Morgunblaðið - 07.07.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ Í990
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
1.DEILD
Morgunblaðið/KGA
Bjarni Sigurðsson, markvörður Vals og hetja, fær ekki leynt kæti sinni að lokinni taugatrekkjandi vítaspyrnukeppni
á Hlíðarenda í gærkvöldi. Varamarkvörður Vals, Lárus Sigurðsson, fagnar Bjarna. Til vinstri gengur fyrirliðinn og
brúðguminn, Þorgrímur Þráinsson, stoltur af velli, væntanlega ánægður með þessa óvenjulegu brúkaupsgjöf frá liðs-
monnum sinum.
,, Brúðkau psgjöf
til fyrirlidans“
- sagði Sævar Jó.nsson, eftirsigurVals á Fram ívítaspyrnukeppni
„ÞETTA var brúðkauspgjöf okk-
ar til fyrirliðans [Þorgríms Þrá-
inssonar] sem giftir sig á morg-
un. Þetta var gífurlega spenn-
andi leikur og sigurinn mjög
sætur,“ sagði Sævar Jónsson,
varnarmaður Vals, eftir að lið
hans hafði sigraði Fram í hreint
ótrúlega spennandi leik. Staðan
var 2:0 fyrir Fram þegar sjö
mínútur voru eftir en Valsmenn
náðu að jafna. Framarar komust
aftur yf ir en Valsmenn jöfnuðu
að nýju með umdeildu marki og
tryggðu sér svo sigur í víta-
spyrnukeppni.
Þegar sjö mínútur voru eftir
stefndi í öruggan sigur Fram,
staðan 2:0 eftir lagleg mörk frá
Guðmundi Steinssyni og Jóni Erl-
mgi Ragnarssyni.
Frosti B. En V alsmenn gáfust
Eiðsson ekki upp. Sævar
skrifar Jónsson minnkaði
muninn með skoti
utan vítateigs og tveimur mínútum
fyrir leikslok jafnaði Gunnar Már
Másson fyrir Val með skalla.
Framarar náðu forystunni að
nýju strax á þriðju mínútu fram-
lengingarinnar og á Pétur Ormslev
allan heiður af því. Hann lék frá
miðju inní vítateig Vals og skoraði
framhjá Bjarna Sigurðssyni sem
kom útúr markinu.
Fimm mínútum síðar átti sér stað
mjög umdeilt atvik. Gunnar Már
sótti að Kristjáni Jónssyni, varnar-
manni Fram, og féllu þeir báðir.
Bragi Bergmenn dæmdi vítaspyrnu
á þeim forsendum að Kristján hefði
kippt í Gunnar. Framarar voru mjög
ósáttir við dóminn og fékk Kristinn
R. Jónsson gult spjald vegna mót-
mæla. Sævar Jónsson skoraði úr
spyrnunni og jafnaði aftur, 3:3.
Nokkrum mínútum síðar var
Kristni vikið af leikvelli eftir návígi
við Antony Karl og varð það til að
auka enn óánægju Framara með
dómgæsluna.
Bæði lið fengu góð færi í síðari
hluta framlengingarinnar. Bjarni
Sigurðsson varði vel skot frá Pétri
Arnþórssyni og skalla frá nafna
hans Ormslev. Hinumegin átti An-
tony Karl skot af stuttu færi sem
Birkir varði vel.
„Við lékum ágætlega í fyrri hálf-
ieik en svona dómgæsla á ekki að
sjást í leik sem þessum,“ sagði Pét-
ur Arnþórsson, eftir leikinn.
Pétur Ormslev var bestur í liði
Fram og nafni hans Arnþórsson
átti einnig góðan leik. í liði Vals
var Sævar Jónsson bestur og Bjarni
QirmrAQQnn varði vpI
16-liða
úrslit
bikar-
keppni
KSÍ
Vítaspyrnukeppnin
0:0 Guðmundur Steinsson.......Bjarni ver
1:0 SævarJónsson.................skorar
1:1 PéturOrmslev.................skorar
2:1 Þórður Bogason...............skorar
2:2 Pétur Arnþórsson.............skorar
3:2 Antony Karl Gregory..........skorar
3:2 Baldur Bjarnason.........yfir markið
4:2 Snævar Hreinsson.............skorar
fráítvær
til þijár
vikur
Luka Kostic,
þjálfari og
leikmaður Þórs,
meiddist í leikn-
um gegn UBK í
bikarkeppninni á
fimmtudags-
kvöld. Hann
sagði eftir að
hafa farið í
læknisskoðun á
Akureyri í gær
að hann yrði frá
keppni í tvær til
þrjár vikur.
Hann fékk
slæmt högg á
hnéð og getur
ekki beygt fót-
Kostic
Kostic hefur verið einn besti leik-
maður Þórs í sumar og er mikið
áfall fyrir liðið að missa hann út.
Það má búast við að hann missi
af næstu þremur leikjum Þórs í 1.
deild gegn Víkingi, Stjörnunni og
ÍBV.
Hlynur Birgisson, leikmaður
Þórs, fékk fjórða gula spjaldið á
þessu keppnistímabili í bikarleikn-
um gegn UBK og verður væntalega
að taka út leikbann gegn Stjöm-
ur.ni 16. júlí.
Kostic
39
HANDBOLTI
Sovét-
maðurtil
Víkings
Sterkurvamar-
maðurfráfélags-
liði í 1. deild
íkingar hafa fengið til liðs
w við sig sovéskan leikmann,
Alexej Trufan, sem kemur til
með að leika með liðinu í vetur.
Hann er S1 árs hefur leikið Maí
Moskva sem leikur í 1. deild í
Sovétríkjunum. Hann þykir
sterk skytta og n\jög góður
varnarmaður og hefur m.a. leikr
ið með liðinu í Evrópukeppni
félagsliða.
Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari Víkings, fer utan i dag
til, að ganga frá samningum og
er búist við að Trufan komi til
landsins fljótlega.
1.DEILD KV.
ÖruggthjáKR
KR-stúlkur unnu öruggan sigur
á Þór í 1. deild kvenna í gær-
kvöldi. Leikurinn byijaði fjörlega
og voru komin þrjú mörk eftir tíu
mínútur. Hrefna Haróardóttir kom
KR yfir með skalla eftir hornspyrnu
strax á þriðju mínútu. Fimm mínút-
um síðar jafnaði Geróur Guðmunds-
dóttir leikinn fyrir Þór eftir varn-
armistök KR. Nokkru síðar gerði
Elísabet Tómasdóttir annað mark
KR með glæsilegu skoti utan af
hliðarlínu.
Skömmu fyrir leikhlé bættu KR-
ingar þriðja markinu við. þar var
Helena Ólafsdóttir að verki. Um
miðjan síðari hálfleik var Hrefna
enn á réttum stað þegar KR fékk
hornspyrnu, skallaði boltann fallega
í Þórsmarkið og innsiglaði öruggan
sigur KR.
BIKARKEPPNIN
Dregiðí
8-liða úrslil
ámánudag
Dregið verður í 8-liða úrslit
Mjólkurbikarkeppninnar á
mánudag. í pottinum verða; Valur,
Stjarnan, KR, ÍA, Víkingur, Sel-
foss, Breiðablik og ÍBK. Þegar
hafa fimm lið úr 1. deild fallið úr
keppni Þór, KA, ÍBV, Fram og FH.
Morgunblaðið/^orkell
Valdimar Kristófersson úr Stjörijmnni hefur hér betur í baráttunni
við" Guð'mund Hilmarssön várháímáhn FH. I
Grannar eru grönnum verstir
FH-ingar lágu fyrir grönnum sínum úr Garðabæ
ÞAÐ var enginn Argentínustimp-
ill á 2:1 sigri Stjörnunnar á FH
í 16-liða úrslitum bikarkeppninn-
ar í gærkvöldi. Stjörnumenn
voru betri aðilinn í þessum ná-
grannaslag en þurftu þó á fram-
lengingu að halda til að knýja
fram sigurinn.
Leikurinn var opinn og fjörugur
lengst af og oft sáust ágætir
samleikskaflar en aftur á móti var
fjörið oft á kostnað skynseminnar,
ggmg einkum í varnarleikn-
Guðmundur um. FH-ingar fengu
Jóhannsson fljúgandi start á 12.
skrifar mínútu en þá skoraði
Andri Marteinsson
glæsimark með þrumuskoti rétt utan
vítateigs. Knötturinn hafnaði rétt
updiij þvqrjslá án: þpps að Jón ,Otti
markvörður Stjörnunnar kæmi Vörn-
um við. Eftir markið sóttu Stjörnu-
menn í sig veðrið en skutu tvívegis
yfir úr upplögðum færum.
Síðari hálfleikur hófst eins og sá
fyrri endaði. Stjörnumenn áttu skalla
í stöng og skömmu síðar skalla_ sem
Halldór Halldórsson varði vel. Á 64.
mínútu bar erfiðið loks árangur. Há
sending barst inn fyrir FH-vömina
og þar kom Lárus Guðmundsson á
fljugandi ferð og lyfti boltanum yfir
Halldór markvörð í netið, 1:1. Við
þetta færðist enn meira fjör í leikinn
og bæði lið áttu hættulegar sóknir.
Hættulegasta færið átti Heimir Erl-
ingsson en hann skaut í stöng.
Þar sem jafnt var eftir venjulegan
leiktíma þurfti að framlengja leikinn.
I fyrri hluta framlengingárinnar fékk
Heimir Erlingsson sannkallað dauða-
I fæij en, skai^t yfir á óskiljanlegan
hátt. Á 119. mínútu (í upphafi siðári
hluta framlengingarinnar) kom síðan
sigurmarkið. Stjörnumenn tóku horn-
spyrnu og eftir barning barst boltinn
út að vítateig en þar var mættur
Ingólfur Ingólfsson og skoraði með
lúmsku skoti neðst í markhörnið
framhjá Halldóri markverði, 2.1.
Mun meiri kraftur var í Stjörnu-
mönnum en heimamönnum í leiknum
og áttu „gömlu mennirnir“ Svein-
björn Hákonarson og Lárus Guð-
mundsson ágætan leik. Sveinbjöm
dreif félaga sína áfram með baráttu
sinni og Lárus var mjög sprækur í
framlínunni. Ingólfur Ingólfsson og
Birgir Sigfússon áttu einnig góðan
leik og voru sívinnandi.
FH-ingar voru fremur daufir. Þeir
gátu leikið ágætlega saman á köflum
en liðið nær greinilega ekki eins vel
saman og í fvrra. ‘