Morgunblaðið - 07.07.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JULI 1990
25
Minning:
Helma Markan
Frú Vilhelmína Markan, fyrrum
starfsmaður í Stjórnarráði íslands,
lést hér í Reykjavík 19. júní sl. eft-
ir þriggja ára vanheilsu. Var hún
borin til grafar hinn 26. júní.
Viljum við, fyrrum samstarfskon-
ur hennar, minnast hennar nokkr-
um orðum.
Vilhelmína, eða Helma, eins og
hún var alltaf kölluð, fæddist 18.
maí 1911 í Stykkishólmi, yngst
þriggja dætra hjónanna Ingólfs
Jónssonar, verslunarstjóra í
Tangs-verslun, og Kristínar Samú-
elsdóttur Richter. Bemskuárunum
eyddi hún í Stykkishólmi, en fluttist
síðan ásamt foreldrum sínum til
Reykjavíkur, þar sem hún lauk
gagnfræðiprófi í Menntaskólanum
í Reykjavík, vorið 1928.
Árið 1928 réðst Helma sem rit-
ari á skrifstofu forsætisráðherra,
þar sem hún starfaði til ársins 1931.
Þá færðist hún í atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytið og starfaði
þar óslitið til ársins 1970, þegar
breyting á skipulagi stjórnarráðsins
kom til framkvæmda og atvinnu-
og samgöngumálaráðuneytinu var
skipt í fleiri ráðuneyti. Þá fylgdi
hún landbúnaðarráðuneytinu. Þar
starfaði hún fram á árið 1979. Alls
náði starfsaldur hennar í stjórnar-
ráðinu 51 ári, og mun það vera eins-
dæmi.
Ung að árum kynntist Helma
listamanninum Einari Markan,
söngvara, sem hún seinna giftist,
og honum helgaði hún líf sitt. Einar
lést árið 1973, og næstu árin eftir
lát hans beitti hún sér fyrir útgáfu
á hljómplötu með söng hans og
nótnabók með lögum eftir hann.
Lengst af bjó Helma í sama húsi
og systir hennar, Soffía. Eftir að
þær systur voru orðnar ekkjur
höfðu þær stuðning hvor af ann-
arri, og annaðist Soffía yngri systur
sína í veikindum hennar svo lengi
sem hún gat. Einkasonur Soffíu,
Sigvaldi Friðgeirsson, reyndist
Helmu einstaklega vel fyrr og síðar,
og hafði hún mikla ánægju af sam-
vistum við hann og dætur hans.
Nú, þegar Helma er horfin yfir
móðuna miklu, er okkur sem störf-
uðum með henni mikill vandi á
höndum, þegar við setjum þessi orð
á blað, svo miklir voru mannkostir
hennar. Starf sitt leysti hún fljótt
og vel af hendi og var jafnframt
ákaflega þægileg í samstarfi, elsku-
leg, kurteis, hjálpsöm og ósérhlífín,
einstaklega samviskusöm og skipti
aldrei skapi. Ekki gerði hún sér
mannamun, heldur kom fram við
alla með sama ljúfa viðmótinu og
heyrðist aldrei leggja illt orð til
nokkurs manns né ætla öðrum illt.
Eftir að Helma hætti störfum
hélt hún tryggð við okkur, fyrrum
samstarfsmenn, og kom gjarnan í
heimsókn um kaffileytið, færandi
hendi.
Einhveijum sem les þessar línur
þykir hér ef til vil fast að orði kveð-
ið um mannkosti Helmu. Þeir sem
til þekkja vita að hér er ekkert of-
sagt.
Ragnheiður, Þuríður
og Guðmunda.
GuðmundurJ. Magnús
son - Minningarorð
Fæddur 26. maí 1914
Dáinn 21. júní 1990
Mig langar að minnast Guð-
mundar Jóhanns Magnússonar,
mágs míns, með fáeinum orðum.
Hann fæddist og ólst upp í Grafar-
koti í Stafholtstungum og átti þar
heimili fram til ársins 1944, að
hann flyst til Reykjavíkur og
kvæntist þar unnustu sinni, Hall-
dóru Magnúsdóttur frá Stapaseli.
Þau eignuðust tvær dætur, Svölu,
búsetta á Eskifirði, og Magneu
Sigríði, búsetta í Reykjavík.
Guðmundur vann í mörg ár hjá
Pósti og síma og var þá mótorhjól
farartækið. En síðar hóf hann störf
hjá Eimskip og ók þá vöruflutn-
ingabíl allt fram til ársins 1985,
að hann var 70 ára, en þá verða
víst flestir að hætta störfum.
Guðmundur átti við vanheilsu að
stríða síðustu árin og naut þá um-
hyggju sinnar góðu konu, sem og
alla tíð.
Guðmundur hafði gaman af
ferðalögum og á hveiju sumri var
lagður vegur undir bíl og farið vítt
og breitt um landið.
En seinni árin, er heilsan leyfði
ekki löng ferðalög, þá var Borgar-
fjörðurinn látinn duga og var þá
farið í Krummaklett. Eftir að við
hjónin fórum að vera í Grafarkoti,
sem við höfum gert upp sem sumar-
hús, komu þau hjónin og dvöldu
hjá okkur í nokkra daga. Og árleg-
ar urðu ferðirnar í Munaðarnes og
dvalið þar í viku seinni part sum-
ars. En nú verða ekki fleiri ferðirn-
ar í Borgaríjörðinn.
Ég vil þakka góða vináttu í gegn-
um árin og kveð hann Munda með
þessum ljóðlínum.
Kvöldið er fagur, sól er sest,
og sefur fugl á grein.
Áslaug Magnúsdóttir
+
Mágkona okkar,
SIGRID VÁGENES GUÐBJARTSSON,
lést í Noregi 29. maí sl.
Guðbjörg Guðbjartsdóttir,
Ingibjörg Halldórsdóttir.
t
Föðursystir okkar,
INGIBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR,
er andaðist á heimili, sinu Gunnlaugsgötu 4, Borgarnesi, 2. júlí,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 10. júlíkl. 14.
Steinunn Geirsdóttir,
Geirdís Geirsdóttir,
Þorleifur Geirsson.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
GUNNAR A. MAGNÚSSON
klæðskeri og kaupmaður,
lést á elliheimilinu Grund þann 29. júní sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Tryggvi Gunnarsson, Sigrún Marelsdóttir,
Stefán G. Gunnarsson, Torill Hernes,
Berglind Gunnarsdóttir, Gunnar Skarphéðinsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR SIGGEIRSSON
frá Baugsstöðum,
Huldubraut 13,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 9. júlí kl.
13.30.
Halldóra Guðmundsdóttir,
Guðrún Þ. Guðmundsdóttir,
Guðmunda Siggeirs Ingjaldsdóttir, Jóhann Vilhjálmsson
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
MARGRÉTAR ÞORGEIRSDÓTTUR,
Foldahrauni 40,
Vestmannaeyjum.
Yngvi Geir Skarphéðinsson, Erla Sigþórsdóttir,
Guðfinna Guðfinnsdóttir, Óðinn Haraidsson,
Guðfinnur Þorgeirsson, Valgerður Eyjólfsdóttir
og barnabörn.
Þurrkur
áSnæ-
fellsnesi
Borg í Miklaholtshreppi.
EINSTÖK veðurblíða hefiir verið
hér síðastliðinn hálfan mánuð.
Sláttur er nú víðast hvar hafinn
en grasvöxtur er í knappara lagi,
þurrkar hafa háð sprettu.
Þó er þetta dálítið misjafnt, einn
bóndi hér í sveit, Guðbjartur Alex-
andersson í Miklaholti, kláraði fyrri
slátt 30. júní og spretta var allgóð
hjá honum. Verkar hann allt sitt
hey í rúllur.
Þar sem grunnur jarðvegur er
eru tún byrjuð að brenna. Mikill
ferðamannastraumur hefur verið
hingað undanfarið enda veðrið með
afbrigðum gott. Snæfellsnes með
jökul konung sinn býður upp á fjöl-
breytt landslag sem gleður auga
ferðamannsinsi og ekki síst í sól og
yi.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDURJ. MAGNÚSSON,
Bólstaðarhlíð 16,
lést fimmtudaginn 21. júni. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Halldóra Magnúsdóttir,
Megnea Guðmundsdóttir, Jóhann Gilbertsson,
Svala Guðmundsdóttir, Már Hólm
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
BJARNI EINARSSON
frá Varmahlíð,
Furugrund 68,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 10. júlí
kl. 13.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
María Sigurjónsdóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Arndís Bjarnadóttir, Pétur Már Pétursson,
Einar Sigurjón Bjarnason, Elín Þóra Sverrisdóttir,
Guðrún Björk Bjarnadóttir, Páll R. Guðmundsson,
Ásmundur Bjarnason, Jóhanna Walderhaug,
barnabörn og systkini hins látna.
ttiy lt.SHifJfXM u 1 i I i ) i . ‘
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HALLDÓRS ÞORSTEINSSONAR
frá Hallgiisstöðum á Langanesi.
Helga Gunnlaugsdóttir,
Jörgen Þór Haildórsson, /
Halldóra Halldórsdóttir,
Jóhanna Margrét Halldórsdóttir,
Guðmundur Halldórsson,
Arnþrúður Halldórsdóttir,
Þorsteinn Halldórsson,
Stefania Halldórsdóttir,
Daníel Halldórsson
og barnabörn.
Hrefna Kristbergsdóttir,
Baldur Sigfússon,
Sigurður Skúlason,
Anna Kristfn Björnsdóttir,
+
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýiiduð
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
HELGU TÓMASDÓTTUR,
Hrafnistu, Reykjavik,
áður til heimilis á Digranesvegi 62,
Kópavogi.
Við þökkum jafnframt alla hjúkrun,
umhyggju og alúð sem henni var sýnd.
Árni Kr. Hansson
Björg Árnadóttir,
Ingibjörg Árnadóttir,
Ragnheiður Árnadóttir,
tengdasynir, barnabörn
og barnabarnabörn.
witMwfTOwwmintiimf wMgnmimiiititf»nrBnW
r -