Morgunblaðið - 07.07.1990, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990
27
Bergur Atlason,
Seyðisfírði — Minning
Fæddur 21. febrúar 1972
Dáinn 1. júlí 1990
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinarskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Við viljum minnast í fáum orðum
vinar okkar og bekkjarfélaga Bergs
Atlasonar sem skyndilega hefur
horfið úr lífi okkar allra. Fregnin
um lát hans kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti og tilhugsunin um
að við eigum aldrei eftir að sjá
hann framar vekur okkur til um-
hugsunar um hvers virði lífið er.
Þau voru ekki mörg árin sem við
fengum að njóta samvista við Berg
en eru þó eftirminnileg. Minningar
hrannast upp, góðar minningar sem
sefa sorgina.
Fyrstu kynni okkar af Bergi voru
þegar hann flutti hingað til Seyðis-
fjarðar árið 1984. Hann var auð-
veldur í umgengni og gekk vel í
skóla. Hann hóf nám í menntaskól-
anum á Egilsstöðum haustið 1988
eftir að hafa lokið námi í grunn-
skóla. Þijú síðustu sumur stundaði
hann sjómennsku með föður sínum
og beindust aðaláhugamál hans að
sjónum. Hann átti sina eigin skútu
sem var gjöf frá foreldrum hans
og það sást oft til hans á henni í
firðinum. Útivist og ferðalög voru
einnig stór þáttur í lífi- hans, sem
dæmi um það gekk hann ásamt
félögum sínum frá Seyðisfirði til
Loðmundarfjarðar sumarið 1988.
Þetta er mikill missir og stórt
skarð sem hefur myndast í vinahóp
okkar sem ekki verður hægt að
fylla. Á litlúm stað eins og Seyðis-
firði lamast allt líf þegar svona
ungur og glaðlegur drengur í blóma
lífsins er tekinn frá okkur allt of
snemma.
Að lokum viljum við þakka fyrir
þau ár sem við fengum að njóta
samvistar við Berg og sendum um
leið samúðarkveðjur tii Atla, Krist-
jönu, Rósu, Ásgeirs, Trausta og
allra ættingja og vina í von um að
þessi fátæklegu orð hjálpi ykkur
að takast á við sorgina og erfiðleik-
ana sem framundan eru.
Hrafnliildur, Begga, Jói,
Smári, íris Brynja, Villi,
Iris Björg, Hulda, Svavar,
Valgeir, Hafþór, Vigfús,
Svenni og Þröstur.
Bergur okkar var alveg sérstak-
ur. Honum fylgdi svo mikil ró og
friður að við fundum ávallt fyrir
nærveru hans eins og við munum
alltaf gera. Hann hafði þann eigin-
leika að þegar við komum í hús þar
sem hann var mátti finna fyrir
nærveru hans á andrúmsloftinu.
Allt fylltist ró og hlýju og maður
gleymdi í einni svipan áltyggjum
og amstri dagsins. Hann var góður,
viðkvæmur og svo fallegur að mað-
ur gat gleymt sér við það eilt að
horfa á ltann.
Á Bestó þar sem fundum okkar
bar oftast santan, sást oft glitta í
fallega brúnar stjörnur þar sem
hann hvarf næstum því á bak við
háa stafla af brauði með rúllupylsu
en það var hans uppáhald og var
alltaf passað vel að eiga nægar
birgðir þegar von var á Bergi. Þær
voru líka ófáar poppskálarnar sem
amma bar upp til okkar og hafðj
Bergur alltaf betur í slagnum um
hver fengi mest enda annálaður
poppunnandi.
Bet'gur var grúskari í eðli sínu.
Er minnisstæðust efnafræðitiiraun
sem við gerðum saman og kveiktum
næstum því í nýju eldhúsgardínun-
um hennar ömmu. Gat hann einnig
legið tímunum saman við maura-
þúfu og fylgst með.
Söknuðurinn er sár og hvert sem
við föruttt munu tvær fallegar brún-
ar stjörnur lýsa veginn okkar.
Arndís Bergsdóttir,
Gerða Friðriksdóttir og
Ama Friðriksdóttir
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
UM RUTLAND
UU þéttiefni
Á ÞÖK - VEGGI - GÚLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
F F I. A G S S T A R F
Gróðursetning
Hin árlega, geisivinsæla gróðursetning sjálfstæðismanna í Kópavogi
fer fram laugardaginn 7. júlí kl. 15.00 (neðan við Kiwanishúsið í
Kópavogi).
Dagskrá.
1. Kl. 15.00-17.00: Gróðursetning.
2. Frá kl. 17.00 hefst grillveisla að hætti koníaksdeildar Týs. Grill-
meistari verður doktor Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs.
Skenkjari: Helgi Helgason, formaður Týs.
3. Halldór Jónsson, formaður fulltrúaráðsins og Guðni Stefánsson,
forseti bæjarstjórnar spila á nikkur fram eftir kvöldi.
Sjáumst hress.
Sjálfstæöisfélögin i Kópavogi.
Sumarferð Varðar
laugardaginn 14. júlí
Landmannalaugar
Þjórsárdalur/Landmannalaugar/Dómadalur/Galtalækjarskógur.
Sumarferð Landsmálafélagsins Varðar verður farin laugardaginn 14.
júlí nk. Feröin er dagsferð. Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 08.00
og áætlað að koma aftur til Reykjavíkur um kl. 20.00.
Áningarstaðir:
Árnes í Þjórsárdal
Ávarp: Davið Oddsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Aðaláningarstaður:
Landmannalaugar
(ekið.íil baka um Dómadal ef færö leyfir).
Ávarp: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Galtalækjarskógur
Aðalfararstjóri: Höskuldur Jónsson, forseti Ferðafélags íslands.
Miðaverð: Fullorðnir kr. 1.800, börn (5-14 ára) 700 kr.
Ætlast er til að ferðalangar taki með sér .allt nesti.
Miðasala fer fram í Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá
kl. 9-16 daglega.
Allar upplýsingar og miðapantanir í síma 82900. Tryggið ykkur miða
tímanlega.
Akureyri - Akureyri
Bæjarmálafundur verður haldinn í Kaupangi við Mýrarveg mánudag-
inn 9. júlí kl. 20.30. Áríðandi er að nýskipaðir nefndarmenn og vara-
menn í nefndum mæti.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksis.
Wélagslíf
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Sunnudagsferðir 8. júlí
1. Kl. 8.00: Þórsmörk, eins-
dagsferð. Kynnist Mörkinni í
sumarskrúða. Verð 2.000,- kr.
(hálft gjald fyrir 7-15 ára). Stans-
að 3-4 klst.
2. Kl. 10.30: Hengill —
IMesjavellir. Góð fjallganga á
Skeggja yfir í Grafning. Verð
1000,- kr.
3. Kl. 13.00: Marardalur-
Línuvegurinn Gengið um fal-
legan hamradal vestan Hengils
yfir á Línuveginn á Nesjavelli.
Ekið heim um Linuveginn (nýja
Nesjavallaveginn). Verð 1000,-
kr. Frítt fyrir börn m/fullorðnum.
Miðvikudagsferðir í Þórsmörk
kl. 8.00. Dagsferð og fyrir sum-
ardvöl. Tröllafoss á miðviku-
dagskvöldiö kl. 20.00. Brottför
frá Umferöarmiöstöðinni, aust-
anmegin. Verið velkomin.
Feröafélag islands.
H ÚTIVIST
GRÓFINNI1 • REYKIAVÍK • UMIAÍUtViíi iaíki
Sunnudagur 8. júlí
Kl. 8.00 Básar
Dagsferð í Þórsmörk. i tilefni af
15 ára afmæli félagsins, sérstakt
afsláttarverö: Kr. 1.500.-. Brott-
för frá BSÍ - bensínsölu. Stans-
að við Árbæjarsafn.
Kl. 9.30 Þórsmerkurgangan
Breiðabakkavað - Oddi - Berg-
vað.
12. áfangi Þórsmerkurgöngunn-
ar. Gengin verður gamla þjóð-
leiðin úr Bjóluhverfi austur fyrir
Odda. Byrjað verður á því að
ferja yfir Ytri Rangá á Breiða-
bakkavaöi, ofan viö Hrauntófta-
ey. Sfðan verður gengið niður
að Kambhóli og þaðan að Odda.
Frá Odda verður haldið að Eystri
Rangá og ferja yfir ána á Berg-
vaði. Björgunarsveitin Dagrenn-
ing á Hvolsvelli aðstoðar við ferj-
un yfir báðar árnar. Staðfróðir
Rangæingar verða með í för.
Brottför frá BSI’ - bensínsölu kl.
9.30. Stansaö við Árbæjarsafn.
Brottför frá Fossnesti á Selfossi
kl. 10.30. og frá grillskálanum á
Hellu kl. 11.15. Verð kr. 1.200,-,
frá Hellu og Selfossi kr. 600,-
Kl. 13.30 Hjólreiðaferð
Hjólaður Hafravatnshringur.
Frekar létt leið um skemmtilegt
svæði fjarri þjóðvegi. Brottför frá
Árbæjarsafni. Verð kr. 200,-.
Sjáumst.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar fram-
undan:
Sunnudagur safnaðarsamkoma
kl. 11.00. Ræðumaður Haraldur
Guðjónsson. Barnagæsla. Al-
menn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Warren Flattery.
Fórn tekin vegna starfsins á
ísafirði. Barnagæsla.
Miðvikudagur biblíulestur kl.
20.30.
Föstudagur æskulýðssamkoma
kl. 20.30.
Laugardagur bænasamkoma kl.
20.30.
ÚTIVIST
GRÓFINN11 - REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Sumarleyfisferðir
Ferðist um ísland í sumarleyf-
inu i góðum félagsskap.
Hornstrandir eru engu
líkar!
11-20/7 Hornvík - Reykjafjörð-
ur. Gengið á fjórum dögum um
Hornbjarg, Barðsvík og Furu-
fjörð til Reykjafjarðar þar sem
dvalið verður í góðu yfirlæti tvo
síðustu dagana. Heit laug. Far-
arstjóri Gisli Hjartarson.
18-24/7 Hesteyri. Gróskumikill,
litríkur gróður. Tjaldbækistöð.
Ferð fyrir þá sem vilja kynnast
Hornströndum en treysta sér
ekki I bakpokaferð. Fararstjóri
Þráinn V. Þórisson.
13-20/7 Strandir - Reykjafjörð-
ur. Tjaldbækistöð í Reykjafirði.
Heit laug. Fariö í skemmtilegar
dagsferðir um nágrennið. Ferð
fyrir þá sem vilja kynnast Horn-
ströndum en treysta sér ekki i
bakpokaferð. Fararstjóri Reynir
Sigurðsson.
Þrjár góðar bakpokaferðir
11-15/7 Þjórsárdalur - Gljúfur-
leit. Gengið upp með Þjórsá inn
í Gljúfurleit. Farið um ósnortið
svæði, stórkostleg fjallasýn,
fossar og gjár. Fararstjóri Krist-
inn Kristjánsson.
15-20/7 Eldgjá - Þórsmörk. Ein
áhugaverðasta gönguleiðin af
Torfajökulssvæðinu til Þórs-
merkur. Göngutjöld. Fararstjóri
Trausti Sigurðsson.
24/7-29/7 Austfirðir. Bakpoka-
ferð á nýjar og fáfarnar slóðir.
Viðfjörður - Sandvík - Gerpir -
Vaðlavfk. Austfirðir bjóða upp á
mikla náttúrufegurð, friðsæld og
veöurblíðu. Þetta verður því ör-
ugglega bakpokaferð sumars-
ins. Fararstjóri Óli Þór Hilmars-
son.
Hjólreiðaferðir eru ódýr og holl-
urferðamáti. 7-11/7 Hlöðuvellir
- Haukadalur. Hjólaður Eyfirð-
ingavegur um Hlöðuvelli, niöur
við Gullfoss. Göngutjöld. Farar-
stjóri Egill Pétursson. Verð kr.
2.500,-
Þrjár stjörnuferðir
21/7-26/7 Norðurland: Nátt-
faravík - Grfmsey. Norður Kjöl.
Heimsóttir áhugaverðir og sögu-
frægir staöir á Norðurlandi,
gengið í Náttfaravík, sem er fög-
ur eyðibyggð við Skjálfandaflóa.
Hápunktur ferðarinnar verður
sigling í Grímsey. Svefnpoka-
gisting. Fararstjóri Kristinn
Kristjánsson.
25/7-1/8 Norðausturland:
Langanes - Hólmatungur -
Vesturdalir. Farið um fagurt
svæði, Ásbyrgi, Hólmatungur,
Jokulsárgljúfur, Dettifoss og Ald-
eyjarfoss skoðaðir. Norður um
Kjöl, suður um Sprengisand.
Tjöld og hús. Fararstjóri Þorleif-
ur Guðmundsson.
4/8-11/8 Kynnist töfrum há-
lendisins: Góður hálendis-
hringur: Trölladyngja - Snæfell
- Lagarfljótsgljúfur. Norður um
Sprengisand í Gæsavötn, til
baka um Suðurfirði. Hús og tjöld.
Fararstjóri Þorleifur Guðmunds-
son.
Austurrísku Alparnir
Það er ólýsanleg upplifun að
ganga um Alpana. í samvinnu
við samstarfsaðila í Austurríki
er verið að skipuleggja tveggja
vikna bakpokaferð síðari hluta
ágúst um austurrisku og svissn-
esku Alpana. Hagstætt verð.
Þeir, sem hafa áhuga, eru beðn-
ir að hafa samband við skrif-
stofu.
Pantið tímanlega í sumarleyfis-
ferðirnar!
Vinnuferð
Helgina 13.-15. júli verður farið
í vinnuferð að Skógum. Þátttak-
endur skrái sig fyrir miðviku-
dagskvöld 11. júlí. Allir velkomn-
ir.
Nánari upplýsingar og skráning
er i síma 40270 á kvöldin og í
síma 27855 á daginn.