Morgunblaðið - 07.07.1990, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JULI 1990
13
Tvíburamömmur með bama-
skara í grillveislu o g útilegu
NÆRRI tuttugu tvíburamömm-
ur og tvöfalt fleiri börn hittust
í grillveislu við félagsmiðstöð-
ina Fjörgyn í Grafarvogi í
fyrradag. Mömmuhópur með
tvíbura, sem kom alla leið úr
Grindavík, frænkur og ein
amma voru með í grillveislunni
í sólskininu á fimmtudaginn.
Og lítið hlé verður á Qörinu því
að mömmuhópur með barna-
skara ætlar í útilegu að Flúðum
um helgina. Meira að segja
pabbarnir fá að fara með.
Mömmur sem hist hafa viku-
léga á mömmumorgnum í Vitan-
um í Hafnarfirði ætla að Flúðum
og tvíburamömmur slást í förina.
Sífellt fleiri tvíburamömmur
bætast í hópinn sem hittist fyrsta
fimmtudag hvers mánaðar. Ekki
er um ýkja formlegan félagsskap
að ræða, engin félagsgjöld greidd
og fleiri mömmur alltaf velkomnar
með tvíburana sína. Annan mán-
uðinn hittast tvíburamömmur í
félagsmiðstöðinni Vitanum í
Hafnarfirði, hinn mánuðinn í
Fjörgyn í Grafarvogi. Þær koma
saman milli klukkan þrjú og fimm,
fá sér kaffi, ræða málin og bera
saman börnin sín.
Tvíburamömmur fóru að hittast
upp úr áramótum, að sögn Aðal-
heiðar Guðbjörnsdóttur í Fjörgyn.
Upphafskonurnar tvær hittust oft
í gönguferðum með börnin sín.
Þær spjölluðu saman og voru
farnar að hafa svo margt að ræða
að þær ákváðu að hittast almenni-
lega. Fleiri slógust í hópinn og
„líklega endar þetta sem lands-
samtök,“ segir Margrét Sverris-
dóttir forstöðumaður Vitans.
Tvíburarnir hafa náttúrulega
líka gaman af að hittast, þeir eru
sumir býsna smáir en aðrir orðnir
stórir og stásslegir krakkar. Verð-
andi tvíburamömmur hafa stund-
um komið á fundina. Ein þeirra
er nú orðin mamma og mætti í
grillveisluna í vikunni með
glænýja tvíbura. Ljósmyndari
Morgunblaðsins fékk að litast um
í veislunni við Fjörgyn.
Unnið af kappi á Bessastöðum;
Lokið við endur-
bætur og sögu-
safii síðla árs
Líklega byrjað á nýju íbúðarhúsi forseta snemma árs 1991
VIÐGERÐUM á ytra byrði Bessa-
staðastofú er næstum lokið. Að-
eins eru eftir tengingar við næstu
hús, en þeim var frestað vegna
heimsóknar Bretadrottningar.
Gert er ráð fyrir að Ijúka fram-
kvæmdum við Bessastaðastofu í
lok nóvember. Á fjárlögum ársins
var 200 milljónum veitt til verk-
efha á Bessastöðum, en fjárhæðin
síðan skorin niður um 50 milljón-
ir. Fyrstu 5 mánuði ársins fóru
70 miiyónir í endurbætur Bessa-
staðastofú, fornleifauppgröft í
húsagarðinum og hönnun nýs
íbúðarhúss forseta. Frumáætlun
um kostnað við endurbæturnar
hefúr verið haldin með um 7%
frávikum.
Samkvæmt lögum sem sett voru
í maí í fyrra á að ljúka öllum fram-
kvæmdum við Bessastaði á næsta
ári. Pétur Stefánsson á Almennu
verkfræðistofunni, sem umsjón hef-
4j- með framkvæmdum, segir þetta
heldur mikla bjartsýni miðað við nið-
urskurð fjárframlaga. Þó geri hann
ráð fyrir að snemma árs 1991 verði
hafist handa um byggingu nýs íbúð-
arhúss forseta og þjónustuhúss með
eldhúsi og aðstöðu fyrir starfsfólk.
Tillögur liggi fyrir frá húsameistara
ríkisins og Þorsteini Gunnarssyni
arkitekt. Akvörðunar stjórnvalda sé
að vænta innan skamms.
Reiknað er með því að gera næst
við blómaskála sunnan Bessastaða-
stofu og síðan móttökuhús. Gert er
ráð fyrir að kostnaður við þetta verði
hóflegur, 11-12 milljónir króna, að
sögn Péturs Stefánssonar.
Guðmundur Jónsson sem stjórnar
vinnu á Bessastöðum segir tvo
þröskulda hafa tafið endurbætur á
Bessastaðastofu að undanförnu,
annars vegar sumarfrí starfsmanna
og hins vegar vandfundið eikargólf.
Milli 15 og 30 menn hafa steypt og
sagað á Bessastöðum frá því fram-
kvæmdir hófust snemma árs.
Ný gólf voru sett í húsið fyrir
þremur árum og við þá vinnu fund-
ust fornleifar undir stofunni og í
garðinum. Ætlunin er að setja þær
á safn í kjallaranum undir Bessa-
staðastofu. í safninu mun gefa að
líta byggingarsögu staðarins allt frá
landnámi. Það á að opna fyrir al-
menning seint á þessu ári.
Þar sem veggir Bessastaðastofu
reyndust afar illa farnir af frost-
skemmdum var ákveðið að ráðast í
allsheijarviðgerð á húsinu. Gólfið var
tekið upp aftur og eik verður lögð
þar eins og var í upphafi. Guðmund-
ur Jónsson segir að ætlunin sé að
taka Bessastaðastofu alla undir
MorgunDiaoio/övemr
Framhlið Bessastaðastofu hefúr verið endurgerð í breyttri mynd en sama efni og fyrr.
gestamóttöku.
Bessastaðastofa er byggð úr grá-
steini en veggir límdir með sandi og
kalki. Sökklar ná 5 metra ofan í
jörðina. Gegnum tíðina hefur vatn
safnast fyrir í veggjunum og þeir
hafa að sögn Guðmundar verið meira
og minna frosnir í gegn. Vegna
þessa hefur sums staðar þurft að
taka veggina alveg niður og gaflar
hafa verið hlaðnir á nýjan leik. Nýr
kvistur hefur verið smíðaður á
Bessastaðastofu og framhlið endur-
gerð í breyttri mynd en sama efni
og fyrr.
Bessastaðastofa var byggð á ár-
unum 1761-67. Skúli Thoroddsen lét
breyta kvistum hússins rúmum
hundrað árum síðar og talsverðar
breytingar voru gerðar við eigenda-
skipti 1927. Næstu stórframkvæmd-
ir í Bessastaðastofu urðu 1940 þeg-
ar hún varð bústaður ríkisstjóra, en
eftir það var næstum ekkert átt við
húsið þar til fyrir þremur árum.
Morgunblaðið/Þorkell
Eikargólf verða nú lögð í Bessastaðastofu eins og gert var fyrir
rúmum 220 árum. Slitskálar liöfðu myndast í mið steingólfin sem
steypt voru undir 1930.