líður rúmur hálfur annar áratugur unz kona er næst kjörin þingmað- ur, 1946: Katrín Thoroddsen fyrir Sósíalistaflokkinn. Hún sat á þingi til ársins 1949. Það ár, 1949, eru tvær konur kjörnar þingmenn: Kristín L. Sig- urðardóttir fyrir Sjálfstæðisflokk- inn og Rannveig Þorsteinsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn. Þær sitja á þingi til ársins 1953. Arið 1956 er Ragnhildur Helgadóttir kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og hefur setið þar síðan, þó ekki samfellt. Árið 1959 er Auður Auðuns kjör- in þingmaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og situr á þingi til ársins 1974. Hún er fyrsta íslenzka konan sem gegnir ráðherraembætti og fyrsta og eina konan sem gegnt hefur embætti borgarstjóra í Reykjavík. 1971 er Svava Jakobsdóttir kjör- in á þing fyrir Alþýðubandalagið, 1974 Sigurlaug Bjarnadóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, 1978 Jóhanna Sigurðardóttir fyrir Alþýðuflokk- inn, 1979 Guðrún Helgadóttir fyrir Alþýðubandalagið og Salome Þor- kelsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Níundi áratugurinn er það nálægur í tíma að hér verður látið sitja við upptalningu, en á þeim tíma bæt- ast fjórtan konur í hóp þingmanna, flestar úr Samtökum um kvenna- lista, en einnig úr Bandalagi jafn- KONUR á ALÞINGI Alþýðufiokkur 2 alþingism. 6 varaþingm. Bandalag jafnaðarmanna 2 alþingism. 1 varaþingm. Framsóknarflokkur 2 alþingism. 12 varaþingm. Sjálfstæðisf I okku r 7 alþingism. 9 varaþingm. Alþýðubandalag 4 alþingism. 14 varaþingm. Samtök um jafnrétti og félagshyggju 1. varaþingm. Borgaraflokkur 1 alþingism. 1 varaþingm. mm Kvennallsti 8 alþingism. 9varaþingm. Taflan sýnir, hvern veg konur, sem kjörnar hafa verið á þing frá því konur hlutu kosningarétt og kjörgengi, skiptast milli flokka. Kjörnir þingmenn dökkir - varamenn ljósir. aðarmanna, Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki. II Árið 1960, fjórum og hálfum áratug eftir að konur hlutu kjör- gengi, höfðu aðeins sjö konur hlot- ið kjör sem þingmenn, þar af fimm sem heyrt hafa til Sjálfstæðis- flokknum. Þá hafði engin kona haft ráðherraembætti á hendi. Það er ekki fyrr en árið 1971 að Auður Auðuns, Sjálfstæðis- flokki, verður dómsmálaráðherra í ráðuneyti Jóhanns Hafstein. Ragn- hildur Helgadóttir, Sjálfstæðis- flokki, verður síðan menntamála- ráðherra árið 1983 og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra árið 1985 í ráðuneytum Steingríms Hermannssonar. Jóhanna Sigurð- ardóttir, Alþýðuflokki, verður fé- lagsmálaráðherra 1987 í ráðuneyti Þorsteins Pálssonar og aftur 1988 í ráðuneyti Steingríms Hermanns- sonar. 75 árum eftir að konur fengu kjörgengi hafa aðeins þijár þeirra verið ráðherrar. Aðeins tveir stjórn- málaflokkar, Alþýðufl'okkur og Sjálfstæðisflokkur, hafa falið kon- um ráðherraembætti. Aðrir iiafa látið sitja við orðin tóm að þessu Förunauturinn góði eftir Reyni Eyjólfsson Mannkynið er afsprengi stjarna alheimsins: stjarnfólk. Á geimskip- inu móður jörð þjótum við óafvit- andi með aflgjafanum mikla, sól- inni, á hringferð hennar um miðju vetrarbrautarinnar með hraðanum 220 km á sekúndu. Það er því ekki. að furða þótt könnunarþrá og leit eftir hinu óþekkta sé okkur flestum í blóð borin. En auk áðurnefndrar langferðar takmarkast Ieiðir okkar enn að langmestu leyti við yfirborð plánetunnar. Þar er þó ekki í kot vísað og við íslendirígar getum státað af því að eiga heima i stórfenglegasta landi jarðar: íslandi. En til þess að auð- velda okkur að ferðast um þetta fand og rata um það þarf góða leið- sögumenn. Einn þeirra er höfundur bókaflokkins Gönguleiðir á Is- landi, Einar Þ. Guðjohnsen. Iiann hefur verið landsþekktur ferða- málafrömuður um áratuga skeið. Frekari kynning á honum er því óþörf. Hins vegar finnst mér ekki að fyallað hafi verið sem skyldi um Gönguleiðirnar. Það er tilefni þessara skrifa þótt örugglega væru margir mér miklu hæfari_ til þess. Bókin Gönguleiðir á íslandi 2. Suðvesturhornið, Reykjanesskagi (Útg. Almenna bókafélagið 1989, 94 blaðsíður) er fyrst og fremst lýsing á gönguleiðum um Reykja- nesskagann í víðustu merkingu. Henni er skipt í 6 kafla: 1. Göngu- leiðir sunnan Reykjavíkur og Hafnafjarðar. 2. Suður með sjó. 3. Sunnan á skaganum. 4 Vestan Kleifarvatns. 5. Austan Kleifar- vatns. 6. Beggja vegna Bláfjalla. AIls er um 75 gönguleiðum Iýst, sem er ekkert smáræði, en auðvitað eru möguleikarnir nær óendanlegir í því efni. Hverri gönguleið fyrir sig er lýst stuttlega; uppdrættir (kort) fylgja til glöggvunar og eru leiðirn- ar teiknaðar á þau. Bókin er í broti sem er hentugt til ferðalaga. Letrið er stórt og auðlesið, sem er mikill kostur í misjöfnu veðri. Allmargar litmyndir prýða verkið. Textinn er skrifaður á greinar- góðu máli án allra orðalenginga. „Ég hefþeg-ar farið drjúgan hluta af leiðum bókarinnar og- hefiir hún reynst mér hinn besti förunautur. Lang- flestar þessar ferðir hef ég farið einn, annað- hvort á skíðum eða á fararskjótum post- ulanna. En með bókina, áttavitann og nokkra aðra hluti í bakpokan- um er enginn maður einnáferð.“ Fjölmörg örnefni eru nefnd og áhersla lögð á jarðfræði svæðisins. Víða er vísað til Jóns Jónssonar jarðfræðings, sem manna mest hef- ur kannað það. Þá er einnig talað um ýmis söguleg og gróðurfarsleg Einar Þ. Guðjohnsen .atriði svo og hvernig landið er yfir- ferðar. Segja má, að flest sem máli skiptir fyrir ferðamannin sé tíundað. Þó sakna ég grasafræði- legra atriða en þar er sjálfsagt lyfja- fræðingurinn i mér að verki! Óll framsetning er einkar skilmerkileg og efni bókarinnar kemst því mjög vel til skila. Vönduð örnefnaskrá er aftast í ritinu. Ég hef ekki lesið bókina með því hugarfari að gera á henni einhvern sparðatíning á (prent)villum. Þó er Langhóll á Fagradalsljalli (bls. 43) sagður vera 291 m en hann er um 100 m hærri. Einnig er Kistufell í Brennisteinsijöllum (bls. 66) talið 602 m en er u.þ.b. 70 m lægra. Myndin af gjánni í Lambafelli norð- an Eldborgarhrauns er ranglega staðsett hjá kaflanum um Lamba- fell austan Bláfjalla. Allt ei-u þetta smámunir og breyta engu um gildi verksins. Ég heLþegar farið dijúgan hiuta af leiðum bókarinnar og hefur hún reynst mér hinn besti förunautur. langflestar þessar ferðir hef ég far- ið einn, annaðhvort á skíðum eða á fararskjótum postulanna. En með bókina, áttavitann og nokkra aðra hluti í bakpokanum er enginn mað- ur einn á ferð. Honum eru allir vegir færir. Og þar sannar hún ágæti sitt sem hinn góði leiðsögu- maður, svarar öllum spurningum fljótt og rétt og þegir þegar fíann er ekki spurður! Það eina sem ég hef út á bókina að setja eru kortin. Þau eru hrein hörmung. Þar er þó ekki vð höfund- inn að sakast heldur væntanlega Landmælingar Islands. Mér sýnist þetta vera nýju staðfræðikortin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.