Morgunblaðið - 07.07.1990, Side 29

Morgunblaðið - 07.07.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990 '77 29 fclk f fréttum ufsreSS r y*m m Þroskaðist um þijú ár við Islandsdvölina % Gabríela Aguilar Escobar, 18 ára skiptinemi frá Mexíkó, hefur dvalist á íslandi frá því í ágúst í fyrra, búið hjá fjölskyldu og gengið í skóla. Árið á íslandi er án efa eitt hið viðburðaríkasta í lífi hennar og hefur hún þurft að takast á við ýmislegt sem hana óraði aldrei fyrir að hún mundi upplifa. Fjölskylda Gabríelu í Mexíkó er mjög auðug og hafði hún aldrei tekið til hendinni áður en hún kom hingað. Hér prófaði hún í fyrsta skipti að btjóta sam- an fötin sín, þvo þvott, skipta um rúmföt, taka strætó, elda mat, vaska upp og fleira og fleira. Gabríela er hér á landi á vegum AFS en í upphafi hafði hún engan hug á að fara til íslands. Hún sótti um að fara til Bandaríkjanna eða Kanada og Evrópu hafði hún til vara, en AFS í Mexíkó sendi umsóknina hennar til Islands. Fjölskylda Gabríelu og allir vinir hennar reyndu að fá hana ofan af því að fara hingað — allir nema systir hénnar, sem hvatti hana, en hún hafði dvalist sem skipti- nemi t Bandaríkjunum árið áður. Gabríela lét úrtölur ekki hafa áhrif á sig þótt hún kviði dvölinni hér mjög. Hún fékk martraðir og faðir hennar lét biðja fyrir henni áður en hún hélt af stað. Hún hélt að hér væri allt á kaft í snjó allan veturinn og að húsin væru óupphituð. Hún kom því vel birg af hlýjum fötum — tók reyndar svo mikið með sér að varla var pláss fyrir það allt saman, enda herbergið hennar hér á stærð við fataskápinn hennar í Mexíkó. Auður og Páil Dungal eru fóst- urforeldrar Gabríeiu á íslandi. Dóttir þeirra, María, dvaldist sem skiptinemi í Bandaríkjunum vet- urinn 1988-1989 og fannst þeim hún þroskast mikið við þá dvöl. Þau vildu prófa að fylgjast með þroskabreytingu unglings og ák- váðu að hýsa skiptinema. Þau lásu sér til um Mexíkó áður en Gabr- íela kom og komust að því að þau vissu jafn lítið um Mexíkó og Gabríeia vissi um ísland áður en hún kom hingað. „Mér fannst eins og ég ætti von á barni,“ segir Auður, „og svo kom hún pínulítil, skjálfandi og hrædd.“ Þau segjast dást að kjarki hennar og að því að hún skyldi ekki láta kvíðann. og úrtöl- urnar draga úr sér. í heilan mán- uð langaði hana að fara heim aft- ur, svo komst hún yfir það og fór að lifa sig inn í ísland. Minnis- stæðust eru Gabríelu þau atvik sem hafa komið henni mest á óvart og allt það sem er ólíkast því sem tíðkast í hennar heimal- andi. Hún heldur að hún eigi eft- ir að sakna frelsisins sem hún hefur notið hér. „Heima þarf maður að fá leyfi fyrir öllu,“ seg- ir hún. Hér hefur verið komið fram við hana eins og hvern annan íslenskan ungling og þeir vilja nú helst ekki láta segja sér fyrir verk- um. Gabríelu líkar vel samheldni fjölskyldna hér. „Ég hitti foreldra mína næstum aldrei, ekki einu sinni á matmálstímum og sjaldn- ast um helgar. Húsið heima er svo stórt að þótt þar sé fullt af fólki, þá eru allir einir. Mér finnst frá- bært að búa í litlu húsi,“ segir Gabríela. Til að forðast misskiln- ing skal þess getið að hús Páls og Auðar er af íslenskri meðal- stærð. „Mér fannst gaman þegar það snjóaði fyrst og þegar ég fór fyrst í partí.“ Þá upplifði hún það að ein vinkona hennar vildi koma með henni á klósettið. Hún varð óskaplega vandræðaleg og vissi ekki hvernig hún átti að bregðast við en nú er hún vön því að stelp- ur fari saman á klósettið og þyk- ir það ekkert óeðlilegt. Hún hefur tekið upp ýmsa aðra íslenska „siði“ eins og að ganga í fötum sem eru ekki endilega hennar eig- in. María á vinkonu sem býr í næsta húsi og eru þær vanar að fá lánuð föt hver af annarri. Með- an blaðamaður var í heimsókn kom móðir vinkonunnar yfir með fullt fangið af fötum og spurði Gabríelu og Maríu hvort þær ættu ekki eitthvað af þeim. Þar með fékkst staðfesting á því að þær „systurnar“ stunda þá iðju í stór- um stíl, að lána og fá lánuð föt. Páll og Auður eru sannfærð um að Gabríela verður mun fær- ari um að bjarga sér hvar sem er í heiminum eftir árið hér. Gabr- íela sannaði það svo fyrir þeim dvaiist hérlendis í vetur á vegum AFS og verður þá reynt að utid- irbúa þá undir það áfall sem þeir og fjölskyldur þeirra hugsanlega verða fyrir þegar þeir snúa heim gjörbreyttir. Það mun sennilega ekki veita af fyrir Gabríelu að fá undirbúning og aðstoð en itún gerir sér fulla grein fyrir því að það verður ekki auðvelt að taka upp fyrra lífsmunstur eftir að itafa kynnst lífinu hér. Páil og Auður sögðu að það væri ekki síður lífsreynsla fyrir ljölskyldu að hýsa skiptinema en fýrir skiptinemann sjálfan. Það væri gaman að uppgötva ýmis smáatriði í hversdagslífinu í gegn- um nemann, þau upplifðu til dæm-. is sumarið og hinar björtu nætur mun sterkar en vanalega vegna Gabríelu. Þau hafa hvatt vini og kunningja til að fara að dænti sínu, en AFS tekur á móti 43 skiptinemum í sumar setn munu dvelja hér og ganga í skóla næsta vetur og enn vantar fjölskyldur fyrir nokkra þeirra. „Fólk heldur að það þurfi alltaf að vera heima og passa og ef það vinnur mikið þá geti það ekki haft skiptinema. Þó vita allit- að foreldrar sitja ekki yftr íslenskum unglingum , V. Egill Egilsson Hljómsveitin Risaeðlan leikur í Krókódílakjallaranuin en á neðri mynd er dansað í takt við tónlistina. TIMARIT Kynna 2000 Utgefendur tímaritsins 2000, sem kemur út alveg á næstunni, efndu til sérstaks kynningarkvölds í Laguna (Tunglinu) síðastliðið laugardagskvöld. Þótti góð stemmn- ing í húsinu enda var boðið upp á fjölbreytta skemmtidag- skrá. Fyrstir lásu Þorsteinn Gylfason, Ivristján Hrafnsson, Ari Gísli Bragason, Þorri Jóhannsson og Dagur Sigurðar- son upp ljóð. Þá var sýnt myndband með hljómsveitinni Pís off Keik. Þar á eftir fór fram tískusýning frá Skaparan- um og Spútnik og sveit, sem kallar sig Inferno 5, flutti tónlist. í Krókódílakjallaranum lék Risaeðlan fram eftir nóttu. Að auki var nokkuð um óvæntar uppákomur. Þeir sem gefa tímaritið 2000 út heita Þorsteinn Siglaugsson, Ari Gísli Bragason og Lars Emil Árnason. Auður, Páll, Gabríela og María. fyrir nokkrum vikum þegar hún labbaði sér niður í bæ og fékk sér vinnu án þess að biðja nokkurn mann að koma með sér. Það fylgdi reyndar sögunni að móðir hennar í Mexíkó myndi sennilega fá hjartaáfall ef hún vissi að hún ynni við að bera glös og þvo upp og það stundum langt fram á nætur, en eins og áður er komið fram þá hafði Gabríela varla difið hendi í kalt vatn áður en hún kom hingað. Núna hefur hún gaman af því að vinna heimilisstörf en hún er t.d. búin að læra að grafa lax og baka. Hún ætlar að taka með sér skyr og lakkrís þegar hún fer héðan en nú fer að styttast í það. Hún mun fara í ferðalag með öði'um skiptinemum sem hafa Morgunblaðið/RAX sínum á aldrinum 16 til 18 ára öllum stundum," segir Auður. Páll sagði að það mætti að sjálf- sögðu ekki gera of lítið úr þeirri fyrirhöfn sem því fylgir að hafa skiptinema en ánægjan sem fæst á móti sé margföld. „Það verða bara allir að vera jákvæðir.“ Auð- ur sagðist hugsa til þess með stolti að eiga „dóttur“ í Mexíkó sem hún hefði liaft mikil áhrif á og komið til nokkurs þroska. Páll tók svo djúpt í árinni að segja að Gabríela hefði þroskast um sem svaraði þremur til fjórum árum á þessu tæpa ári á íslandi. Gabríela sagði sjálf að hún hefði örugglega ekki lært eins mikið ef hún hefði farið til Bandaríkjanna eins og hún væri búin að gera á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.