Morgunblaðið - 07.07.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JULI 1990
Esso-mót KA:
Prúðasta liðið í fyrra
stefiiir að sigri núna
„VIÐ stefnum auðvitað að því að vinna mótið,“ sögðu krakkarnir
úr Huginn á Seyðisfirði, en þau taka þátt í Esso-móti KA. A mótinu
í fyrra urðu þau í 9. sæti. Mótið hófst á fimmtudag og því lýkur í
dag. Þetta er stærsta mót sem lialdið er í einum aldursflokki hér
á landi, en þátttakendur og starfsmenn eru um 800.
Tíu krakkar komu frá Seyðisfirði
til að spila á mótinu, þau höfðu
leikið tvo leiki þegar spjaliað var
við þau í gær, báðir leikirnir voru
við Reykjavíkurlið. Huginn vann
Fram 1:0 og gerði jafntefli við
Þrótt 2:2.
„Við stefnum að því að vinna
stóran sigur á þeim liðum sem við
eigum eftir að spila við,“ sögðu
krakkarnir glaðbeittir, en m.a. áttu
þeir eftir að leika gegn Leikni frá
Reykjavík og Völsungi frá Húsavík.
í liði Hugins eru tvær stúlkur og
einnig er stúlka með í liði Völs-
unga, en í öðrum liðum eru einung-
is strákar, að sögn leikmanna Hug-
ins.
Á síðasta móti hlaut lið Hugins
bikar fyrir prúða framkomu. „Við
vorum prúðasta liðið í fyrra og við
höfum mikinn hug á að verða það
líka á þessu móti. Því miður erum
við búin að fá eitt gult spjald, en
fengum ekkert í fyrra, það er dá-
lítið óheppilegt."
Alls taka 52 lið þátt í mótinu
og leiknir verða 152 leikir á fjórum
völlum.
Þórsarinn Rúnar Freyr um það bil að skora fyrsta marks Þórs
af þremur í leik gegn Breiðablik frá Kópavogi í gær, en leiknum
lauk með sigri Þórs 3 mörk gegn 1. En á myndinni efst til vinstri
eru leikmenn Hugins frá Seyðisfirði, í efri röð frá vinstri: Jóhann
Steinar, Páll Sigurgeir, Reynir Logi og Hjalti Þór og í neðri
röðinni eru, Davíð, Hrönn, Heimir og Gunnar Axel, en á myndina
vantar þau Einar og Kolbrúnu Láru.
Kaupfélag Eyfirðinga
á Dalvík:
7 0 ára af-
mælisveisla
Dalvík.
í TILEFNI af 70 ára afmæli Úti-
bús Kaupfélags Eyfirðinga á
Dalvík var viðskiptavinum félags-
ins boðið til grillveislu fyrir
skömmu. Starfsmenn Svarfdæla-
búðar, verslunar kaupfélagsins,
kveiktu upp í stóru útigrilli og
steiktu þar svínakjöt og pylsur og
jafnframt gátu menn gætt sér á
fiski frá frystihúsi félagsins.
Útibú Kaupfélags Eyfirðinga hóf
formlega starfsemi sína árið 1920
og fyrsti útibússtjórinn var Jóhann
Jóhannsson í Sogni á Dalvík. Eins
og víðar í plássum út um land varð
kaupfélagið fljótlega stærsti verslun-
ar- og atvinnurekandinn á staðnum
og er svo enn. Félagið hefur í tímans
rás aukið mjög umsvif sín á Dalvík
og rekur þar stóra matvöruverslun,
útgerð og fiskvinnslu og marghátt-
aða þjónustustarfsemi.
Miklar breytingar hafa drðið á
starfsemi félagsins á þessum árum
og hefur áherslan færst frá landbún-
aði yfir til sjávarútvegs. Félagið hef-
ur um langt skeið verið hjluthafi í
Útgerðarfélagi Dalvíkinga ásamt
Dalvíkurbæ, en nú hefur verið geng-
ið _svo frá að félagið kaupi allan hlut
í Útgerðarfélaginu.
Útibússtjóri Kaupfélags Eyfirð-
inga á Dalvík er Rögnvaldur S. Frið-
björnsson.
Fréttaritari
Sumarhús f Hrfsey
Til leigu er sumarhús í Hrísey frá 4.-11. ágúst.
Upplýsingar í síma 96-61745.
20 milljóna króna hagnaður hjá Sæplasti:
Hlutafé verður aukið og það
boðið á almennum markaði
Margar gerðir
Sýnd á Seltjarnarnesi v/Bygggarða.
Sýningarhús okkar til sölu og afhendingar í lok
júlí. Fullbúið hús á mjög góðu verði. Allar upplýs-
ingar ísímum 91-612400 og 96-26449.
Söluaðilar:
Lundi hf., BYNOR,
Bygggörðum 7, Seltj.
Sími612400.
Akureyri.
Sími 96-26449.
Opið um helgina frá
kl. 14.00-17.00 og næstu helgar
Útflutningur kara hefur aukist um nær helming frá síðasta ári
Dalvík
MJÖG góð afkoma varð af rekstri
Sæplasts hf. á Dalvík á síðasta
ári. Þrátt fyrir að framleiðsla fyr-
irtækisins liafi verið heldur minni
en árið 1988 varð rekstrarhagnað-
ur þess um 20 milljónir króna. Á
aðalfundi félagsins sem haldinn
var í gær voru gerðar breytingar
á samþykktum félagsins þess efn-
is, að opna það og jafnframt að
auka hlutafé í félaginu um 19 millj-
ónir króna og bjóða það út á al-
mennum markaði.
Sæplast hf. framleiðir fiskikassa
og bretti úr plasti og hefur verið
starfrækt á Dalvík frá árinu 1984.
lljá fyrirtækinu störfuðu að meðal-
tali 19 starfsmenn á síðastliðnu ári
og 9 starfsmenn á Akureyri, en þar
starfrækli fyrirtækið húseininga-
framlciðslu, svonefndar Barkar-ein-
ingar. Á síðasta ári seldi Sæplast
þessa verksmiðju ásamt tækjum og
búnaði til Yl-eininga hf. í Biskups-
tungum og eignaðist jafnframt þriðj-
ung hlutafjár í því fyrirtæki.
Á þessu ári keypti félagið Plast-
Áshildur Haraldsdóttir ílautu-
leikari og Love Derwinger halda
tónleika í sal Tónlistarskólans á
Akureyri næstkomandi mánu-
dag, 9. júlí kl. 20.30.
Á tónleikunum verður flutt
frönsk tónlist fyrir flautu og píanó,
sem þau munu leika inn á geisla-
disk í Svíþjóð innan skamms. Leik-
in verða verk eftir Fauré, Gaubert,
Dutilleux, Poulenc og Doppler, en
Kristín Guðmundsdóttir kemur
Pétur Reimarsson, framkvæmda-
sljóri Sæplasts hf., og Friðrik
Vilhelmsson, verkstjóri.
einangrun hf. á Akureyri sem fram-
leitt hefur trollkúlur og fiskikassa
og hyggst nú flytja þá verksmiðju
til Dalvíkur smám saman í húsnæði
fyrirtækisins þar. í samtali við Morg-
fram sem gestur í því verki sem
er fyrir tvær flautur og píanó.
Áshildur lauk burtfararprófi frá
Tónlistarskóla Reykjavíkur og hef-
ur síðan numið í Boston og í New
York, hún hefur komið fram á fjölda
tónleika innanlands sem utan og
unnið til fjölda verðlauna. Love
Drewinger er fæddur í Svíþjóð,
hann lauk einleikaraprófi frá tón-
listarakademíunni í Stokkhólmi og
hefur komið.fram ^em einleikari og
undíríeikari víðá.
unblaðið sagði Pétur Reimarsson,
framkvæmdastjóri Sæplast, að stefnt
væri að því að flytja framleiðslu
kúlnanna nú í haust til Dalvíkur, en
ekki væri enn ljóst hvert framhaldið
yrði á um framleiðslu fiskikassanna.
Það mál væri enn í athugun. Jafn-
framt væri verið að skoða hvort
hægt yrði að hefja framleiðslu á
síldartunnum sem Plasteinangrun
hafði hafið framleiðslu á, en bæta
þyrfti út tækjakosti ef það ætti að
vera mögulegt.
Góðar horfur eru á rekstri Sæ-
plasts á þessu ári því á fyrri helm-
ingi ársins hefur orðið nokkur aukn-
ing í framleiðslu. Munar þar mestu
um framleiðslu á markaði erlendis,
en útflutningur á körum hefur aukist
um nær helming frá síðasta ári.
Á aðalfundi félagsins voru sam-
þykktar breytingar á samþykktum
félagsins þess efnis að opna félagið
í samræmi við breytingar á lögum
um hlutafélög. Þetta þýðir að engar
viðskiptahömlur verða lagðar á með-
ferð hlutabréfa í félaginu milli
íslenskra aðila og forkaupsréttar-
ákvæði félagsins og hluthafa eru
afnumin. Þá var samþykkt tillaga
þess efnis að ekki þurfi lengur sam-
þykkt hluthafafundar til kaupa og
sölu fasteigna eða annarra meirihátt-
ar ákvarðana heldur séu slíkar
ákvarðanir teknar af stjórn félagsins
á hverjum tíma.
Á fundinum var borin upp tillaga
þess efnis, að gefa út jöfnunarhluta-
bréf af áður útgefnum bréfum og
jafnframt að auka hlutafé með út-
gáfu nýrra hlutabréfa í 50 milljónir
króna. Hugmyndin er að bjóða nýtt
hlutafé á almennum hlutafjármark-
aði. Ný stjórn var kjörin en formaður
stjórnar er Matthías Jakobsson og
framkvæmdastjóri Pétur Reiniars-
son.
Fréttaritari
Frönsk tónlist fyrir flautu og
og píanó í Tónlistarskólanum