Morgunblaðið - 07.07.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JULÍ 1990
19
Lundúnayfírlýsing-in um breytt Atlantshafsbandalag:
Með samstöðu framlengj-
um við langt friðarskeið
HÉR birtist í heild yiírlýsing
leiðtogafundar Atlantshafs-
bandalagsins í Lundúnum 5.-6.
júlí 1990 um breytingar innan
bandalagsins.
1. Nýtt skeið er hafið í sögu
Evrópu, fullt fyrirheita. Ríki Mið-
og Austur-Evrópu eru að varpa
af sér oki áþjánar. Sovétríkin eru
að stíga fyrstu skrefin í átt til
fijáls samfélags. Múrarnir, sem
áður héldu fólki föngnu og hindr-
uðu fijáls skoðanaskipti, eru að
hrynja. Evrópumenn eru nú að
skapa sér örlög sjálfir. Þeir hafa
valið frelsi, fijálst efnahagskerfi
og frið. Atlantshafsbandalagið
verður að breytast og aðlagast í
samræmi við þéssa þróun.
2. Atlantshafsbandalagið hefur
verið árangursríkasta varnar-
bandalag sögunnar. Nú, þegar
fimmti áratugurinn í starfsemi
bandalagsins er að hefjast, og það
horfir fram á við til nýrrar aldar,
verður bandalagið að viðhalda
áfram sameiginlegum vörnum.
Bandalagið hefur átt mikinn þátt
í því að skapa nýja Evrópu. Enginn
getur með vissu spáð fyrir um
þróun mála í framtíðinni. Við verð-
um að standa saman og fram-
Iengja hið langa friðarskeið, sem
við höfum notið síðustu fjóra ára-
tugi. Þrátt fyrir það verður banda-
lagið að vera æ meiri hvati breyt-
inga. Það getur hjálpað til við að
leggja máttarviði samstæðari álfu
og stutt öryggi og jafnvægi með
öllum þeim styrk, sem sameiginleg
trú á lýðræði, rétt einstaklingsins
og friðsamlegri lausn deilumála
veitir. Við ítrekum það álit okkar,
að öryggi og jafnvægi eru ekki
eingöngu hernaðarlegs eðlis. Það
er ætlun okkar að styrkja pólitísk-
an þátt í starfsemi bandalagsins,
eins og gert er ráð fyrir i grein 2
í Norður-Atlantshafssáttmálanum.
3. Sameining Þýskalands þýðir
að skiptingu Evrópu er einnig lok-
ið. Sameinað Þýskaland innan Atl-
antshafsbandalagsins, bandalags
fijálsra lýðræðisríkja, og sem hluti
af æ samstæðari Evrópu, í
pólitísku og efnahagslegu tilliti,
verður óijúfanlegur þáttur þess
stöðugleika, sem er nauðsynlegur
í hjarta Evrópu. Þróunin innan
Evrópubandalagsins í átt til
pólitísks bandalags, þar á meðal
sjálfstæð þróun evrópsks öryggis,
mun einnig stuðla að einingu
bandalagsríkjanna beggja vegna
Atlantshafsins og stuðla að mynd-
un réttláts og varanlegs friðar um
alla Evrópu.
4. Við álítum, að í hinni nýju
Evrópu sé öryggi hvers ríkis óijúf-
anlega tengt öryggi nágrannanna.
Atlantshafsbandalagið verður að
verða stofnun, þar sem Evrópu-
menn, Kanadamenn og Banda-
ríkjamenn vinna saman, ekki að-
eins að sameiginlegum vör'num,
heldur einnig við að mynda nýtt
samband við allar þjóðir Evrópu.
Samfélag Atlantshafsbandalagsr-
íkjanna verður að hafa frumkvæði
að samskiptum við ríki Austur-
Evrópu, sem voru móthetjar okkar
í kalda stríðinu, og rétta fram
hönd til sátta og friðar.
5. Við munum halda áfram að
vera varnarbandalag og veija allt
landssvæði aðildarríkjanna. Við
erum ekki haldnir árásarhyggju
og skuldbindum okkur til að leysa
öll deilumál á friðsamlegan hátt.
Við munum aldrei undir nokkrum
kringumstæðum verða fyrri til að
beita valdi.
6. Aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins leggja til við ríki
Varsjárbandalagsins að gefin verði
út sameiginleg yfirlýsing þar sem
við staðfestum að við séum ekki
lengur mótheijar og ítrekum þann
ásetning okkar að við ætlum okkur
ekki að beita hótunum eða valdi
gagnvart yfirráðarétti, eða
pólitísku sjálfstæði nokkurs ríkis,
eða gera nokkuð á annan hátt, sem
ekki samræmist tilgangi og grund-
vallarreglum sáttmála Sameinuðu
þjóðanna og lokaskjali Ráðstefn-
unnar um öryggi og samvinnu í
Evrópu (CSCE). Við bjóðum öllum
öðrum CSCE-ríkjum að sameinast
um þessa yfirlýsingu um friðsam-
legan ásetning.
7. I þessum anda og til að end-
urspegla hið breytta pólitíska hlut-
verk bandalagsins, bjóðum við
Gorbatsjov forseta Sovétríkjanna
og fulltrúum annarra ríkja Mið-
og Austur-Evrópu að heimsækja
höfuðstöðvar Atlantshafsbanda-
lagsins í Brussel og ávarpa
Norður-Atlantshafsráðið. Við bjóð-
um einnig fulltrúum ríkisstjórna
Sovétríkjanna, Tékkóslóvakíu,
Ungveijalands, Póllands, Búlgaríu
og Rúmeníu að koma í höfuðstöðv-
ar bandalagsins í Brussel, ekki
aðeins til heimsóknar, heldur til
að hafa fasta sendierindreka gagn-
vart aðalstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins. Þetta mun gera okk-
ur kleift að deila með þeim þanka-
gangi okkar og fyrirætlunum á
þessum sögulegu tímum breytinga.
8. Bandalagið ætlar að leggja
fram sinn skerf til að eyða áratuga
tortryggni. Við erum reiðubúin að
auka samskipti herforingja Atl-
antshafsbandalagsins og starfs-
bræðra þeirra í ríkjum Mið- og
Austur-Evrópu á sviði hermála.
9. Við fögnum því, að Manfred
Wörner, aðalframkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins, hefur
verið boðið til Moskvu til fundar
við sovéska leiðtoga.
10. Herforingjar frá flestum
ríkjum Evrópu hittust í Vínarborg
fyrr á þessu ári, til að ræða um
hernaðarviðbúnað sinn og hernað-
arstefnu. Atlantshafsbandalagið
leggur til að annar slikur fundur
verði haldinn í haust til að stuðla
að gagnkvæmum skilnirigi. Við
hyggjumst skapa opið andrúmsloft
af alveg nýjum toga í Evrópu, og
í samræmi við það, gera samkomu-
lag um opnun lofthelgi.
11. Hin mikilvæga tilvist veru-
legs norður-amerrísks hefðbundins
herafla og bandarísks kjarnorku-
herafla í Evrópu sýnir ljóslega hin
pólitísku tengsl, sem hnýta saman
örlög Norður-Ameríkuríkja og lýð-
ræðisríkja Evrópu. En á sama hátt
og Evrópa breytist, verðum við að
breyta hugsunarhætti okkar varð-
andi varnarmál.
12. Til að minnka hernaðar-
þarfir okkar, er nauðsynlegt að
gera trausta samninga um tak-
mörkun vígbúnaðar. Þess vegna
gerum við það að forgangsverkefni
að ljúka á þessu ári hinum fyrsta
samningi til að fækka í og tak-
marka sveitir, sem bera hefðbund-
in vopn í Evrópu (CFE), ásamt því
að ljúka þýðingarmiklum áfanga
um traustvekjandi aðgerðir
(CSBM). Þessar viðræður eiga að
halda stöðugt áfram þangað til því
verki er lokið. Samt sem áður von-
umst við til að geta gengið lengra.
Við leggjum til, þegar CFE-samn-
ingurinn hefur verið undirritaður,
að framhaldsviðræður hefjist með
þátttöku sömu ríkja og með sama
umboði, væntanlega sem byggist
á því samkomulagi, sem fyrir er,
með viðaukum, þar á meðal varð-
andi aðgerðir til að takmarka
flölda hermanna í Evrópu. Með
þetta í huga munum við ganga
undir skuldbindingar varðandi
fjölda hermanna í hinu sameinaða
Þýskalandi, þegar CFE-samning-
urinn verður undirritaður.
13. Markmið okkar er að ljúka
samningaviðræðum um framhald
CFE-viðræðna og um CSBM svo
fljótt sem auðið er og leggja drög
að góðum árangri á framhalds-
fundi CSCE í Helsinki 1992. Með
því að notfæra okkur nýjar viðræð-
ur um takmörkun hefðbundins
vígbúnaðar innan ramma CSCE
munum við á tíunda áratugnum
leitast við að ná fram frekari og
víðtækri takmörkun á sóknargetu
hefðbundinna heija í Evrópu, í því
skyni að koma í veg fyrir að nokk-
ur þjóð geti haft hernaðarlega yfir-
burði umfram önnur ríki í álfunni.
Hinn sérstaki (HLTF) vinnuhópur
Atlantshafsbandalagsins mun
móta nákvæma stefnu varðandi
þessar framhaldsviðræður um tak-
mörkun hefðbundins vopnabúnað-
ar. Við munum gera þær sérstöku
ráðstafanir fyrir mismunandi land-
svæði þar sem þess er þörf til að
minnka ójafnvægi og tryggja að
öryggi ríkja sé ekki ógnað undir
neinum kringumstæðum. Við mun-
um einnig halda áfram að kanna
aðra valkosti varðandi takmörkun
vígbúnaðar og möguleika til
traustvekjandi aðgerða. Þetta er
metnaðarfull áætlun, en í samræmi
við markmið okkar, varanlegan
frið í Evrópu.
14. Samhliða því að sovéskar
hersveitir yfirgefa ríki A-Evrópu
og samningi um takmörkun hefð-
bundinna vopna verður framfylgt,
munu varnarkerfi og áætíanir
bandalagsins breytast í grundvall-
aratriðum, þar á meðal í eftirfar-
andi atriðum:
— Bandalagið mun beita
smærri endurskipulögðum
sveitum. Þessar sveitir verða
mjög hreyfanlegar og al-
hliða, þannig að leiðtogar
bandalagsins geti haft ýtr-
asta sveigjanleika til að
bregðast við hættuástandi.
Bandalagið mun reiða sig æ
meira á fjölþjóðasveitir, með
þátttöku herdeilda einstakra
ríkja.
— Atlantshafsbandalagið mun
draga úr viðbragðsstöðu
þeirra sveita, sem nú eru
reiðubúnar til átaka, minnka
þjálfunarkröfur og fækka
æfingunum.
— Atlantshafsbandalagið mun
reiða sig meira á hæfni til
að geta kallað út stærri her-
sveitir ef og þegar þeirra
væri þörf.
15. Til að viðhalda friði verður
bandalagið að hafa til reiðu í fram-
tíðinni viðeigandi blöndu af kjarn-
orkuvopnum og hefðbundnum
vopnum í Evrópu, sem endurnýjist
þegar þess er þörf. En sem varnar-
bandalag, hefur Atlantshafs-
bandalagið ávallt lagt áherslu á
það, að vígbúnaður þess muni aldr-
ei verða notaður nema í sjálfsvarn-
arskyni, og að við munum leitast
við að hafa til reiðu það stöðuga
lágmarksmagn kjarnavopna, sem
nauðsynlegt er til að koma í veg
fyrir ófrið.
16. Hinar pólitísku og hernað-
arlegu breytingar í Evrópu, og
útlit fyrir frekari breytingar, gera
viðkomandi bandalagsríkjum kleift
að ganga lengra. Þau munu þann-
ig breyta og aðlaga verkefni og
fælingarhlutverk kjarnorkuherafla
síns. Þau hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að sem afleiðing af
nýjum pólitískum og hernaðarleg-
um aðstæðum í Evrópu, minnki
hlutverk skammdrægustu kjarn-
orkuvopna verulega. Þau hafa sér-
staklega ákveðið að bandalagið
muni, þegar samningaviðræður um
skammdræg kjamavopn heijast,
bjóða það, að öllum kjarnaskot-
hleðslum bandalagsins í Evrópu
verði eytt, fallist Sovétríkin á að
gera slíkt hið sama.
17. Nýjar samningaviðræður
milli Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna um takmörkun skamm-
drægra kjarnavopna ætti að geta
hafist fljótlega eftir að CFE-sam-
komulagið hefur verið undirritað.
Viðkomandi bandalagsríki munu
þróa hugmyndir um takmörkun
vígbúnaðar fyrir þessar samninga-
viðræður, þar sem tekið verður til-
lit til skilyrða okkar varðandi mun
færri kjarnavopn og minnkandi
þörf á skammdrægustu kjarna-
vopnunum.
18. Að lokum munu viðkomandi
bandalagsríki, samhliða algerum
brottflutningi sovéskra sveita frá
ríkjum A-Evrópu og því að CFE-
samkomulagið kemst í gagnið,
styðjast minna við kjarnavopn.
Kjarnavopn munu halda áfram að
gegna lykilhlutverki í þeirri heild-
ai-varnarstcfnu bandalagsins að
hindra ófrið með því að tryggja
að undir engum kringumstæðum
megi útiloka notkun kjarnavopna'
til að veijast árás. Samt sem áður
munu viðkomandi ríki geta mótað
nýja varnarstefnu Atlantshafs-
bandalagsins, í samræmi við
breyttar aðstæður í Evrópu, þar
sem beiting kjarnavopna yrði
langsíðasti valkosturinn.
19. Við samþykkjum það um-
boð, sem gefið var fastaráði Atl-
antshafsbandalagsins til að stjórna
þeim breytingum, sem nú fara
fram á bandalaginu. Ráðið skal
gefa skýrslu um niðurstöður sínar
sem fyrst.
20. í samræmi við þessar end- •
urskoðuðu varnaráætlanir og
vígbúnaðartakmarkanir, og sam-
kvæmt ráðleggingum hermálayfir-
valda Atlantshafsbandalagsins og
allra viðkomandi aðildarríkja mun
Atlantshafsbandalagið gera nýjar
sameiginlegar vamaráætlanir,
sem felast í því að hverfa frá fram-
varnarstefnu þar sem það á við
og innleiða minni framvarnir og
breytt „sveigjanleg viðbrögð,“ til
að endurspegla minni áherslu á
kjarnavopn. I því sambandi mun
bandalagið þróa nýjar varnaráætl-
anir, í samræmi við hinar bylting-
arkenndu breytingar í Evrópu.
Atlantshafsbandalagið mun einnig
skapa vettvang fyrir samráð
bandalagsríkja um komandi samn-
ingaviðræður um skammdræg
kjarnavopn.
21. Ráðstefnan um öryggi og
samvinnu í Evrópu (CSCE) mun
gegna veigameira hlutverki í
framtíð Evrópu og hnýta ríki Evr-
ópu og Norður-Ameríku fastari
böndum. Við styðjum það, að
CSCE-leiðtogafundur verði hald-
inn í París á þessu ári, þar sem
undirritað yrði CFE-samkomulagið
og nýir mælikvarðar yrðu settir
varðandi stofnun og viðhald
fijálsra samfélaga. Það ætti að
staðfesta meðal annars:
— CSCE-grundvallarreglur um
réttinn til fijálsra og heiðar-
legra kosninga.
— CSCE-skuldbindingar til að
virða og viðhalda lögum og
rétti.
— CSCE-leiðbeiningar til að
styrkja efnahagssamvinnu,
sem byggir á þróun fijáls og
samkeppnisfærs markaðs-
kerfis, og
— CSCE-samvinnu um um-
hverfisvernd.
22. Við leggjum ennfremur til
að CSCE-leiðtogafundurinn í París
ákveði, hvernig CSCE, geti orðið
formlegur vettvangur fyrir víðtæk-
ari pólitískar umræður í Evrópu.
Við mælum með því að CSCE-
ríkisstjórnir komi eftirfarandi á
fót:
— Áætlun um reglulegt samráð
á milli leiðtoga og ráðherra
ríkisstjórna aðildarríkja að
minnsta kosti einu sinni á
ári, auk annarra reglulegra
funda embættismanna til að
undirbúa og fylgja samráð-
ipu eftir.
— Áætlun um CSCE-ráðstefnur
annað hvert ár, til að vega
og meta framþróun í átt til
fijálsrar og heilsteyptrar
Evrópu.
— Fámennu skrifstofuhaldi
CSCE, til að samræma þessa
fundi og ráðstefnur.
— CSCE-eftirlitsnefnd, til að
fylgjast með fijálsum kosn-
ingum í öllum CSCE-ríkjun-
um á grundvelli Kaupmanna-
hafnarskjalsins.
— CSCE-miðstöð með það hlut-
verk að hindra átök sem yrði
vettvangur fyrir skipti á
hernaðarlegum upplýsing-
um, einnig sem vettvangur
viðræðna um óvenjuleg her-
mál og lausn deilna, sem
snerta CSCE-ríkin, og
— CSCE-þingstofnun, þings-
amkundu Evrópu, sem
grundvallist á þingi Evrópu-
ráðsins í Strasborg, með full-
trúum allra aðildarríkja
CSCE.
Staðsetning þessara nýju stofn-
ana á að endurspegla þá staðreynd
að hin nýju lýðræðisríki í Mið- og
Austur-Evrópu eru hluti af
pólitísku skipulagi hinnar nýju
Evrópu.
23. í dag hefst mikil umbreyt:
ing Atlantshafsbandalagsins. í
samvinnu við öll ríki Evrópu erum
við ákveðnir i því að skapa varan-
legan frið í álfunni.
REUIER
Nolkun kjarn-
orkuvopna
lýst sem
örþrifaráöi
Alvktun leiötoaafundar NATO
| •’-ríV-.’Í
iáM
Gorbatsjov Herafli sam- Formleg Allar kjarnorku- Ríki NATO og
boðið að einaðs Þýska- friðar- hleðslur fyrir Varsjárbanda-
ávarpa leið- lands verði yfirlýsing fallbyssur og lagsins undir-
togafund takmarkaður stórskotavopn riti sameigin-
NATO verði fjarlægðar lega griðayfir-
úr Evrópu lýsingu