Morgunblaðið - 07.07.1990, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990
37
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN A ITALIU
Carios Bilardo beitir
þýskri aðferð til sigurs
- hyggst nota svipaða leikaðferð og Vestur-Þjóðverjarnir í úrslitaleiknum á sunnudag
Maradona og Matthaus verða í sviðsljósinu í úrslitaleiknum í Róm á sunnudag. Þeir léku báðir úrslitaleikinn í
Mexíkó 1986. Þeir leika einnig báðir með ítölskum félagsliðum og eru ekki óvanir því að mætast sem andstæðingar í
leikvellinum.
í /
■ FRANS Beckenbauer ætlar
sér dtjúgan tíma til að jafna sig
eftir átökin á HM. „Eftir leikinn á
sunnudaginn hef ég nógan tíma —
næstu 40 árin — til að slappa af,“
sagði þýski þjálfarinn, sem lætur
af störfum eftir úrslitaleikinn. En
hann lét þess getið, að ef til vill
myndi hann koma aftur til Ítalíu,
og þá sem þjálfari. „Ég hef oft
sagt að ítalska deildin sé sú besta
í heiminum, og það væri vissulega
heillandi verkefni að þjálfa ítalskt
knattspyrnulið,“ sagði Becken-
bauer.
■ BRESKIR áhugamenn um
knattspyrnu virðast duglegir við að
lenda í vandræðum, jafnvel þótt
þeir séu fjarri áhorfendapöllunum.
Sex breskir ferðamenn á Majorku
voru sakaðir um að hafa átt þátt í
óeirðum þar í síðustu viku, þegar
þeir fögnuðu sigri sinna manna
gegn Kamerún. Sexmenningarnir
voru settir bak við lás og slá og
enn hefur ekki verið ákveðið hven-
ær verður réttað í máli þeirra, né
heldur hvort þeir verða látnir lausir
þangað til eða fá að dúsa í spænsku
fangelsi uns að réttahöldum kemur.
Ef hið síðarnefnda, geta Bretarnir
átt von á langri vist, því spænskt
réttarkerfi mun vera heldur sein-
virkt og gætu mánuðir eða ár liðið
áður en dómur verður kveðinn upp.
■ KJÖTMETI í of miklum mæli
og of lítið af kolefnaríku pasta olli
því að Vestur-Þjóðverjar áttu í
vandræðum með Tékka á HM.
Þessi er niðurstaða Franz Liesen,
læknis þeirra þýsku. „Þetta voru
næringarmistök," sagði læknirinn.
„Skortur á kolvetni olli vanda í
seinni hálfleik," útskýrði hann.
Beckenbauer þjálfari viðurkenndi
að leikmenn hefðu verið orðnir
þreyttir undir lok leiksins, en ástæð-
una taldi hann fremur vera of-
boðslegan sumarhitann á Ítalíu.
17 TAP Itala fyrir Argentínu- mönnum á HM á sér ef til vill aðra skýringu en þá, að þeir hafi ekki verið nógu góð- ir. Ástæðan gæti verið óhappatalan sautján. Að minnsta kosti telur ítalska dagblaðið II Messaggero slíkt mögulegt. Sautján er óhappatala á Ítalíu. II Messaggero benti á, að í Napólí á þriðjudaginn hafi ítalska landsliðið verið að spila sinn sautjánda leik á San Paolo leikvanginum, Schillaci hafi skorað mark ít- ala á sautjándu mínútu og Donadoni, sem misnotaði vítaspyrnu, hafi leikið í skyríu númer sautján.
CARLOS Bilardo, þjálfari Arg-
entínumanna, hófst handa á
fimmtudaginn, við að gera klárt
í titilvörnina á sunnudaginn.
Og svo undarlega vill til, að
útlit er fyrir að hann beiti vest-
ur-þýskum leikaðferðum.
Leikurinn á sunnudaginn verður
eins og að tefla skák,“ sagði
Bilardo, „og andstæðingarnir hafa
á að skipa manni sem ég myndi
vilja tefla fram.“ Hann á reyndar
ekki margra kosta völ, þar eð fjórir
argentískir leikmenn eru í banni,
þar af þrír sem voru í sigurliðnu
1986. Fjarvera þeirra gæti ráðið
úrslitum í leiknum, þar eð Bilardo
hefur kvartað undan því að hafa
ekki fengið nægan tíma til að ráða
ráðum sínum við leikmenn og leggja
þeim línurnar áður en mótið byrj-
aði. Og þótt hann geti fyllt í skörð
þeirra Giusti, Caniggia, Olarticoec-
hea og Batista, skortir varamennina
tilfínnanlega leikreynslu.
Leikaðferð 3-5-2
Þegar Argentínumenn sigruðu
Vestur-Þjóðveija í úrslitaleik HM í
Mexíkó 1986 beitti Bilardo þremur
varnarmönnum og fímm miðvallar-
spilurum og vængmennirnir tóku
virkan þátt í vörninni. Bilardo segir
að nú hyggist hann skipta væng-
mönnunum út og beita framlínu-
mönnum í staðinn til að auka hrað-
ann í sókn liðsins. Hann bætti því
við, að Beckenbauer hefði nú þegar
beitt þessari aðferð. „Þjóveijarnir
leyfa sér meira frjálsræði á miðj-
unni,“ sagði hann og gaf þannig í
skyn að ef til vill myndi hann fylgja
fordæmi þeirra.
„Miðjuspilið ræður úrslitum"
„Vandinn er mestur á miðjunni,
því mér þykir líklegt að þar muni
úrslitin ráðast," sagði Bilardo, enda
er stórt skarðið sem þeir Giusti,
Olarticoechea og Batista skilja eftir
sig. Tvö nöfn hafa verið nefnd,
Pedro Troglio og Jose Serrizuela.
Troglio leikur með ítalska liðinu
Lazio, og Serrizuela verið hefur í
vörn argentíska liðsins River Plate.
í stað Caniggia mun ef til vill koma
Gustavo Dezotti, argentískur fram-
heiji sem undanfarið hefur leikið á
Ítalíu. En Bilardo þjálfari hefur
ekki gefíð neinar vísbendingar um
það hvaða leikmenn munu fylla í
skörðin. Raul Madero, læknir arg-
entíska liðsins, segir að Burruchaga
og Maradona muni ná að jafna sig
af eymslum sem hafa hijáð þá eft-
ir tvo framlengda leiki.
„Þeir berjast uns yfir lýkur “
Beckenbauer var ekki svo viss
um að andstæðingar hans yrðu verri
fyrir vikið. „Þeir argentísku leik-
menn sem ekki hafa fengið að leika-
hingað til munu vilja sýna að þeir
hefðu átt að vera með frá byijun.
Þeir munu beijast uns yfír lýkur,
sagði Beckenbauer. Hann má þó
vita, að liðið hans, með þá Klins-
mann, Mattháus og Völler innan-
borðs, hefur alla burði til að bera
sigurorð af argentísku meisturun-
um.
Völler, Matthaus, og bakverðirnir
Berthold og Brehme léku í liði Þjóð-
veija í úrslitaleiknum í Mexíkó, en
í argentíska liðinu eru þrr leikmenn
sem léku í þeim leik, Maradona
Burruchaga og Ruggeri.
A sex undanförnum Heimsmeist
aramótum hafa Vestur-Þjóðveijai
fjórum sinnum leikið til úrslita Of
þar með sannað hæfileika sína sen
“mótslið,“ sagði Beckenbauer. „E:
til vill er þetta til marks um lundar
far Þjóðveija. Þegar þeir eru undi;
álagi verða þeir ekki taugaóstyrkir
heldur fyllast sjálfstrausti og vaxi
með vandanum. Vera má að þetti
sé leyndarmálið á bak við árangui
þýskra knattspyrnumanna."
Til mikils að vinna
Það lið sem ber sigur úr býtun
í Róm á morgun, jafnar met Bras
ilíumanna og Ítala, sem hafa þrisv-
ar unnið Heimsbikarinn. Argentínu-
menn urðu fyrst heimsmeistarai
árið 1978, þegar keppnin var haldii
í heimalandi þeirra, og svo unni
þeir titilinn í Mexíkó fyrir fjórun
árum. Vestur-Þjóðveijar sigruðu
Sviss árið 1954, og tuttugu árun
síðar hampaði Frans Beckenbauei
bikarnum á Ólympíuleikvanginun
í Múnchen, eftir að lið hans hafð
sigrað Hollendinga í eftirminnileg-
um úrslitaleik.
Sigri Þjóðvetjar á morgun, næi
Beckenbauer þeim einstæða ár
angri, að hafa verið bæði fyrirlið
og þjálfari sigurliða í Heimsmeist
arakeppni. En sá argentíski Bilardt
hefur forskot á Beckenbauer. Ef li<
hans vinnur leikinn á morgun, þ;
er það í fjórða sinn sem hann fagn
ar sigri argentíska landsliðsins i
því vestur-þýska, þar af tvisvar
heimsmeistarakeppni.
Sigur eða tap — báðir aðilar get;
haldið heimleiðis ánægðir með þani
árangur að hafa komist alla leið
úrelitaleik heimsmeistarakeppninn
ar í knattspyrnu.
■Úrslitaleikurinn verður sýndur
beinni útsendingu í sjónvarpinu í
sunnudag og í dag verður leikui
Englendinga og ítala um 3. sætið
Leikirnir heíjast kl. 18.00 en út-
sending RUV hefst kl. 17.45 báðg
dagana.
Bilardo segir leikinn á sunnudag eins og að tefla skák
„og andstæðingarnir hafa á að skipa manni sem ég myndi
vilja tefia fram.“
Beckenbauer segir að argentísku leikmennirnir sem
ekki hafa fengið að leika hingað til munu vilja sýna að
.þeir hefðu átt áð vera með frá byrjun.